Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 15
14
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001
35
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Abstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblaö 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Forseti og neitunarváld
Margrét Frímannsdóttir, varaformaður Samfylking-
arinnar, hefur hvatt forseta íslands til að íhuga að beita
neitunarvaldi þegar öryrkjafrumvarpið svokallaða, sem
samþykkt voru sem lög frá Alþingi í gærkvöldi verða
lögð fyrir hann til staðfestingar. Garðar Sverrisson, for-
maður Öryrkjabandalagsins, hefur tekið í sama streng
en í blaðaviðtali í gær sagði hann: „Það liggur í hlutar-
ins eðli að forseti íslands hugsi sig vel um og ígrundi af
fullri ábyrgð ef og þá þegar honum verður sent þetta til
undirskriftar.“
Andstæðingar ríkisstjórnarinnar vinna þannig skipu-
lega að því að draga forseta inn í dægurþras stjórnmála-
umræðunnar. Raunar ganga sumir svo langt að ekki er
hægt að líta öðruvísi á en svo að verið sé að stilla for-
setanum upp við vegg í deilumáli sem Alþingi og ef vill
dómstólar eiga að leysa.
Að minnsta kosti þrisvar sinnum áður hefur opinber-
lega verið reynt að beita forseta íslands þrýstingi til að
beita neitunarvaldi og vísa umdeildum lagasetningum
til þjóðaratkvæðagreiðslu. Enginn forseti hefur talið
slíkt fært.
Árið 1946 komst Sveinn Björnsson að því að stjórnar-
skráin gerði ekki ráð fyrir slíkum afskiptum forseta af
störfum Alþingis. Ásgeir Ásgeirsson var sömu skoðun-
ar tuttugu árum síðar þegar forráðamenn Alþýðubanda-
lagsins reyndu að koma í veg fyrir að samningur um ál-
ver í Straumsvík yrði að veruleika. Árið 1993 var reynt
að sannfæra Vigdísi Finnbogadóttur um að neita undir-
ritun á lögum um þátttöku íslands í Evrópska efnahags-
svæðinu. Líkt og fyrirrennarar hennar komst hún að
þeirri niðurstöðu að slíkt væri ekki sæmandi og í yfir-
lýsingu á ríkisráðsfundi sagði þáverandi forseti orðrétt:
„Glöggt vitni um það eðli embættisins er að enginn for-
seti hefur gripið fram fyrir hendur á lýðræðislega
kjörnu Alþingi, sem tekið hefur ákvarðanir sínar með
lögmætum hætti.“
Ótrúlegt er að Ólafur Ragnar Grímsson láti undan
þeim þrýstingi sem hann er beittur, enda slíkt aðeins
merki um undarlega dómgreind. Til þess að neita að
undirrita lög og skjóta þeim til þjóðar verður forseti að
vera efnislega á móti málinu og um leið að vera reiðu-
búinn að taka þátt í opinberum umræðum. í þeim um-
ræðum gilda reglur stjórnmálabaráttunnar og þar með
verður búið í eitt skipti fyrir öll að gjörbreyta embætti
forseta íslands.
Ákvæði um neitunarvald forseta er aðeins leifar af
úreltu valdi konungs og gengur gegn öllum reglum og
hugmyndum um þingræði. Hins vegar vekja umræð-
urnar um neitunarvald húsbóndans á Bessastöðum enn
og aftur upp efasemdir um tilgang forsetaembættisins,
eins og bent hefur verið á hér á þessum stað áður. í leið-
ara í júlí síðastliðnum sagði meðal annars: „Hugmynd-
in að baki embætti forsetans er andstæð þjóðareðli ís-
lendinga þar sem allir eru jafnir og engir eiga að vera
jafnari en aðrir. Sem betur fer eiga flestir erfitt með að
sætta sig við tildur og prjál við æðstu stjórn ríkisins. Sá
hégómi sem fylgir embætti þjóðhöfðingja þjónar engum
tilgangi öðrum en að skemmta fáeinum útvöldum. Slíkt
eiga íslendingar ekki auðvelt með að sætta sig við ...
