Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Side 7
7
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001
DV Fréttir
Rannsóknarnefnd flugslysa:
Niðurstöðu að vænta
í næsta mánuði
Niðurstöðu rannsóknar Rann-
sóknarnefndar flugslysa á slysinu í
Skerjafirði í ágúst síðastliðnum,
sem varð fimm manns að bana, er
að vænta eftir tæpan mánuð. Flug-
slysið varð er lítil flugvél, sem var
að koma frá þjóðhátíðinni í Vest-
mannaeyjum, hrapaði í Skerjafjörð.
Sex manns voru innanborðs og er
einn þeirra á lífi. Hann á enn við
heilsufarserfiðleika að stríða.
Að sögn Skúla Jóns Sigurðarson-
ar, rannsóknarstjóra Rannsóknar-
nefndar flugslysa, hafa aðilar sem
að málinu koma óskað eftir fresti
sem veittur var og má búast við því
að skýrslan verði tilbúin í kringum
20. febrúar. Skúli Jón vildi ekki
ræða rannsókn málsins nánar fyrr
en búið væri að gefa út skýrsluna.
Samkvæmt ársskýrslu rannsókn-
arnefndarinnar fyrir árið 1999 „er
eini tilgangurinn með rannsóknum
og skýrslugerð Rannsóknarnefndar
flugslysa að freista þess að finna
veika hlekki og gera tillögur i ör-
yggisátt sem mættu verða til þess að
svipuð atvik endurtaki sig ekki.“
Auk þess var óskað eftir rann-
sókn lögreglu á slysinu. Þeirri rann-
sókn er ekki lokið og eru, að sögn
lögreglu, enn nokkrar vikur í það.
-SMK
Flugslysiö í Skerjafiröi
Rannsóknarnefnd flugslysa rannsakar enn flugslys sem varö fímm manns aö bana þegar lítil flugvél hrapaöi í Skerja-
fjörö. Einn maður er á lífí eftir slysiö.
Hreindýr bönnuö
Kristjana Vagnsdóttir á Þingeyri vill flytja hreinkálfa austur en fær ekki.
Hreinkálfaflutningur í Dýrafjörð:
Hafnað vegna smithættu
„Ég hef tvívegis sótt um að fá að
flytja hreinkálfa að austan og vestur
í Keldudal i Dýrafirði og verið hafn-
að í bæði skiptin," segir Kristjana
Vagnsdóttir á Þingeyri. Kristjana er
ósátt við þá synjun, sérstaklega 1
Ijósi þess að innflutningur á nauta-
kjöti frá írlandi var heimilaður.
Hún segir að ástæðurnar sem henni
hafi verið gefnar séu smithætta og
að engin reynsla sé á því hvort dýr-
in geti lifað í dalnum.
Halldór Runólfsson yfirdýralækn-
ir segir að flutningur á dýrum milli
landshluta sé ekki frjáls. „Allar
beiðnir um leyfi eru metnar og sið-
an ákveðið hvort veita eigi leyfi eða
ekki,“ segir Halldór.
Hann segir að landinu sé skipt í
ákveðin vamarhólf og í þeim geti
verið mismunandi dýrasjúkdómar.
Ef mismunur sé á dýrasjúkdómum
á staðnum sem flytja á dýrin á og
þaðan sem þau koma sé ekki hægt
að veita leyfi og einmitt vegna þess
hafi flutningnum vestur í Keldudal
verið synjað með skriflegum at-
hugasemdum. -MA
Blönduóshöfn:
Nýi hafnargarð-
urinn molnar
PV, BLÓNDUÓSI:
„Það hafa verið miklar framkvæmd-
ir hér við höfnina síðustu árin. Þeim er
nú lokið og við sóttum ekki um neinar
fjárveitingar til nýframkvæmda,
þannig að það kom okkur ekkert á
óvart að engin fjárveiting er ætluð til
nýframkvæmda við höfnina á næstu
árum,“ segir Skúli Þórðarson, bæjar-
stjóri á Blönduósi, en það vakti athygli
að engar fjárveitingar eru ætlaðar til
Blönduóshafnar á hafnaáætlun
2001-2004. Höfnin hefur verið byggð
upp nú á seinni árum en um það mál
voru afar skiptar skoðanir lengi vel á
Norðurlandi vestra.
Skúli segir að hins vegar verði sóst
eftir fiármagni til viðhaids hafnarinnar
og til öryggismála, svo sem uppsetning-
ar stiga utan á hafnargarðinn. Hann á
von á því að peningar til viðhalds fáist
úr hafnabótasjóði en þegar hefur orðið
vart við tjón fremst við hafnargarðinn
undir yfirborði sjávar þar sem hefur
molnað úr fyllingu og hætta er á að ald-
an nagi úr kjamanum og valdi aukn-
um skemmdum inn undir bryggjunni
ef ekki verði brugðst við og þetta lag-
fært fyrr en seinna.___-ÞÁ
Bætur vegna
rafmagnstruflana
Á fundi bæjarráðs Akraneskaup-
staðar þann 4. janúar var lagt fram
Bréf Lögfræðistofu Inga Tryggvasonar
ehf., dags. 3. janúar 2001, varðandi
bætur vegna truflana sem varð á
rekstri Trico ehf. vegna breytinga á
rafmagnsspennu til fyrirtækisins.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi,
segir að bæjarráð hafi falið sér að
svara bréfritara en efnislegt svar komi
ekki fyrr en gerð hafi verið viðunandi
úttekt á málinu og er hún þegar hafin.
Að sögn eftirlitsmanns raflagna,
Helga Andréssonar, getur margt kom-
ið til sem orsakar spennubreytingar
hjá fyrirtækinu en niðurstaða af hálfu
Akranesveitu liggur ekki fyrir. „Ef
spennubreytingamar má rekja til
kerfis Akranesveitu verður gripið til
nauðsynlegra ráðstafana en eins og
áður er nefnt kann fleira að spila þar
inn i og því erfitt að segja til um hvert
verður næsta skref." segir Gísli. -DVÓ
..uf hver ju að láta jeppling duga
þegar þú færð alvöru JEPPA á
sama eða enn betra verði?
Berðu saman getu, aksturseiginleika,
búnað, þægindi og rekstrarhagkvæmni
jepplinga við það sem þu feerð í Suzuki
Grand Vitara: grindarbyggðum jeppa
með tengjanlegt framhjóladrif og hátt
og lágt drif um millikassa.
3 dyra frá 1.840.000 kr.
5 dyra frá 2.190.000 kr.
Byggður á grind
SUZUKl GRAND VITARA
Á meöal nýs búnaðar eru ABS-hemlar með rafeindastýrðri hemlaiöfnun (EBD), rafhitaðir
útispeglar, fjarlæsing og tvístillt samlæsing. Hægt er að stilla næð ökumannssætis
og stuðning við mjóbak auk þess sem fótarými aftursæta hefur verið aukið.
$ SUZUKI
—~VW. —
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
Hátt og lágt drif
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Hafnarfjörður: Guðvarður Ellasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Borgarnes: Bilasala
Vesturlands, sími 437 15 77. Isafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, simi 456 30 95. Hvammstangi: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 22 30. Sauðárkrókur: Bila-
og búvélasalan, Borgarröst 5, slmi 453 66 70. Akureyri: BSA hí, Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstáðir: Bilasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, slmi 471 30 05.