Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Qupperneq 28
Nýr Subaru Impreza FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 Landsleikur: Pappírslausir fylgifiskar Sýslumaðurinn á Keflavíkurflug- jitelli og Útlendingaeftirlitið voru með mikinn viðbúnað í Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar í hádeginu í gær við komu makedónska landsliðsins í körfuknattleik hingað til lands. Með liðinu voru 60 áhangendur án vega- bréfsáritunar sem tóku sér far með landsliði sínu í algerri óvissu um hvort þeim yrði hleypt inn í landið. Sjálflr voru landsliðsmennirnir með alla pappíra í lagi og eftir mikla reki- stefnu var ákveðiö að veita stuðnings- mönnunum 60 tíma bundið dvalar- leyfi til tveggja daga og munu þeir þvi geta fylgst með liði sínu leika gegn ís- lenska körfuknattleikslandsliðinu í kvöld. Leikurinn er liður í Evrópu- keppni landsliða í körfuknattleik. Að sögn þeirra sem til þekkja er landslið Sbkedóníu „...hörkugott lið.“ Ekki er harkan síðri í stuðningsmönnunum eins og ferð þeirra hingað til lands sýnir. -EIR - Tryggingastofnim: Getur greitt út um mánaðamótin „Við eru búnir að vera að undirbúa okkur í nokkrar vikur og verðum til- búnir til að greiða öryrkjum þann 1. febrúar," segir Ágúst Þór Sigurðsson. framkvæmdastjóri Lífeyristrygginga- sviðs Tryggingastofnunar ríkisins. Hann segir að þar sem búið sé að sam- þykkja frumvarp ríkisstjómarinnar sé ekkert því til fyrirstöðu að stofnun- in greiði öryrkjum um næstu mánaða- mót. „Þetta ætti að koma rétt og vel út,“ segir Ágúst. -MA Heilsudýnur t sérflokki! r /efn&heil sa: THEILSUNNAR ve Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150 bfother P-touch 9200PC Prentaöu merkimiða Samhætt Windows 95, 98 og NT4.0 360 dpi prentun 1 til 27 mm letur Strikamerki Rafport 5 Nýbýlavegi14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport beint ur tölvunm DV-MYND HARI Allt í góöu Makedónskur stuöningsmaöur landsliösins þakkar fyrir sig í vegabréfsskoöun í Leifsstöö í gær. Meö makedónska liö- inu voru 60 áhangendur án vegabréfsáritunar sem tóku sér far meö landsliöi sínu í algerri óvissu um hvort þeim yröi hleypt inn í landiö. Þ j óðhagsstof nun: Annað en gengisfelling gæti gagnast Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, segir að nefnd Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, sem var hér á landi, hafi sérstak- lega bent á aukið aðhald í peninga- og ríkisfjármálum sem beindist að draga úr þjóðarút- gjöldum og að stjómvöld beiti sér fyrir að laun hækki ekki meira en sem samræmist þjóðhagslegum for- sendum. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur lýst áhyggjum vegna mikils viðskiptahalla. Þórður segir að ábendingar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins feli ekki í sér aö gengisfellings sé á döfinni. „Það er aukið aðhald sem gæti bæði falist í lækkun ríkisútgjalda og í aðhaldi að fjármálastofnunum sem þýddi tak- markaðra svigrúm til að auka útlán- in. Hér var frekar ábending um að vera á verði í efnahagsmálum. Þar var líka tekið fram að margt heföi gengið vel í íslenskum efnahagsmál- um,“ segir Þóröur. -gk Þórður Friöjónsson. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Öryrkjabandalagsins, um svarbréf Garðars Gíslasonar: Forseti Hæstaréttar ís- lands er orðinn vanhæfur - sjálfsagt að svara bréfinu, segir Jón Steinar Gunnlaugsson Ragnar Aðalsteinsson hrl., lögmað- ur Öryrkjabandalags Islands, segir að Garðar Gíslason, forseti Hæsta- réttar, hafl gert sjálfan sig vanhæfan í gær með því að svara forsætisnefnd Alþingis efnislega til um nýlegan dóm Hæstaréttar. „Garðar getur auðvitað ekki tekið þátt i meðferð þessa máls oftar eða ágreiningsefnum þar sem málefni Ör- yrkjabandalagsins eru annars vegar og heldur ekki í málum þar sem tek- ist er á um tekjutryggingu," sagði Ragnar við DV i morgun. Ragnar segir að ef forseti Hæsta- réttar haldi því fram að aðrir dómar- ar hafl tekið þátt í að semja svarbréf- ið með