Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Qupperneq 13
13
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001
I>V
Átta tonn af list
Um helgina var áhugaverð sýn-
ing opnuö í Listasafninu á Akur-
eyri. Hún ber yfirskriftina Detox
og var fyrst opnuö í Kunstneres
Hus í Ósló en hefurfarið víöa um
Noreg. Hér lýkur feröalaginu og
stendur sýningin út febrúar.
Stále Stenslie er höfuó sýning-
arinnar og sýningarstjóri en alls
unnu sextán norskir listamenn aö
gerö hennar, i samvinnu vió ýmsa
tölvufrœðinga og tœknimenn.
„Það er hluti af hugmynda-
fræði Detox að listamenn eigi að
vera forystumenn nýrrar tækni,
en þeir eru frekar á eftir," segir
sýningarstjórinn í samtali við
menningarsiðu. „Þaö má segja að
með Detox séum við að stinga
okkur til sunds í möguleikum
nýrra miðla. I rauninni er mikil
þörf fyrir það vegna þess að þeir
sem átta sig á tungumáli tækn-
innar og reglum eru langt á und-
an listamönnunum í gagnvirku
tilliti."
- Eiga listamenn endilega að
vera á undan?
„Það er siðferðileg spurning,"
segir Stále. „En sögulega séð hafa
þeir alltaf verið á undan. MTV-
sjónvarpið er til dæmis undir
miklmn áhrifum frá fyrstu víd-
eólistinni en í stafrænni list -
tölvulist - hinum nýja miðli -
hefur listamaðurinn ekki enn
náð því sem er að gerast. Það er
misskilningur að listamaðurinn
þurfi að vera einhver verkfræð-
ingur til þess að búa til tölvulist.
Detox sýnir að listamaðurinn er
uppspretta hugmyndanna og
hugmyndirnar skapa listaverkið
- ekki verklega hliðin."
Framlenging á málverkinu
Stále segir að tölvan sem tæki
sé orðin alþjóðlegt fyrirbæri, líka
fyrir listamenn, en þeir hafi til-
hneigingu til þess að einblína á
listina sem ákveðið ferli, óum-
breytanlegt, og hana verði að
skapa með „náttúrulegum" verk-
færum. Verkin á Detox séu hins
vegar allt annars eðlis og þau
krefjast flókins búnaðar. Er ekki
hörmulegt að flytja svo tæknilega sýningu yfir
Atlantshafið?
„Miðað við fjölda sýninga hlýtur eiginlega að
vera auðveldara að setja upp Detox en aðrar
Tónlist
Stále Stenslie sýningarstjóri
Detox er lífleg og fyndin sýning en hefur grafalvarlegan undirtón.
sýningar," segir Stále og hlær. „En þetta eru
átta tonn af rafmagnsvæddri list.“
Þó fullyrðir Stále að Detox sé mjög náttúruleg
sýning vegna þess að hugmyndafræðin snúist
um löngunina til þess að upp-
lifa hluti og sé raunar nokkurs
konar framlenging á hinu hefð-
bundna málverki.
„Starf okkar er byggt á því
að nota nýjan miðil sem verk-
færi til sköpunar. Netið er
steindauður upplýsingabanki
nema maður noti spjallrásim-
ar og verði gagnvirkur. Útvíkk-
un á þessu er þegar ekki aðeins
eym og augu taka þátt heldur
líkaminn allur og jafnvel um-
hverfið."
Tölvan mun stjórna
umhverfinu
Detox er ekki sýning sem
hægt er að ganga um - sjá - og
ganga svo út. Hún er hugsuð
sem ferli þar sem listneytand-
inn verður að ganga í gegnum
hlið og er orðinn þátttakandi,
hvort sem honum líkar betur
eða verr. Raunar hafa áhorf-
endur og listaverk gagnkvæm
áhrif hvort á annað. Stále lýsir
til að mynda skúlptúr sem þarf
raunar að hafa samfarir við til
þess að kanna - en hann vill
ekki útskýra það nánar. Vana-
lega megi sýningargestir ekki
snerta listaverk en í Detox er
það gert að skilyrði. Kannski
er það mesta áskorunin.
„Þetta er lífleg og fyndin sýn-
ing, en hún hefur alvarlegan
undirtón," segir Stále og verð-
ur alvarlegur. „Á næstu árum
á tölvan eftir að þróast frá þvi
að standa kyrr á skrifborðinu
og yfir í það að stjórna um-
hverfinu. Tökum sem dæmi
rafvætt baðherbergi sem vigtar
íbúa húss þegar þeir fara þang-
að inn á morgnana. Ef þyngdin
er meiri en góðu hófi gegnir
lokar tölvuheilinn ísskápnum.
