Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001
x>v
_______4^-
Tilvera
Corazon Aquino
Corazon Aquino
er 68 ára í dag.
Aquino var kosin
fyrsti kvenforseti
Filippseyja árið
1986. Aquino varð
frelsishetja í landi
sínu eftir að fólkið í
landinu haíði steypt
Marcosi forseta af
stóli og kjörið
Aquino í embættið. Kona er nú aftur
orðin forseti á Filippseyjum en Ar-
royo, sem er dóttir eins fyrrverandi
forseta landsins, sór embættiseið s.
laugardag eftir að þjóðin hafði steypt
Estrada forseta af stóli.
tjörnuspá
Gildir fyrir fímmtudaginn 25. janúar
Vatnsberinn (20. ian.-is. febr.t:
II átt mjög annríkt
' fyrri hluta dagsins og
E- fólk er ekki jafh tilbú-
iö að hjálpa þér og þú
vildir. Þegar kvöldar fer allt að
ganga betur.
Rskarnlr (19. febr,-2Q. mars):
Þú heyrir eitthvað sem
kemnr þér á óvart en
þú færð betri skýringu
áður en langt um líð-
ur. Kvöldið verðrn- ánægjulegt.
Hrúturinn (21. mars-19. apríD:
JT^lÞó að þér finnist vinnan
jgr^fcm,,®i'’era mikilvæg þessa
dagana ættirðu ekki að
taka hana fram yfir vini
og fjölskyldu. Vertu heiðarlegur og
hreinskilinn í samskiptum við fólk.
Nautið (20. april-20, maí):
Það er hætta á deilum
r í dag, þar sem spenna
er í loftinu vegna at-
burða sem beðið er eft-
ir. Skipulagning er afar mikilvæg.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúní):
Þú ættir að líta i eigin
jpT^^barm áður en þú gagn-
__J?g rýnir fólk. Ef þú gerir
það mun þér ganga vel
að vinna með öðru fólki.
Krabblnn (22. iúní-22. iúiít:
Einhver sýnir þér hlýtt
jsviðmót og áhuga sem
þú áttir alls ekki von á.
____ Þú verður mjög ánægð-
ur méð þetta en þú skalt samt ekki
sýna það of mikið til að byrja með.
Liónið (23. iulí- 22. áeúst):
Fjölskyldan ætti að
eyða meiri tíma sam-
an. Það er margt sem
kemur þér skemmti-
lega á óvart í dag.
Mevian (23. áeúst-22. seot.i:
gKjs Dagurinn einkennist
-“‘CVjOt. af timaskorti og þú
p^verður á þönum fyrri
* hluta dagsins. Kvöldiö
verður þó rólegt og ánægjulegt í
faðmi fjölskyldunnar.
Vogin (23. sept-23. okt.i:
Þú færð góðar hug-
myndir í dag en það er
hægara sagt en gert að
koma þeim á framfæri.
Fólk virðist vera afar upptekið af
sjálfu sér.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l:
Lifið virðist brosa við
þér þessa dagana og ef
Laþú ert ekki þegar orð-
* inn ástfanginn muntu
líklega verða það næstu daga.
Bogamaður (22. nðv.-2l. des.):
Jagurinn verður á ein-
tivern hátt eftirminni-
legur og þú tekur þátt
í einhverju spennandi.
Þú ættir að taka virkari þátt í fé-
lagslíflnu.
Steingeltin (22. des.-l9. ian.c
Þú skalt forðast óþarfa
tilflnningasemi og ekki
láta skapið hlaupa með
þig í gönur. Rómantíkin
hggur í loftinu og von bráðar mun
draga til tíðinda í ástarlífinu.
Btógagnrýni
Laugarásbíó/Stjörnubíó/Bíóhöllín - The 6th Day: ★ ★
I sporum skaparans
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Líkamsræktin tekin meö trompi:
Morgunleikfimi gefur gull í mund
Á þessum árstíma nota margir
tímann til að ná af sér aukakílóun-
Paul McCartney veður í pening-
um. Hann á um 80 mihjarða ís-
lenskra króna og er í 37. sæti yfir
ríkustu menn Bretlands. Er Paul 7
sætur ofar en í fyrra. Lloyd Webber
er næstríkasti tónlistarmaðurinn í
Bretlandi. Hann á um 40 milljarða.
