Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2001, Side 3
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2001
19
DV
Spánarmótið
í tölum
Ísland-Egyptaland . 28-28 (13-13)
Patrekur Jóhannesson 11/4, Ólafur
Stefánsson 5/1, Erlingur Richardsson
4, Dagur Sigurðsson 4, Björgvin Þór
Björgvinsson 1, Gústaf Bjarnason 1,
Einar Örn Jónsson 1, Guðfinnur
Kristmansson 1.
Ísland-Spánn... 25-27 (12-13)
Guðjón Valur Sigurðsson 6, Einar
Örn Jónsson 5, Patrekur
Jóhannesson 5/2, Aron Kristjánsson
3, Ólafur Stefánsson 2, Erlingur
Richardsson 1, Róbert Sighvatsson I,
Heiðmar Felixson 1, Ragnar
Óskarsson 1.
fsland-Noregur .... 18-24 (11-9)
Ólafur Stefánsson 5, Patrekur
Jóhannesson 4, Aron Kristjánsson 3,
Guðjón Valur Sigurðsson 2, Róbert
Sighvatsson 2, Einar Öm Jónsson 1,
Ragnar Óskarsson 1.
Önnur úrslit á mótinu:
Spánn-Noregur..............29-22
Egyptaland-Noregur.........22-21
Spánn-Egyptaland ..........22-20
Lokstaðan:
1. Spánn 3 3 0 0 78-67 6
2. Egyptaland 3 111 70-71 3
3. Noregur 3 1 0 2 67-69 2
4. ísland 3 0 1 2 68-79 1
Svíar unnu
æfingamótið
Svíar unnu fjögurra þjóða
mótiö í Svíþjóö sem fór fram á
sama tíma og Spánarmótið.
Frökkum, sem léku þrjá leiki
hér á íslandi, dugði ekki sigur á
Þjóðverjum í síðasta leik til að
ná í annað sætið því það kom í
hlut Dana á markatölu. Það
vakti athygli að Þjóðverjar
töpuðu öllum þremur leikjum
sínum á mótinu og þar á meðal
með sjö mörkum gegn Dönum.
Úrslit mótsins:
Svíþjóð-Þýskaland .........23-21
Danmörk-Frakkland..........21-21
Svíþjóð-Frakkland ..........26-23
Danmörk-Þýskaland...........26-19
Svíþjóð-Danmörk.............26-24
Frakkland-Þýskaland.........25-22
Lokastaðan:
Svíþjóð 3300 75-68 6
Danmörk 3 111 71-66 3
Frakkland 3 1 1 1 69-69 3
Þýskaland 3 0 0 3 62-74 0
-ÓÓJ
Heiðrún
ekki meira
með í vetur
Heiðrún Guð-
mundsdóttir,
línumaður Vík-
ings í hand-
bolta, lék sinn
síðasta leik í
bili fyrir Víking
á móti FH um
helgina.
Heiðrún á
von á bami og
þarf ekki að hafa
mörg orð um það hve mikil blóð-
taka þetta er fyrir Víking,
Heiðrún er búin að vera einn
máttarstólpa liðsins undanfarin
ár. Fer þar annar leikmaður Vík-
ings úr byrjunarliðinu á þessu
tímabili. Þær misstu fyrirliða
sinn í öðrum leik íslandsmótsins,
Guðmundu Ósk, með slitin kross-
bönd. En sagt er að maður komi í
manns stað.
Heiðrún hefur nýtt 76% skota
sinna af línunni í vetur og gert 2,9
mörk að meðaltali sem er hvort
tveggja það besta hjá línumönn-
um í Nissandeild kvenna í vetur.
-BB/ÓÓJ
Sport
íslendingar höfnuðu í neðsta sæti
á fjögurra liða móti á Spáni sem
fram fór um helgina. Liðið gerði
jafntefli við Egypta í fyrsta leik, tap-
aði síðan naumt fyrir Spánverjum
en botninn datt úr leik íslenska liðs-
ins í þriðja leiknum þar sem sex
marka tap, 24-18, var staðreynd eft-
ir að íslendingar höfðu leitt i hálf-
leik, 11-9. Kannski ekki besta vega-
nesti fyrir heimsmeistarakeppnina
sem byrjar í Frakklandi eftir tíu
daga en íslenska liðið fær þó tæki-
færi til að byggja upp sjálfstraustið
með tveimur leikjum gegn Banda-
ríkjamönnum um næstu helgi. Þor-
björn Jensson, landsliðsþjálfari ís-
lands, ætlaði sér þó ekki að missa
neinn svefn yfir frammistöðu liös-
ins þegar DV náði tali af honum á
Spáni i gær.
