Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001 DV Fréttir Harpa hf. kærð til Samkeppnisstofnunar fyrir óeðlilega viðskiptahætti: Gólflagningarfyrir- tæki í hörkudeilum Hrygnan skoöuö Yutaka Takahashi er hér að skoða loðnu en hrygnan er herramanns- matur á borðum Japana. Gólflagningarfyrirtækið Malland ehf. hefur lagt fram tvær kærur til Samkeppnisstofnunar á hendur Hörpu hf. sem sökuð er um óeðlilega við- skiptahætti á iðnaðargólfmarkaðnum. Að sögn Sveins Ámasonar, fram- kvæmdastjóra Mallands ehf., hefur Harpa hf. beitt öðrum umsvifum sín- um til að hirða samninga af samkeppn- isaðflum í gólflagningu. Sveinn sakar Helga Magnússon, framkvæmdastjóra Hörpu hf., um að hafa beitt áhrifum sínum á óeðlflegan hátt tO að fá samn- ingum Mallands hf. við önnur fyrir- tæki rO't. Þar á meðal er samningur MaOands við Prentsmiðjuna Odda um lagningu iðnaðargólfs sem rift var tveimur dögum áður en verkið átti að heijast. „Helgi Magnússon hringdi í Odda og hótaði þvi að Harpa myndi færa við- skipti sín í prentun frá fyrirtækinu ef þeir létu ekki Hörpu eftir verkið. Þannig fengum við símtal tveimur dög- um áður en verkið átti að hefjast um það að verkið færi tO Hörpu en ekki okkar. Ég hefði látið þetta vera ef fleiri tilfelli hefðu ekki komið upp síðar,“ segir Sveinn og vís- ar tO undirskrifaðs samnings sem Mal- land gerði við Voga- bæ ehf. en færður var yfir tO Hörpu. Klofningur og deilur DeOur MaOands og Hörpu ná aftur i nóvember á síðasta ári en þá klufu nokkrir starfsmenn sig frá Hörpu og keyptu meðal annars gólflagningarfyr- irtækið MaOand frá Djúpavogi og færðu starfsemi þess yfir á höfuðborg- arsvæðið. Ástæða klofningsins var sú að óánægju hafði gætt með gæði þess gólfefnis sem Harpa hf. hóf framleiðslu á og gerði starfsmönnum sínum að nota. Sveirrn Ámason var einn þessara starfsmanna Hörpu. Á síðustu mánuðum hafa deOur staðið mifli fyrirtækjanna um við- skipti með gólfefhi, notkun vörumerkis og notkun fyrrver- andi starfsmanna Hörpu, sem nú starfa hjá MaUandi, í auglýsingum fyrir fyrrnefnt fyrirtæki. . ,^,6, Þannig hefur Sveinn Magnússon. Árnason, fram- kvæmdastjóri Maltands, prýtt auglýsingabæklinga Hörpu hf. Nú hafa deOumar náð há- marki með tveimur kæmm MaUands á hendur Hörpu tO Samkeppnisstofnun- ar. Skítkast, ekki deilur Ari Tryggvason, yfirmaður yfir gólf- lagningardeOd Hörpu, segist ekki kannast við deOur á mUli fyrirtækj- anna. „Ég kannast við aUs konar skítkast úr einni átt en ég kannast ekki við nehiar deUur. Það er kannski spum- ing um hvemig maður skOgreinir deU- ur,“ segir hann. Aðspurður sagðist Helgi Magnús- son, framkvæmdastjóri Hörpu, ekki hafa kippt i neina spotta tO að hirða samninga af MaUandi. „Mér finnst ekkert merkUegt við það að einkafyrirtæki velji einn verk- taka fram yfir annan. Ég ræð engu í Prentsmiðjunni Odda eða Vogabæ ehf. og þessi fyrirtæki taka ákvarðanir sín- ar sjálf. Þetta mál er stormur í vatns- glasi og þeir hjá MaUandi era augljós- lega að reyna að hafa