Staðreyndin er sú að íslendingar þurfa ekki á forseta-
embættinu að halda - það er sóun á fjármunum að
halda úti óþörfu embætti.“
Óli Björn Kárason
DV
Skoðun
Ofdramb, glópska, misferli
Þróun mála í íslenskum
stjórnmálum undanfarnar
vikur minnir um margt á
lokaþáttinn i grískum
harmleik (tragedíu) enda er
þar að finna ef vel er að gáð
flest grundvallaratriði
þessa leikforms. í hlutverki
hinnar tragísku hetju er
enginn annar en forsætis-
ráðherra, Davíð Oddsson,
og kórinn er íslenska þjóðin
sem í skoðanakönnunum
hefur kveðið upp sinn dóm
yfir gerðum hans.
Hingað til hefur framgangur for-
sætisráðherra verið likur ferli
Tantalosar sem var vinur guðanna
og sat veislur þeirra, hvorum tveggja
gekk allt í haginn. En líkt og Tanta-
los fylltist forsætisráðherra ofdrambi
(hybris) og setti sig jafnfætis guðun-
um, ofar lögum og siðgæði. í harm-
leikjunum er það jafnan svo að þeg-
ar hetjan hefur fyllst ofdrambi þá
fremur hún, oft í æði eða af
hefnigirni, illan verknað, glópsku
(ate).
Kreon konungur í Þebu forbauð að
láta grafa Pólíneikes sem risið hafði
Gudmundur J.
Guðmundsson
sagnfræöingur
gegn borg sinni og ofbauð
með því siðferðiskennd
Þebverja rétt eins og for-
sætisráðherra hefur of-
boðið siðferðisvitund ís-
lendinga með framgöngu
sinni í málum öryrkja.
Og forsætisráðherra ferst
líkt og Sýsifosi sem með
brögðum reyndi að flýja
örlög sín í undirheimum
þangað sem guðimir
höfðu sent hann fyrir at-
_____ hæfi sitt.
Á sama hátt reynir for-
sætisráðherra með lagakrókum að
sneiða hjá dómsúrskurði sem er
honum ekki að skapi. En hvernig
sem mannskepnan reynir flýr eng-
inn örlög sín, þótt þeim Sýsifosi og
forsætisráðherra hafi tekist að
seinka framgangi þeirra um
stund. Rétt eins og Kreon konung-
ur Þebverja stendur forsætisráð-
herra uppi rúinn trausti og afkró-
aður á alla vegu vegna eigin
glópsku.
Misferlið er frjálshyggjan
í grísku harmleikjunum er það
„Á sama hátt reynir forsœtisráðherra með lagakrókum að
sneiða hjá dómsúrskurði sem er honum ekki að skapi. En hvem-
ig sem mannskepnan reynir flýr enginn örlög sín, þótt þeim
Sýsifosi og forsœtisráðherra hafi tekist að seinka framgangi
þeirra um stund. “
þó oftast svo að ofdramb hetj-
unnar, glópska og meinleg ör-
lög eru ekki henni sjálfri að
kenna. Undir liggur misferlið
(hamartía), nokkuð sem hetj-
an ræður ekki við og hefur
engin tök á, verk guðanna,
refsinornanna eða örlaganna.
Misferli forsætisráðherra er
frjálshyggjan, sú stjórnmála-
stefna sem hann játaðist ung-
ur að árum og hefur fylgt í
grundvallaratriðum æ síðan,
stefna sem elur á misrétti,
græðgi og öfund og veldur
upplausn í mannlegu samfé-
lagi hvar sem hún nær fót-
festu.
Sem betur fer eru Davíð
Oddssyni ekki búin þau
hörmuleg endalok sem jafnan
bíða hetjunnar í grískum
harmleik en það ætti ekki að
koma neinum manni á óvart,
ef svo fer fram sem horfir, þótt
að fáum misserum liðnum
sitji hann á fremsta bekk og
fylgist með sinni eigin póli-
tísku jarðarfor.
