Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Síða 24
-+40 Tilvera MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2001 I>V Ættfræöin er þjóöareign - segir Oddur Helgason ættfræöingur sem vinnur aö skráningu allra íslendinga frá upphafi byggöar. Oddur Helgason er einn ötulasti ættfræöingur þjóðarinnar. Síöustu árin hefur Oddur helgað ættfræð- inni öllum sínum tíma og hefur hann ásamt samstarfsmönnum sín- um safnað á einn stað ótrúlega miklum upplýsingum um ættir ís- lendinga frá upphafi byggðar. Til- veran heimsótti Odd á vistlega vinnustofu hans í Vesturbænum. „Markmið okkar er að safna upp- lýsingum á einn stað og tengja sam- an alla þá íslendinga og allt það fólk sem tengist íslendingum. Það er nauðsynlegt aö hugsa ættfræöina í öldum, bæði fram og til baka, og það getur vel hugsast að eftir kannski 200 ár langi fólk að kynna sér ættir sínar. Þá kemur kannski í ljós að það á ættir að rekja til útlanda en við vinnum einnig markvisst að því að safna upplýsingum um útlend- inga sem búa hérlendis og vita um sínar ættir. Þetta er auðvitað mikið verk og verður aldrei unnið nema í samvinnu við þjóðina," segir Odd- ur. ' Bjartsýnn að eöllsfarl Á vinnustofunni gefur að líta mikið ættfræðibókasafn auk margs konar gagna sem Oddur hefur viðað að sér héðan og þaðan. „Grunnur- inn er kominn í rúm 430 þúsund nöfn en gögnin héma inni gera okk- ur kleift að fara mun hærra. Það er vel mögulegt að byggja ættfræði- gmnn með yfir milljón íslendingum og eru þá Vestur-íslendingar ekki taldir með. Viö höfum safnað vönd- Ættfræölngurinn við störf Oddur Helgason segir ekki mögulegt aö vinna aö ættfræöi nema í sam- vinnu viö þjóöina. uðum skrám yfir þá sem fluttu til Vesturheims og erum auk þess með skrár yfir núlifandi Vestur-íslend- inga,“ segir Oddur. Ættfræði er nákvæmnisverk og þegar Oddur er inntur eftir því hvort það sé vinnandi vegur að ljúka svo viðamikilli skráningu kveður hann engin vandkvæði á því. „Ég hef alltaf verið bjartsýnn að eðlisfari og í sannleika sagt tel ég víst að okkur muni takast þetta. Við gerum þetta ekki hjálparlaust og þurfum að láta styðja við bakið á okkur.“ Útgáfa ættfræðigagna er ekki í bí- gerð hjá Oddi og samstarfsmönnum hans en með honum starfa ýmsir ættfræöiáhugamenn og má þar nefna Hálfdán Helgason og Gunnar Atlason sem eru tengiliðir við V-Is- lendinga. „Við stefnum ekki á slíkt en ég sagði einhvem tíma að til- gangurinn með grunninum væri meöal annars að gera fólki kleift að kynna sér ættir sínar á hóflegu verði. Grunnurinn mun einnig nýt- ast við gerð ábúendatala og starfstala svo eitthvað sé nefnt,“ segir Oddur. Samstarf vlð þjóðlna Ættfræðin er langt frá því að vera á undanhaldi og bendir Oddur á vaxandi vinsældir ættarmóta víða um land því til sönnunar, auk þess sem gagnagrunnsmálið svokallaða hefur einnig ýtt undir áhugann. Ættfræðifyrirtæki Odds tengist ekki gerð stóra gagnagrunnsins enda kveðst hann hafa ýmislegt við hann að athuga. „Menn verða alltaf að vinna slfkan ættfræðigrunn í samstarfi við landsmenn auk þess sem gott samband við Persónu- vemd, sem áður hét Tölvunefnd, er ein af forsendum þess að slíkt tak- ist. Hvort tveggja hefur okkur tekist prýðilega hér. Það hefur alltaf verið mín skoðun að það verði að búa til tvo ættfræðigagnagrunna og byggja þá þannig upp að þeir nýtist fyrir tilætluð verk. Mér hefur alltaf þótt skrýtið að erfðagreiningarfyrirtæki séu að búa til ættfræðigrunn þegar Hyundai Galloper Exeed 2,5 turbo diesel intercooler - 7 manna hbimport. be smart ehf sími 699 5009 Argerð 9 /1998, ekinn 53 þkm. 5glra, ABShemlar, rafdrifnar rúöur, samlæsingar, álfelgur, upphitaöir útispeglar, litað gler, dráttarkúla ofl. Tilboðsverð kr. 1.870.000,- Bæjarlind 6, símí 554 6300 Opið vírka daga 10-18. Laugard. 10-1Ó, sunnud. 