Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Síða 6
6
Fréttir
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001
x>v
Ríkiskaup þráskallast við upplýsingagjöf:
Neita upplýsingaskyldu
um útboð ríkiseigna
- segja opinber eignaútboð falla undir einkamál
Ríkiskaup hafa ítrekað neitað að
gefa tæmandi upplýsingar um tilboðs-
gjafa viö útboð á ríkisjörðum. Hefur
þar einungis hæstbjóðandi verið
nefndur á nafn. Kom slíkt m.a. upp fyr-
ir skömmu varðandi útboð á jörðinni
Kvoslæk og einnig vegna fyrrum hér-
aðsskóla í Reykjanesi við ísafjaröar-
djúp. Hafa DV, fleiri fjölmiðlar sem og
tilboðsgjafar reynt að fá upplýsingar í
þessum málum og öðrum svipuðum en
án árangurs.
Að sögn Guðmundar I. Guðmunds-
sonar, lögfræðings hjá Rikiskaupum,
er litið á 'tilboð í ríkisjarðir sem
„einkamál viðkomandi tilboðsgjafa".
Vísar hann til úrskurðar kærumáls
um upplýsingaskyldu stjómvalda. Þar
hafl verið upplýst að menn ættu aðeins
rétt á að vita eftir á um slíkt og þá að-
eins um upphæðir tilboða. Segir Guð-
mundur að af þeim sökum sé einungis
lesið upp efsta boð við opnun tilboða
og fjöldi tilboða í viðkomandi eign.
Opinbert útboð á eignum ríkisins
telst eðli málsins samkvæmt varla
einkamál einstaklinga. Tilboðsgjafar
eru því væntanlega fullmeðvitaðir um
að tilboð þeirra séu opinbert gagn um
leið og tUboð em opnuö. Hefur DV
m.a. margsinnis verið viðstatt útboð á
opinberam framkvæmdum þar sem tU-
boð allra bjóðenda era lesin upp ásamt
tUboðsverði. Stangast það því algjör-
lega á við starfsreglur Ríkiskaupa við
útboð á ríkisjörðum. Miðað við þær
reglur er óútskýrt hvað heimUi Ríkis-
kaupum þá að gefa upplýsingar um
einn tUboðsgjafa en ekki aðra.
í upplýsingalögum, sem taka til
stjómsýslu ríkis og sveitarfélaga, segir
m.a. að stjómvöldum sé skylt, sé þess
óskað, að veita almenningi aðgang að
gögnum sem varða tUtekið mál með
þeim takmörkunum sem greinir í 4.-6.
grein laganna. Þar er tU dæmis átt við
minnisblöð ráðherra og ýmis önnur
vinnuskjöl við undirbúning mála. Tak-
markanir era á upplýsingarétti vegna
einkahagsmuna um einka- eða fjár-
hagsmálefni einstaklinga og fyrirtækja
og takmarkanir á upplýsingarétti
vegna almannahagsmuna. Hvergi er
þar minnst á nafnleynd í opinberam
útboðum.
Á vefsíðu Rftiskaupa i 8. grein laga
um framkvæmd útboða segir orðrétt:
„Lesa skal upp nöfn bjóðenda og
heUdarapphæð tUboðs. Einnig skal
lesa upp og skrá kostnaðaráætlun sé
þess kostur. Gæta skal þess að lesa
aUtaf samsvarandi tölur frá öUum
bjóðendum. Kaupandi og aUir við-
staddir bjóðendur eða fúlltrúar þeirra
skulu undirrita fundargerð og skal
þeim afhent afrit hennar óski þeir
þess.“ DV bar þetta undir Guðmund I.
Guðmundsson sem sagði að þessi lög
gUdi bara um vörukaup hins opinbera
en ekki sölu á eignum. Ekki náðist í
forstjóra Ríkiskaupa sem sagður var
erlendis. -HKr.
DV-MYND HILMAR PÓR
Opnun tilboöa í opinberu útboði Ríkiskaupa 13. febrúar
Taliö frá vinstri: Anna Sóley Sveinsdóttir, Óskar Ásgeirsson og Guömundur I. Guömundsson.
Akurnesingar aldrei fleiri
DV, AKRANESI:____________________2
A síðustu fjórum árum hefur
íbúum fjölgað á Akranesi en á ár-
unum þar á undan hafði verið tals-
verð fólksfækkun sem tengdist
beint erfiðu ástandi i atvinnumál-
um. Þann 1. desember 2000 voru
Skagamenn fleiri en nokkru sinni
fyrr, eða 5.433, en flestir höfðu þeir
áður verið 5.426 áriö 1987.
Fólksfjölgunin er öruggt merki
um aö atvinnuástand sé gott. En á
síðustu árum hafa bæst viö mörg
ný störf, meðal annars með til-
komu álvers Norðuráls á Grundar-
tanga og við flutning Landmæl-
inga íslands.
Allar byggingarlóðir, sem hafa
verið til úthlutunar, hafa runnið
út jafnóðum og færri fengið en
vildu. Sú mikla fjölgun íbúa sem
varð á Akranesi á árunum
1974-1987 kallaði á gríðarlegar
framkvæmdir sem samfélagið nýt-
ur góðs af en hefur þýtt að skuldir
kaupstaðarins eru hærri en æski-
legt væri. Má þar m.a. nefna fram-
kvæmdir við hitaveituna, dvalar-
heimilið Höföa, grunnskólana,
leikskóla og íþróttamannvirki. Á
Akranesi er öflugt sjúkrahús, fjöl-
Aldrei fleiri Skagamenn
Eins og sjá má hefur hefur veriö nokkur tröppugangur í íbúafjöida á Akranesi en í dag eru Akurnesingar fleiri en
brautaskóli, nýlegir leikskólar og
íþróttamannvirki. Þegar fram-
kvæmdum við grunnskólana lýkur
nokkru sinni fyrr.
