Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 22
42 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 Ættfræði DV Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 80 ára_________________ 4í0iildur Guðlaugsdóttir, SUðurgötu 15, Keflavík. 75 ára Kristín Kristjánsdóttir, Háabarði 10, Hafnarfirði. Matthías Bjarnason, Búlandi 29, Reykjavik. 70 ára Guðmundur Guðnason, Stuðlaseli 13, Reykjavik. Guðrún Guðnadóttir, Norðurbrún 16, Reykjavik. Herdís Þorgrímsdóttir, "ftrnarstapa, Húsavík. Ingi Bergmann Karlsson, Aðallandi 11, Reykjavik. Jón M. Samsonarson, Melhaga 11, Reykjavík. Ragnar Jónatansson, Vogatungu 30, Kópavogi. 60 ára Guðbjörg Andrésdóttir, Þórólfsgötu 10, Borgarnesi. Guðrún Jóhannesdóttir, Hlíöarhaga, Akureyri. 50 ára Halldór Bergmann Þorvaldsson, Bollatanga 9, Mosfellsbæ. Jón S. Ástvaldsson, Skipholti 53, Reykjavík. 'fefístín Snæbjörnsdóttir, Þórufelli 16, Reykjavík. Lovísa Erlendsdóttir, Jörvabyggð 9, Akureyri. Páley B. Geirdal, Lerkigrund 6, Akranesi. Sigurjón G. Davíðsson, Lækjasmára 62, Kópavogi. Tryggvi Gíslason, Hólmgarði 19, Reykjavík. 40ára Bergsveinn Olafsson, JStafafelli, Höfn. Bragi Þór Jósefsson, Lundarbrekku 10, Kópavogi. Guðbjörg Steinarsdóttir, Seljalandi 3, Reykjavík. Ómar Stefánsson, Áshamri 69, Vestmannaeyjum. Rannveig Óskarsdóttir, Langholtsvegi 63, Reykjavík. Reimar Ingimundarson, Básahrauni 19, Þorlákshöfn. Rúnar Valgeir Hákonarson, Helgafelli 9, Eskifirði. Sigrún Guðlaugsdóttir, Maríubakka 26, Reykjavík. Sóley Birgisdóttir, Kirkjuvegi 39, Keflavík. Stefán Tryggvason, Merki, Akureyri. Súsanna Steinþórsdóttir, ^Háholti 30, Akranesi. Smáauglýsingar Allt til alls ►I550 5000 Andlát Guðbjörg Einarsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Uppsölum, Fáskrúösfiröi, föstud. 19.1. Pálmar Guðni Guðnason, Hrafnistu, Hafnarfiröi, lést sunnud. 21.1. Útförin verður auglýst síöar. Gilbert Sigurðsson, Rauöalæk 2, Reykjavík, andaöist á Landspítalanum Fossvogi, sunnud. 21.1. Páll S. Helgason, Gullsmára 9, Kópavogi, lést sunnud. 21.1. Guðrún Örnólfsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnud. 21.1. Útförin verður auglýst síðar. Útför Svövu Jóhannsdóttur, Skjóli, sem lést á gamlárskvöld, hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk. Ægir Einarsson Hafberg útibússtjóri Landsbanka Ægir Einarsson Hafberg, útibús- stjóri Landsbanka íslands hf. í Þor- lákshöfn, Setbergi 10, Þorlákshöfn, er fimmtugur í dag. Starfsferill Ægir fæddist í Reykjavík en flutti til Flateyrar á þriðja árinu þar sem hann ólst upp. Hann gekk í barna- og unglingaskóla á Flateyri, lauk landsprófl frá Héraðsskólanum á Núpi við Dýrafjörð 1967, stúdents- prófi frá MA 1971 og prófi í við- skiptafræði við HÍ 1976. Ægir hóf störf hjá Iðnaðarbanka íslands hf. að námi loknu og starf- aði þar á árunum 