Þetta er alls ekki nein útópía. í
framtíðinni verða tölvurnar
byggðar inn í umhverfi okkar
og þessi takmarkandi mynd,
„tölvan við skrifborðið", verð-
ur á undanhaldi. Listamenn
verða að byrja að hugsa: „Hvað
gerist? Hvenær sleppur tölvan
úr þessum litla, leiðinlega
kassa sem hún er í núna?“ Við veröum að skil-
greina hvað er hægt að gera og hvað mun ger-
ast í tölvuheiminum. Detox er tilraun til þess.“
-þhs
HR
Þrumusveifla, skvaldur og Sæbjörn
Þann 17. febrúar nk. á „óskabarn íslenskra
djassfikla", Stórsveit Reykjavíkur, tíu ára af-
mæli. Það var fyrir tíu árum að trompetleikar-
inn Sæbjörn Jónsson stýrði fyrstu æfingunni.
Sæbjöm hefur staðið við stjórnvölinn síðan - og
meira en það. Hann hefur lagt svo að segja nótt
við dag í baráttu fyrir lífi sveitarinnar. Sæbjörn
stjórnar hljómsveitinni á sérstökum afmælistón-
leikum i Ráðhúsi Reykjavíkur 3. mars næstkom-
andi. Það verða jafnframt kveðjutónleikar Sæ-
bjöms þar sem hann hefur ákveðið að afhenda
yngri manni tónsprotann.
Stórsveit Reykjavíkur lék á tónleikum á Kaffi
Reykjavik sl. laugardag. I þetta sinn var gesta-
stjórnandi sveitarinnar sænskur, Frederik
Norén, trompetleikari og stjórnandi SJO, Stock-
holms Jazz Orchester.
Auðheyrilega var mikill og góður fengur að fá
Norén í heimsókn. Að vísu stóð hann svo stutt
við að æfingatími var af mjög skomum
skammti. Þar af leiðandi var leikur sveitarinn-
ar hrárri á köflum en hann hefði þurft að vera.
Á hinn bóginn var Ijóst að tónlistarmennimir
tóku á honum stóra sínum til þess að láta dæm-
ið ganga upp. Það gerði það líka mjög vel. Til
hamingju, strákar!
SJO kom upphaflega saman árið 1983 sem æf-
ingahljómsveit, sem síðan hefur þróast í „sýn-
ingarsveit „ fyrir marga hæfustu djassleikara
Svíþjóðar. Norén hefur haldið um stjómvölinn
frá upphafi, en siðan hafa þekktir útsetjarar ver-
ið fengnir til að stýra sveitinni um hríð, m.a. pí-
anistinn og básúnuleikarinn Bob Brookmeyer,
píanistinn Jim McNeely og tenóristinn og
bassaklarínettleikarinn Bob Mintzer.
Tónlistin sem Stórsveit Reykjavíkur flutti með
miklum myndarbrag á laugardaginn var öll úr
Sæbjörn Jónsson Stórsveitarstjóri
Afhendir sprotann yngri manni eftir afmælistónleikana.
bókum SJO. Norén raðaði verkunum með tilliti
til stutts æfingatima - byrjaði með þrumugóða
sveiflu, þrjú lög útsett af Bill Holman, dæmigerð
fyrir stil hans fyrir Woody Herman, Buddy Rich
og fleiri þekktar stórsveitir fyrri tíma. Holman
vann töluvert fyrir Stan Kenton í byrjun sjötta
áratugarins. Ég held að Holman hafi drukkið
kaffi á Borginni og hlustað á KK sextettinn á því
tímabili! Síðan hefur hann komið víða við, m.a.
útsetti harrn „Unforgettable" fyrir Natalie Cole.
Af Holman-lögunum var Airegin (Rollins) best
heppnað. Samspilið var með besta móti og
hrynsveitin sérstaklega góð. Þeir Davíð Þór, pno,
Gunnar, bs, og Jóhann, trm, voru eins og einn
maður. Hrynsveitin hefur oft á tíðum verið
slakasti þáttur sveitarinnar, en nú var hún betri
en nokkru sinni fyrr.
í seinni hluta tónleikanna voru verkin Pete’s
Feet og Off the Cuff eftir McNeely áberandi betri
en Tristanolegar fléttur sænska píanóleikarans
Görans Strandberg sem hefðu þurft lengri æf-
ingatíma. Lög McNeelys má heyra á geisladiski
sem nefnist „Soundbites" (útg. Dragon DRCD
311). Þar má heyra SJO leika athyglisverða út-
gáfu af „Yesterdays" og altóistann Dick Oatts
brillera á sópran. Gaman hefði verið að heyra
Sigurð Flosason spreyta sig í sama hlutverki.
Ég nefni ekki frammistöðu einstakra einleik-
ara stórsveitarinnar því í þetta sinn fannst mér
hljómsveitin í heild vera það sem skipti máli.
Samleikurinn og sveiflan var hin prýðUegasta.