árið 2002 verða ákveðin þáttaskil í
starfsemi þeirra. Ætla má að í
framtíðinni muni þörf á auknu
leikskólarými gera vart við sig.
-DVÓ
DV-MYNDIR DANÍEL V. ÓLAFSSON
Drekkhlaöinn
Vikingur AK kominn til hafnar úr stuttum túr og landar á Akranesi
drekkhtaöinn.
Aflahæstir
Þeir eru ánægöir, skipverjarnir á Vík-
ingi AK, ehdá'áfíáhæsiir.
Loðnuvertíðin:
Víkingur
AK afla-
hæstur
DV, AKRANESI:________
Víkingur AK er aflahæsta skipið
á loðnuvertíðinni með 23.600 tonna
aíla. Ef litið er á aflaheimildir skip-
anna þá á Antares VE óveidd tæp 17
þúsund tonn af kvótanum og Elliði
GK, sem ekki hefur farið til loðnu-
veiða á vertíðinni, á eftir rúm 16.800
teknu tilliti til flutninga aflaheim-
ilda, en kvóti skipsins er 32.767
tonn. Víkingur landaði svo aftur á
miðvikudag á Akranesi, kom með
1400 tonn þannig aö þeir eru iðnir
við kolann, Víkingamir. -DVÓ
Sandkorn
Höröur Kristjánsson
notfang: sandkom©ff.ls
Botnlaus næturvinna
Sólveig Péturs-
dóttir dómsmála-
ráðherra hefur
þótt á liðnum
misserum stiga
nokkur feilspor
varðandi málefni
löggæslu í land-
inu. Blásið hefur
verið til
glæsifunda þar sem kynnt hafa
verið ný markmið sem jafnharðan
hafa verið slegin af vegna mark-
miða um sparnað. Lengst af báru
lögreglumenn blak af ráðherran-
um en nú hefur Sólveig reitt sjálft
Landssamband lögreglumanna til
reiði. Boðað var til neyðarfundar
hjá sambandinu í gær vegna um-
mæla ráðherra um að yfirvinnu-
bann hafi ekki átt sér stað. Gár-
ungar telja þarna mikinn miskiln-
ing á ferðinni hjá löggum. Fullt af
pappalöggum hafi verið í botn-
lausri næturvinnu síðan í sumar...
Guðlaugur borgarstjóri!
„Nú er tækifær-
ið til að kjósa
Guðlaug Þór
Þórðarson sem
borgarstjóraefni
Sjálfstæðisflokks-
ins,“ segir Þórir
Kjartansson, eld-
heitur stuðnings-
maður Guðlaugs
á Netinu. Vill hann að fólk taki
höndum saman við tölvurnar við
að tikka á nafn Guðlaugs Þórs í
netkosningu á strik.is. Þannig
komist Júlíus Vífill Ingvarsson
og Bjöm Bjarnason hreinlega
ekki að. Síðan klykkir Þórir út
með að segja að hann fái ekki séð
hvernig hægt sé að styðja Bjöm og
Hannes Hólmstein Gissurarson
þar sem þeir séu búnir að taka
Ingu Jónu Þórðardóttur af lífi
og nær allan borgarstjórnarflokk
Sjálfstæðisflokksins...
Júllus frystur úti
Netkosning
þessi hefur tekið á
sig hinar undar-
legustu hliðar.
Þannig hafi
stuðningsmenn
hinna ýmsu
kandídata í odd-
vitastöðu sjálf-
stæðismanna í
borginni lagt dag við nótt og safn-
að liði fólks fyrir framan tölvu-
skjái til aö kjósa sína menn. Það
sé m.a. skýringin á því að mikill
fjöldi atkvæða hafi hlaðist inn á
Ingu Jónu Þórðardóttur eina
nóttina. Þá segir sagan að
tölvugúrú hafi lagt í það ómælda
vinnu að „blokkera“ út nafn
Júliusar Vífils Ingvarssonar á
strik.is-vefnum þannig að hvað
sem stuðningsmenn hans pikkuðu
á hnappinn hans þá komst það
ekki til skila í kosningunni. Þykir
allt þetta umstang og vökunætur
dæmi um taugaveiklun, ekki síst í
ljósi þess að netkosningin er al-
gjörlega marklaus...
Siv launar lambið...
Hjálmar Áma-
son, þingmaður
Framsóknar og
framjóðandi til rit-
arastöðu i flokkn-
um, segir hið
besta mál að Siv
Friðleifsdóttir
hafi lýst yfir
áhuga á sama
embætti. Ber Hjálmar sig manna-
lega í samtali við DV í gær en seg-
ist ekki spámannalega vaxinn að-
spurður um möguleg úrslit. Þrátt
fyrir hógværð Hjálmars þykjast
kunnugir greina kraumandi reiði í
kappanum. Framboð Sivjar í emb-
ættið sé ekkert annað en hefnd fyr-
ir þau orð Hjálmars fyrir skömmu
að hann gæti vel unnið með flest-
um þingmönnum flokksins. Á milli
lína lásu menn að Siv væri sá
þingmaður sem ekki væri hægt að
vinna með og því launi ráðherrann
þingmanninum nú lambið gráa...