1976-80, tók þá við starfi sparisjóðsstjóra hjá Sparisjóði Önundaríjarðar á Flateyri og starf- aði þar til 1996 er hann tók við starfl útbússtjóra Landsbankans í Þor- lákshöfn þar sem hann starfar enn. Ægir sat m.a. í hreppsnefnd Flat- eyrarhrepps í átta ár, var oddviti hreppsnefndar í fjögur ár, sat í fjölda nefnda á vegum sveitarfélags- ins og ýmissa félagasamtaka, innan sveitar og utan, var m .a. formaður Lionsklúbbs Önundarfjarðar eitt kjörtímabil, tók þátt í stjórnmálum og var um tíma vþm. Alþýðuflokks- ins á Vestfjörðum, sat sem fulltrúi Byggðastofnunar í svonefndri Vest- fjarðanefnd sem starfaði 1994-96, var fulltrúi heimamanna í nefnd- inni Samhugur í verki sem starfaði eftir snjóflóðin á Flateyri 1995. Þá hefur hann starfað að félagsmálum kirkjunnar og er nú í sóknarnefnd Þorláks- og Hjallakirkju. Ægir er nú virkur félagi í Oddfellowreglunni, Kiwanisklúbbnum Ölveri og Golf- klúbbi Þorlákshafnar auk þess sem hann er fjárhirðir í Hrútavinafélag- íslands í Þorlákshöfn inu Örvari. Fjölskylda Ægir kvæntist 17.8. 1974 Margréti Thorarensen frá Akureyri, f. 20.9. 1953, húsmóður. Hún er' dóttir Valdimars Thorarensen, f. 26.9. 1910, d. 9.10. 1974, og Láru Hall- grímsdóttur, f. 28.12. 1917, d. 24.1. 1973. Þau bjuggu á Akureyri. Börn Margrétar og Ægis eru ein- ar, f. 25.2.1972, stjórnmálafræðingur en kona hans er Kristjana Nanna Jónsdóttir bókasafnsfræðingur og er dóttir þeirra Sunneva; óskírður drengur, f. 4.8. 1976, d. s.d.; Lára, f. 7.11. 1979, háskólanemi. Systkini Ægis eru Friðrik, f. 21.3. 1949, stýrimaður og nú sölustjóri; Sesselja, f. 25.12.1952, bankafulltrúi; Bjöm Kristján, f. 4.7. 1956, kennari og námsráðgjafi; Sigurður Jóhann, f. 5.1. 1959, fyrrv. forstöðumaður og nú nemi; Ágústa Margrét, f. 13.7. 1967, starfsstúlka. Foreldrar Ægis: Einar Jens Frið- riksson Hafberg, f. 8.8. 1919, d. 2.1. 1974, vélstjóri og síðar kaupmaður á Flateyri, og k.h., Kristbjörg Hjartar- dóttir Hafberg, f. 17.7. 1928, d. 30.1. 1979, húsmóðir og verkakona. Ætt Einar Jens var sonur Friðriks Hafberg Einarssonar, verslunar- manns og síðar bifreiðarstjóra og kafara á Flateyri, og Ágústu Mar- grétar Sigurðardóttur. Friðrik var sonur Einars Jens Friðrikssonar Hafberg, bónda í Ráðagerði og í Brekkukoti á Álfta- nesi, og Ingibjargar Eysteinsdóttur. Ágústa Margrét var dóttir Sigurð- ar Jónssonar, b. í Hrepphólum í Níræö HK Fanney Sigtryggsdóttir handavinnukennari Fanney Sigtryggsdóttir handavinnukennari, Hvammi, Húsavík, varð níræð í gær. Starfsferill Fanney fæddist á Stóru-Reykjum í Reykja- hverfi, Suður-Þingeyjar- sýslu, og ólst upp í Reykjahverfi. Hún stund- aði nám á Héraðsskólanum að Laugum 1929-30 og við Húsmæðra- skólann á Laugum 1936-37. Þá sótti hún sauma- og handavinnunám- skeið á Siglufirði og í Reykjavík og lauk námi við handavinnudeild