Misstum slagkraft
„Það kom í ljós i leiknum gegn
Norðmönnum að við þurfum að
hafa stóru mennina okkar til að
vera ógnandi í sóknarleiknum. Ég
hvildi Dag þar sem hann á við smá-
vægileg meiðsli að striða og ekki
bætti úr skák að Patrekur fékk
rautt spjald þegar tíu mínútur voru
til loka fyrri hálfleiks og þótti
mönnum það ansi strangur dómur.
Þegar þessara tveggja leikmanna
naut ekki við þurftum við að nota
menn eins og Ragnar, Aron og Guð-
jón Val í skyttuhlutverki og það
kom í ljós í dag að það er mjög
erfitt.
Norðmennirnir spiluðu vömina
aftarlega í seinni hálfleik sem gerði
litlu mönnunum erfitt um vik og
gott dæmi um það er að við töpuð-
um níu boltum í seinni hálfleik en
aðeins einum í þeim fyrri. Við átt-
um aldrei möguleika í Norðmenn í
síðari hálfleik og leikurinn var
heldur ójafn,“ sagði Þorbjöm Jens-
son.
Varnarleikurinn virkaöi vel
„Það sem ég er ánægðastur með í
mótinu er að vamarleikur liðsins
var góður. Við prófuðum nýja varn-
Patrekur
með
langflest
mörkin
Patrekur Jóhannesson skoraði
langflest mörkin á mótinu á
Spáni eða 20 í leikjunum þremur
en hann var með 11 mörk í
fyrsta leiknum gegn Egyptum.
Mörk íslenska liðsins á
Spánarmótinu gerðu annars
eftirtaldir:
Skyttur ..............34/7
Patrekur Jóhannesson.20/6
Ólafur Stefánsson.....12/1
Heiðmar Felixson.........1
Guðfinnur Kristmannsson....1
Leikstjómendur .......12
Aron Kristjánsson......6
Dagur Sigurðsson.........4
Ragnar Óskarsson.........2
Línumenn.................8
Erlingur Richardsson...5
Róbert Sighvatsson......3
Hornamenn...............17
Guöjón Valur Sigurðsson .8
Einar Örn Jónsson......7
Björgvin Þór Björgvinsson .1
Gústaf Bjarnason ..........1
araðferð og hún gekk vel. Fyrir mót-
ið var ég smeykur um að beita þess-
ari aðferð gegn Spánverjum því ég
hélt að þeir myndu finna svör viö
henni en svo reyndist ekki vera. Við
töpuðum þeim leik á slökum sókn-
arleik þar sem þeir skoruðu þrettán
mörk úr hraðaupphlaupum.
Við erum hins vegar klaufalegir í
brotum og erum alltof oft einum
ieikmanni færri. Þetta er hlutur
sem við þurfum að bæta fyrir HM í
Frakklandi því andstæðingarnir
eru nógu erfiðir þegar jafnt er í
liðum.“
Noregsleikurinn sýndi margt
„Noregsleikurinn var góður fyrir
mig að mörgu leyti. Hann sýndi
glöggt hvar skórinn kreppir hjá
liðinu. Hann sýndi að við þurfum að
hafa stóra og sterka menn fyrir
utan sem geta ógnað með skotum.
Annað gengur ekki á alþjóðlegan
mælikvarða og ef við höfum ekki
okkar öflugustu menn er hætt við
því að lendum í vandræðum. í
leiknum kom líka glögglega í ljós að
ef við spilum góða vöm, eins og við
gerðum í fyrri hálfleiknum, þá
erum við fyllilega samkeppnishæfir
við önnur lið. Við þurfum hins
vegar aö laga sóknarleikinn sem
var á köflum heldur slakur.
Höfum tíu daga
Nú höfum við tiu daga fram að
fyrsta leik í HM gegn gömlu vinum
okkar, Svíum, og sá tími ætti að
nægja til þess að fá menn, sem eiga
við smámeiðsli að stríða, heila og
sníða af þá vankanta sem komið
hafa fram í þessum æfingaleikjum
að undanförnu.
Það er frábært að fá þetta mót til
þess að láta reyna á liðið og ég er
ekki í vafa um að við veröum
tilbúnir í slaginn í Frakklandi eftir
tíu daga,“ sagði Þorbjörn Jensson,
landsliðsþjálfari í handknattleik,
eftir að strákamir hans höfðu lent í
neðsta sæti á fjögurra þjóða móti á
Spáni sem lauk í gær.
-ósk