Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 11 Útlönd George W. Bush Bandaríkjaforseti brosti þegar hann kynnti menntamálatillögur sínar. Umbætur í menntamálum fyrstar á dagskrá Georges W. Bush George W. Bush Bandaríkjafor- seti hefur lagt tillögur um umbætur í menntamálum fyrir bandaríska þingið þar sem meðal annars er gert ráð fyrir að samband verði milli íjárveitinga til skólanna og frammi- stöðu nemendanna. Þá eru í tillög- unum umdeildar þjónustuávísanir sem foreldrar geta ráðstafað til menntunar barna sinna. „Við verðum að einbeita okkur að því að eyða skattfénu í hluti sem virka,“ sagði Bush í gær þegar hann skýrði frá tillögum sínum. „Of oft höfum við eytt fé án þess að hugsa nokkuð um árangurinn, án þess að dæma hvort vel eða illa hafi tekist til frá ári til árs.“ Bush leggur meðal annars til að böm í 3. til 8. bekk verði prófuð í lestri og reikningi á hverju ári. Skólar og fræðsluumdæmi þar sem árangurinn batnar geta þá átt von á umbun fyrir vel unnin störf en hin- ir yrðu að súpa seyðið af slælegri frammistöðu. Bæjarlínd 6, sími 554 6300 Opið virka daga 10-18. Laugard. 10-16, sunnud. 13-16. Konubrjóst eru ekki vinnutæki Konubrjóst eru ekki vinnutæki, jafnvel þó um nektardansmey sé að ræða. Þetta úrskurðaði yfirskatta- nefnd í Danmörku í gær. Skattayfir- völd í heimabæ Liu Damén höfðu heimilað henni að draga um 200 þúsund íslenskra króna frá skatti vegna brjóstastækkunar. Brjóstin lét hún stækka til að verða glæsi- legri viö starf sitt. Utför Kabila Þúsundir syrgjenda og leiötogar nokkurra Afríkuríkja voru í gær viö útför Laurents Kabiia Kongóforseta sem var myrtur í síöustu viku. Sonur Kabila, Joseph, veröur settur í embætti forseta í dag. Þýskalandskanslari enn til varnar utanríkisráðherra sínum: Fischer neitar að hafa hýst hryöjuverkakonu Joschka Fischer, utanríkisráð- herra Þýskalands, þurfti enn einu sinni að gera grein fyrir atburðum úr umdeildri fortíð sinni í gær. Fischer, sem hafði vísað á bug fregnum fjölmiöla um að hann hefði eitt sinn skotið skjólshúsi yfir fé- laga í skæruliðasamtökunum sem kennd eru við Baader-Meinhof, hef- ur nú viðurkennt að hafa hugsan- lega dvalið í sama húsi og hryðju- verkakonan Margit Schiller í Frankfurt á áttunda áratugnum og að hann kynni að hafa hitt hana. Hann þrætti þó áfram fyrir að hafa aöstoðað hana á nokkum hátt. Fischer hefur aldrei farið leynt með það að hann tók þátt í hreyf- ingu róttækra námsmanna á átt- unda áratugnum. Nýlega var mjög hart sótt að Fischer vegna upp- ljóstrana um þátt hans í götuóeirö- um og slagsmálum við lögreglu á áttunda áratugnum. Stjórnarand- stæðingar hafa krafist afsagnar ut- Fischer og Schröder Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, hefur enn á ný þurft aö gera grein fyrir fortíö sinni vegna frétta fjölmiöla. Gerhard Schröder kanslari kom til hjálpar ráöherra sínum í gær vegna síöustu uppljóstrananna. anríkisráðherrans og segja hann ekki veröugan fulltrúa Þýskalands. Gerhard Schröder kanslari veit hins vegar sem er að það er Joschka Fischer sem heldur stjórn græn- ingja og jafnaðarmanna saman, enda Fischer vinsælasti stjórnmála- maður Þýskalands. Kanslarinn tók því enn einu sinni upp hanskann fyrir utanrikisráðherra sinn í gær og vísaði árásunum á hann á bug, svo og árásunum á annan ráðherra græningja, umhverfisráðherrann Júrgen Trittin. Sá hefur þegar beðist afsökunar á þætti sínum í birtingu dreiflbréfs námsmanna þar sem lýst var ánægju með morðið á saksóknaranum Siegfried Buback árið 1977. Vinstrisinnaðir hryðju- verkamenn voru þar að verki. „Báðir ráðherrarnir eru fyrir löngu búnir að segja allt sem segja þarf um þetta,“ sagði Schröder sem sjálfur var harðlínumarxisti sem námsmaður á áttunda áratugnum. Nyr oliuleki ur skipinu við Galapagoseyjar Meiri olía streymdi í hafið viö Galapagoseyjar í gær vegna nýs leka í olíuflutningaskipinu Jessica sem strandaði við eyjamar i síðustu viku. Umhverfisráðherra Ekvadors, Rodolfo Rendon, greindi frá þessu í gær. Yfirvöld í Frakklandi, Þýska- landi, Bretlandi auk Evrópusam- bandsins hafa lofað aðstoð við bar- áttuna gegn olíunni sem ógnar hinu viðkvæma vistkerfi við eyjarnar. Alls hafa yfir 700 þúsund lítrar olíu runnið úr skipinu. Tekist hefur að dæla 65 þúsund lítrum yfir í önnur skip en verkið hefur tekið lengri tima en gert var ráð fyrir vegna þess hversu vont hefur verið í sjó- inn. í skipinu var 1,1 milljón lítra af olíu. Frakkar, Þjóðverjar og Evrópu- sambandið ætla að senda sérfræð- Æ Pelíkana bjargað Líffræöingar meö pelíkana á leiö í þvott. Fuglinn er útataöur í olíu. inga á svæðið og aðstoðarutanríkis- ráðherra Bretlands, Peter Hain, lof- aði í gær um 7 milljónum króna í fjárhagsaðstoð. Áður en olía tók að streyma úr skipinu á ný í gær hafði ástandið batnað nokkuð. Olían hafði borist burt að miklu leyti með sterkum straumum. „Straumarnir eru hins vegar óútreiknanlegir og vindáttin getur breyst," sagði umhverfisráð- herra Ekvadors. Alfredo Negrete, talsmaður for- seta Ekvadors, Gustavo Noboa, sagði í gær að bera mætti olíulek- ann saman við jarðskjálfta. Neyðar- ástandi var lýst yfir á Galapagoseyj- um á mánudaginn. Landstjóri eyj- anna, Fabian Parra, sagði að hefðu menn haft réttan búnað hefði mátt koma í veg fyrir að skaðinn yrði jafn mikill og raun bar vitni. 1. vinningur: Jóladraumur Charles Dickens Helena Svava Hjaltadóttir Sólvallagötu 44 230Keflavík 12738 2. vinningur: Barnanna hátíð blíð ReynirBerg Efstahraun26 240Grindavík 16086 3. vinningur: Jólin koma, Jóhannes úr Kötlum Telma Amarsdóttir Suðurengi35 800 Selfoss 13034 Þökkum þátttökuna!!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.