Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001
Skoðun r>V
Spurning dagsíns
Ertu búin/n að fara á útsöiur?
Helga Sveinbjörnsdóttir nemi:
Já, ég hefgaman af því aö versla.
Þór Jónsson nemi:
Nei, hef ekki tíma.
Þórir Ólafsson nemi:
Ekki enn þá, óþarfi aö stressa sig.
Dagfari
Pósturinn fyrr og nú
Fyrrv. póstmaöur
skrifar:
Stuttu eftir að íslandspóstur varð
til var hafist handa við að losa sig
við þrautþjálfaðan og frábæran yfir-
mann. - Mánudag einn mætir sá
ágæti maður til vinnu en skrifstofa
hans var horfin og stuttu síðar er
honum boðinn starfslokasamningur
sem hann þáði. Síðan hafa þeir ver-
ið að týna tölunni, starfsmennimir,
einn eftir annan, starfsmenn sem
höfðu mikla þekkingu og starfs-
reynslu á öllum sviðum.
Sem dæmi má nefna að einn yfir-
maður flokkunardeildar var rekinn
vegna þess að hann mótmælti ein-
um af nýju yfirmönnunum. Stuttu
síðar voru hinir yfirmenn flokkun-
ardeildarinnar færðir til í störf sem
byrjendur hefðu síðan tekið að sér.
„Að hafa lokað á Þorláks-
messu og aðfangadag jóla á
öllum pósthúsunum var
forkastanleg ákvörðun. Á
öllum flokkunardeildum
var mikið að gera, svo og
hjá bréfberum, þótt vera
megi að á skrifstofunni
sjálfri hafi verið rólegt. “
Báðir góðir yfirmenn sem gjör-
þekktu alla starfsemina. Svo hafa
aðrir yfirmenn verið látnir hætta
hver af öörum með starfslokasamn-
ingi sem þeir eru neyddir til að
samþykkja. Einn hinna nýju yfir-
manna lýsti því yfir að vægi póst-
húsa væri sífellt að minnka sem er
auðvitað bull og þvaður. Pósthúsin
eru hornsteinn að allri starfsem-
inni. Að hafa lokað á Þoriáksmessu
og á aðfangadag jóla á öllum póst-
húsunum var forkastanleg ákvörð-
un. Á öllum flokkunardeildum var
mikið að gera, svo og hjá bréfber-
um, þótt vera megi að á skrifstof-
unni sjálfri hafi verið rólegt.
Það eru mikil viðbrigöi frá því
Matthías Guðmundsson var póst-
meistari og síðar Björn Björnsson
með yfirmenn á borð við Sigurð
Ingason og Árna Þór Jónsson. Allt
frábærir og góðir menn. Þeir hlúðu
að starfsfólki, sér í lagi eldri starfs-
mönnum (oft komnum á aidur), og
buðu þeim að vinna í timavinnu frá
kl. 16-19. - Já, það er sannarlega af
sem áður var á Póstinum.
Anna Lilja Gunnarsdóttir nemi:
Já, keypti mér skyrtu og bindi.
Á fréttastofu Stöðvar 2
Meiri fréttir af landsbyggöinni en á ríkissjónvarpinu, aö mati bréfritara.
Sjónvarpsfréttir af
landsbyggðinni
Garðar Haröar frá Stöövarfiröi
skrifar:
Gamall félagi minn, PáU Ásgeir
Ásgeirsson, blaðamaður á DV, skrif-
ar fjölmiðlagagnrýni föstudaginn 19.
janúar sl„ undir yfirskriftinni
„Þekktu landið þitt“. í grein sini
fjallar Páll um mun á fagmennsku
Sjónvarpsins RÚV annars vegar og
Stöðvar 2 hins vegar.
Nú finnst mér skylt að taka fram
að ég er ekki áskrifandi að Stöð 2,
og hef aldrei verið, en fylgist jafnan
með fréttum beggja stöðvanna. Páll
leggur áherslu á hve Sjónvarpið
fjalli miklum mun meira og betur
um landsbyggðina en Stöð 2 , sem
helst sýni gamlar myndir af atburð-
um sem á landsbyggðinni gerast.
Það eru orðin nokkur árin síðan
við félagarnir bjuggum í sama húsi
á litlum stað á landsbyggðinni, en
þá var jafnan sama efni i sjónvörp-
„Nú finnst mér þetta vera
orðið eitthvað öðruvísi,
allavega þá hef ég eins og
margir aðrir landsbyggða-
menn tekið sérstaklega eftir
því hversu Stöð 2 sýnir
miklu fleiri fréttir af téðri
landsbyggð heldur en RÚV
Sjónvarp ..."
um okkar beggja, svarthvítum að
visu.
