Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Qupperneq 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2001
I>V
Hogni Hoydal
Færeyski landstjórnarmaöurinn um
sjálfstæöismál vill efla samstarf jaö-
arþjóðanna á Norðurlöndum.
Færeyingar vilja
fulla aðild að
Norðurlandaráði
Færeyska landstjórnin stefnir að
því að á næstu árum verði Færeying-
ar sýnilegri í norrænu samstarfi og
að hlutverk þeirra i Norðurlandaráði
verði ekki lengur háð aðild Dana að
ráðinu. Landstjórnin hefur í hyggju
að greiða sjálf fyrir sjálfstæða aðild
að Noröurlandaráði.
Hogni Hoydal, ráðherra sjálf-
stjórnannála og norrænn samstarfs-
ráðherra, hefur lagt fram skýrslu í
færeyska lögþinginu þar sem hann
leggur áherslu á að samstarfið við
ísland, Grænland og Noreg verði
styrkt. Þá vill Hoydal að komið
verði á fót auknu samstarfi við ná-
granna þessara landa, eins og
Skotland og Nýfundnaland.
Hogni segir að hætta sé á að
Norðurlandasamstarfið fari í tvær
áttir, eftir því hvort löndin eru í
Evrópusambandinu eða ekki. Síðar-
nefndi hópurinn þurfi að hleypa
nýju lífi í samstarf Norðurlanda-
þjóðanna.
Móöirin og synirnir
Judith Kilshaw, sem ættleiddi tví-
bura frá Bandaríkjunum, er hér meö
líffræöilegum sonum sínum.
Ættleiðingarfor-
eldrarnir segja líf
þeirra eyðilagt
Bresku hjónin sem ættleidau svo-
kallaða Net-tvíbura frá Bandaríkj-
unum og fluttu þá heim til Bret-
lands sökuðu fjölmiðla í gær um að
hafa eyðilagt líf sitt. Þau fóru fram
á að fá að vera í friði á meðan þau
búa sig undir vitnaleiðslur fyrir
dómi þar sem framtíð tvíburanna
kann að ráðast.
„Hvemig getið þið gert okkur
þetta?“ sagði Judith Kilshaw við
fréttamenn. „Þið eruð búin að eyði-
leggja bömin min, fyrirtæki okkar
og líf.“
í kjölfar mikils umtals og deilna
um mál hjónanna ætla bresk stjóm-
völd að leggja fram frumvarp tii
laga sem bannar fólki að fara til út-
landa til að kaupa böm til ættleið-
ingar.
George W. Bush tók við embætti Bandaríkjaforseta á laugardag:
Svaf mjög vel
fýrstu nóttina
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti opnaði Hvíta húsið almenningi
á fyrsta degi sínum í starfi, í sam-
ræmi við gamlar hefðir. Bush varð
ekkert úr verki i gær en hann sagði
að hann myndi hins vegar láta
hendur standa fram úr ermum í
dag, mánudag. Bush sór embættis-
eiðinn á laugardag í kalsaveðri í
Washington D.C.
„Ég svaf bara mjög vel,“ sagði
Bush við fréttamenn sem fýsti að
vita hvernig fyrsta nóttin hefði ver-
ið. „Ég var dauðþreyttur eftir að
hafa dansað svona mikið.“
Þar átti Bush við hátíðardansleik-
ina níu sem hann og eiginkona
hans, Laura, sóttu og þar sem hann
neyddist til að dansa, þótt hann
væri ekki sérlega áfjáður i það.
„Nú er ekki tími fyrir ræður,“
sagði forsetinn nýi á fyrsta dans-
leiknum. „Við skulum dansa.“
Bush sagðist hafa vaknað
snemma og byrjað daginn á því að
drekka kaffi með foreldrum sínum,
George eldri, fyrrum forseta, og
Barböru. Síðan heilsaði hann upp á
gamla vini frá háskólaárunum,
starfsmenn kosningabaráttunnar og
stuðningsmenn.
Forsetinn og fjölskylda hans fóru
í messu í gærmorgun þar sem
Franklin Graham, sonur séra Billys
Grahams, hvatti Bush til að „tendra
bál í sál Bandarikjanna".
Klerkurinn sagði í prédikun sinni
í þjóðardómkirkjunni í Washington
að þrátt fyrir alla hagsældina sem
ríkti í Bandaríkjunum væri von-
leysið landlægt meðal margra og að
enn stæðu menn frammi fyrir
„miklum félagslegum stjórnmálaleg-
um og sálarlegum vandamálum."
Graham bætti við að ef nýja
stjórnin ynni saman að því að
stuðla að meira jafnrétti, friði og
hagsæld „munið þið fá tækifæri til
þess einu sinni enn að tendra bál í
sál Bandarikjanna".
Bush hét því í innsetningarræðu
sinni á laugardag að vinna fyrir
„eina þjóð réttlætis og tækifæra"
eftir að hann sigraði A1 Gore vara-
forseta í einhverjum umdeildustu
forsetakosningum i sögu Bandaríkj-
anna.
