Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2001
Fréttir I>V
Formaður Öryrkjabandalagsins um þátt forseta í lagasetningu:
Forsetinn á þetta
viö eigin samvisku
- neiti Ólafur Ragnar undirritun verður málinu skotið til þjóðarinnar
„Við værum ekki sjálfum okkur
samkvæm ef við vildum ekki að
forsetinn hafnaði undirritun þess-
ara laga sem á að keyra í gegnum
Alþingi," sagði Garðar Sverrisson,
formaöur Öryrkjabandalagsins, í
gærkvöldi, aðspurður um af-
greiðslu öryrkjafrumvarpsins og
framhald þess eftir að þingið hefur
afgreitt þaö til forseta íslands.
Garðar segir að forsetinn sé kom-
inn í alvarlega stöðu verði honum
sýnt það virðingarleysi af Alþingi
að fara þess á leit að hann staðfesti
og gerist meðábyrgur í áframhald-
andi brotum á mannréttindum ör-
yrkja, sem séu tryggilega vernduð
í stjórnarskrá lýðveldisins.
„Forseti íslands mun auðvitað
eiga það við eigin samvisku hvort
hann ætlar að láta þetta fólk hafa
sig út í að staðfesta og gera aö lög-
um frumvarp sem felur i sér jafn-
ótvíræða árás á Hæstarétt og
margvísleg brot sem sum hver, ef
ekki öll, eiga ef til vill eftir að
koma til kasta dómstóla," sagði
Garðar.
„Hér er ekki einungis um að
ræða forseta lýðveldisins heldur
einnig okkar fremsta fræðimann á
sviði stjómmálafræða og þeirrar
heimspeki sem liggur til grund-
vallar þrískiptingar ríkisvaldsins.
Slíkur maður þarf engar leiðbein-
ingar utan úr bæ til að taka sjálf-
stæða ákvörðun," sagði Garðar.
Garðar bendir ennfremur á að
forsetaefnin í síðustu forsetakosn-
ingum, öll utan eitt, hafi lagt
áherslu á að forseti skyldi í aukn-
um mæli beita málskotsréttinum.
Núverandi forseti lýsti því meðal
annars yfir þá að hann hefði nýtt
sér þann rétt hefði hann verið for-
seti þegar EES-samningurinn kom
til undirritunar forseta.
Forseti íslands hefur enn sem
komiö er ekki notfært sér mál-
skotsrétt sinn, það er að skjóta til-
teknu máli til úrskurðar þjóðar-
innar. En hvað gerist ef forseti
neitar að undirrita lög og nýtir sér
þennan lögbundna rétt sinn? DV
spurði Sigurð Líndal lagaprófess-
or:
„Það sem gerist er að lagafrum-
varpið öðlast eigi að síður gildi en
skal síðan borið undir þjóðarat-
kvæði svo fljótt sem verða má,“
sagði prófessorinn. Lögin skal
leggja undir atkvæði allra kosn-
ingabærra manna í landinu til
samþykktar eða synjunar í leyni-
legri atkvæðagreiðslu. Lögin falla
úr gildi ef samþykkis er synjað en
ella halda þau gildi sínu.
„Það má segja að Alþingi fái
eins konar bráðabirgðalöggjafar-
vald og hlutverkin snúast við,“
sagði Sigurður Líndal. Hann segir
að málskotsréttur forseta hafi ver-
ið til umræðu allt frá stofnun lýð-
veldisins. Hingað til hefur forseti
ekki nýtt sér þennan rétt.
-JBP
Öryrkjamálið í
aðra umræðu
Meirihluti heilbrigðisnefndar Al-
þingis leggur til að öryrkjafrumvarpið
verði samþykkt óbreytt, minnihlutinn
að málinu verið vísað frá. Málið fer í
aðra umræðu í dag. Kristinn H. Gunn-
arsson, einn meirihlutamanna, sagði
að þetta væri gert eftir að ýmsir sér-
fræðingar sem kallaðir voru til hafa
lýst áliti sínu á stjórnarskrárþættin-
um. „Það var nú yfirgnæfandi álit
þeirra að rétt væri að túlka dóm
Hæstaréttar eins og frumvarpið ger-
ir,“ sagði Kristinn í gær. Þarna vísar
hann til álits Jóns Steinars
Gunnlaugssonar, Sigurðar Líndals,
Eiriks Tómassonar og Skúla Magnús-
sonar. Kristinn segir afleitt að Hæsti-
réttur skili ekki af sér ótvíræðri nið-
urstöðu.
