Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001
I>V
Fréttir
Stóra fíkniefnamálið í Hæstarétti:
Einn sakfelldra heldur
enn fram sakleysi sínu
Áfrýjanir fimm manna, sem sak-
felldir voru í sumar í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir stórfellt fikni-
efnasmygl til landsins, verða teknar
fyrir í Hæstarétti i dag. Mennirnir
fimm voru dæmdir í allt frá tveggja
og hálfs árs fangelsisvist til sjö og
hálfs árs vistar innan veggja Litla-
Hrauns. Tíu aðrir voru sakfelldir í
málinu sem var kallað Stóra fíkni-
efnamálið þar sem það var stærsta
fikniefnamál sem lögreglan haföi
rannsakað fram að þeim tíma. Sak-
borningar voru ákærðir fyrir að
flytja inn gífurlegt magn fíkniefna
yfir tvegga ára tímabil, 1997 til
1999. Efnunum smygluðu þeir til
landsins í skipagámum en þrír
hinna sakfelldu voru starfsmenn
Samskipa. Þegar fikniefnin voru
komin til landsins seldu mennimir
efnin og eru sumir þeirra taldir
hafa hagnast um tugi milljóna á eit-
urlyfjabraski sínu.
Gunnlaugur Ingibergsson, Sverr-
ir Þór Gunnarsson, Valgarð Heiðar
Kjartansson og Ingvar Árni Ingv-
arsson viðurkenndu allir aðild sína
að málinu en sögðu magnið mun
minna og ferðirnar færri en þeir
voru ákærðir fyrir. Tölur saksókn-
ara voru byggðar á viðurkenning-
um sakborninga við yfirheyrslur
hjá lögreglu og dómara. Sem dæmi
var Gunnlaugi gefið að sök aö hafa
flutt inn 171 kíló af kannabis til Is-
lands á tæpum tveimur árum en
fyrir dómi sagðist Gunnlaugur ein-
ungis hafa flutt inn um 25 kíló af
kannabis á þessum tíma. Aðrir
ákærðir neituðu einnig að magnið
væri jafn mikið og ákæran á hend-
ur þeim segir til um.
Júlíus Kristófer Eggertsson er sá
eini hinna sakfelldu sem hélt
stöðugt fram sakleysi sínu í tveggja
vikna aðalmeðferð málsins í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í sumar og
gerir enn.
Athygli
vakti að Ólafur
Ágúst Ægis-
son, sem hlaut
þyngstan dóm-
inn, eða 9 ár í
fangelsi og
upptöku á
rúmum fimm
milljónum,
undi sínum
dómi, auk níu
annarra sak-
felldra í mál-
inu. -SMK
Afrýj
%
rýjanir fimm sakfelldra mann
stóra fíkniefnamálinu
teknar fyrir í Hæstarétti
ma í
%
SverrirÞór Gunnarsson
Ákæröur fyrir kaup og innfíutning á fíkniefnum sem ætluð voru
til söludreifíngar hérlendis og sölu fíkniefna.
7 árog 6 mánuðir og upptaka á 21,4 milljónum króna
Júlíus Kristófer Eggertsson
Ákæröur fyrir kaup og innfíutning á fíkniefnum sem ætluö voru
tll söludrelfíngar hérlendis og sölu fíkniefna.
5 árog 6 mánuðir og upptaka á 8 milljónum króna
Gunnlaugur Ingibergsson
Ákæröur fyrir innflutning og kaup á eituriyfjum.
4árog 6 mánuðir og upptáka á 11,9 milljónum króna
Valgarð Heiðar Kjartansson
Ákæröur fyrir kaup og sölu fíkniefna.
3 ár og upptaka á 245.000 krónum
IngvarÁmi Ingvarsson
Ákæröur fyrlr kaup á fíknlefnum í Bandaríkjunum og fíutning
þelrra til landsins og fyrlr að hafa haft fíkniefnl í fórum sínum.