Guðmundur J. Guðmunds-
Kirkjan á komandi öld
Sá merki fræðimaður, prófessor
Hjalti Hugason, ritaöi nýlega hér í
blaðið grein undir fyrirsögninni
„Kirkja í kreppu". Niðurstaða hans
var að kreppa kirkjunnar væri ekki
séríslenskt fyrirbæri heldur samnor-
rænt vandamál. Staða kirkjunnar er
auðvitað í nánum tengslum við aldar-
farið eða öllu heldur bresti aldarfars-
ins. Hin háleitari gildi mannlífsins
sem hvorki felast í fjármunum eða
metorðum virðast á undanhaldi.
Skammtímaávinningur í formi hins
gyllta leirs verður keppikefli og
leirugt gull þeirra sem boða hin sann-
ari gildi verður ekki eftirsóknarvert. í
heimi markaðsaflanna verður ávinn-
ingur af hinum sönnu gildum eins og
fugl í skógi en hinn fastari i hendi
sem felur í sér stundlega afþreyingu.
e'jflmAÚFL'íWS-
Það virðist erfltt að stöðva
sig, staldra við, gefa gaum að
því hvers virði þetta allt er í
raun og veru. Viðhorf neyslu-
þjóðfélagsins kemur fram í
flestu. Við göngum ótæpilega
á óendurnýjanleg auðæfi og
auðlindir jarðar. Án fyrir-
hyggju um að skOa þessari
jörð betri til þeirra sem á eftir
koma. í síhraðari keppni eftir
ánægju augnabliksins auka
menn stöðugt mengun loft-
hjúps og jarðar og tefla jafnvel
í tvisýnu nálægri framtíð.
Okkar minnstu bræður.
Við gætum illa bróður okkar. Jafn-
vel í rikustu velferðarríkjum býr hóp-
ur fólks við sárustu fátækt, nær varla
EINKAVÆÐUM
EKKI
nRUNARÞJÓNUST U
að draga fram lífið. Þrátt
fyrir eflingu velferðarrík-
isins tekst ekki að hjálpa
þessu fólki. Þetta fólk, oft
útigangsfólk, er í hópum í
Bandaríkjunum, Bret-
landi, Frakklandi og raun-
ar um aUa Evrópu. Þessir
hópar eru ekki fiölmenn-
ári en svo, að þeir hafa
ekki afl í lýðræðinu, kosn-
ingum, og ekkert stjórn-
málaafl berst fyrir rétti
þeirra. I bókinni íslenska
leiðin, sem Trygginga-
stofnun ríkisins stóð að ásamt Félags-
vísindastofnun Háskólans, er sagt að
fátækt sé meiri á íslandi en annars
staðar á Norðurlöndum og þar segir
og að nái íslendingar að bæta stöðu
Guðmundur G.
Þórarinsson
verkfræöingur
ini
u\
'AÖÁV
AFNEMUM
FÁTÆKTINA
i
hvíu'k
aldraðir
ERU ÚKA EOLK
GRUNi
F
1 AIIAi
im lægri St átta
áLOr, n TEKJUF UNT
100.001 iK
m1
u á
„í bókinni íslenska leiðin, sem Tryggingastofnun ríkisins stóð að ásamt Félagsvís-
indastofnun Háskólans, er sagt að fátœkt sé meirí á íslandi en annars staðar á Norð-
urlöndum og þar segir og að nái íslendingar að bæta stöðu þessa hóps verði vand-
fundið land sem geti stært sig af betri lífskjörum. “
þessa hóps verði vandfundið land
sem geti stært sig af betri lífskjörum.