Kennaraskóia íslands. Fanney var handavinnukennari við Laugaskóla 1939-40 og hafði jafnframt með höndum umsjónar- störf þar til 1942. Hún var handa- vinnukennari við Húsmæðraskól- ann á Staðarfelli í Dölum 1944-46 en var þá ráðin handavinnukennari við Húsmæðraskólann á Laugum og gegndi því starfi til 1975. Fanney var þar skólastjóri í tvo vetur. Eitt ár fékk hún orlof til fram- haldsnáms. Þegar hún hætti kennslu hafði hún stundað það starf í þrjátíu og tvö ár. Jafnframt kennslunni vann Fanney að búi for- eldra sinna og veitti þeim aðhlynningu eftir því sem unnt var vegna kennsl- unnar. Fanney og eiginmaður hennar fluttu til Húsavík- ur 1975. Síðustu árin sem hann lifði bjuggu þau í Litla-Hvammi 2, eigin húsi í tengsl- um viö Dvalarheimili aldraðra, og þar bjó Fanney síðan þar til 1998 að hún flutti í Dvalarheimilið Hvamm, þar sem hún býr enn. Fjölskylda Fanney giftist 2.7. 1967 Páli H. Jónssyni, f. 5.4. 1908, d. 1990, kenn- ara og rithöfundi frá Laugum. Hann var sonur Jóns Karlssonar, bónda á Mýri í Bárðardal, og k.h., Aðalbjarg- ar Jónsdóttur húsfreyju. Foreldrar Fanneyjar voru Sig- tryggur Hallgrimsson, f. 29.5. 1883, d. 27.9. 1979, bóndi að Stóru-Reykj- um í Reykjahverfi, og k.h., Ásta Lovísa Jónsdóttir, f. 19.12. 1873, d. 17.2. 1965, húsfreyja. Ægir Einarsson Hafberg, útibússtjóri Landsbankans í Þorlákshöfn. Ægir var sparisjóösstjóri Sparisjóðs Önundarfjaröar á Fiateyri á árunum 1980-96. Hann sat í hreppsnefnd Fiateyrarhrepps í átta ár, var oddviti hreppsins í fjögur ár og gegndi ýmsum trúnaöarstörfum fyrir sveitarfélagiö. Hrunamannahreppi, og k.h., Jó- hönnu Guðmundsdóttur. Kristjana var dóttir Hjartar Gunnlaugssonar, sjómanns í Stykk- ishólmi, og Sesselju Helgadóttur. Sextug í tilefni afmælisins verða Ægir og Margrét með opið hús og taka á móti gestum í Sal Grunnskólans í Þorlákshöfn laugard. 27.1. nk. milli kl. 18.00 og 21.00. Elsa Jóhanna Gísladóttir sjúkraliði í Hafnarfirði Elsa Jóhanna Gísla- dóttir sjúkraliði, Suður- braut 26, Hafnarfirði, er sextug í dag. Starfsferill Elsa Jóhanna fæddist í Reykjavík og ólst þar upp i vesturbænum fyrstu tólf árin. Hún stundaði nám við Gagnfræðaskóla vesturbæjar og lauk þaðan gagnfræðaprófi og út- skrifaðist síðar sem sjúkraliði frá Sjúkrahúsinu á Akranesi 1971. Elsa Jóhanna flutti á Akranes 1957 og starfaði á Sjúkrahúsi Akra- ness til 1974. Þá flutti hún til Hafn- arfjarðar þar sem hún hefur átt heima siðan. Elsa Jóhanna hefur verið sjúkra- liði frá 1971, m.a. á Sjúkrahúsi Akraness, í Drammen í Noregi, við Borgarspítalann og siðan við St. Jósefsspítala i Hafnarfirði til 1993. Fjölskylda Elsa Jóhanna giftist 30.8. 1974 Þorleifi Jóni Thorlaciusi, f. 28.9. 