Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Side 12
12
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001
Skoðun
TXV
Spurning dagsins
Ferðu oft út að borða?
Kormákur Sigurðsson nemi:
Já, aöallega á skyndibitastööum,
Nonnabitar og Kentucky eru
staðirnir mínir.
Rakel Brynjólfsdóttir nemi:
Já, mest samt á skyndibitastaöi og
helst þá á Subway.
Guðbjörg Birna Jónsdóttir nemi:
Já, ég fer mjög oft á Pizza 67
viö Tryggvagötu.
Birgir Steinarsson nemi:
Nei, ekki mjög. En uppáhaldsmatur-
inn minn fæst hjá American Style.
Haukur Pálsson nemi:
Á skyndibitastaöi já, Pizza Mongó
á Akureyri er bestur.
Erla Stefánsdóttir nemi:
Nei, en Tres Locos er besti
staðurinn.
Flugvöllinn hér
þar til hann fer!
Sigurjón Sigurjónsson
skrífar:
Vilt þú að flugvöllurinn
verði þangað til hann fer?
Þið skuluð ekki halda að ég
líti á borgarbúa sem ein-
hver fífl sem hægt sé að
ráðskast með. - Eitthvað í
þessa veru hef ég oft heyrt
borgarstjórann í Reykjavík
segja þegar hún vill slá
vopnin úr höndum and-
stæðinga sinna. Ég hef tals-
vert velt fyrir mér málefn-
um flugvallarins og yfirvof-
andi „kosningu" borgarbúa
um það hvort hann skuli
fara eða vera.
Nú hef ég áttað mig á því
að ég er búinn að láta hafa
mig að algeru fífli í þessu
máli. Hvort ég vil flugvöll-
inn burt eða ekki skiptir
ekki máli. Þessi „atkvæða-
greiðsla" er að verða að al-
gjörum skrípaleik. - Og ég sem ætl-
aði að mæta á staðinn og kjósa.
Nú er komið í ljós að það skipíir
engu máli hvort ég mæti á kjörstað
og kjósi eða fer bara á skíði eða eitt-
hvað. Þetta er markleysa sem engan
bindur, hvorki borgarstjóm, ríkis-
stjóm né nokkum mann, ekki einu
sinni hið dæmalausa Útvarpsráð. -
Ef aðdragandinn er skoðaður þá
skýrist m.a. hvers vegna mér liði
eins og fífli við kjörborðið.
fngibjörg Sólrún gekk fyrir
skömmu frá samningi um að flug-
völlurinn yrði á sínum stað næstu
16 árin. Daginn eftir ákvað hún að
„Ingibjörg Sólrún gekk jyrir
skömmu frá samningi um að
flugvöllurinn yrði á sínum
stað nœstu 16 árin. Daginn
eftir ákvað hún að efna til
atkvæðagreiðslu meðal borg-
arbúa um það sem hún var
að skrifa undir. “
efna til atkvæðagreiðslu meðal
borgarbúa um það sem hún var að
skrifa undir. Síðan hleypur forseti
borgarstjórnar, Helgi Hjörvar, af
stað og stofnar samtök undir kjör-
orðinu „Flugvöllinn burt“. Éin-
hvem veginn skildist mér á mann-
inum að það gæti bara orðið nánast
á morgun ef atvikin höguðu því svo.
En þetta er bara ekki svona, þetta
er bara grínatkvæðagreiðsla sem
hefur i raun ekkert gildi annað en
að dreifa huga borgarbúa. Hvers
vegna göngum við ekki skrefið til
fulls og lögum spurningarnar að að-
stæðum? Þær gætu t.d. orðið í þessa
veru: A) Vilt þú að flugvöllurinn
verði kyrr þangað til hann fer? B)
Vilt þú að flugvöllurinn fari, en
komi síðan aftur?
Opið bréf til DV
Stjórn kjördæmisfélags Vinstri-
hreyfingarinnar - græns framboös í
Reykjavík sendi þennan pistil:
Á stjórnarfundi kjördæmisfélags
Vinstrihreyfingarinnar - græns fram-
boðs í Reykjavík mánud. 19. febrúar
2001 var samþykkt að senda DV opið
bréf.
Tflefnið er að VG í Reykjavík for-
dæmir framsetningu DV í helgarblaði
þess laugard. 17. febrúar sl. undir feit-
letraðri fyrirsögn á forsíðu, „Hvíta ís-
land“, ásamt opnuviðtali undir sam-
hljóða fyrirsögn við varaformann í fé-
lagi sem hefur það að markmiði að:...
