Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Side 4
4
MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2001
DV
Fréttir
Sverrir Hermannsson endurkjörinn formaður Frjálslynda flokksins:
Misskilningur að flokkur-
inn sé fjölskyldufyrirtæki
- Sjálfstæðisflokkurinn tilheyrir Hannesi Hólmsteini
DV-MYNDIR ÞÖK
Víöari flokkur.
Frá landsfundi Frjálslyndra, frá vinstri: Birgir Björgvinsson, formaöur Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, Sverrir Hermannson, formaöur fiokksins, og Guö-
jón Arnar Kristjánsson, nýkosinn varaformaöur flokksins.
„Það hefur verið litið á okkur
sem einskonar eins máls flokk, en
nú erum við búin að vinna breið-
an málefnagrundvöll og kynntum
hann og okkar grundvallarstefnu.
Við veljum flokknum nafn og
númer og innihald á frjálslyndra
flokka alþjóðavísu, reyndar á ís-
lenskum grunni,“ sagði Sverrir
Hermannsson sem kjörinn var
formaður Frjálslynda flokksins á
landsfundi um helgina. „Við
erum auðvitað einkaframtaks-
flokkur. Við erum frjáls markaös-
flokkur, en viljum ekki að mark-
aðurinn sé stjórnlaus, við viljum
hafa á honum bönd, en ekki
stjórnlaust frelsi eins og garparn-
ir vilja hafa og hefur sýnt sig í að
vera í meira lagi óhollt," sagði
Sverrir.
Frjálslyndlr
Vaidimar Jóhannesson á miöri mynd
í hópi frjálslyndra á landsfundinum
en vel á annaö hundraö manns sátu
setningarathöfnina.
Frjálslyndi flokkurinn ætlar að
halda fast við sina stefnu í sjávar-
útvegsmálum og Sverrir segir að
flokknum vegni sæmilega í þeirri
baráttu. Flokkurinn vill líka
auka og efla tæknimenntun,
einnig framhaldsmenntun og fjar-
kennslu í byggðarlögunum.
„Þessum málum var ákaflega vel
tekið og ef við komum þessu á
framfæri, þá munum við ná rót-
festu.“ sagði Sverrir sem segir að
Frjálslyndi flokkurinn muni taka
á mörgum þjóðþrifamálum á
næstunni.
Flokkur Hannesar Hólmsteins
„Ég var í flokki sem ég þjónaði um
áratuga skeið sem var einkafram-
taksflokkur en var flokkur frjálsrar
samkeppni, flokkur sem predikaði
stétt með stétt. Núna er þetta flokkur
Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar
sem vill skara eld að köku örfárra
auðmanna. Og hann er ekki lengur
flokkur frelsis einstaklingsins, sem
er bannað að sækja 1 sína eigin auð-
lind, heldur er þjóðarauðurinn mul-
inn undir fáeina útvalda. Minn
frjálslyndi flokkur mun fylla það
skarð sem hinn stóri gamli flokkur
hefur að þessu leyti yfirgefið.
Sjálfstæðisflokkurinn yfirgaf mig
en ég ekki hann, og okkur Matthías
Bjarnason og marga fleiri,“ sagði
Sverrir.
„Davíð endar sínar ræður á að
minna á siðferðið, en Robespierre
hinn franski sem stýrði fallöxinni
sem vann dag og nótt i frönsku
byltingunni, minnti ævinlega á að
tala um dyggðina. En þetta er nú
meira í gamni sagt,“ sagði Sverrir
Hermannson.
Dóttir í fótspor föður
Þriðji maður í stjórn Frjálslynda
flokksins er Margrét Sverrisdóttir,
dóttir Sverris Hermannssonar.
Sumir vilja meina að Frjálslyndi
flokkurinn sé einskonar fjölskyldu-
fyrirtæki.
„Það er algjör misskilningur. Að
vísu hefur dóttir mín verið fram-
kvæmdastjóri flokksins og þing-
flokksins og hefur alveg bjargað lífi
mínu og flokksins. Hún er mikil
framtíðarmanneskja fyrir flokkinn,
enginn vafi á því, - þó hún sé nú
dóttir mín,“ segir Sverrir og kímir.
