Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2001, Blaðsíða 8
Viðskipti_______________________________________________________
Umsjón: Viðskiptablaöiö
Allied EFA kaupir Kís-
iliðjuna við Mývatn
- hyggst reisa þar kísilduftverksmiðju
í gær voru undirritaðir samning-
ar um kaup Allied EFA á Kísiliðj-
unni við Mývatn af ríkinu og Celite
Corporation. Samningarnir eru
bundnir ýmsum skilyrðum, þ.á m.
fyrirvara um samþykki Alþingis.
Hlutafé Kísiliðjunnar er að 51%
hluta í eigu ríkisins, 48,56% í eigu
Celite og 0,44% í eigu átján sveitar-
félaga á Norðurlandi. Ríkisstjórnin
hefur samþykkt að andvirði eignar-
hluta ríkisins renni til uppbygging-
ar á svæðinu.
Að mati ríkisins og Celite eru
framtíðarhorfur í kísilgúrfram-
leiðslu við Mývatn tvísýnar. Rekstr-
arafkoma hefur ekki verið viðun-
andi í nokkur ár og vegna vaxandi
tilkostnaðar og nýrrar tækni eru
ekki lengur sömu forsendur fyrir
starfsemi verksmiðjunnar.
Tryggja atvinnu við Mývatn
Ríkisstjómin vill því tryggja eins
og kostur er áframhaldandi atvinnu
við Mývatn. Iðnaðarráðuneytið hef-
ur metið áform Allied EFA um
byggingu og rekstur kisilduftverk-
smiðju við Mývatn og telur að um
vænlegan kost sé að ræða. Allied
EFA leitaði fyrst til ríkisins um
hugsanleg kaup á verksmiðjunni
árið 1998 en ekkert varð af því þá.
Viðræður voru í gangi á milli ríkis-
ins, Celite og Allied EFA árið 1999
en þær leiddu ekki heldur til sölu
Kísiliðjunnar. Á
síðasta hausti tók
Celite aftur upp
viðræður við
Allied EFA og
leiddu þær til
þeirra samninga
sem nú liggja fyr-
ir.
Allied EFA er
fyrirtæki í eigu
EFA (Eignar-
haldsfélagið Al-
þýðubankinn) og
Allied Resource
Corporation. Til-
gangur félagsins
er m.a. fjárfest-
ingar í fram-
leiðslufyrirtækj-
um á sviði orku-
freks iðnaðar,
efnaiðnaðar og endurvinnsluiðnað-
ar á íslandi.
Kísilgúr framleiddur til 2004
Framleiðsla kísildufts byggist á
nýlegum einkaleyfum og rekur dótt-
urfélag Allied EFA, Promeks ASA,
tilraunaverksmiðju í Norður-Noregi
í þeim tilgangi að prófa vinnsluferl-
ið og gæði framleiðslunnar. Áform
eigenda Promeks um uppbyggingu
fyrirtækisins fela í sér byggingu og
rekstur nokkurra kísilduftverk-
smiðja. Að fenginni jákvæðri niður-
stöðu á hagkvæmni kísilduftfram-
leiðslunnar skuldbindur Promeks
sig til að reisa næstu verksmiðju á
lóð Kísiliðjunnar við Mývatn. Auk
þess verður sett á stofn viðræðu-
nefnd milli Allied EFA og ráðuneyt-
isins um frekari iðnaöaruppbygg-
ingu félagsins hér á landi.
Allied EFA hyggst stofna félagið
Promeks á íslandi til að kaupa Kís-
iliðjuna við Mývatn og eiga og reka
fyrirhugaða kísilduftverksmiðju.
Áformin eru í stuttu máli þannig að
kísilgúr verði framleiddur, að
fengnu nýju námaleyfi, til ársloka
2004, með möguleika á framleng-
ingu um allt að tvö ár. Þetta er gert
til að tryggja að atvinna í sveitarfé-
laginu verði samfelld. Allied EFA og
Celite hafa gert með sér samkomu-
lag um að söluskrifstofa Celite á
Húsavík muni áfram selja kísilgúr
frá Kisiliðjunni. Ákvörðun um
byggingu kísilduftverksmiðju
Promeks á íslandi verður tekin í
ágúst 2002 og, ef af verður, mun
verksmiðjan verða byggð á árinu
2003 og hefja rekstur árið 2004.