„stöðva innflutning á fólki af öðrum
uppruna en evrópskum tfl íslands. Fé-
lagið vill viðhalda, vernda og efla
tungu, menningu og kynstofn íslend-
inga, hefja þjóðernishyggju tfl vegs og
virðingar og draga úr erlendum áhrif-
um. Slagorð félagains er ísland fyrir
Því er það með öllu óviðun-
andi að DV skuli setja fram
umfjöllun um þetta félag með
þeim hætti sem gert var.
íslendinga."
VG í Reykjavík átelur DV harðlega
fyrir umfjöllun þess og telur að með
framsetningu umrædds efnis fari
blaðið út yfir öll velsæmismörk. Aug-
ljóst má vera að hér sé fyrst og fremst
um að ræða auvirðilega sölumennsku.
VG í Reykjavík telur að markmið
og stefna þessa félags fari í bága við
eina megingrein stjórnarskrárinnar
sem er að: „Allir skulu vera jafnir fyr-
ir lögum og njóta mannréttinda án tfl-
lits til kynferðis, trúarbragða, skoð-
ana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, lit-
arháttar, efnahags, ættemis og stöðu
að öðru leyti.“ Þvi er það með öllu
óviðunandi að DV skuli setja fram
umfjöllun um þetta félag með þeim
hætti sem gert var.
Athugasemd ritstjóra
1 viðtali við Guðrúnu Ögmunds-
dóttur, alþingismann Samfylkingar-
innar, í sama blaði og viðtalið birt-
ist við varaformann Félags is-
lenskra þjóðernissinna var hún
spurð hvort ekki ætti að ræða for-
dóma gagnvart útlendingum. „Það
væri mjög freistandi að kæfa for-
dóma í fæðingu," sagði Guðrún, „en
það má ekki loka augunum fyrir
þessum vandamálum. Við megum
ekki vera í blindingjaleik,“ sagði
þingmaðurinn og bætti síðan við:
„En ef enginn talar um vandamálin
er hætt við því að við vitum ekki af
vandanum.“
Dagfari
Byttur í beinni
Dagfari er á því að Skjár 1 hafi fariö nokkuð vel
af stað sem skemmtileg viðbót við það framboð
sem í boði er varðandi sjónvarpsefni. Lengi vel
leit þetta vel út en nú undanfarið er að fjara
undan þessari nýju sjónvarpsstöð.
Það eru einkum og sér í lagi þrír þættir sem
eru stöðinni til skammar. Djúpa laugin, nýr þáttur
um menningu og Bjöm og félagar sem nú er farið
að sýna á fóstudagskvöldum.
Gera verður þá kröfu til stjómenda
sjónvarpsþátta að þeir séu þokkalega að sér í
íslenskri tungu. Konumar, sem em
umsjónarmenn Djúpu laugarinnar, em báðar
ófærir þáttastjómendur. Þá er það einnig
furðulegt aö fólki skuli leyft að lepja öl i þættinum
þrátt fyrir að bannað sé að auglýsa áfengi í
íslenskum fjölmiðlum. Þessi þáttur nýtur vinsælda
á meðal yngi kynslóðarinnar og því mikflvægara
en ella að þar sé fólk við stjómvölinn sem kann
íslensku.
Sömu sögu er reyndar aö segja um Bjöm og
félaga á fóstudagskvöldunum, nema að þar em
menn edrú á skjánum. Stjómandinn, Bjöm
Jömndur Friðbjömsson, er eins langt frá því að
teljast hæfur stjórnandi sem hugsast getur. Hann er
málhaltur með afbrigöum og alveg sérstaklega
klaufalegur sjónvarpsmaður. Stjómendur sem hægt
er að nefna til samanburðar em Sjgríður
Loks má nefna nýjan menningarþátt
sem er mesta lágkúra sem boðið hefur
verið upp á í íslensku sjónvarpi fyrr og
síðar. „Hettumávamir“ sem stýra
þættinum virðast hafa það eitt að
markmiði að auglýsa brennivín og
bjór og ná því að vera undir áhrifum í
þáttunum.
Amardóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.
Fréttastofa Skjás 1 minnir um margt á
leikskóla frekar en fréttastofu. Reyndar er það
yfirlýst stefna Skjás 1 að vera með öðmvísi fréttir
en hinar stöðvamar en fyrr má nú rota en
dauðrota. Öll umfjöllun á fréttastofunni, ef hægt
er að nefna stofuna því nafni, er í bamalegum
aulahúmorsstíl. „Fréttamennimir" alltaf að
rembast við að vera fyndnir og í langflestum
tilfellum mistekst það hrapallega.
