Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 8
8 Viðskipti____________________________________________________________________ Umsjón: Viðskiptabia&iö Síldarvinnslan hf. vinnur loðnu á Rússlandsmarkað: Óvissa með verðþróunina Ásbjörn H. Árnason, fram- kvæmdastjóri hjá Síldarvinnsl- unni hf. í Neskaupstað, segir loðn- una sem berst að landi þessa dag- ana vera stóra, fallega og lausa við átu. Nær öll framleiðslan til þessa hefur farið á Rússlandsmarkað en óvissa er nú með verðþróunina. „Það er ekki byrjað að frysta á Japansmarkað, það getur hugsan- lega orðið í byrjun febrúar. Tíðar- farið hefur verið erfitt en við höf- um þó náð að hafa hráefni fyrir vinnsluna," segir Ásbjöm H. Árna- son. „Við erum búnir að frysta eitt- hvað á annað þúsund tonn.“ Hann segir nokkra óvissu með sölumálin á næstunni. „Þetta er spurning um hvað Norðmenn fiska þegar þeir fara af stað. Verð- ið á afurðunum byggist líka á því hvemig Norðmönnum gengur við veiðarnar." Ásbjörn segir hluta þeirrar loðnu sem búið er að vinna þegar vera selda á Rússlandsmarkað. Um 50% af þeirri loðnu sem tekin er inn í vinnsluna fer í frystingu; hitt er skilið frá og fer í bræðslu. Af förmum veiðiskipanna, sem geta verið um 1000 tonn, fara kannski um 20-30% til frystingar. Hjá Síldarvinnslunni er unnið á tveim 11 klukkustunda vöktum á sólarhring og starfa um 25 manns á hvorri vakt þegar allt er talið. Líf og fjör í loðnunni dvmvnd helgi Um fimmtíu manns hafa atvinnu af loönufrystingu hjá Síldarvinnslunni. Bræla var á miðunum í gær og Ásbjörn sagðist þó vonast til að hann orðaði það, svo skipin komu því öll veiðiskipin í land. það færi að „dúra í þessu“, eins og kæmust á veiðar. -HKr. Akranesi: Breytingar á yfirmannaliði Sementsverks miðjunnar DV, AKRANESI: Talsverðar breytingar eru fram undan á yfirmannaliði Sements- verksmiðjunnar á Akranesi. Ákveð- ið hefur verið að Ketill Bjamason taki við starfi Guðmundar Þórðar- sonar, yfirverkstjóra framleiðslu, þegar hann lætur af störfum 30. júní. Ketill mun láta af störfum sem yfirverkstjóri vélaverkstæðis 28. febrúar og hefja störf með Guð- mundi daginn eftir. Smári Kristjánsson mun hefja störf á vélaverkstæði sama dag og jafnframt verða staögengill yfir- verkstjóra framleiðslu frá sama tíma. Ákveðið hefur verið að Böðv- ar Bjömsson taki við starfi yfir- verkstjóra vélaverkstæðis frá og með 1. mars. Björgvin Hagalínsson verður staögengill yfirverkstjóra vélaverk- stæðis frá sama tíma. Þá hefur ver- ið ákveðið aö koma á fót fram- leiðslubakvakt frá 1. mars og munu framangreindir fjórir starfsmenn sinna henni. Ákveðið hefur verið að leggja niður starfsemi bílaverkstæð- is fyrirtækisins á Akranesi ekki síð- ar en um næstu mánaðamót. Fyrir- hugað er að semja við bílaverkstæði á Akranesi um nauðsynlega þjón- ustu. Hlynur Eggertsson fer til starfa á vélaverkstæði eftir þessa breytingu. -DVÓ Viðskiptaháskólinn á Bifröst: Ný námsbraut í viðskiptalögfræði? Viðskiptaháskólinn á Bifröst hef- ur sett á stofn sérstakan þróunar- hóp til að kanna kosti þess að stofna nýja námsbraut við háskólann á sviði viðskiptalögfræði og að gera tillögur um innihald þess náms, reynist athugun jákvæð. Um er að ræða 3 ára nám sem samþætti stjómun, viðskipti og lögfræði með það að markmiði að mennta stjóm- endur með sérþekkingu á lagalegum þáttum viðskipta og rekstrar fyrir atvinnulíf og samfélag. Slíkt nám er víða kennt við er- lenda viðskiptaháskóla við mikla aðsókn og þykir hafa gefist vel. Má sem dæmi nefna Viðskiptaháskól- ann i Kaupmannahöfn sem útskrif- ar fólk með B.Sc.