Þó svo að Elton John sé ríkur er
hann samt langt fyrir neðan hina
tvo á listanum. Efstur á listanum yf-
ir rikustu menn Bretlands er Hans
Rausing sem á yfir 700 milljarða
króna. Hann hefur auðgast vel á
sölu á hlutabréfum í
Tetra Laval sem býr
til mjólkurfernur.
um og koma skrokknum í gott
form. Líkamsræktarstöðvarnar
byrja að fyllast upp úr klukkan sjö
á morgnana enda margir sem sjá
sér hag í því að Ijúka æfíngunum
áður en starfsdagurinn hefst. DV
brá sér í Sundlaug Kópavogs fyrr i
vikunni og hitti fyrir „morgun-
fólkið.“ Að sögn starfsmanns í
stöðinni er aðsóknin langmest
fyrst á morgnana og siðan aftur á
milli fimm og sex um eftirmiðdag-
inn.
^4r
LEIÐ TIL BETRA LÍFS
„Það getur vissulega verið erfitt
að hafa sig af stað en þegar maöur
er einu sinni byrjaður þá veröur
þetta fljótlega að góðum vana,“
sagði Ómar Sævarsson, starfsmað-
ur í tölvudeild Flugleiða, en hann
vaknar fyrir allar aldir og mætir í
líkamsræktina í Sundlaug Kópa-
vogs á hverjum virkum morgni.
„Ég byrjaði að æfa reglulega í
haust eftir nokkuð langt hlé. Þetta
gengur ágætlega og nú er ég kom-
inn á fulla ferð eftir stutt hlé um
jólin. Það er ekki hægt að byrja
daginn á betri hátt og ég segi stund-
um að nú fyrst sé ég almennilega
vaknaður þegar ég mæti í vinnuna,"
segir Sævar en hann eyðir að jafn-
aði um klukkustund í likamsrækt-
inni og oftar en ekki lætur hann
líða úr sér í heita pottinum að æf-
ingum loknum.
Það er aldrei of seint að byrja og
hér á eftir fylgja nokkur ráð fyrir þá
UV-MriNUIK MAKI
Morgunhressir á hlaupum
Kjartan Einarsson, Gunnlaugur Hjálmarsson, Haraldur Teitsson og Ágúst Þor-
geirsson létu engan bilbug á sér fmna þar sem þeir hlupu hvern kílómetrann á
fætur öörum i morgunsáriö.
sem hyggjast hefja einhvers konar
líkamsrækt i vetur.
Þú sjálfur
Einbeittu þér að sjálfum þér í lík-
amsræktinni. Það skiptir ekki máli
hversu grönn, falleg eða stælt
manneskjan við hliðina á þér er. Þú
ætlar einungis að koma þinum eig-
in líkama í gott form.
Ekkert að óttast
Það er um að gera að láta ekki
hugmyndina um líkamsrækt hræða
sig. Þjálfun getur farið fram víðar
en á líkamsræktarstöö þar sem
speglar eru á öllum veggjum. Rösk
og góð ganga um hverfið þitt gerir
meira gagn en þjálfun með hálfum
huga á líkamsræktarstöð.
Félagsskapurinn góður
Reyndu að stunda líkamsrækt
sem þú getur stundað með vini eða
vinkonu. Hvort sem þú skokkar,
syndir, lyftir lóðum eða stundar
jóga er auðveldara að halda sér við
efnið þegar þú færð hvatningu og fé-
lagsskap.
Gönguferö í stað bílferðar
Ferskt loft og hreyfing er mesta
heilsubót. Þvi getur verið skynsam-
legt að hjóla eða ganga út í búð eða
í vinnuna í stað þess að aka.
Noel ræðst á
Backstreet Boys<-
Noel Gallagher er aftur farinnað
láta heyra í sér. Nú hefur hann reitt
milljónir aðdáenda Backstreet Boys
til reiði. Aðspurður hvers vegna ensk-
ar hljómsveitir seldu ekki margar
plötur í Bandaríkjunum svaraði hann
að Bandaríkjamenn hefðu lélegan
smekk. Hann sagði að Backstreet
Boys gætu ekki sungið, spilað og
dansað auk þess sem lögin þeirra
væru rusl. Þeir eyðilegðu tennur
barna með því að taka þátt í gos-
drykkjaauglýsingum. Réttast væri að
skjóta þá.