sér þá sé hann aö gera þá van- hæfa líka. „Þá verður að upplýsa hverjir það eru,“ sagði Ragnar. í Morgunblaðinu í dag er haft eftir for- seta Hæstaréttar að bréfið hafi verið sent „í samráði við dómara réttar- i --------1 ------Efc------- Jón Steinar Ragnar Aöal- Gunnlaugsson. steinsson hrl. ins“ - tilefni svarsins hafi verið mjög óvenjulegt. Ragnar segir engu að síð- ur að hann telji fullvíst að Garðar Gíslason beri einn ábyrgð á framan- greindu bréfi og það sé óviðkomandi öðrum átta dómurum Hæstaréttar. í svarbréfi Garðars til forsætis- nefndar kemur fram að i dómi Hæstaréttar fyrir áramót í máli ÖBÍ hafi aðeins verið tekin afstaöa til þess að tekjutenging eins og nú sé mælt fyrir um í lögum sé andstæð stjórnarskránni og dómurinn feli ekki í sér afstöðu til frekari álitaefna. „Eins og ég skil bréfið segir Garð- ar að frumvarpið sé í andstöðu við dóminn," segir Ragnar. „Garðar passar sig á að hafa þann fyrirvara á að almennt sé ekki óheimilt að skerða tekjutryggingu - en svo segir hann að dómurinn segi að í þessu til- viki hafi það verið óheimilt. Það þýð- ir að túlkun min og Öryrkjabanda- lagsins á dómnum sé rétt að óheimilt sé að skerða 33 þúsund króna tekju- tryggingu. Þessi nýju lög sem lækka hana niður í 25 þúsund krónur á mánuði eru þar af leiðandi andstæð dómi Hæstaréttar, að sögn Garðars Gíslasonar,11 sagði Ragnar. Jón Steinar Gunnlaugsson segir mjög sjaldgæft að forseti Alþingis leiti útskýringa hjá Hæstarétti í dómsmáli eins og Halldór Blöndal gerði varðandi öryrkjamálið. Hann segir þá staðreynd að Garðar Gísla- son, forseti Hæstaréttar, sem svaraði fyrirspuminni og hafi jafnframt ver- ið í minnihluta þegar dómurinn var kveðinn upp, ekki skipta máli í þessu sambandi. „Það er fráleitt að hann sé óhæfur enda var hann ekkert að tjá sig um afstöðu minnihlutans. Það er útúrsnúningur að gera svar hans tor- tryggilegt af þessum sökum. Hann svarar bara fyrir hönd réttarins sem forseti Hæstaréttar. Ég tel líka að við þessar aðstæður hafi verið sjálfsagt hjá réttinum að svara þessu bréfi. Það eru þannig að- stæður í þjóðfélaginu í kringum þetta mál og í raun verið að taka af tví- mæli um atriði sem hefði átt að vera skýrt í dómnum. Á bak við svar for- seta Hæstaréttar er auðvitað efnisleg skoðun dómaranna í réttinum á þessu atriði. -HKr/-Ótt Alþingi samþykkti öryrkjalögin í nótt: Heit kartafla i fang forsetans DVWIYND INGÓ Frá Alþingi í nótt Öryrkjalögin voru samþykkt á Al- þingi laust eftir miðnætti í nótt eft- ir langar og heitar umræður sem tóku á sig ýmsar myndir. Um fjögur hundruð ræður voru fluttar vegna málsins í Alþingishúsinu en úti fyr- ir stóðu öryrkjar með logandi kyndla á lofti og púuðu á þingmenn þegar niðurstaðan lá fyrir. Garðar Sverrisson, formaður Ör- yrkjabandalagsins, sagöi daginn þann svartasta í sögu lýðveldisins. Innandyra líkti Ámi Johnsen al- þingismaður Steingrími J. Sigfús- syni, formanni Vinstri-grænna, við hund sem væri sígeltandi og ekki til neins nýtur. I máli Einars Odds Kristjánssonar alþingismanns kom fram að fyrrum bankastjórar Landsbankans væru gegnumrotnir og spilltir og er þá fátt eitt nefht af því orð- skrúði sem fyllti þing- sali á meðan á um- ræöum um öryrkja- lögin stóð. Lögin verða nú send forseta íslands til undirritunar og staðfestingar. Líklegt er talið að forsetinn undirriti lögin í stað þess aö taka þann slag sem fylgir neiti hann að staðfesta þau og setji málið þar með í þjóðaratkvæði: „Þetta er heit kartafla sem Al- þingi sendir í fang forsetans. Þaö er hans að bregðast við samkvæmt sannfæringu sinni," sagði einn þingmanna að loknum umræðum og bætti þvi við að hann öfundaði forseta íslands ekki af hlutskipti sínu í dag. Mjög hefur mætt á Garðari Sverrisyni líkt og öðrum sem að málinu hafa komið undanfama daga. Garðar, sem er langt genginn MS-sjúklingur, tók sér frí frá störf- um í dag og hyggst hvílast til að endurheimta krafta sína. -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.