Sú saga er sögð, að Breznev, sem
var alinn upp í verkamannafiöl-
skyldu, hafi á valdastóli notið þess að
eiga marga lúxusvagna og „dacha“,
sumarhús að hætti keisara. Þegar
hann bauð móður sinni í „dacha“
sinn og sýndi henni skrúðgarða,
gyllta sali og fordyri, hafi gamla kon-
an sagt: „Þetta er allt saman mjög fal-
legt, Leonid minn. En hvað gerir þú
ef kommúnistar komast tU valda?“
Lögin og siðfræðin
Nóbelsverðlaunaskáldið
Solchenitsyn skrifaði einhvern tíma í
frægri heimsósómagrein er hann
dvaldist á Vesturlöndum: „Ég kem frá
hinum fátæku og lagalausu Sovétríkj-
um þar sem kirkjan er bönnuð". Á
Vesturlöndum eru aUir hlutir í góðu
lagi ef þeir brjóta ekki lög. Lög eru
reglur sem menn hafa sett sér en ná-
ungakærleikur og siðferðisreglur
vega lítið. Dansinn í kringum gufi-
kálfinn heldur áfram þó sumir dansi
Óla Skans, eitt áfram og þrjú aftur á
bak. Kirkjan er vissulega í vanda í
slíku umhverfi. Hún á erfitt með að
taka afstöðu í mörgum stærstu sið-
fræðilegu vandamálum nútímans.
Getnaðarvarnir, fóstureyðingar, sam-
kynhneigð, liknardauði o.s.frv.
Æðstu gildi mannlífsins eru ein-
föld og þau hafa ekki breyst í aldanna
rás. En í hita leiksins, dansins, hafa
þau horfið i skuggann. Rödd kirkj-
unnar á að heyrast, hún á að vera
sem borg á fialli sem fær ekki dulist.
Einhvern tíma var sagt: „Sannlega
segi ég yður, ef þessir þegðu myndu
steinarnir tala.“
Guðmundur G. Þórarinsson
Með og á móti
tningi á fósturvísum til streitu?
m/m B-M *-M
Engin áhætta tekin
Hætta ekki útilokuð
j „Já, því það er
ekki búið að taka
endanlega ákvörð-
■HS? un um áframhald.
Auðvitað verður
þetta í einangrun í Hrísey í 6
til 8 ár þar til tekin verður
ákvörðun um að setja þetta í
land. Mér finnst engin
áhætta tekin þó að þetta
skref verði stigið.
Þessi umræða hefur náttúr-
lega hlaupið heldur skart á
þennan væng að rifia upp þennan
gjörning sem hefur verið svo mót-
sagnakenndur. Það hefur komið því
Oiafur
Eggertssort
s tórbóndi
á Þorvaldseyri
af stað að umræðan fer í
þennan farveg. En eins og er
hefur engin ákvörðun verið
tekin.
Það er hægt að hætta við til-
raunina eftir nokkur ár þvi
það verður ekki búið að færa
þetta í land. Það eru 8 ár í að
leyft verður að flytja sæðið í
land. Við erum ekkert að
smita landið þó innflutning-
ur hefiist nú.“
.....Því miður er
I ekki hægt að úti-
loka alla hættu.
fr Það er vitað að
smitefnið hefur
fundist í blóði og allir vita að
blóðið leikur um hvem ein-
asta vef líkamans. Það að
ekki hefur verið hægt að
sanna að veikin berist með
fósturvísum er annað en að
það gerist alls ekki. Mæliað-
Siguröur
Sigurðarson
dýralæknir
ferðir okkar eru kannski ekki nógu
nákvæmar. Ekki er víst að rann-
sóknir hafi gengið nógu lengi til að
hægt sé aö tala um að þetta hafi ver-
ið afsannað. Það liggur fyrir
að riða getur borist með
fósturvísum hjá sauðfé og
ljóst virðist að kúariða getur
borist frá kú til kálfs. Við
myndum glata ímynd lands-
ins sem hreins lands ef
innflutningur heldur áfram.
Við höfum möguleika á
útflutningi ef við getum
staðið á hreinleika okkar.