„Við höldum þeim skilningi okkar
til streitu að dómur Hæstaréttar gangi
út á bannað hafi verið að skerða
tekjutryggingu öryrkja með tekjum
maka. Því beri að leiðrétta að fullu en
ekki að hluta eins og ríkisstjórnin
leggur til,“ sagði Bryndís Hlöðvers-
dóttir alþingismaður. „Við höfum víð-
tækan stuðning við þá skoðun okkar
hvarvetna í þjóðfélaginu." -JBP
DV-MYND KOLBRÚN
Rignir endalaust
Elstu Vestfiröingar muna vart annaö eins tíöarfar og veriö hefur aö undanförnu. Auö jörö er um allar byggöir og skíöi
og skautar hafa rykfallið í geymslum. Börnin á ísafiröi una glöö viö aö drullumalla. Hér eru þau Steinn Daníel, Hildur
Ása, Sigrún og Ragnar Óli í pollagöllum sínum viö Hlíöarveg.
Borgarstjórn vill sameignarfélag um almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðis:
Dulbúin einkavæðing á SVR
- segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sem óttast um hag starfsfólks
Borgarstjórn Reykjavíkur fékk ný-
lega í hendur skýrslu Skúla Bjarna-
sonar hæstaréttarlögmanns þar sem
tillögur um breytt rekstrarfyrirkomu-
lag almenningssamgangna á höfuð-
borgarsvæðinu koma fram.
Skýrslan leggur til stofnun sam-
eignarfélags sveitarfélaganna á svæð-
inu og hefur það hlotið góðan hljóm-
grunn hjá borgaryfirvöldum, sem þeg-
ar hafa lagt grunn að samstarfi við ná-
grannasveitarfélögin. ögmundur Jón-
asson, formaður Bandalags starfs-
manna ríkis- og bæja, segir borgina
farna af stað í feril einkavæðingar
Strætisvagna Reykjavíkur og krefst
skýringa af hálfu borgarstjómar.
„Ég fæ ekki betur séð en að einka-
væðing SVR sé komin á fulla ferð,
þvert á fyrirheit sem gefin hafa verið.
Samkvæmt skýrslunni sem gerð var
fyrir Reykjavíkurborg og þeim hug-
myndum sem kynntar hafa verið
starfsmönnum SVR er verið að inn-
leiða markaðsmekanisma. Lagt er til
að stofnað verði sameignarfélag með
grannbyggðum Reykjavíkur sem geri
það tvennt í senn, aö reka þessa þjón-
ustu og bjóða hana út, sem þýðir að
almenn fyrirtæki stunda reksturinn,"
segir hann.
Helgi Pétursson, formaður sam-
göngunefndar Reykjavíkurborgar, vís-
ar því á bug að fyrirætlanir borgar-
innar séu að einkavæða almennings-
samgöngur.
„Verið er að tala um sameignarfé-
lag sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu. Þetta er ekki félag sem
menn halda að geti grætt peninga
heldur er verið að sameinast um
þennan rekstur og efla almennings-
samgöngur á svæðinu. Það er verið að
gefa með þessu tæpan milljarð á
hverju ári og það er ekki um það að
ræða að einkavæða," segir hann.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgar-
stjóri í Reykjavik,
segir mögulega
stofnun sameignarfé-
lags ekki leiða til
einkavæðingar.
„Slökkviliðin á
höfuðborgarsvæðinu
voru sameinuð mjög
friðsamlega og ég get
ekki séð að samein-
ing almenningssamgangna þurfl að
vera neitt frábrugðin. Ef menn hefðu
viljað einkavæða SVR þá væri það vel
hægt án sameiningar," segir hún.
í umræddri skýrslu Skúla Bjarna-
sonar segir orðrétt: .Félagið starf-
ræki almenningsvagnaþjónustu á
svæðinu á einu leiðakerfi og leiti
hverju sinni að hagkvæmustu leiðum
í rekstri og starfrækslu þess, hvort
heldur það notar til þess eigin vagna-
flota eða aðkeypta þjónustu."
Borgarstjóri segir ekki útilokað að
útboðsleiðin verði farin í Reykjavík.
„Það liggur fyrir að Almennings-
vagnar bjóða út hluta af sinni starf-
semi i dag og að öllu óbreyttu yrði því
haldið áfram i sameinuðu fyrirtæki.
SVR hefur verið með reksturinn á sín-
um vegum og það er gert ráð fyrir því
að það sé hægt að haga því þannig að
reksturinn sé bæði á vegum félagsins
sjálfs og hins vegar boðinn út,“ segir
Ingibjörg Sólrún.
