Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 Fréttir DV Bláhvamms-manndrápsmálið sem Hæstiréttur vísaði heim í hérað hafið á ný: Frekari rannsókn - sömu héraðsdómarar - Hæstiréttur vill sérfræðiálit og skýrt mat héraðsdóms á trúverðugleika ákærða Rannsókn heldur áfram í Bláhvammsmálinu Hæstiréttur teiur framburö sonar hins látna tortryggilegan og vill aö héraösdómur geri skýrt mat á frásögn hans. Sömu þrír héraðsdómarar og dæmdu svokallað Bláhvammsmál, þar sem 22 ára karlmanni var gefið að sök aö hafa banað fóður sínum á heimili þeirra í Reykjahreppi í Þingeyjarsýslu þann 18. mars á síðasta ári, þinguðu í málinu á ný í Héraðsdómi Norður- lands í morgun eftir að Hæstiréttur ómerkti dóminn og vísaði heim í hér- að á ný. Til stóð í þinghaldi á Akureyri í morgun að þeir Freyr Ófeigsson dóm- stjóri, Halldór Halldórsson og Ásgeir Pétur Ásgeirsson fælu ákæruvaldinu að afla frekari gagna í samræmi við fyrirmæli Hæstaréttar. Mun lögreglu- rannsókn því heflast á ný. Samkvæmt upplýsingum DV er stefnt að því að dómur gangi í málinu á ný í héraði í maí og helst ekki síðar en í júní, fyrir réttarhlé. Héraðsdómur hafði áður sýknað ákærða af ákæru um manndráp en sakfellt fyrir gáleysi í meðferð skot- vopna og dæmt hann í 4ra mánaða skilorðsbundiö fangelsi. Hæstiréttur vísaði hins vegar málinu heim í hérað á ný, m.a. með þeim orðum að málið hefði legið þannig fyrir héraðsdómi að rökstuddur grunur hefði verið fyrir hendi um að ákærði hefði framið manndráp. Sérfræöimats veröur krafist Hæstiréttur vill að héraðsdómur hlutist til um að rökstutt sérfræðOegt mat verði fengið á því hvort eða hvem- ig staðsetningar hins unga manns við rúm fóður síns geti komið heim og saman við frásögn ákærða um að um slysaskot hefði verið að ræða. Einnig var málinu vísað heim í hér- að af þeirri ástæðu að sérstaka athug- un þurtl að gera á því hvort unnt sé að meta út frá blóði á og við líkið hver staða höfúðs hins látna hafi verið er 3 skotum var hleypt af. Einnig vill Hæstiréttur að rannsakað verði til þrautar hvort unnt sé með tæknilegum rannsóknum að fá fram frekari vís- bendingar af ljósmyndum sem teknar vom þegar lögregla kom á vettvang. Héraösdómur á aö taka af- stööu til trúveröugleika ákæröa Auk framangreindra atriða fer Hæstiréttur fram á að héraðsdómur „kveði skýrt á um mat sitt á sönnunar- gildi og trúveröugleika framburðar ákæröa". Við meðferð málsins í Hæstarétti sagöi Bogi Nilsson ríkissak- sóknari að Héraðsdómur Norðurlands eystra hefði fjallað um fæst þeirra at- riða sem þó lægju fyrir i málinu og þýðingu þeirra - upplýsingar um at- burðarás og málavexti. Hæstiréttur benti á að ákæruvaldið mæti það svo, með hliðsjón af gögnum málsins í heild, að niðurstaða ríkissak- sóknara væri afdráttarlaust sú að næg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, hafi komið fram um að ákærði hefði framið þann verknað sem hann var ákærður fyrir. Framferði ákærða bendir tii sektar - blekkingar Hæstiréttur féllst á með ákæruvald- inu að framferði ákærða gæfi ákveðn- ar vísbendingar um sekt hans. Þannig hafi hann breytt vettvangi og fjarlægt sönnunargögn áður en lögreglan kom að Bláhvammi þar sem faðir ákærða fannst í rúmi sínu. Þannig bendir Hæstiréttur á að ákærði hefði látið líta út eins og um sjálfsvíg hefði verið að ræða. „Blekkti hann þar með lögreglu- menn og leiddi þetta til þess að ummerkj- um á vettvangi var eytt,“ segir í niður- stöðum Hæstaréttar. Þrír dagar liðu fram að krufningu en þá kom í ljós að líkið var með 3 skotsár- um, ekki einu eins og fyrst hafði verið talið. Beindist grun- ur þá að ákærða. Hann bar hins vegar fyrir sig að að hafa ætlað að taka eigið líf fyrir framan rúm fóður síns - haldandi á rifHinum en sitjandi og snúið baki í fóðurinn sem hafi tekið í byssuna þannig að skot hafi hlaupið af. Hleður eínhver byssu í myrkri, lítur undan og hittir