Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Side 11
IX
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001_______________________________________________________________________________________________
DV Útlönd
Stuöningsmenn forsetans
Stuðningsmenn Milosevics,
fyrrverandi Júgóslavíuforseta, ætla
aö hindra handtöku hans.
Standa vörð um
hús Milosevics
Um 100 stuðningsmenn Slobodans
Milosevics, fyrrverandi Júgóslavíu-
forseta, segjast ætla að standa vörð
um hús hans dag og nótt til að koma
í veg fyrir handtöku hans. Stuðnings-
mennirnir söfnuðust saman við heim-
ili Milosevics í Belgrad í gær. Undan-
farna daga hafa borist fregnir af því
að handtaka Milosevics sé yfirvof-
andi. Fjöldi erlendra fjölmiðlamanna
er kominn til Belgrad og bíður.
í gær var greint frá að yflrvöld í
Króatíu hefðu hvatt júgóslavnesk
yfirvöld til að láta Milosevic svara til
saka fyrir þjóðarmorð fyrir
stríðsglæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna í Haag. Vojislav Kostunica
Júgóslavíuforseti er nú undir
miklum þrýstingi. Hann hefur sagt
að framsal Milosevics myndi valda
óstöðugleika þegar verið væri að
koma á lýðræði.
Reiði vegna eyði-
leggingar styttna
Talibanar, sem ráða mestöllu
Afganistan, hafa kallað yfir sig reiði
heimsbyggðarinnar vegna eyðilegg-
ingar á fornum sögulega verðmæt-
um höggmyndum. Talibanar segja
þær ekki samræmast íslamskri
hreintrúarstefnu sinni. Sameinuðu
þjóðirnar hafa hvatt íslamstrúar-
þjóðir tU að reyna að fá Talibana of-
an af áformum sínum. Meðal högg-
myndanna sem á að eyðileggja eru
tvær risastórar styttur af Búdda,
sem voru höggnar nokkrum öldum
eftir fæðingu Krists. Búddistar,
kristnir menn og múslímar um all-
an heim eru yfir sig hneykslaðir.
í>gvs
Gnmmívinnnstofan ehf.
Réttarhálsi 2, síml 587 6688
Sklpholtl 35, síml 568 1066
Þjónustuaðllar um land allt
Gorbatsjov sjötugur
Mikhail Gorbatsjov, fyrrverandi leiötogi Sovétríkjanna, er sjötugur í dag. Mikiö hefur veriö fjallað um Gorbatsjov í
rússneskum fjölmiölum aö undanförnu og hefur hann veriö oröaöur viö embætti ráögjafa Viadimirs Pútins
Rússlandsforseta.
Bílstjórinn sem
olli lestarslysinu
alveg óhuggandi
Ökumaður Land Rover-jeppans
sem olli lestarslysinu við Selby í
Englandi var í felum í gær og alveg
óhuggandi. Fjölskylda hans vísaði á
bug fréttum um að hann kynni að
hafa sofnað undir stýri með fyrr-
greindum afleiðingum.
„Það er tóm vitleysa. Hann sofn-
aði örugglega ekki. Þetta var slys,“
sagði eiginkona ökumannsins við
fréttamenn í gær.
Þrettán manns létu lífið í slysinu
þar sem tvær lestar rákust saman
eftir að önnur þeirra haföi ekið á
jeppann sem var á brautarteinunum
og farið út af sporinu, í veg fyrir lest
sem kom úr gagnstæðri átt.
Ökumaðurinn, Gary Hart, var í
gær hjá vinafólki sínu á ókunnum
stað, að sögn lögreglu.
Móðir Harts sagðist vona að syni
hennar yrði ekki kennt um slysið.
Fyrir nokkrum dögum beindist
athygli Bandaríkjamanna aö til-
raunum Hugs Rodhams, bróður
Hillary Clinton, fyrrverandi forseta-
frúar Bandaríkjanna, til að fá mág
sinn, Bill Clinton, til að náða dæmd-
an fjársvikara og dæmdan flkni-
efnasmyglara. Hugh fékk 400 þús-
und dollara greiðslu fyrir greiðann.
Nú hefur komið í ljós að Tony Rod-
ham, sem einnig er bróðir Hillary,
notfærði sér tengsl sín við fyrrver-
andi forseta Bandaríkjanna.