2 árog 6 mánuðir
Fjórar ákeyrslur á naut-
gripi í einum mánuði
DV. SKAGAFIRÐI:_________________________
„Það voru fjórar ákeyrslur á naut-
gripi í október sl. Það er algjörlega
óásættanlegt að minu mati að naut-
peningur skuli vera á vegunum en
því miður virðist það fara í vöxt hér
í Skagafirði," sagði Ingimar Jóhanns-
son, umboðsmaður Sjóvár-Almennra
á Sauðárkróki. Ingimar segir að ekki
hafi orðið slys á fólki i þessum tilvik-
um en langalvarlegasta óhappið hafi
verið þeg£ir sjúkrabifreið með sjúk-
ling á leið til Akureyrar lenti á naut-
grip. Þar varð tjón á bílnum fyrir
meira en eina milljón króna og mildi
að fólk slapp ómeitt.
Ingimar segir að ekki hafi verið
um ákeyrslur á hross í héraðinu það
sem af er vetri og hann telur að
hrossaeigendur passi orðið betur
gripi sína en áður þó alltaf sé eitt-
hvað um að hross sleppi úr girðing-
um, ekki síst þegar kominn er mikill
snjór og girðingar séu á kafi. Mesta
breytingin til bóta í þessu sambandi
telur hann að hafi verið þegar sett
var rafmagnsgirðing með fram þjóð-
vegi eitt í Norðurárdal þannig að
hrossin, sem í dalnum voru sumar-
langt, komust ekki niður á þjóðveg-
inn. í þessa girðingaframkvæmd var
ráðist eftir viðræður lögreglu, sýslu-
manns, landeigenda á þessu svæði og
fúlltrúa tryggingafé-
laganna.
„En það sem ég
vil leggja áherslu á
er að sveitarfélögin
fari að verða miklu
harðari í eftirliti
með viðhaldi girð-
inga með fram veg-
unum. Reglugerðin , Ingimar
er fyrir hendi en það -lóhannsson.
eru alltaf einhver dæmi um landeig-
endur sem ekki sinna þessu viðhaldi
sem skyldi. Það leiðir af sér að skepn-
ur komast óhindrað á þjóðveginn. í
slíkum tilfellum vil ég einfaldlega að
sveitafélögin grípi inn í og hafi til
þess fullt vald, rétt eins og þegar um
vanfóðrun á búfé er að ræða,“ sagði
Ingimar Jóhannsson. -ÖÞ
Veðrið í kvöld___________ I Sólargangur og sjávarföli I Veðrið á morgun
REYKJAVIK AKUREYRI
Austan- og norðaustanátt
Austan og síöar noröaustan 8 til 13 m/s.
Rigning eöa súld um austanvert landiö en
skýjaö meö köflum og sums staðar skúrir um
landið vestanvert. Hiti 3 til 8 stig.
Sólariag í kvöld 16.50 16.17
Sólarupprás á morgun 10.28 10.29
Síödegísflóö 18.51 23.24
Árdegisflóö á morgun 07.09 11.42
Skýringar á veðurtáknum
J^VINDATT 10V-HITI ö) -10° OWNDSTYRKÚR N,cboct ~• 1 nwtrum i suktindu ' HEIÐSKÍRT
O
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAO
f§!?S w Ö tí
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA
•w w +
ÉUAGANSUR ÞRUMU- VEOUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Færð
Færöin á landinu
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegageröinni er greiöfært um alla
helstu þjóövegi landsins. Hálka getur
þó veriö á fjallvegum.
Rigning eða súld austanlands
Noröanátt 8 til 13 m/s og rigning eöa súld austanlands en skýjaö meö
köflum og stöku skúr eöa él vestan til. Hiti 1 til 7 stig, svalast á
Vestfjörðum.
Föstuda
Vindur: (
8-13 m/*\
Hiti 0° til 4°
Laugardá:
Vindur;
5-8
Hiti 0' til 3'
i® fii *
Sunnuda
Hiti 0'
Norðan 8 tll 13 m/s og él
noröanlands en skýjaö og
sums staöar skúrir syöra.
Vægt frost noröanlands en
hitl annars 0 tll 4 stlg.
Norðlæg átt, 5 tll 8 m/s,
og dálítll él noröanlands
en skýjaö meö kóflum
sunnan tll. Hltl kringum
frostmark.
Breytileg átt og él á stöku
staö. Fremur svalt í veöri.