13-16. Grúskað í ættfræði Gunnar Atiason, Oddur og Theódór Ingólfsson ræöa málin á vinnustofu Odds. DV-MYNDIR E.ÓL til er i landinu erfðafræðilegur ætt- fræðigrunnur, sem notaður hefur verið til læknisfræðilegra rann- sókna í fjömtíu ár. Af hverju er hann ekki notaður í erfðafræðinni? Ég get ekki séð rökin fyrir því að erfðagreiningarfyrirtæki eigi aö vera með ættfræðigrunn innanhúss því þá er meira en lítið hætt við því að dulkóðunin verði einskis nýt. Að mínu viti á erfðafræðilegur ætt- fræðigrunnur aldrei að fara fyrir sjónir almennings," segir Oddur. Sönn ættfræði er hugtak sem er Oddi hugleikið og hann segir oft misbrest á því hérlendis að menn tileinki sér rétt vinnubrögð þegar ættfræðin er annars vegar. „Menn verða að átta sig á því að hin sanna ættfræði felur í sér að menn nenni að skoða hvem einasta blaðsnepil og kanni hverja heimild til hlítar. Ég fullyrði einnig að sá sem vinnur sanna ættfræði hefur aldrei haft neitt upp úr því utan skemmtunina og ríkidæmið felst einvörðungu í ánægjunni að loknu góðu dagsverki. Mér hefur aldrei komið til hugar að láta meta ættfræðisafn mitt til fjár enda tel ég það ómetanlegt. Ef okk- ur tekst hins vegar að gera þennan grunn þá fer hann í eigu þjóðarinn- ar og nú vantar ekkert nema smá- aura til að klára þetta.“ Skemmtunln fólgin í grúskl „Ættfræðin er og á að vera þjóð- areign, rétt eins og fískurinn í sjón- um. Ég er hins vegar reiðubúinn að vinna með hverjum þeim sem vill vinna ættræðina á þessum nótum og ef allt gengur eftir stefnir í að við verðum með einn mesta ættfræði- banka þjóðarinnar hér á einum stað.“ Töluvert hefur verið talað um að ættfræðin verð sett á Netið og um næstliðin áramót boðaði Friðrik Skúlason og íslensk erfðagreining hugmyndir um slíkt. „Það má setja upplýsingar sambærilegar við það sem er í þjóðskrá á Netið en það er lykilatriði að fólkið í landinu vinni sjálft við ættfræðina. Það má ekki taka grúskið frá fólki - í því er mesta skemmtunin fólgin," segir Oddur Helgason og bætir við hann vilji nota tækifærið og þakka þeim sem hafa stutt við bakið á sér um leið og hann hvetur fólk til aö senda sér leiðréttingar og heimsækja heimasiðu sína (simnet.is/org) á Netinu. -aþ Reynsluakstur rall-bíla Ingvar Helgason hf. frumsýndi nýja Subaru Impreza um helgina. Fjöldi var þar saman kominn, enda stóð til boða að reynsluaka gripunum. Ekki er amalegt að finna lyktina af nýrri bifreið og heyra ósnortið vélarhljóðið en það er ekki öllum fært að endur- nýja í hvert sinn sem fjölskyldubíll- inn glatar þessum eiginleikum. Það má hins vegar lengi láta sig dreyma. Grínlstl og sölumaöur Karl Ágúst Úlfsson leikari og Sigfús Aöalsteinsson, sölumaöur hjá Ingvari Helgasyni, spjölluöu saman um bíla. Ekki fylgir sögunni hvort Sigfúsi hafi tekist aö selja Karli nýj- an Subaru. Bílasmiöfr frá Japan Herra Endo og herra Karakawa komu alla leiö frá Subaru-fyrirtækinu til aö kynna nýju Impreza bifreiöina. í miöiö stendur Sigþór Bragason, sölustjóri Ingvars Helgasonar. f Mk. |§l, m M ' \ m re- \ L Xsin 'W J m- » * * A 4 ■ j ’ ' I f * í % # ■*«*“*' i' A DV-MYNDIR INGÓ Rall-liö Subaru Arnar Valsson, Baldur Jónsson, Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson eru í rall- liöi Subaru á íslandi. «• f f •f 1 ' f ?; *i ¥ ; Mj* r -T i /• > . Glatt á hjalla Guöný Úlfarsdóttir rall-kona, Kristín Siguröardóttir jeppakona, Kristín Björg Hermannsdóttir og Stefán Úlf- arsson frá Fjallasporti skemmtu sér konunglega á frumsýningu Subaru Impreza. Helgi meöal kvenna Helgi Ingvarsson var á köflum umvaflnn kvenfólki á frumsýningunni. Hér er hann ásamt Sigríði Guömundsdóttur forstjóra, Sigríöi Gylfadóttur, eiginkonu sinni, Elísabet Ingvarsdóttur, framkvæmdastjóra Bjargeyjar, og Sigríði Möller.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.