Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2001, Side 11
11
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001___________________________________________________________________________________________
DV Útlönd
Stórhöfða 15, s. 567 6744
VOLVO FL-614, árg. 1991,
ekinn 450.000 km, topplúga,
kassi 24 rúmmetrar, lyfta 1,5 t.
TILBOÐ 960.000 + vsk. Ath. öll skipti.
Til sölu og sýnis á JR Bílasölu,
Bíldshöfða 3,
567-0333, 897-2444.
Forseti Júgóslavíu
Vojislav Kosturica vill bætur vegna
árása NATO á Júgóslavíu.
Kostunica vill
bætur frá NATO
Vojislav Kostunica, forseti
Júgóslavíu, sagði á fundi með
fréttamönnum í Belgrad í gær að
NATO ætti að greiða bætur vegna
árásanna á Júgóslavíu 1999.
Kostunica gat þess einnig að
Vesturlönd hefðu engan rétt til að
ákvarða hvenær frestur rynni út til
að koma á samvinnu við
stríðsglæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna i Haag.
Rútubllstjóri skotinn
eftir árás á hermenn
Að minnsta kosti átta ísraelskir
hermenn létu lífið og 15 særðust
þegar rútu frá ísraelsku fyrirtæki
var ekið á hóp manna á biðstöð í Tel
Aviv í ísrael í morgun. Rútunni var
ekið áfram en lögreglumenn hófu
eftirfor. Skutu þeir bílstjórann til
bana. Talið er að um hefndaraðgerð
hafi verið að ræða vegna árásar á
lífvörð Arafats í gær.
Ehud Barak, fráfarandi forsætis-
og varnarmálaráðherra ísraels, gaf
sjálfur skipun um árásina á Mas’ud
Ayad, ofursta í lífverði Yassers
Arafats Palestínuleiðtoga. Ayad lét
lífið þegar flugskeyti var skotið úr
þyrlu á bíl hans nálægt flótta-
mannabúðunum Jebaliya á Gaza-
svæðinu.
Samkvæmt palestinskum heim-
ildarmönnum særðust fimm við
árásina. „Það er ísrael sem sáir
fræjunum að hryðjuverkum á svæð-
inu,“ sagði dómsmálaráðherra
Palestínu, Frekh Abu Medein, í
gær.
ísraelsk yfirvöld fullyrða að Ayad
hafl verið umboðsmaður Hizbollah-
samtakanna í Líbanon í sjálfstjórn
Rakið rannsakað
Palestínskir lögreglumenn rannsaka flak bifreiöar lífvaröar Arafats. Átök
brutust út á herteknu svæöunum í kjölfar árásarinnar.
Palestínumanna. Fullyrða yfirvöld
að hann hafi verið á bak við árásir
undanfarnar vikur á byggðir ísra-
elskra landnema á Gazasvæðinu.
Israelskir hermenn handtóku son
Ayads, Naser, fyrir nokkrum vik-
um.
Palestínskar sveitir gerðu í fyrsta
sinn árás á Gazasvæðinu fyrir
nokkrum vikum þegar þær réðust
að landnemabyggðinni Netzarim.
Árás var einnig gerð á byggðina að
næturlagi fyrir stuttu. Hizbollah-
samtökin lýstu yfir ábyrgð á báðum
árásunum.
Þegar Ayad hélt frá bústað sínum
í gærmorgun fylgdist þyrla með bíl
hans. Fyrsta flugskeytið, sem skotið
var að honum, missti marks. Ayad
jók hraðann og tókst einnig að kom-
ast undan næsta flugskeyti. Þriðja
flugskeytaárásin heppnaðist.
ísraelsk yfirvöld höfðu í hyggju
að jafna Mawasihverfið á Gaza-
svæðinu við jörðu. Hætt var við
áætlunina vegna mótmæla víða um
heim. Hverfið, þar sem um 500
manns búa, er umkringt byggðum
israelskra landnema.
Leikmenn við
stýrið á banda-
ríska kafbátnum
Tveir af fimmtán gestum um borð
í bandaríska kjamorkukafbátnum
USS Greeneville, sem rakst á jap-
anskt hafrannsóknaskip á föstudag
með þeim afleiðingum að skipið
sökk, fengu að athafna sig í stýris-
klefa skipsins þegar áreksturinn
varð.