Ingunn AK 150:
Yfir miðbaug
á mánudag
DV, AKRANESI:______________
Ingunn AK 150, nýjasta skipið í
flota Haraldar Böðvarsson hf. á
Akranesi, kom í Panama-skurðinn í
gærkvöld. Hægt var að fylgjast með
myndum af því þegar Ingunn kemur
að skurðinum á vefnum, slóðin er
http://www.pancanal.com/eng/phot
o/camera-java.html. Þaö mun taka
Ingunni um 11 klukkustundir að
fara endanna á milli í skurðinum
sem tengir saman Atlantshaf og
Kyrrahaf. Panama-skurðurinn er 82
kílómetrar á lengd (51 sjómtla).
Það er annars að frétta af ferðum
skipsins að það fór yfir miðbaug á
mánudag, í gærmorgun var það statt
150 sjómílur vestur af Kólombíu,
hitastigið var 29° C, rakastig 73 og
sjávarhiti hvorki meira né minna en
27° C. -DVÓ
Vatnsf ells virk j un:
Slasaðist á fæti
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
mann í gærkvöld sem slasast hafði
við vinnu sína í Vatnsfellsvirkjun
um fimmleytið í gærdag. Maðurinn
var alvarlega slasaður á fæti og var
þyrlan send af stað, ásamt sjúkrabíl
og lækni frá Heilbrigðisstofnun Suð-
urlands á Selfossi. Vegna myrkurs
og slæmra skilyrða var ákveðið aö
þyrlan myndi lenda í Árnesi og var
maðurinn fluttur þangað í sjúkra-
bílnum. Starfsmenn þyrlunnar tóku
svo við manninum og flugu með
hann til Reykjavíkur, þar sem
þyrlan lenti rétt fyrir klukkan 20.
Lögreglan í Rangárvallasýslu fer
með rannsókn slyssins. -SMK
Akureyri:
Þjófar með
læstan skáp
DV, AKUREYRI:
Tveir þrítugir karlmenn sem
stálu peningaskáp í Umferðarmið-
stöðinni á Akureyri um helgina
hafa fundist. Þeir játuöu einnig inn-
brot í Endurvinnsluna og í íþrótta-
húsið á Þelamörk.
í Umferðarmiðstöðinni stálu þeir
peningaskáp meö um 100 þúsund
krónum í. Skápurinn er mjög þung-
ur en mennirnir komu honum á
vöruvagn og drógu svo skápinn á
vagninum út úr húsinu og i
geymslu í ööru húsi skammt frá.
Þar höfðu þeir gert tilraunir til að
opna skápinn en ekki tekist þegar
rannsóknarlögreglan hafði hendur í
hári þeirra. -gk
Veöríö kl. 6
AKUREYRI skýjaö 6
BERGSSTAÐIR skýjað 6
B0LUNGARVÍK alskýjaö 6
EGILSSTAÐIR 5
KIRKJUBÆJARKL. rigning 6
KEFLAVÍK skúrir 7
RAUFARHÖFN rigning 4
REYKJAVÍK skúrir 5
STÓRHÖFÐI þokumóöa 7
BERGEN rigning 8
HELSINKI snjókoma -5
KAUPMANNAHÖFN rigning 3
ÓSLÓ alskýjaö O
STOKKHÓLMUR frostrigning 1
ÞÓRSHÖFN rigning 6
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 2
ALGARVE skýjaö 16
AMSTERDAM skýjaö 10
BARCELONA skýjaö 12
BERLÍN rigning 2
CHICAG0 heiöskírt -6
DUBLIN skýjaö 3
HAUFAX snjókoma 0
FRANKFURT rigning 7
HAMBORG rigning 6
JAN MAYEN alskýjaö 1
LONDON léttskýjaö 7
LÚXEMB0RG rigning 9
MALLORCA léttskýjaö 13
MONTREAL alskýjaö 0
NARSSARSSUAQ léttskýjaö -16
NEWYORK léttskýjaö 0
ORLANDO heiðskírt 6
PARÍS skúrir 11
VÍN frostúöi -1
WASHINGTON þokumóöa -7
WINNIPEG heiöskírt -19
i:HririMii^mni!inirM'ióiii:i.-w.uiii.TO