Strákarnir sönnuðu nú í eitt skipti fyrir öU að
Stórsveit Reykjavíkur er mjög góð djasshljóm-
sveit, betri en margar oflofaöar, ónefndar sveit-
ir á Norðurlöndum.
Einu leiðindin var tiUitslaust og hávært
skvaldur starfsfólks veitingahússins sem
pirraði þá sem sátu aftarlega í salnum.
Ólafur Stephensen
____________________Menning
Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir
„Réttur“
meirihlutans
„Meirihlutinn hefur
aldrei rétt fyrir sér fyrr
en hann breytir rétt,“ seg-
ir dr. Stokkmann í Fjand-
manni fólksins eftir Ibsen
sem verður frumsýndur 2.
febrúar í Borgarleikhús-
inu. Þetta er líka yfir-
skrift umræðufundar í
kvöld kl. 20, í anddyri Borgarleikhússins,
þar sem fjaUað verður um lýðræði, vald fjöl-
miðla og skoðanamyndun í samfélaginu en
þó fyrst og fremst þá spumingu hvort
meirihlutanum beri að hlusta á og virða
skoðanir minnihlutahs í lýðræðisríki.
Framsögumenn eru Herdís Þorgeirsdótt-
ir, Magnús Þór Þorbergsson og EgiU Helga-
son sem einnig stjómar umræðum. Meðal
þátttakenda í umræðunum er Garðar Sverr-
isson, formaður Öryrkjabandalags íslands.
Leikarar flytja að auki valin atriði úr
Fjandmanni fólksins en Stokkmann-hjónin
leika Ingvar E. Sigurðsson og HaUdóra
Geirharðsdóttir.
„0 Brother...“
Annað kvöld kl. 22.30
forsýnir kvikmynda-
klúbburinn Filmundur í
Háskólabíó nýjustu mynd
Coen-bræðra, O Brother,
Where Art Thou, sem
margir hafa beðið eftir
með óþreyju. Ethan og
Joel Coen eiga að baki 17
ára farsælan feril í kvikmyndagerð eins og
kvikmyndaáhugamenn vita, meðal mynda
þeirra má nefna The Big Lebowski, Fargo,
Hudsucker Proxy og Barton Fink. Kvenna-
gullið George Clooney fékk guUinn hnött á
dögunum fyrir leik sinn í nýju myndinni en
með honum leika m.a. John Turturro, Tim
Blake Nelson, John Goodman, HoUy Hunter
og Charles Durning.
Filmundur ætlar að halda Coen-hátíð
helgina 1.-4. febrúar þar sem nokkrar af
fyrri myndum bræðranna verða sýndar;
dagskráin verður tUkynnt síðar.
Sigurður og ósýni-
lega konan
í nadeginu á morgun,
kl. 12-13, rabbar Sigurð-
ur Guðmundsson, mynd-
listarmaður og rithöf-
undur, á vegum Rann-
sóknastofu í kvenna-
fræðum í Norræna hús-
inu. Umræðuefnið er
skáldsaga hans Ósýni-
lega konan: SG-tríóið
leikur og syngur sem kom út í fyrravor og
er tUnefnd tU íslensku bókmenntaverðlaun-
anna. í bókinni lætur Sigurður kveneðli sitt
og karleðli takast á en utan um þau er hylk-
ið sem er hvorugkyns. Mikilvægi hvers
kyns fyrir lif og list höfundar er greinilegt.
Þátttakendum gefst síðan tækifæri til að
spyrja höfundinn - til dæmis um „ósýnilegu
konuna", hugmyndafræði og list og hugsan-
legt meginmarkmið bókarinnar sem felst í
eins konar „kínverskri kyngreiningu".
Ný Grálúða
Sú breyting hefur orðið
í hlutverkaskipan í sýn-
ingu MöguleUdiússins á
leikritinu „Lóma“ eftir
Guðrúnu Ásmundsdóttur
að Ingibjörg Stefánsdóttir
hefur tekið við hlutverk-
um ínu Rósar og Grálúðu
af Hrefnu HaUgrímsdótt-
ur. Þetta er fyrsta hlut-
verk Ingibjargar hjá Möguleikhúsinu en
hún hefur m.a. leikið í kvikmyndinni Vegg-
fóður, í Klukkustrengjum hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar og Panodil fyrir tvo hjá Leikfélagi
íslands.
Leikstjóri Lómu er Pétur Eggerz.
Mósaík í kvöld
Þeir sem heima sitja í
kvöld geta horft á
Mósaík i sjónvarpinu.
Þar verður fjjallaö um
kvikmyndina Villiljós og
handritshöfundurinn
Huldar Breiðfjörð tekinn
tali. Pétur H. Ármanns-
son lítur á nokkur hús í
Austurstræti, einkum
Búnaðarbankahúsið. Fylgst verður með
Páli á Húsafelli sem opnaði sýningu í Lista-
safni Ásmundar Sveinssonar um helgina óg
hljómsveitin Buttercup kemur í heimsókn.