Innflutning frá
kúariðulöndum á dýrafóðri og
mannamat ætti að stöðva þegar í
stað. Svo virðist sem kúariðuhætta
hafi aukist í Noregi."
Kúaríöusmlt í nágrannalöndum hefur kynt á ný undir deilum um innflutning á fósturvísum úr norskum kúm.
Ummæli
Forsetinn og málskots-
rétturinn
„Ef forsetinn
gerði t.d. málstað
annars aðilans að
sinum og gengi
bókstaflega fram
fyrir skjöldu ann-
aðhvort með eða á
móti, þá væri
hann kominn í dá-
litla vonda stöðu ef hann biði svo
hnekki. Hins vegar getur forsetinn
sagt sem svo, að hann ætli ekki að
taka neina opinberlega afstöðu til
frumvarpsins. Hann gæti þess vegna
sagt eitthvað á þá leið, að hann teldi
það vera umdeilt, pólitíska valdið
endurspegli ekki alveg vilja þjóðar-
innar og því rétt að þjóðin skeri úr
þessu.“
Sigurður Líndal prófessor.
í Degi 23. janúar.
Grundvöllur lýöræðis
„Vamaðarorð
Davíðs Oddssonar
um þá stefnu sem
Hæstiréttur sýnist
vera að taka eiga
fullan rétt á sér og
ekkert skylt við
dramb. Þau varða
sjálfan grundvöll
lýðræðis í landinu. Samkvæmt
stjórnskipun okkar hvfiir ábyrgðin á
fiármálum þjóðarinnar hjá Alþingi.
Þar eru útgjöldin ákveðin og skattar
lagðir á af kjörnum fulltrúum með
umboð frá þjóðinni. Hæstaréttardóm-
arar hafa ekkert slíkt umboð. Það er
því nokkur von tU þess að forsætis-
ráðherra hrökkvi við þegar hæsta-
réttardómarar sýnast skyndUega
farnir að gefa út ávisanir á skattfé
landsmanna með „réttlætiskennd"
sína að leiðarljósi."
Jakob F. Ásgeirsson stjórnmálafræð-
ingur. I Mbl. 23. janúar.
Egóaulaflipp í hámarki
„Hjá Skjá einum
þykist hluti dag-
skrárgerðarmanna
heimskari en
raunin er og mega
þó ekki aUir við.
Dæmi um þetta er
dægurmálaþáttur-
inn SUíkon sem er
sniðinn að markaði unga fólksins.
Þar náði egóaulaflippið hámarki sl.
fimmtudag þegar fljóð þáttarins
varði mínútum í að reyna að rifia
upp brandara án árangurs ... Ekki
tók betra við þegar gestir þáttarins,
drengir í hljómsveit, voru pumpaðir
um kynlíf þeirra. Þar áttaði þáttar-
stjómandi sig greinUega iUa á því að
hann var að tala við 15 ára börn.“
Bjöm Þorláksson. í Degi 23. janúar.
Tíföld lækkun
deCODE-bréfa
TUefni þessarar greinar
fiallar um sölu og frystingu
verðbréfa deCODE, móðurfé-
lags íslenskrar erfðagrein-
ingar, á svonefndu áhættufé
á gráum markaði fyrir
frumútboð. Bank of New
York, sem tók yfir umsjón
hluthafaskrá deCODE vegna
ÍE, hafði aldrei séð svo
marga hluthafa í félagi fyrir
frumútboð, eða 6000 talsins.
Fjármálaeftirlit Banda-
ríkjanna (SEC) gerir mjög
strangar kröfur til fyrir-
tækja, bæði er tekur tU útboðslýsinga
og annarra fiármálaaðgerða, einkan-
lega er lýtur að meðferð framtaks- og
áhættufiárfesta.
Óþekkt happdrætti
Sú varð raunin með deCODE en
bréf fyrirtækisins voru skráð á Nas-
daq um 18 dollarar en hafa síðan á
skömmum tíma fallið niður í 7-8
doUara. Á gráa markaðnum hér á ís-
landi höfðu bréfin selst á milli 60 og
70 dollara eða á tífalt hærra verði.