Loks má nefna nýjan menningarþátt sem er
mesta lágkúra sem boðið hefur verið upp á í
íslensku sjónvarpi fyrr og síöar. „Hettumávamir"
sem stýra þættinum virðast hafa það eitt að
markmiöi að auglýsa brennivin og bjór og ná þvi
að vera undir áhrifum í þáttunum. Á sérstaklega
bamalegan og aulalegan hátt er reynt aö vera
öðravísi en aðrir en það hefur algjörlega
mistekist. Hér er um að ræða menningarþátt sem
er Skjá 1 tfl mikillar skammar og verður að treysta
því að stjórnendur stöðvarinnar átti sig á þessu
sem fyrst og taki þáttinn af dagskrá.
Ef Skjár 1 ætlar sér að verða að alvöra
sjónvarpsstöð sem tekin er alvarlega verða
stjómendur stöðvarinnar að sýna örlítið
siðferðisþrek og vanda valið þegar stjómendur
þátta eru annars vegar. _ n .
Stofnanir úr Reykjavík
Kistinn Sigurðsson skrifar:
Framsóknarflokkurinn hefur verið
í fararbroddi varðandi flutning ým-
issa stofnana úr Reykjavik út á land
og virðist mönnum í þeim flokki
standa á sama þótt hundruð manna
missi vinnu sína. Þeir byrjuðu á
Landmælingum ríkisins. Og þótt
Hæstiréttur úrskurðaði það ólöglegt,
þá var lögunum bara breytt og Sjálf-
stæðisflokkurinn samþykkti orða-
laust. Næst var það Byggðastofnun og
siðan RARIK og þar er rústað afkomu
hundruðum manna. Enginn þeirra er
öruggur um að fá vinnu sambærilega
við þá sem hann hafði. Mikil reiði er
meðal starfsmanna þessara stofnana.
Ég tel að í næstu kosningum til borg-
arstjórnar og síðar Alþingis muni
Sjálftæðisflokkurinn tapa allt að 3000
atkvæðum, því þessir menn og konur
eiga fjölskyldur, kunningja og vini og
það fólk sem hugsanlega kaus Sjálf-
stæðisflokkinn mun kjósa ýmist
Vinstri-græna eða Samfylkinguna.
Maður spyr sig hvað ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins séu að hugsa. Þeir eru
líka þingmenn Reykjavíkur, en segja
já og amen þegar Framsókn vill rústa
lífsafkomu fólks. - Hvað er næst?
Reykjavíkurflugvöllur
Stendur á Skitdinganesinu aö mestu.
Flugvöllurinn er ekki
í Vatnsmýrinni
Kristín ÞorvaJ_dsdótUr_hringdi:
Reykjavíkurflugvöllur er alls ekki í
Vatnsmýrinni nema að litlum hluta.í
umræðunni er talað eins og hann sé
allur í mýrinni. Völlurinn stendur á
Skildinganesinu, en smáendi norður-
suðurbrautarinnar nær aðeins út í
Vatnsmýrina. Þeir sem vilja vemda
Vatnsmýrina eiga lika að vilja vernd-
un flugvallarins, því völlurinn vernd-
ar Vatnsmýrina. Meðan hann fær að
vera verður ekki byggt í mýrinni og i
henni má ekki byggja, því þá eyði-
leggst Tjörnin. Ég er sammála Birni
Guðmundssyni í DV á laugardag að
það er fáránlegt að tala um flugvöll
úti á Skerjafirðinum. Það gengi
aldrei. Ég hef búið í meira en 50 ár við
flugvöllinn í Litla Skerjafirði. Hann
hefur verið góður nágranni og hér líð-
ur fólki vel. Héma í Skerjafirðinum
er gott loft - það stafar af því að við
höfum flugumferð en ekki bílaumferð
i þéttri byggð eins og nú er lagt til.
Fíkniefnafárið í Eyjum
Gunnar Magnússon skrifar:
Mér finnst þessi
umræða nú um
fíkniefhi sem sögð
voru til staðar í
skipi sem kom tfl
Vestmannaeyja en
fundust ekki
hljóma afar ein-
kennilega. Ekki
síst eftir að þing-
maður þeirra Sunn-
lendinga, úr Sam-
fylkingunni, hefur
tekið málið upp og
á allt öðrum forsendum en maður
hefði talið að ætti að taka málið upp
á. Mér og öðram sem hafa heyrt rætt
um þetta mál sýnist það snúa einung-
is að þeim í Vestmannaeyjum, en ekki
koma lögreglunnni í Reykjavík baun
við. Ekki væri ég hissa þótt þingmað-
urinn væri fenginn til þess að ganga í
málið af slíkri hörku sem raun ber
vitni, til þess að kveöa niður frekari
umfjöllun um þetta furðulega fikni-
efnamál í Eyjum og koma höggi á
dómsmálaráðherra í leiðinni.
Lúövík
Bergvinsson
alþm.
Undarleg fyrir-
taka hjá þing-
manninum.
DVl Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
ínn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.ls
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11,105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.