BSRB mun í dag óska eftir formleg-
um viðræðum við borgina um áform
hennar sem að mati Ögmundar hafa í
fór með sér réttindamissi og kjara-
rýrnun starfsfólks.
„Reynslan hefur sýnt að þegar um
óvinsæla einkavæðingu er að ræða er
mönnum fyrst gefin ein teskeið en svo
hellt úr öllum brúsanum ofan í mann.
Og það hefur sýnt sig að einkavæðing
á þessu sviði er dýrari fyrir skatt-
greiðendur og óhagkvæmari fyrir not-
endur og starfsfólk," segir hann.
Málið kann að reynast Reykjavík-
urlistanum erfitt þar sem Ögmundur
Jónasson er fyrsti þingmaður Vinstri
grænna í Reykjavík. Nái endar ekki
saman á milli þessara tveggja flokka i
borgarpólitíkinni er líklegt að R-list-
inn verði fyrir sama tjóni og Samfylk-
ingin í landsmálunum og missi borg-
ina. -jtr
Metaðsókn
200 konur hafa
skráð sig til þátt-
töku í námskeiðinu
Konur í kjafti karla
sem Jónína Bene-
diktsdóttir mun
halda í dag klukkan
tvö á Grand Hótel
Reykjavík. Um met-
aðsókn er að ræða.
Hátæknigarður
Stefnt er að því að hefja fram-
kvæmdir i haust við hátæknigarð
við Urriðakotsvatn í Garðabæ.
Markmiðið er koma sem flestum
fyrirtækjum í tölvu- og hugbúnaðar-
geiranum saman á einn stað en
einnig skólum og rannsóknarstof-
um á sviði hátækni. Stöð 2 greindi
frá.
Ekki langlífastar
íslenskar konur er ekki lengur
meðal langlífustu kvenna í heimin-
um samkvæmt nýjustu lýðfræði-
skýrslu. Meðalaldur íslenskra
kvenna var sá hæsti í heimi fyrir
fimmtán árum en þær eru nú í 13.
til 16. sæti með konum i Belgíu,
Austurríki og Grikklandi. RÚV
greindi frá.
60 milljónir umfram
Rekstrarkostnaður Ibúðarlána-
sjóðs var 60 milljónum króna um-
fram það sem gert var ráð fyrir í
fjárlögum. Alls var rekstrarkostnað-
urinn 652 milljónir króna á árinu
2000 samkvæmt bráðabirgðaupp-
gjöri. Mbl. greindi frá.
Innbrot hjá saksóknara
Innbrot var framið á heimili Boga
Nilssonar ríkissaksóknara á fostu-
dagskvöldið. Stolið var nokkrum
heimilismunum. Lögreglan hefur
haft hendur í hári þjófanna sem
voru tveir og eru þeir góðkunningj-
ar lögreglunnar. Þýfið fannst í kjall-
ara veitingahúss í miðbænum. RÚV
greindi frá.
Barnahús áfram í eitt ár
í lögum um meðferð opinberra
mála þarf að endurskoða ákvæði sem
snýr að skýrslutöku af börnum vegna
kynferðisbrota. Þetta er meðal þess
sem kemur fram í skýrslu um starf-
semi barnahúss. Lagt er til að starf-
semin verði framlengd til reynslu í
eitt ár. Sjónvarpið greindi frá.
Sjókvíaeldi kært
Sýslumaðurinn í Keflavík hefur
fengið til rannsóknar kæru vegna
sjókvíaeldis fyrirtækisins Silungs
ehf. á norskum laxastofnum. Kært
var fyrir hönd eigenda Haffjarðarár
og Verndarsjóðs villtra laxa en þess-
ir aðilar óttast mengunarslys verið
ekkert aðhafs. Dagur greindi frá.
Vilja leiðréttingu
Starfsmenn fjölskyldu- og félags-
þjónustu Reykjanesbæjar sem allir
eru konur hafa fariö fram á leiðrétt-
ingu launa sinna. Konurnar halda
þvi fram að þeim sé mismunað á
grundvelli kyns. Ellert Eiríksson,
bæjarstjóri i Reykjanesbæ, bendir á
að laun kvennanna séu kjarasamn-
ingsbundin. Bylgjan greindi frá.
Geir á að svara
Umboðsmaður Alþingis hefur
óskað eftir þvi að
Geir Haarde og fiár-
málaráðuneytið
skili lagalegum rök-
stuðningi á því af
hverju skattur sé
greiddur af húsa-
leigubótum en ekki
vaxtabótum. Þetta
er gert í framhaldi af erindi Leigj-
endasamtakanna. Dagur greindi frá.
-MA