Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Page 13
MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2001
DV
13
Fréttir
Díóxíninnihald í fiskimjöli og lýsi:
Islensk-færeyskri rann-
sókn verður hraðað
Á sl. ári hófst samstarfsverkefni á
milli Félags íslenskra fiskimjöls-
framleiðenda og fiskimjölsverk-
smiðjunnar Havsbrúnar í Færeyj-
um um mælingu á dioxíninnihaldi í
fiskimjöli og lýsi. Upphaflega var
gert ráð fyrir að verkefnið stæði í
þrjú ár en vegna dioxínumræðunn-
ar innan Evrópusambandsins hefur
verið ákveðið að reyna að ljúka
rannsóknunum á einu ári.
Teitur Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Félags islenskra fiskimjöls-
framleiðenda, segir i samtali við
InterSeafood.com að mælingar á
dioxíni séu mjög sérhæfðar og þ.a.l.
mjög kostnaðarsamar. Eftir að
dioxínumræðan blossaði upp innan
Evrópusambandsins fyrir áramótin
komu íslensk stjómvöld að málinu
og varð það að samkomulagi að
hraða rannsóknum eftir fóngum.
Teitur segir að talið hafi verið
eðlilegt að leita samstarfs við Fær-
eyinga um rannsóknina þar sem
báðar þjóðir telji sig hafa sérstöðu
og að fiskur, sem notaður er til
fiskimjöls- og lýsisframleiðslu í
þessum löndum, sé veiddur á haf-
svæðum þar sem dioxínmengun er
hverfandi lítil miðað það sem er
reyndin í t.d. Norðursjó, Eystrasalti
og Kattegat, svo dæmi séu nefnd.
Þess má geta að þegar dioxínfárið
gekk yfir Belgíu fyrir rúmu ári var
ákveðið að láta rannsaka dioxín-
innihald í íslensku fiskimjöli og lýsi
og þá voru gerðar einar 20 mæling-
ar og voru sýni send til rannsóknar
hjá þýskri rannsóknastofnun. Teit-
ur segir niðurstöður mælinganna
hafa verið misjafnar á milli ein-
stakra fisktegunda og eins eftir
aldri fisksins. Dioxín safnast fyrir í
fituvef fiska og því er hlutfall þess
tiltölulega hæst á hrygningartíman-
um þegar fituinnihald fiskanna er
hvað minnst.
Að sögn Teits leiddi rannsóknin í
ljós að íslenskt fiskimjöl og lýsi var
vel innan þeirra viðmiðunarmarka
sem þá var í umræðunni hjá Evr-
ópusambandinu. Þá var rætt um að
hámark dioxíns í fiskimjöli mætti
vera 1500 picagrömm og 6000
picagrömm i lýsi. „Mér hefur skilist
að fóðurframleiðendur í Noregi hafi
ákveðið að miða viö þessi mörk en
hins vegar er ómögulegt að segja
hvað Evrópusambandið tekur til
bragðs eftir umræðuna sem kom
upp nú fyrir áramótin,“segir Teitur
Stefánsson. -DVÓ
Tálknafjörður:
Ruslabrennslu-
ofn tekinn
í notkun
Þessa dagana er verið að
taka í notkun ruslabrennslu-
ofn á Tálknafirði. Ofninn,
sem er svissneskur, er sams
konar og notaðir eru á
Kirkjubæjarklaustri og í
Svínafelli og reynst hafa vel.
Hann brennir ruslinu við
800 gráða hita en síðan er
reyknum brennt við 1000
gráður til að mengun verði í
lágmarki.
Kælivatnið sem ofninn
skOar af sér verður hægt að
nota til húshitunar. Verður
það fyrst í stað notað til upp-
hitunar á húseignum í eigu
sveitarfélagsins og skilar
ofninn um 100 kw í fullri
notkun. Ofninn er í 40 feta
gámi og kostar uppsettur
11-12 milljónir en í framtíð-
inni verður byggt yfir hann
ásamt moltugerðinni þar
sem allur lífrænn úrgangur
verður unninn. Molta hefur
verið unnin úr lífrænum úr-
gangi frá um 30 heimilum
undanfarin 2 ár en í framtíð-
inni verður það skylda að
flokka lífrænan úrgang frá
öðru rusli. Með uppsetningu
brennsluofnsins er verið að
uppfylla lagaákvæði um
bann við brennslu rusls við
opinn eld. -KA
DV-MYND KA
Ruslaofninn
Brennir ruslinu viö 800 gráöa
hita og kælivatnið sem hann
skilar afsér veröur notaö til
húshitunar.
Aluöru útsolQ
yL
í*
agg I*. U J
Renault Megone RN Clossic Q7 ^ *
o»O.COO
ðgO.OOO
Iw.
- f V,
ó Aluöru bílum.
«
W
c
: ..................
Myndir Qf öllum oHkar bílum ó
ujaubilolond.is
bílo
b6L -
ond
Bflolond Gfjóihölsl i - nO ReyKjoviK - Simi: V5 1230 - wujw.biloland.is -
UlsolustQðir Bilos AKionesi 43i-s&ee - Bilosolo KellouiKui 421-4444 - Bílouol AKuieyii 461-1036
T bo
ndi, millíblöð
öppur á
1.780 kr
10 stk. A-bréfabmdi
m/vasa A4, 7 cm
A-milliblöö A4 (1
A-plastmöppur, A4
Sölumenn okkar eru vio símann frá
kl. 8-17. Hringdu f síma 520 6666
eða líttu é úrvalið í stórverslun okkar
Réttarhálsi 2.
Opið kl. 8-18 alla virka daga.
Rekstrarvorur
- vmna með þér
- ■ ■
Réttarháisi 2 • 110 Reykjavík • Simi 520 6666 • Bréfasími 520 6665 • sa!a@rv.is