Talsmaður bandaríska Kyrrahafs-
flotans skýrði frá þessu. Níu farþeg-
ar hafrannsóknaskipsins létust við
áreksturinn.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Ukraínu
handtekinn vegna ásakana um spillingu
Fyrrum aðstoðarforsætisráðherra
Úkraínu, Júlía Tímoshenko, var i
gær handtekin í Kænugarði vegna
ásakana um spillingu. Saksóknari
sakar Tímoshensko um að hafa
mútað fyrrum forsætisráðherra
landsins, Pavlo Lazarenko, en henni
er gefið að sök að hafa greitt hon-
um sem svarar 79 milljónum Banda-
ríkjadollara.
Tímoshenko hefur verið áberandi
í stjómmálum í Úkraínu undanfar-
in ár og einn af helstu leiðtogum
stjórnarandstöðunnar. Hún var
meðal þeirra stjórnmálamanna í
Úkraínu sem þrýsti hvað harðast á
afsögn forseta landsins, Leoníd
Kútsjma, vegna morðsins á blaða-
manninum Georgij Gongadze.
Kútsjma sagði sjálfur á sínum tíma
að stjómvöld myndu beita „öllum
lagalegum aðferðum" til að lægja
öldurnar í því máli.
Tímoshensko, sem er 40 ára, var
handtekin eftir yfirheyrslur hjá
embætti ríkissaksóknara, að því er
talsmaður hennar úr röðum Föður-
landsflokksins greindi frá.
Tímoshenko hefur gegnt ábyrgð-
arstörfum á sviði orkumála en
henni hefur verið gefið að sök að
hafa selt umtalsvert magn af elds-
neyti og hirt ágóðann.
Leoníd Kútsjma, forseti Ukraínu.
Barnaníðingar
dæmdir í fangelsi
Sjö Bretar, sem voru félagar í
barnaniðingasamtökunum Wonder-
land, voru í gær dæmdir í 12 til 30
mánaða fangelsi.
Mennimir, sem eru á aldrinum
25 til 46 ára, viðurkenndu að hafa
dreift tugum þúsunda klámmynda
af börnum, allt niður í 3 mánaða, á
Netinu. Talsmenn samtaka sem
berjast fyrir réttindum barna hafa
lýst yfir vonbrigðum með að menn-
irnir hafi ekki verið dæmdir í 3 ára
fangelsi sem er hæsta refsing fyrir
slík brot.
Mennirnir voru handteknir 1998.
Þá voru 107 manns handteknir í að-
gerðum lögreglu í Ástralíu, Austur-
ríki, Bandaríkjunum, Belgíu, Finn-
landi, Frakklandi, Ítalíu, Noregi,
Portúgal, Svíþjóð og Þýskalandi.
Lögreglan lagði hald á yfir 750 þús-
und barnaklámmyndir og 1800
myndbönd. Börnin voru 1273.
USS Greeneville
Kjarnorkukafbátur úr bandaríska
sjóflotanum.
Stuðningi lýst yfir við Indónesíuforseta
Stuðningsmaður Abdurrahmans Wahids Indónesíuforseta hrópar: Lengi lifí Gus Dur í göngu um 10 þúsunda
aödáenda forsetans í Jember á Java í gær.
Takið eftir:
Höggdeyfar, t.d.
Toyota Corolla
Toyota Corolla
Mazda 323
Mazda 626
Skoda Forman
Subaru Legacy
MMC space Wagon 4x4
MMC Lancer
/ eftirtalda bíla:
árgerð 88-92
árgerð 93-97
árgerð 90-94
árgerð 88-91
árgerð 90-94
árgerð 89-94
árgerð 91-
árgerð 88-92
framan kr.
framan kr.
framan kr.
framan kr.
framan kr.
framan kr.
framan kr.
4400 stk.
7400 stk.
6800 stk.
6800 stk.
6600 stk.
8900 stk.
8800 stk.
varahlutir
aftan kr.
aftan kr.
aftan kr.
aftan kr.
aftan kr.
aftan kr.
6600 stk.
6800 stk.
6800 stk.
6800 stk.
4600 stk.
8900 stk.
aftan kr. 5400 stk.