415 milljóna króna hagn-
aður Þróunarfélagsins
Hagnaður Þró-
unarfélags íslands
á árinu 2000 nam
415 milljónum
króna en var 629
milljónir á árinu 1999. Hagnaður fé-
lagsins dróst því saman um 214
milljónir milli ára og segir í frétta-
tilkynningu frá félaginu að megin-
ástæðan sé „minni hækkun á verði
skráðra hlutabréfa." Hagnaður fyrir
skatta árið 2000 var 597 milljónir
króna en var árið áður 972 milljón-
ir.
Raunávöxtun hlutabréfa í eigu fé-
lagsins var 19,8% á árinu en nafná-
vöxtun hlutabréfa sem skráð eru á
Aðallista Verðbréfaþings íslands
var 28,5%. Gengishagnaður hluta-
bréfanna nam alls 850 milljónum
króna, þar af er innleystur hagnað-
ur vegna sölu hlutabréfa 461 milljón
króna og óinnleystur gengishagnað-
ur 389 milljónir
króna. Þróunarfé-
lagið keypti hluta-
bréf fyrir 3.369
milljónir króna
og seldi fyrir 2.553 milljónir á síð-
asta ári.
Eignir í árslok nema 6.680 millj-
ónum króna en þar af er hlutabréfa-
eign 5.389 milljónir og skuldabréfa-
eign 1.195 milljónir króna. Eigið fé
félagsins nemur 3.324 milljónum
króna og er um helmingur af heild-
areignum. Aðrsemi eigin fjár var
14,6% en 27,9% árið á undan. Hlut-
hafar voru 477 í árslok og fengu
35,3% ávöxtun á hlut sinn að 20%
arðgreiöslu meðtalinni. Stjórn fé-
lagsins hefur lagt til við aðalfund fé-
lagsins sem haldinn verður 14. mars
næstkomandi að greiddur verði 15%
arður af hlutafé eða 165 milljónir
króna.
Markaðsviöskiptasvið lagt niður
í framhaldi af kaupum Kaupþings
og samstarfsaðila á meirihluta
hlutafjár í Frjálsa fjárfestingarbank-
anum hefur verið ákveðið að hætta
starfsemi Markaðsviðskiptasviðs
Frjálsa fjárfestingarbankans.
Frjálsi fjárfestingarbankinn mun
frá og með morgundeginum, mið-
vikudeginum 14.02. 2001, hætta
miðlun markaðsverðbréfa, svo og
eigin viðskiptum með skráð verð-
bréf. Vegna þessarar ákvörðunar
hafa verðbréf bankans í veltubók
verið seld fyrir milligöngu Kaup-
þings.
Þrír starfsmenn Markaðsvið-
skiptasviðs Frjálsa fjárfestingar-
bankans hafa nú lokið störfum fyr-
ir bankann og hafa frá og með deg-
inum í dag hafið störf í Markaðsvið-
skiptum Kaupþings.
Ákvörðun þessi hefur engin áhrif
á stöðu viðskiptavina bankans en
starfsfólk Frjálsa fjárfestingarbank-
ans mun beina viðskiptamönnum
sínum til Kaupþings til þess að ann-
ast verðbréfaviðskipti fyrir þeirra
hönd.
Áform nýrra eigenda bankans
eru að reka Frjálsa fjárfestingar-
bankann áfram sem sjálfstæðan öíl-
ugan banka sem sérhæfir sig í út-
lánum, m.a. bílalánum, fasteigna-
lánum og framkvæmdalánum.
Flugleiðir stundvisastar
Flugleiðir voru stundvísasta evr-
ópska flugfélagið sem flaug yfir
Norður-Atlantshafið á árinu 2000
samkvæmt niðurstöðum rannsókna
Evrópusambands flugfélaga, AEA, á
stundvísi flugfélaga sem birtar voru
í gær.
Flugleiðir voru samkvæmt sömu
rannsókn í þriðja sæti allra evr-
ópskra flugfélaga sem stunda milli-
landaflug, hvort sem flogið er innan
álfunnar eða utan.
Á árinu 2000 fóru vélar Flugleiða
af stað innan fimmtán mínútna frá
áætluðum brottfarartíma í 82,6% til-
vika en meðaltalið hjá öðrum evr-
ópskum flugfélögum var 74,5%.
Stjórnendur Flugleiða telja þetta
merkilegan og ánægjulegan árangur
sem náðst hefur með samstilltu
átaki og mikilli vinnu allra starfs-
manna hér heima og erlendis. Á ár-
inu 1999 voru Flugleiðir i 6. og 7.
sæti á þessum listum.