Paul á um 80
milljarða króna
Æfir fimm sinnum i viku
Ómar Sævarsson mætir alla virka daga í ræktina og segir þaö afbragös
byrjun á góöum degi.
Dekurverðlaun
Gerðu ferðina í líkamsræktar-
stöðina meira freistandi meö því að
taka t.d. með þér gott húðkrem eða
ilmolíu til að nota í gufubaði að
loknum æfingum.
Leiö fundin úr prísund
Arnold Schwarzenegger í hlutverki Adams Gibsons.
í upphafi The 6th Day erum við
rækilega minnt á með blaðaúrklipp-
um að það er farið að klóna dýr og í
því tilviki bent á kindina Dollý. Frá
þessum hugleiðingum erum við
færð fram i tímann þar sem sams
konar blaöaúrklippur sýna að til-
raunir með að klóna manneskjur
hafa tekist. Síðan sýna aðrar úr-
klippur okkur að nú sé búið að
banna klónun manna. Eftir þetta er
skipt yfir í atburðarás sem sögð er
eiga að gerast í nánustu framtíð.
Miðað við tæki og tól, tilraunir á
manninum og annað sem tina má til
er vafasamt að tala um nánustu
framtíð. Þegar svo Arnold
Schwarzenegger mætir til leiks í
hversdagsfötum dagsins í dag erum
við að sjá fyrstu mótsögina af mörg-
um í myndinni sem hefur skemmti-
lega atburðarás. Samt hefur mistek-
ist ætlunin að gera klónun á mann-
inum trúverðuga; til þess er sagan
of mikið ævintýri. Ævintýrið er
samt sem áöur áhugavert í ljósi þess
sem þegar hefur gerst í raunveru-
leikanum.
Það er alveg öruggt að klónun
hefur ýmsa kosti og í byrjun mynd-
arinnar erum við á ruðningsleik
þar sem dýrasti leikmaður amer-
íska fótboltans hálsbrýtur sig. Dýr-
mæt fjárfesting er farin í súginn ...
eða hvað? Því ekki að láta „orginal-
inn“ drepast og klóna heilbrigðan
ruðningsleikara? Það er lítið mál
hjá Replacement Technology sem
opinberlega klónar gæludýr og er
með neðanjarðarstarfsemi þar sem
klónun manna fer fram. Þessu hefur
verið hægt að halda leyndu fyrir al-
heiminum þar til fyrirtækinu verða
á mistök, klónar flugmanninn
Adam Gibson svo ekki komist upp
um ljótt leyndarmál, án þess að vita
að Gibson hafði ekki verið í flug-
mannssætinu í örlagarikri ferð
heldur er bráðlifandi. Því verður
uppi fótur og fit, ekki bara hjá Gib-
son sjálfum heldur í klónunarverk-
smiðjunni þegar upp kemst um mis-
tökin.
Framvindan er svo eins og vænta
má þegar Schwarzenegger á í hlut,
mikill hasar og læti. Má segja að
myndin sé heföbundin þar til kem-
ur að því að óvænt stefnubreyting'
verður, mjög svo áhugaverð, þar
sem í raun er lagt að jöfnu klónaður
maður og sá sem kemur úr maga
móöur sinnar.
Það eru viss mistök að gera mik-
ið úr ósköp venjulegum hasaratrið-
um á kostnað áhugaverðrar sögu.
Það er eins og aðstandendur hafi
ákveðið fyrir fram að myndin gengi
ekki upp nema Schwarzenegger
fengi tækifæri til að sýna styrk sinn
sem aldrei hefur verið í töluðum
orðum - viss mistök sem gera það
aö verkum að The 6th Day verður,
aldrei meira en miðlungsafþreying.1
Lelkstjóri: Roger Spottiswoode. Handrit:
Cormac Wibberley og Marianne
Wibberley. Kvikmyndataka: Pierre
Mignot. Tónlist: Trevor Rabin. Aöallelkar-
ar: Arnold Schwarzenegger, Robert
Duvall, Tony Goldwyn, Michael Raspaport
og Michael Rooker.