1944, verkamanni. Hann er sonur Haralds Thorlaciusar og Ólafíu Thorlaciusar en þau eru búsett í Reykjavík. Fyrri eiginmaður Elsu Jóhönnu var Jón Hjartar- son. Böm Elsu Jóhönnu og Jóns eru Gísli Már Jóns- son, f. 16.7.1958, lengst af sjómaður, búsettur í Sví- þjóð; Hjörtur Gisli Jóns- son, f. 1.10. 1959, verka- maður, búsettur í Reykjavík en sambýliskona hans er Elín Agla Briem; Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, f. 31.12. 1962, húsmóðir í Hafnarfirði en eiginmaður hennar er Emil Hörður Emilsson. Sonur Elsu Jóhönnu og Þorleifs er Haraldur Thorlacius, f. 27.4.1975, verkamaður á Eskifirði, sambýlis- kona hans er Borghildur Birna Þor- valdsdóttir, f. 7.6. 1970. Bróðir Elsu Jóhönnu er Sigurður Hilmar Gíslason, f. 16.2. 1946, þjónn og sjúkraliði, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Elsu Jóhönnu voru Gísli Guðni Jónsson, f. 12.5. 1909, d. 1980, stýrimaður í Reykjavík, og Hafdís H. Rosenberg, f. 9.8. 1914, d. 1990, húsmóðir. Elsa Jóhanna og Þorleifur veröa heima á afmælisdaginn til kl. 18.00. Merkir íslendingar Gunnar Gunnarsson Jarðarfarír Gunnar Gunnarsson, prestur í Laufási, fædd ist að Upsum 24. janúar 1781. Hann var sonur Gunnars Hallgrimssonar, prests í Laufási, og s.k.h., Þórunnar Jóns- dóttur, prests á Hálsi í Fnjóska- dal, Þorgrímssonar. Eiginkona Gunnars var Jó- hanna Kristjana, dóttir Gunn- laugs Briem, ættföður Briemsættar. Meðal bama þeirra voru Tryggvi banka- stjóri; Kristjana, móðir Hannes- ar Hafstein, og Gunnar, prófastur á Svalbarði. Dóttir Gunnars frá því áður var Þóra sem Jónas Hallgríms- son orti til ljóðið Ferðalok. Gunnar lærði fyrst hjá föður sinum, var í Hólaskóla í fimm vetur, lauk stúdentsprófi hjá Geir Vídalin biskupi og var síðan skrifari hans. Hann nam leiðbeiningar I lækn- isfræði hjá landlækni og öðlaðist lækningaleyfi 1817. Gunnar varð prestur í Laufási 1828 fyrir sterk meðmæli Steingríms Jónssonar biskups og hélt Laufási til æviloka. í íslenskum æviskrám er sagt um Gunnar að hann hafi ekki þótt „fljótskarpur framan af ævi, en jók mjög þekking sína með aldrinum, kostgæfinn og ár- vakur, stilltur vel, hægur og búmaður góður.“ Gunnar lést 24. júlí 1853. Valgerður D. Jónsdóttir, Aflagranda 40, Reykjavlk, verður jarðsungin frá Nes- kirkju föstud. 26.1. kl. 15.00. Útför Sigríðar Benjamínsdóttur hjúkrun- arfræðings verður gerö frá Hallgríms- kirkju fimmtud. 25.1. kl. 15.00. Ingibjörg Sigurjónsdóttir frá Lambalæk, Safamýri 42, Reykjavík, verður jarðsung- in frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð laugard. 27.1. kl. 14.00. Tryggvi Einarsson, Ránargötu 7a, Reykjavík, verðurjarðsunginn frá Foss- vogskirkju föstud. 26.1. kl. 10.30. Minningarathöfn um Guðrúnu Valdimars- dóttur frá Súgandafirði fer fram í Foss- vogskirkju miðvikud. 24.1. kl. 10.30. Jarðarförin fer fram frá Suöureyrarkirkju laugard. 27.1. kl. 14.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.