„Það hefur ekki þótt neitt tiltöku-
mál þegar synir feta í fótspor feðr-
anna i pólitík, Steingrímur sonur
Hermanns, Jón Baldvin sonur
Hannibals og svo framvegis. En ef
það er dóttir, þá er það nú allt
öðruvísi," sagði Sverrir Hermann-
son.
-JBP
íþróttamaður ísafjarðarbæjar:
Tók við af bróður sínum
DV. ÍSAFJARQARBÆ:
Kjör íþróttamanns ársins fyrir
árið 2000 fór fram í veglegu hófi sem
haldið var í stjómsýsluhúsinu á ísa-
firði í gær.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
ísafjarðarbæjar, tilkynnti hver
hefði hlotið titilinn þetta árið.
Fyrir valinu varð Katrín Árna-
dóttir sem keppir fyrir Skíðafélag
ísfirðinga,
Katrín er glæsilegur fulltrúi
íþróttamanna í ísafjarðarbæ og
vann hún öll þau mót sem hún á
annað borö keppti í.
Katrín tekur við titlinum íþrótta-
maður ársins í ísafjarðarbæ af bróð-
ur sínum Ólafi Th. Ámasyni sem
kosinn var fyrir árið 1999, einnig
fyrir afrek í skíðaíþróttum.
Katrín er yngst sinna systkina, 17
ára gömul, og nú bíða menn spennt-
ir hér vestra hvort systkinabörn
hennar sem eflaust em farin að
stiga á skíði eigi eftir að standa í
sporum hennar og Ólafs bróður
hennar i framtíðinni. -KS
DV-MYNDIR KOLBRÚN
Best
Katrín Árnadóttir skíöamaður var valin
íþróttamaöur ársins. Á innfelldu
myndinni er hún meö foreldrum sínum
þeim Kristínu Gísladóttur og Árna
Traustasyni.
'Msðiiiiiö li Ha/ÖiMI
B Séliar.gamigaiir sjiáiv/as'fiSI
REYKJAVIK AKUREYRI
löBóift á baágpaw
Vaxandi austanátt
Vaxandi austanátt í dag, víða 15 til 20 m/s
síðdegis og fer að rigna sunnan- og
austanlands undir kvöld. Hiti 1 til 7 stig.
Solarlag i kvöld 16.43 16.11
Sólarupprás á morgun 10.34 10.35
Síödeglsflófi 17.41 22.14
Árdeglsflófi á morgun 06.04 10.37
Skýringar á veðurtáknum
^INDÁTT 10V-HIT.
“i 10°
XVINDSTYRKUR \roncr HEIÐSKIRT
i metrum á sekúndu
-$> -*D ^3 O
IÉTTSKÝJAÐ HÁLF* SKÝJAÐ AISKÝJAÐ
SKÝJAÐ
RIGNING SKURIR SLYDDA SNJÓKOMA
ÉUAGANGUR ÞRUMU*
VEOUR
=
SKAF- ÞOKA
RENNINGUR
Upplýsingar um færðina
Upplýsingar um færð á vegum er hægt
að fá á heimasíðu Vegagerðarinnar.
Einnig er hægt aö fá upplýsingar um
færö meö þvf að hringja í símsvara hjá
Vegageröinni eða skoöa síöur um færö
og veöur á Textavarpinu.
Rigning sunnan- og austanlands
Austan 10 til 18 m/s, hvassast viö suöurströndina. Rigning sunnan- og
austanlands en annars úrkomulítið. Hiti 3 til 7 stig.
þ]CTJM£i.Air
Vindur: "S r"
8—13 m/s
Hiti l°til5a W8&
Fiimmfetiji
Vindur:
5-15 ny's
Hiti 0° «1 4°
Vindun /■r'
5-15 tn/s
Hiti 0° til 4®
Suftaustan- og austanátt,
8 til 13. Skúrir sunnan- og
austanlands en annars
úrkomulítlö. Hltl 1 tll 5
stlg, svalast vestanlands.