„Stundvísi er einn af mikilvæg-
ustu þjónustuþáttum flugfélaga og
öll evrópsk flugfélög keppast við að
geta sýnt jákvæða niðurstöðu úr
þessari samantekt," segir Guð-
mundur Pálsson, framkvæmdastjóri
flugrekstrarsviðs Flugleiða. „Það
sem veldur töfum í flugi er sam-
kvæmt rannsóknum AEA einkum
þrennt: annir í flugumferðarstjóm,
tæknileg og skipulagsleg vandkvæði
á flugvöllum og veður.“
Nýlega veitti Schiphol-flugvöllur í
Amsterdam Flugleiðum viöurkenn-
ingu fyrir að hafa verið stundvísast-
ar þeirra flugfélaga sem nýta flug-
völlinn.
Innan AEA eru 29 helstu flugfélög
álfunnar, svo sem Air France,
Alitalia, British Airways, Finnair,
Iberia, KLM, Lufthansa, SAS,
Swissair og fleiri og fljúga 18 þeirra
yfir Norður-Atlantshafið.
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001
I>V
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 3368 m.kr.
- Hlutabréf 803 m.kr.
- Húsbréf 1673 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Islandsbanki-FBA 402 m.kr.
i © Flugleiðir 129 m.kr.
: © Kaupþing 56 m.kr.
MESTA HÆKKUN
©EFA 2,1 %
0SH 1,2 %
©Búnaðarbankinn 0,5 %
MESTA LÆKKUN
© Sjóvá-Almennar 5%
© Flugleiðir 1,7 %
: ©Jarðboranir 1,4 %
ÚRVALSVÍSITALAN 1220 stig
- Breyting O 0,16 %
Evrópusamband-
ið áminnir íra
Evrópusam-
bandið sam-
þykkti i gær
að veita írum
formlega
áminningu
vegna út-
gjaldaaukning-
ar í fjárlögum
landsins, en
hún er ekki talin samrýmast mark-
miðum í efnahagsstjórn innan evr-
ópska myntbandalagsins.
Evrópusambandið telur að með
aukningu ríkisútgjalda auki ríkis-
stjórn írlands á þenslu og verðbólgu-
þrýsting í írlandi. Aðildarlönd evr-
ópska myntbandalagsins samþykktu á
fundi sínum í gær að áminna íra
vegna þessa og beina þeim tilmælum
til ríkisstjómar írlands að gripið verði
til aðgerða til að vega upp á móti
þensluhvetjandi áhrifum fjárlaganna.
Áminningin er sú alvarlegasta sem
veitt hefur verið aðildarríki innan
Evrópusambandsins en þess ber þó að
gæta að Evrópusambandið hefur engin
úrræði til að þrýsta á íra að framfylgja
tilmælunum.
Utboðsgengi
Orange í neðri
mörkum
Útboðsgengi í framútboði í tengsl-
um við skráningu á hlutabréfum far-
símafyrirtækisins Orange hefur verið
ákveðið við neðri mörk uppgefins
verðbils. Almennt verð í framskrán-
ingunni verður 9,5 evrur en verð til
stofnanafjárfesta verður 10 evrur.
Með útboðinu selur France Telecom
15% af eignarhlut sínum í Orange og
skráir hlutabréf félagsins á markað.
Markaðsverðmæti Orange hefur lækk-
að mikið síðustu vikur en miðað við
sett útboðsgengi er verðmæti félagsins
48,5 milljarðar evra. Fyrir fáum vikum
var talið líklegt að bréf félagsins yrðu
seld á gengi sem svaraði til 80 millj-
arða evra markaðsverðmætis. Þegar
France Telecom keypti Orange i fyrra
og sameinaði félagið eigin farsíma-
rekstri var jafnvel talið að markaðs-
verðmæti hins sameinaða félags yrði á
bilinu 100-150 milljarðar evra.
14.02.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
Bj^Pollar 85,780 86,220
ÍÉÉsPum* 124,660 125,290
j*il Kan. dollar 56,340 56,690
7 Dönsk kr. 10,5700 10,6280
-í-ÍNofskkr 9,6000 9,6530
55: Sœnsk kr. 8,7370 8,7850
RFHfí. mark 13,2602 13,3398
É lFra. franki 12,0193 12,0915
1 Belg. franki 1,9544 1,9662
ISJ Sviss. franki 51,3300 51,6100
^Hoil. gyllini 35,7767 35,9916
""^Þýskt mark 40,3110 40,5532
Uít-líra 0,04072 0,04096
,XiAust. sch. 5,7296 5,7641
fc' j Port. escudo 0,3933 0,3956
XJSpá. peseti 0,4738 0,4767
! Jap. yen 0,73380 0,73830
| J írskt pund 100,107 100,709
SDR 110,7000 111,3600
SIecu 78,8414 79,3151