Nú fmnst mér þetta vera orðið
eitthvað öðruvisi, allavega þá hef ég
eins og margir aðrir landsbyggða-
menn tekið sérstaklega eftir því
hversu Stöð 2 sýnir miklu fleiri
fréttir af téðri landsbyggð heldur en
RÚV Sjónvarp, sem ætti sem ríkis-
rekin stofnun að sinna öllum lands-
mönnum jafnt.
Gamall kunningi minn, sem var
fréttaritari RÚV Sjónvarps hér í
eina tíð, sagði mér, þegar ég spurði
hann hvers vegna ekki kæmu fleiri
fréttir af tilteknum landshluta en
raun var, að hann væri alveg hætt-
ur að fara og mynda og taka viðtöl
fyrir Sjónvarpið, án þess að spyrja
viökomandi yfirvöid fyrst hvort
áhugi væri á fréttinni. Hann hafði
nefnilega rekið sig á að hafa ferðast
hundruð kílómetra til fréttaöflunar,
sem aldrei komust í fréttir RÚV
Sjónvarps.
Á Stöð 2 virðist mér hins vegar
fréttin vera aöalatriðið en ekki
hvort áhugamaður tók myndirnar
eða ekki. Vonandi fórum við Palli
að hafa sama sjónvarpsefnið fyrir
augunum á báðum stöðvum í kom-
andi framtíð.
Elíza Sverrisdóttir nemi:
Nei.
Rut Þorsteinsdóttir nemi:
Nei, mér finnst leiöinlegt aö
fara í búöir.
Einar Ben. og Kári Stef.
Dagfari hefur nú loks lokið lestri á þremur
hnausþykkum bindum af ævisögu Einars Bene-
diktssonar og er sem þrumu lostinn. Þvíiíkur
reyfari! Hvílíkt ævintýri! Að æviskeið eins manns
skuli hafa tekið á sig allar þær myndir sem lýst er
í ævisögu þjóðskáldsins gerir líf Dagfara helst til
hversdagslegt. Eiginlega skammast hann sín fyrir
að hafa fæðst. Og þó.
Einar Ben. beitti persónutöfrum sínum í við-
skiptum við auðmenn viða um heim og náði
trausti þeirra með augnaráðið eitt að vopni. Eftir-
leikurinn var svo annað mál og stundum flóknari.
Þegar ekkert gekk að selja fossa var byrjaö að
grafa eftir gulli í Mosfellssveit og peningamir
streymdu í vasa Einars. Svo ekki söguna meir.
Dagfari er á því að menn eins og Einar Ben.
komi fram einu sinni á öld. í dag er það Kári Stef.
sem er að skrifa fjármálareyfara framtíðarinnar
með umsvifum sínum vestan hafs og austan - líkt
og Einar Ben. Með persónutöfrum sínum og sann-
færingarkrafti hefur Kári Stef. sannfært þúsundir
um að ráð sé aö leggja sparifé og ekki síður lánsfé í
erfðagreiningu sem eigi eftir að skila þúsundföldum
hagnaði áður en langt um líöur. Þessu lofaði Einar
Ben. líka á sínum tíma og skipti þá engu hvort um
var að ræða jámbrautir um Suðurland, virkjun
fallvatnanna eða gullgröft í Mosfellssveit. Pening-
Að œviskeið eins manns skuli hafa
tekið á sig allar þœr myndir sem
lýst er x ævisögu þjóðskáldsins gerir
líf Dagfara helst til hversdagslegt.
Eiginlega skammast hann sín fyrir
að hafa fœðst. Og þó.
arnir skiluðu sér bara aldrei en það var ekki Ein-
ari Ben. að kenna. Þröngsýnir stjórnmálamenn og
óvildarmenn brugðu fyrir hann fæti hvenær sem
tækifæri gafst til og því fór sem fór. Einn sat hann
eftir í Herdisarvík í hárri elli, rúinn vinum og fjár-
munum og dó þar drottni sínum í fangi konunnar
sem tilbað hann til síðustu stundar.