Bandaríska blaðið New York
Times greindi frá því í gær að Tony,
sem virðist hafa jafn mörg vafasöm
sambönd og bróðir hans, fékk Clint-
on í fyrra til að náða hjónin Edgar
Allan og Vonnu Jo Gregory sem
fundin voru sek um alvarleg fjár-
svik árið 1982.
Afbrot þeirra þóttu svo alvarleg
að forsetanum var eindregið ráðið
frá að gefa þeim upp sakir. Þá datt
hjónunum í hug að biðja vin sinn,
Hneykslismálin vinda upp á sig
Hillary Clinton, öldungadeildarþingmaður og fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna.
Tony Rodham, um að tala máli
þeirra í Hvíta húsinu í Washington.
Tony varð við beiðni þeirra en
harðneitar að hafa þegið fé fyrir.
Tony er reyndar í viðskiptasam-
bandi við hjónin.
Greint var frá þrýstingi Tonys
samtímis sem þrír fyrrverandi ráð-
gjafar Clintons voru í gær yfir-
heyrðir af þingnefnd sem rannsakar
umdeildar náðanir Clintons. Nefnd-
in rannsakar einkum sakaruppgjöf
landflótta auðkýfings, Marcs Rich.
Fyrrverandi eiginkona hans, Denise
Rich, gaf stórfé í sjóði demókrata
fyrir náðunina. Ráðgjafarnir þrír
kváðust allir hafa verið andvígir
náðuninni á Rich sem flýði til Sviss
1983. Þeir kváðust hafa talið að mál-
ið hefði verið lagt til hliðar eftir
fund 16. janúar síðastliðinn. Hins
vegar virtist sem símtal frá Ehud
Barak, fráfarandi forsætisráðherra
ísraels, þann 19. janúar hefði ráðið
úrslitum.
Hreinsunarstarfið hafið í Seattle:
Tveir eftirskjálftar í gær
Það er talið því að þakka að skjálft-
inn varð á miklu dýpi, eða 48 kíló-
metra undir yfirborði jarðar.
„Við vorum mjög heppin," sagði
Locke í viðtali við sjónvarpsstöð í
Seattle. „Þetta hefði getað orðið
hræðilegt hefði hann verið nær yfir-
borðinu eða ef hann hefði verið á
Seattle misgenginu,“ sem er undir
miðri borginni.
Eftirskjálftamir sem riðu yfir i
gærmorgun, að staðartíma, mæld-
ust 3,4 og 2,7 stig á Richter. Þeir
voru það öflugir að menn urðu
þeirra sums staðar varir en ekki
höfðu borist neinar fréttir af alvar-
legum skemmdum eða meiðslum af
þeirra völdum. Jarðskjálftafræðing-
ar sögðu ólíklegt að öflugir eftir-
skjálftar myndu koma vegna þess
hve djúpt stóri skjálftinn var.
Bush forseti lýsti yfir neyðará-
standi í vesturhluta Washington og
á hann því rétt á ríkisaðstoð.
Tveir eftirskjálftar skóku vestur-
hluta Washington-ríkis i Bandaríkj-
unum í gær, sólarhring eftir að gríð-
arlega öflugur skjálfti olli milljarða
króna tjóni á mannvirkjum.
Embættismenn sögðu það ganga
kraftaverki næst að aðeins væri
hægt að tengja eitt dauðsfall skjálft-
anum, sem mældist 6,8 stig á Richt-
er. Tugir manna slösuðust hins veg-
ar. Skjálftinn í fyrradag var hinn
öflugasti sem hefur orðið á þessum
slóðum í rúma hálfa öld.
Hreinsunaraðgerðir hófust í gær
en margir skólar og vegir voru enn
lokaðir.
Gary Locke, ríkisstjóri í Was-
hington, sem mat tjónið á meira en
86 milljarða króna, sagði að það
gæti tekið nokkrar vikur að gera
við suma þjóðvegi og brýr. Hann
sagði það þó létti að skemmdimar
væru tiltölulega litlar, miðað við
hvað skjálftinn hefði verið öflugur.
Minjagripur um skjálfta
Steffan Tubbs frá Los Angeles fær
sér múrstein til minningar um jarö-
skjálftann í Seattle á miövikudag.
Tveir bræður Hillary
þrýstu á um náðun
i ) i
í