Hérlendir verðbréfasalar virtust
enga hugmynd hafa um verðþróun
bréfanna enda áður óþekkt happ-
drætti komið tU sögunnar sem marg-
ir líktu sem keðjubréfum eða rúll-
ettu þar sem enginn virtist bera
ábyrgð á framvindu mála.
Kristján
Pétursson,
fyrrv. deildarstjóri
Síðan komu sömu aðUar
af fiöUum þegar staðfest var
að áframhaldandi sala bréfa
væri ffyst a.m.k. í sex mán-
uði eftir að skráning de
CODE fór fram í Bandaríkj-
unum eða tU 15. janúar. Af-
leiðingar þessarar maka-
lausu meðferðar bréfanna
(ÍE-happdrættisins) hafa
leitt til mUljarða króna
tjóns fyrir þúsundir manna
en áhættufiárfestirinn
________ deCODE og stærstu hluthaf-
ar ÍE græddu miUjarða á að
selja bréfin fyrir frumskráningu.
Glansmynd Kára Stefánssonar, for-
stjóra ÍE, í islensku efnahagslífi með
tUstyrk forsætisráðherra og meðreið-
arsveina hans í ríkisstjórninni leiddi
til þessarar ótímabæru verðbréfa-
brjálsemi sem engin viU nú bera
ábyrð á. Sú ímynd sem Kári skapaði
í kringum ÍE með tUstyrk ríkisstjórn-
arinnar með einkaleyfi gagnagrunns-
ins (70 mUlj. kr.) og hvers konar fyr-
irgreiðslu heUbrigðisyfirvalda er sér-
stakt rannsóknarefni.
Enginn viU þó að þetta fyrirtæki
verði meiri skaðvaldur í efnahagslífi
þjóðarinnar og deyi ótímabærum
dauða vegna þeirra fiölmörgu vís-
indamanna sem hafa helgað því
starfskrafta sína. Milljóna króna lán
einstaklinga á háum bankavöxtum
til að kaupa bréf í fyrirtækinu er
þungur kross á þeim sem létií%
glepjast af skammtíma gróðafíkn.
Aðvörun
í greinum sem ég skrifaði um ÍE
þegar það var að hasla sér völl var-
aði ég við þeim óraunhæfu vænting-
um sem ýmsir ráðamenn voru hel-
teknir af. Taldi alltof mikið i sömu
körfuna látið með einkaleyfi gagna-
grunnsins til 12 ára. Fleiri og fiár-
hagslega aðskildir gagnagrunnar
myndu minnka áhættuna og geta
jafnframt skilað betri vísindalegum
niðurstöðum. Vonandi á réttvísi,
dómgreind og umfram allt friðsemd
eftir að einkenna vísindarannsóknir
á íslandi. Þannig sköpum við um-
hverfi til framfara og árangurs ofjL
stefnum að réttu marki. Erfiðleikar*
og mótlæti hafa oft rekið menn í
skjólin og þjappað þeim saman en þá
þurfa þeir hinir sömu að hafa hemil
á yfirgangi og hroka.
Fyrirtæki sem fiárfestar meta fyrir
skráningu á ca 140 milljarða en fell-
ur siðan um fleiri hundruð prósent á
rúmu ári er stórhættulegt efnahags-
lífi fámennrar þjóðar. Vonandi fæst
upplýst hvað verðabréfahrun
deCODE hefur á fiármála- og rekstr-
arstöðu banka og annarra stærstu
fiárfesta í fyrirtækinu.
Kristján Pétursson
„Vonandi fæst upplyst hvað verðabréfahrun deCODE hefur á fjármála- og rekstar-
stöðu banka og annarra stærstu fjárfesta í fyrirtœkinu. “ - Frá undirritun 6 millj-+
arða króna kaupsamnings á hlutabréfum í ÍE.