emhverja auglýs- ingu upp úr krafsinu," segh1 Helgi, sem nú hefur sent nýja auglýsnigabæk- lOiga í prentim. Aðspurður sagðist Þorgeir Batdurs- son, forstjóri Prentsmiðjunnar Odda hf., ekki hafa kynnt sér málið. „Ég hef ekkert komið að þessu máli enda era gólflagnO- ekki mitt sérsvið. Það er ekki mikið atriði að ég hafi ekki heyrt af þessu, eflaust vita aðrir innan fyrirtækisins eitthvað um þetta,“ segir hann. -jtr Sveinn Árnason. Edda - miðlun gefur út úrval öndvegisbókmennta: Islands þúsund ár í gær hleypti Edda - miðlun útgáfa af stokkunum nýrri ritröð sem nefn- ist íslands þúsund ár og á að geyma úrval öndvegisbókmennta frá þúsund árum ritlistar í landinu, eins konar þverskurð af því merkasta sem ritað hefur verið á íslenska tungu frá Eddukvæðum til okkar daga. Bæk- umar era allar í sama bandi og mynda eigulegt safn sem er hugsað sem grunnur að heimflisbókasafni. Flest era þetta þekkt og viðurkennd verk en jafnframt era dregnar fram í dagsljósið perlur sem hafa verið lítt áberandi. Þá verða sett saman úrvöl smásagna eða ljóða tfltekOis tímabOs, stefnu eða höfundar. Hverju verki verður fylgt úr hlaði með ítarlegum Omgangi. Meðal verka í ritröðinni era Svart- fugl eftir Gunnar Gunnarsson, 79 af stöðinni eftir Indriða G. Þorsteinsson, Sögur Svövu Jakobsdóttur, Ljóð og sögur eftir Jónas HaUgrímsson, Gerpla eftir Halldór Laxness, Passíu- sálmar og önnur kvæði eftir HaOgrím Pétursson og Eyrbyggja saga. Öll verkin eru sérstaklega gefin út fyrir ritröðina og verða því ekki á boðstól- um á almennum markaði í þessari út- gáfu. Ritstjóri ritraðarinnar er Bjami Þorsteinsson. Þegar rööin var kynnt á blaða- mannafundi í gær færði Edda Kvennadeild Rauða kross íslands að gjöf fjórar áskriftir að ritröðinni, en KvennadeOdin rekur bókasafn á sjúkrahúsum borgarinnar. DV-MYND HILMAR ÞÓR Bókagjöf til sjúkrahúsa Dröfn Þórisdóttir, fulltrúi Eddu - miðlunar, útgáfu, afhendir Guðtaugu Ingólfs- dóttur, formanni Kvennadeildar Rauða krossins, bókagiöfina. Loðnuveiðar: Tugir Japana skoða hrygnuna DV, AKRANESI:_________ Loðnan hefur verið fryst víðs veg- ar um landið og meðal annars á Akranesi. Japanskir kaupendur vörunnar gera miklar gæðakröfur. Japanar kaupa aðeins kvenfiskinn, hrygnuna, en líta ekki við karlin- um. Hér á landi eru staddir tugir eftirlitsmanna frá japönskum kaup- endum frystrar loðnu. DV rakst á Yutaka Takahashi, eftirlitsmann frá Lax- og úthafsveiðideild Maruha Corporation í Tokyo í Japan, er hann var við eftirlitsstörf við fryst- ingu á loðnu hjá Haraldi Böðvars- syni hf. á Akranesi. Hann var greinilega ánægður með loðnuna enda tölvuvert af hrygnu í farmin- um sem var verið að landa. Jón Helgason, framleiðslustjóri HB hf. á Akranesi, segir að þetta sé besta loðnan sem þeir hafi fengið til þessa í frystingu og hann áætlaði að þeir myndu frysta um 150 tonn af loðnu á Japansmarkað í dag. -DVÓ Kópavogur: Á þriðja tug tekinn fyrir hraðakstur Á þriðja tug ökumanna var tekinn fyrir of hraðan akstur í Kópavogi