-gráðu í stjómun og viðskiptalögfræöi eftir þriggja ára nám. Það nám nýtur mikilla vinsælda og er vel metið af dönsk- um fyrirtækjum og atvinnulífi. Hóp- inn skipa bæði fulltrúar háskólans og aðilar úr atvinnulífinu en í hon- um em: Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Bjarki Diego, lögfræðingur hjá Kaupþingi, Bjami Benediktsson, lögmaður hjá Lex ehf., Inga Þöll Þórgnýsdóttir, sjálfstætt starfandi lögmaður, Magnús Árni Magnússon hagfræðingur, Viðskiptaháskólan- um á Bifröst, Ólafur Nilson, löggilt- ur endurskoðandi hjá KPMG, og Ólöf Nordal, lögfræðingur hjá Verð- bréfaþingi. Hópurinn á að skila frá sér full- búnum tillögum til háskólastjómar Viðskiptaháskólans á Bifröst fyrir 1. mars 2001 en miðað er við að námið geti hafist næsta haust. í stefnu háskólans, sem samþykkt var síðastliðið sumar, kemur fram að Viðskiptaháskólinn á Bifröst stefnir að því að skapa nemendum sínum samkeppnisyfirburði á vinnumarkaði að námi loknu og að hann vilji hafa frumkvæði að nýj- ungum í kennsluháttum með tækni- væðingu og skipulagi sem hentar hraða samtímans. Jafnframt hefur háskólinn skilgreint sig sem alhliða viðskiptaháskóla og telur það hlut- verk sitt að búa nemendur undir ábyrgðar-, forystu- og stjórnunar- störf í innlendu og alþjóðlegu sam- keppnisumhverfi með framúrskar- andi fræðslu, þekkingu og þjálfun. Þróun þessarar nýju námsbrautar tekur mið af þessari stefnumörkun og er unnin samkvæmt henni. -DVÓ Smáauglýsingar bækur, fyrirtæki, heildsala, hljóöfæri, Internet, matsölustaöir, skemmtanir, tónlist, tölvur, verslun, veröbréf, vélar-verkfæri, útgerðarvörur, landbúnaöur..markaÖStOrgÍÖ Skoðaöu smáuglýsingarnar á vfslr.Ís 550 5000 MIDVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 DV Þetta helst HEILDARVIÐSKIPTI 2000 m.kr. - Hlutabréf 238 m.kr. - Húsbréf 1170 m.kr. MEST VIÐSKIPTI Össur 114 m.kr. Baugur 31 m.kr. Íslandsbanki-FBA 21 m.kr. MESTA HÆKKUN ] OÖssur 4,4% ; ©Marel 3,9% ] ©Bakkavör Group 1,9% MESTA LÆKKUN ©MP-Bio 14,3% ©Íslandsbanki-FBA 1,5% ©Eimskip 1,4% ÚRVALSVÍSITALAN 1238 stig : - Breyting o 0,01% Obreytt verðlag i Samræmd visitala neysluverðs í EES-ríkjum var 107,5 stig í desember siðastliðnum og var óbreytt frá nóv- ember. Á sama tíma lækkaði sam- ræmda vísitalan fyrir ísland um 0,1%. I frétt frá Hagstofunni segir að frá desember 1999 til jafnlengdar árið 2000 hafi verðbólgan, mæld með sam- ræmdri vísitölu neysluverðs, verið 2,3% að meðaltali í rikjum EES, 2,9% í evru-ríkjum og 3,7% á íslandi. Mesta verðbólga í Evrópu á þessu tólf mánaða tímabili var á írlandi 4,6% og i Lúxemborg 4,3%. Verðbólg- an var minnst, 0,9%, í Bretlandi og 1,3% í Svíþjóð. Deutsche Telekom undir væntingum Deutsche Telekom, annað stærsta fjarskiptafyrirtæki Evrópu, birti í gær afkomutölur sem voru nokkuð undir væntingum markaðsaðila. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri félagsins varð 7,4 milljarða evruhagnaður á árinu 2000 en markaðsaðilar höfðu gert ráð fyrir um 8 milljarða evruhagnaði. Velta Deutsche Telekom á árinu 2000 nam alls 40,9 milljörðum evra sem er 15% aukning frá árinu áður. Vöxt- inn má þó að verulegu leyti rekja til kaupa á öðrum fyrirtækjum. Talið er líklegt að afkomufréttin muni hafa nei- kvæð áhrif á gengi hlutabréfa Deutsche Telekom þegar markaðir í Evrópu verða opnaðir í dag. Bandarískir hagvísar sýna niöursveiflu Sérstök vísitala, sem samsett er úr helstu hagvísum Bandaríkjanna, féll um 0,6% i desember, sem er meira en flestir áttu von á. Síðustu tvo mánuð- ina þar á undan lækkaði vísitalan um 0,4%. Vísistalan er reiknuð af The Conference Board sem er hagrann- sóknarfyrirtæki í New York og fylgjast bandarískir hagspekingar grannt með vísitölunni. Að mati The Conference Board er þróun vísitölunnar nú á þann veg að ætla megi að bandaríska hag- kerfið sé á mörkum þess að fara inn í kreppu en að of snemmt sé að fúllyrða að kreppa sé fram undan. Vísitalan hefúr nú lækkað þijá mánuði i röð og er 3,2% lægri en hún var þegar hún náði hámarki síðla árs 1999. KAUP SALA B>ollar 85,790 86,230 Ssl’uml 125,650 126,290 {[' Kan. dollar 56,790 57,150 S m Pönak kr. 10,7190 10,7780 l"4'i'Norsk kr 9,7020 9,7560 jJT ySænsk kr. 8,9710 9,0200 8ÖI- mark 13,4524 13,5332 | Fra. franki 12,1935 12,2668 r_Bolg. franki 1,9828 1,9947 Sviss. franki 52,3000 52,5900 : . Holl. gyllini 36,2952 36,5133 ! Þýskt mark 40,8952 41,1409 Jj fh. líra 0,04131 0,04156 HCAust. sch. 5,8127 5,8476 ÍT Port.oscudo 0,3990 0,4014 þ£_Spá. peseti 0,4807 0,4836 ;[jniap.yen 0,73170 0,73610 | irsktpund 101,558 102,169 SDR 111,1500 111,8200 79,9841 80,4647

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.