Noröaustanátt,
strekkingur norövestan tll
en annars hægari.
Slydduél norfian- og
austanlands en annars
úrkomulaust.
Norfiaustanátt og él á
Vestfjörfium en annars
sufiaustlæg efia breytileg
átt. Rlgnlng efia súld
sunnan- og austanlands.
Hltl 0 tll 4 stlg.
Snæfellsbær
á teppið hjá
eftirlitsnefnd
DV, SNÆFELLSNESI:_________
Bæjarstjóri Snæfellsbæjar var á
fundi með eftirlitsnefnd sveitarfé-
laga i gær og var niðurstaðan sú að
nefndin vildi koma þeim skilaboð-
um á framfæri að ekki væri mikið
svigrúm til framkvæmda á næstu
árum en ef menn gættu aðhalds í
fjárfestingum á næstu 3-4 árum þá
sæi fyrir endann á erfiðleikum
sveitarfélagsins í fjármálum.
-DVÓ
Akureyri:
Peningaskáp
stolið
Brotist var inn í Umferðarmið-
stöðina i Hafnarstræti á Akureyri
aðfaranótt sunnudags og stolið það-
an peningaskáp sem vegur á annað
hundrað kíló. Lögreglunni á Akur-
eyri barst tilkynning um innbrotið
á sunnudagsmorgun og er talið að
um 80 þúsund krónur hafi verið i
skápnum sem þjófarnir höfðu á
brott með sér. Þjófarnir komust inn
með því að skríða inn um glugga
sem þeir höfðu spennt upp en engin
þjófavöm var í húsinu. Að sögn lög-
reglunnar eru þjófarnir ófundnir en
málið er í rannsókn. -MA
Árekstur á
Hellisheiði
Harður árekstur varð i Hvera-
dalabrekku á Hellisheiði um hádeg-
isbil á laugardag. Að sögn lögregl-
unnar á Seifossi voru tildrög slyss-
ins þau að jeppi á leið austur missti
stjóm á bíinum í krapa og lenti
utan í fólksbifreið sem var ekið í
gagnstæða átt.
Tvennt var í fólksbílnum en öku-
maðurinn var einn í jeppanum.
Engin slys urðu á fólki, en allir
voru í bílbeltum. Báðir bílarnir
skemmdust mikið og varð að draga
fólksbifreiðina, sem var af gerðinni
Mercedes Benz, í burtu með krana-
bíl. -MA
1 VfeAr.ii» y„ ð Æ/.' ::
AKUREYRI skýjaö 6
BERGSSTAÐIR skýjaö 8
BOLUNGARVlK rigning 6
EGILSSTAÐIR 6
KIRKJUBÆJARKL. skúrir 7
KEFLAVÍK skýjað 3
RAUFARHÖFN skýjaö 4
REYKJAVÍK rigning 3
STÓRHÖFÐI rigning 3
BERGEN skýjaö 3
HELSINKI hálfskýjaö -6
KAUPMANNAHÖFN (U o -O. 2
ÖSLÓ snjókoma -3
STOKKHÓLMUR þoka -2
ÞÓRSHÖFN rigning 5
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 2
ALGARVE þoka 13
AMSTERDAM þoka 1
BARCELONA léttskýjaö 11
BERLÍN snjókoma -1
CHICAGO skýjað -12
DUBUN skýjaö 7
HALIFAX snjókoma -7
FRANKFURT léttskýjað -1
HAMBORG þoka 1
JAN MAYEN skýjaö 2
LONDON rigning 3
LÚXEMBORG þoka -2
MALLORCA léttskýjaö 15
M0NTREAL heiöskírt -20
NARSSARSSUAQ léttskýjað -17
NEWYORK snjókoma -5
ORLANDO heiöskírt 2
PARÍS rigning 3
VÍN alskýjaö 1
WASHINGTON skafrenningur -5
WINNIPEG alskýjaö 11