Forsetahjónln stíga dansinn
George W. Bush Bandaríkjaforseti komst ekki hjá því aö dansa viö eiginkonuna Lauru á hátíöardansleikjunum i Was-
hington á laugardagskvöld í tilefni valdatöku hans fyrr um daginn. Þessi mynd var tekin á hátíöardansleik sem kennd-
ur er viö Ronald Reagan, fyrrum forseta. Níu slíkir dansleikir voru haldnir víös vegar um borgina fyrir fína fólkiö.
Haider gagnrýnir Fischer
Austurríski
hægriöfgamaður-
inn Jörg Haider
kallaði Joschka
Fischer, utanríkis-
ráðherra Þýska-
lands, vinstrisinn-
aðan hryðjuverka-
mann í gær og
sagði furðulegt að maður sem hefði
lamið löggur gæti orðið utanríkis-
ráðherra. Fischer hefur verið einna
ákafasti gagnrýnandi hægristjóm-
arinnar í Austurríki sem flokkur
Haiders á aðild að.
Færri unglingar óléttir
Dönsk ungmenni eru orðin dug-
legri við að nota getnaðarvarnir til
að koma í veg fyrir óæskilega þung-
un. Fóstureyðingum meðal ungra
kvenna undir tvítugu hefur fækkað
um 17 prósent á þremur árum.
Vi||a takmarka siglingar
Náttúruverndarsamtökin WWF
hvöttu í gær til þess að takmarkan-
ir yrðu settar á siglingu skipa und-
an Galapagoseyjum vegna einstæðs
dýralifs þar. Ákallið kemur í kjölfar
strands olíuskips við eyjarnar en ol-
ía úr því ógnar dýralífi eyjanna.
Nýr forseti Filippseyja
Gloria Macapagal Arroyo sór
embættiseið sinn sem nýr forseti
Filippseyja á laugardag eftir að for-
veri hennar, Joseph Estrada, sagði
óvænt af sér vegna spillingarmála.
Ýmsir bandamenn forsetans fyrr-
verandi, þar á meðal verjandi hans
í spillingarréttarhöldunum, eru
farnir úr landi.
Þrengt að Montesinos
Lögreglan í Perú hefur handtekið
fjóra hershöfðingja á eftirlaunum og
fjóra ættingja Vladimiros Montesin-
os, fyrrum yfirmanns leyniþjónust-
unnar, og ákært þá fyrir spillingu.
Clinton veitir u^ig^f saica
Whitewater-fasteignaviðskíptunum,
og hálfbróður sínum Roger Clinton.
Jackson lofar eiginkonuna
Bandaríski blökkumannaleiðtog-
inn Jesse Jackson bar lof á eigin-
konu sína þegar hann ávarpaði
kirkjugesti í suðurhluta Chicago í
gær. Það var í fyrsta skipti sem
Jackson sýndi sig á almannafæri
eftir að hann viðurkenndi á fimmtu-
dag að hafa eignast barn fram hjá
eiginkonu sinni fyrir tæpum tveim-
ur árum.
Jackson, Jackie eiginkona hans,
sem hann hefur verið kvæntur í 38
ár, og tvö fullorðin börn þeirra fóru
inn um hliðardyr þegar þau komu
til Salem-baptistakirkjunnar í gær.
Jackson heilsaði gestum nærri
innganginun en tók sér síðan sæti á
fremsta bekk.
Sóknarpresturinn James Meeks
bauð Jackson, sem er vígður
baptistaprestur, að ávarpa kirkju-
gesti sem voru svartir að miklum
meirihluta. Jackson bað guð um að
beina viðstöddum inn á veg réttsýn-
innar.
„Ég vil þakka guði fyrir náð hans
og gæsku,“ sagði Jackson við söfn-
uðinn. „Ég vil þakka fjölskyldu
minni og eiginkonu minni, dyggð-
um prýddri konu. Eftir 38 ár og
fimm börn er Jackie hér enn.“
Þá benti Jackson á að lífið væri
ekki beinn vegur, heldur væru
beygjur á þeim vegi.
Séra Meeks, sem er einn forystu-
manna í Regnbogasamtökum
Jacksons, bar lof á leiðtogann.
„Við 'erum stolt af því að kalla
hann forseta okkar,“ sagði Meeks.
Og við þá sem gagnrýndu Jackson
fyrir hliðarspor hans sagði sóknar-
presturinn einfaldlega: „Sá yðar
sem syndlaus er kasti fyrsta steinin-
um.“ Eins og segir i Biblíunni.
Meeks sagði að stuðningsyfirlýs-
ingar við Jackson hefðu borist
hvaðanæva úr landinu, þar á meðal
frá nýjum forseta.
Snjóar í New York
Umtalsverðar truflanir urðu á
samgöngum á landi og í lofti í New
York og nágrenni í gær vegna mik-
illar snjókomu.
Milosevic undir eftirliti
Eitt fyrsta verk nýs innanríkis-
ráðherra Serbíu
verður að setja
Slobodan Milosevic,
fyrrum forseta
Júgóslavíu, undir
eftirlit allan sólar-
hringinn. Stríðs-
glæpadómstóll Sam-
einuðu þjóðanna
hefur sem kunnugt er ákært Milos-
evic fyrir stríðsglæpi.