á miðvikudag. Auk þess var töluvert um að ökumenn væru ekki spenntir í öryggisbelti og voru menn sektaðir fyrir það líka. Lög- reglan í Kópavogi er með samvinnu- verkefni þessa dagana við umferð- ardeild Ríkislögreglustjóraembætt- isins og ferðast starfsmenn hins síð- amefnda um i ómerktri bifreið með hraðamyndavél í. Þetta verkefni mun halda áfram í Kópavogi næstu dagana. -SMK Veðrið í kvöld Vaxandi norðlæg átt Hæg breytileg átt en vaxandi norölæg átt síödegis, 8 til 13 m/s veröa víöast hvar í nótt. Skýjað meö köflum eöa léttskýjaö sunnanlands en dálítii él norðan- og austanlands. Frost 2 til 12 stig, kaldast í nótt inn til landsins. Sólargangur og sjávarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag i kvöld 18.50 18.31 Sólarupprás á morgun 08.28 08.18 Síödegisflóö 23.23 03.56 Árdeglsflóó á morgun 11.54 16.27 Skýrlngar á veðurtáknum 10‘V_H1TI I metrum á sekúndu rKUb I *> JD £3 0 IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ •,v höf 'W Q- RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA Q 0 ir ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA A •^-VINDÁTT VINDSTYRKUR Færð Fært um helstu þjóðvegi Samkvæmt upplýsingum frá Vegageröinni er fært um alla helstu þjóövegi landsins, en víöa er hálka eða hálkublettir, einkum um vestan- og noröanvert landiö. Veðrið á morgun Skýjað með köflum sunnan- og suðvestanlands Noröan og noröaustan 10 til 15 m/s veröa á morgun, éljagangur og síöan snjókoma noröan- og austanlands en skýjaö meö köflum sunnan- og suðvestanlands. Frost 2 til 7 stig. armŒEis;;. BBWIffBWTS- Vindur: / f' A', 10-18 m/» k Vindur: ' vJLr 10-15 m/» VindunvJL"A 10-15 m/» -00Í V Hiti 0” til -4” Hiti 0° til -S” Hiti 0° til -r v-''“^ Noróaustlæg átt, 15-18 á Vestfjóröum og Austfjöröum en annars 10-15. Éljagangur noröan- og austanlands en skýjaö meö köflum suövestan tll. NA10-15 en læglr meö deglnum. Él noröan og austan tll en léttskýjaö á Suövesturiandl. Frost 0 tll 5 stlg. A10-15, slydda eöa snjókoma og hltl vlö frostmark meö suöurströndlnnl en annars hægarl, úrkomulitlö og talsvert frost. AKUREYRI skýjaö -6 BERGSSTAÐIR alskýjaö -4 BOLUNGARVÍK alskýjaö -1 EGILSSTAÐIR -6 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -3 KEFLAVÍK skýjaö -4 RAUFARHÖFN alskýjaö -3 REYKJAVÍK hálfskýjaö -5 STÓRHÖFÐI skýjaö —3 BERGEN léttskýjaö -9 HELSINKI snjókoma -7 KAUPMANNAHÖFN alskýjaö -3 ÓSLÓ snjókoma -11 STOKKHÓLMUR snjókoma -5 ÞÓRSHÖFN snjóél -2 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö -11 ALGARVE þokumóða 17 AMSTERDAM þokumóöa -1 BARCELONA rigning 7 BERLÍN snjókoma 1 CHICAGO alskýjaö 0 DUBUN léttskýjaö -7 HAUFAX snjókoma -11 FRANKFURT slydda 2 HAMBORG snjókoma 0 JAN MAYEN skafrenningur -19 LONDON snjóél -2 LÚXEMBORG snjóél 0 MALLORCA rigning 14 MONTREAL léttskýjaö -13 NARSSARSSUAQ þokumóöa -14 NEWYORK snjókoma 1 ORLANDO heiöskírt 20 PARÍS þoka 0 VÍN hrímþoka -2 WASHINGTON alskýjaö 4 WINNIPEG heiöskírt -3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.