Kári Stef. er enn í blóma lífsins og hefur sömu
starfsorku og Einar Ben. þegar hann hreiðraði um
sig á Palads-hótelinu við Ráðhústorgið í Kaup-
mannahöfn og gerði díla út og suður. Öfundar- og
óvildarmenn Kára Stef. eru þegar farnir að naga
hann líkt og Einar Ben. hér áður og viðbrögðin
eru þau sömu hjá báðum. Einar Ben. hellti sér yfir
andstæðinga sína í ræðu og riti og stóð þá vart
steinn yfir steini. Kári Stef. rífur kjaft á fundum
með fjárfestum sínum, segir bankastjóra ekki hafa
unnið heimavinnuna sina og stjómmálamenn ekki
skilja tækifæri framtíðarinnar. Enn er til nóg af
peningum líkt og var hjá Einari Ben. þegar hann
var á sama aldri og Kári Stef. er nú. En skyldi fara
eins fyrir Kára og Einari á 65 ára afmælinu þegar
þjóðskáldið fékk aðeins 12 heillaóskaskeyti - þar af
fjögur frá hálfvitum? Kári Stef. á enn 13 ár i þau
tímamót og Herdísarvíkin er á sínum stað ef allt
fer á sama veg og fyrrum.
Dagfari tekur ofan fyrir Einari Ben. og óskar
Kára Stef. farsældar í framtíðinni. Þvílikir reyfar-
ar! Hvílík ævintýri! ^ ^ ,
Yfirfull bílastæöi viö Landsspítalann
Flutningur Hringbrautar
næsta skrefíö?
Færið Hringbrautina
Jóhann Sigurðsson skrifar:
Það er orðið áskipað á bilastæðun-
um við Ríkisspítalann við Hring-
brautina (Landspítalann og aðrar
deildir hans). Raunar er ekki hægt að
koma þangað akandi eftir að vinna
hefst á morgnana vegna þess að það
em engin bílastæðí fyrir aðkomufólk
sem kemur akandi á eigin bOum.
Löngu er búið að ákveða að færa
Hringbrautina þannig að hún liggi
fram hjá Öskjuhlíðinni og svo áfram.
Nú verður varla beðið mikið lengur
með þessa framkvæmd og er reyndar
komin fram yfir öll tímamörk vegna
álags. Ég skora því á borgaryfirvöld
að heQa nú þegar flutning á Hring-
brautinni.
Þú fagra rósin mín
Ágústa skrifar:
í lesendadálki DV fyrir jólin talaði
Elín Guðjónsdóttir um eitraða
jólarós á borðum, hættulegri en að
anda að sér reyk, var sagt. Mynd
fylgdi pistlinum af jólastjörnu
(Euphorbia pulchernina). Jólastjörn-
ur eru með stór og fógur háblöð í
rauðum, bleikum eða hvítum lit og
geta haldið lit í allt að hálft ár. Ekki
er hún baneitruð en varast ber að
láta mjólkina úr henni koma nálægt
augum. Jólastjarna er komin frá
Kúbu og er vinsæl á Kanaríeyjum.
En jólarós (Hellebore niger,
Christmas rose) og páskarós (Helle-
bore abehasicus) er aiit önnur Eila og
lítið í ræktun hér. Helleborus er af
sóleyjarætt og eru þær allar eitraðar.
Sverrir og óbermið
Sigurjón Jónsson skrifar:
í umræðunni á
Alþingi um hið
nýja frumvarp rík-
isstjórnarinnar um
öryrkjamálið kall-
aði Sverrir Her-
mannsson frum-
varpið „óbermi".
Orðið kannaðist ég
við en hafði ekki
heyrt það áratugum
saman og því vakti
það athygli mína.
Nú segja mér fróðir
menn að Sverrir
Hermannsson mun vera mestur ís-
lenskumaður á Alþingi þessa stund-
ina og þarfnast máifar hans engra
leiðréttinga. En orðinu fletti ég upp í
Blöndalsorðabók og þar er það þýtt á
dönsku með orðinu „vantrivning". Er
ég fletti því orði upp í dansk-íslenskri
orðabók sá ég að þar er það þýtt með
orðinu „afstyrmi". Fróðlegt væri að
heyra frá lærðum mönnum eða leik-
um, hvað þeim finnst um óbermi
og/eða afstyrmi.
Pólitík og póker
J. Stuart hringdi:
Það er ekki ofsögum sagt af pólitík-
inni í ykkur íslendingum en
skemmtileg er hún á að hlýða þegar
ykkur tekst vel upp. En þið vanmetið
Ameríkana þegar þið segið að þeir
hafi ekki vit á stjómmálum og taki
varla þátt í kosningum. Bandaríkja-
menn segja gjaman þegar minnst er á
stjórnmál við þá: „politics and poker“
(eða pólítík og póker) og segja þetta
tvennt fara saman, enda ráði kjósend-
ur engu hvort eð er. Þetta ættuð þið,
íslendingar, eins ákafir um stjómmál
og þið eruð, að ihuga. Ráðið þið
nokkru þegar allt kemur tii alls?
Sverrir
Hermannsson
alþm.
Læröur er í lyndi
giaöur...
wszasmE
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyKJavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.