Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 25
*L 45 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 DV Tilvera Sveifla á Kaffi Reyk j avík Mikið var um dýrðir á Kaffi Reykjavík á föstudagskvöld þegar Stórsveit Reykjavíkur hélt þar mikla tónleika. Sænski hljómsveit- arstjórinn og trompetleikarinn Fredrik Norén stýrði sveitinni ör- ugglega og eins og sjá má á mynd- unum voru stórsveitarmenn í ess- inu sínu. Leikið af fingrum fram Davíö Þór lék á píanó meö stórsveit- inni sem glittir í fyrir aftan hann. Mediterað fyrir tónleika Básúnuleikararnir gera sig klára hver með sínum hætti áöur en tíón- leikarnir hefjast. Beðið eftir að tónleikarnir byrji Örn Hafsteinsson og Einar Jónsson eru hér meö trompetin sín fyrir tónleikana. Blásiö í saxófóna dv myndir einar j. Fremst á myndinni er Jóel Pálsson saxófónleikari. Gestir ávarpaöir dv-myndir einar j. Listamaöurinn Robert Dell flutti ávarp viö opnunina. Hjá honum stendur Eirík- ur Þoríáksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur. Hitavættir í Hafnarhúsi Á laugardaginn var opnuð sýning á höggmyndum Roberts Dell í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Á sýn- ingu Dells eru hitavættir hans sem eru svokallaðar jarðhitahöggmyndir. Myndimar eru afar sérstæðar og mátti lesa áhuga úr augum gestanna í Hafn- arhúsinu. Listamaðurinn ávarpaði gesti við opnunina. Gestir skoða skúlptúr Gestir viö opnunina í Hafnarhúsinu viröa fyrir sér skúlptúr Roberts Dell. Gestir skeggræða Þór Magnússon, fyrrverandi þjóö- minjavöröur, og Knútur Bruun úr Hverageröi voru meöal gesta viö opnunina. Hugsandi gestir Þau Gunnar Árnason myndlistar- gagnrýnandi og Soffía Karlsdóttir, kynningarstjóri Listasafns Reykjavik- ur, eru þungt hugsi. Húðflúrið ergir maórana Maórahöfðinginn Pita Sharples segir í viðtali við breska æsifrétta- blaðið The Sun að húðflúrið, sem Robbie Williams sýnir á sér í tíma og ótíma, tilheyri einungis hans ættflokki. Robbie er með margs kom ar húðflúr til heiðurs móður sinni og öðrum vinum. Að sögn blaðsins Sun táknar maórahúðflúrið drauma hans og framtíðaráætlanir. Robbie Williams á það sameigin- legt með knattspyrnukappanum David Beckham að hafa reitt fólk til reiði með húðflúri sínu. David lét rita nafn konu sinnar, Victoriu, á húð sína á hindí. Stafsetningarvilla var í nafninu og varð David að at- hlægi fyrir vikið. Sérfræðingum í hindí gramdist að ekki skyldi vers- hægt að rita nafnið rétt. ™i J_r-A -/J-lJ-/-J hagkaup,is BOHUSUIDEO f'WíJ* h*r$lí Qui/nós ^ suns • ttimir Suðurlandibnut 32 vísir.is Mw«as888a»gwnmiiiiMw«ítiMu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.