tvisvar? Það sem fjallað verður um i réttar- höldunum sem fram undan eru á Ak- ureyri að lokinni frekari lögreglurann- sókn er frekara mat á frásögn ákærða sem Hæstiréttur taldi „tortryggilega". Þannig þykir ótrúverðugt að ákærði hafl í fyrsta lagi ætlað að svipta sig lífi, í öðru lagi að faðirinn hafi gripið um hlaupið með þeim afleiðingum að skot hafi farið í höfúð hans. í þriðja lagi taldi Hæstiréttur tortryggilegt að ákærði hefði eftir slysaskotið tvívegis hlaðið riffilinn en til þess þyrfti átak. Síðan hefði hann skotið tveimur skot- um í enni foðurins, bæði nær þvi á sama stað í ljóslausu herbergi - en samt hefði hann litið undan. Auk þessa benti Hæstiréttur á að við þetta bættist að röksemdir hefðu komið fram hjá reyndum lögreglu- mönnum sem gæfú tilefni til að efast um að atburðir hefðu getað gerst með þeim hætti sem ákærði hefði haldið fram. Búast má við að aðalmeðferð nýrra réttarhalda hefjist innan fárra vikna. -Ótt Réttarhöld á Akureyri Þrír dómarar þinguöu á ný í Bláhvammsmálinu á Akureyri í morgun. Mettúr hjá Kleifaberginu: Hásetahlutur 1,2 milljónir á 38 erf- iðum dögum Kleifabergið frá Ólafsfirði kom inn fyrir helgina, rétt eftir að verkfall sjó- manna skall á, með afla sem er 120 milljóna króna virði. Hásetahluturinn eftir 38 sólarhringa úthald, veiði og vinnslu 500 tonna af dýrum fiski, ekki síst grálúðu, er 1,2 milljónir króna. Áhöfnin, 26 duglegir sjómenn, fór beint í fyrirskipað verkfall, en ekki munu þeir allir ánægðir með að leggja niður störf. Kleifabergið var að veið- um á hefðbundnum slóðum við land- ið, byrjaði í grálúðu og endaði í karfa. Túrinn var stílaður upp á verkfallið. „Þetta er mikið áreiti og mikil vinna að vera á 76 vöktum, kaupið er ágætt en engin ofboðsleg laun,“ sagði Víðir Jónsson skipstjóri. Hann sagði að skipverjar reru annan hvern túr. -JBP Oli í Sandgerði seld- ur á 700 milljónir DV, Akranesi: ______________________ Óli í Sandgerði fyllti.sig á loðnumið- unum við Vestmannaeyjar á mánu- dagskvöldið fyrir rúmri viku. Skipið hélt að því búnu af miðunum inn til Vestmannaeyja, þar sem loðnunótin var sett í land. Það kom sér vel þar sem Víkingur fékk risakast nokkrum klukkutímum síðar og sprengdi nótina sína. Hann gat því rennt sér inn til Eyja til þess að sækja nótina hans Óla. Frá Vestmannaeyjum hélt Óli í Sandgerði beint til Noregs þar sem afl- anum var landað á fimmtudag. Að lok- inni löndun var skipið afhent nýjum eigendum. Skipið hefur fiskað vel frá áramótum eða rúm 22.000 tonn af loðnu. Söluverð skipsins er rúmar 700 milljónir króna. Skipið mun heita Or- dinat, kemur í stað eldra skips sem hafði sama nafn. Það skip var selt til Rússlands. Skipið mun halda næstu daga til veiða á kolmunna við Irland en það mun annars stunda makríl-, sild-, loðnu- og kolmunnaveiðar. Dalvík og Ólafsfjörður: Framtíðarskíða- menn Unglingameistara- mót íslands á skíðum ' fer fram dagana 29. mars til 1. apríl á Dalvík og Ólafs- firði. Mótið verður haldið sameigin- lega af Skíðafélagi Dalvíkur og skiða- deftd Leifturs. Keppt er í flokkum 13-14 ára og 15-16 ára. Mótið verður sett í Dalvíkurkirkju fimmtudaginn 29. mars kl. 21. Á fóstudeginum verður keppt í stórsvigi og göngu með frjálsri aðferð, á laugardag verður keppt í svigi og göngu með hefðbundinni aðferð og á sunnudag i risasvigi og boðgöngu. -hiá Veðrið í kvöld m' .. *(S -áots Austan og suðaustlægar áttir Austan 5 til 8 m/s allra syðst en annars fremur hæg suðaustlæg átt. Skýjaö og dálítil él, einkum við sjóinn en víða léttskýjaö á Norðurlandi. Hiti O til 4 stig sunnan til að deginum en annars frost 2 til 10 stig, kaldast á Norðausturlandi. Sólargangur og sjávarföil REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 19.44 17.56 Sólarupprás á morgun 07.25 08.58 Siödegisflóö 16.24 20.57 Árdegisflóö á morgun 04.47 09.20 Skýrtngar á yefyfjrtáfetujm J*-»VINDÁTT 10V-HITI -10? & ^VINDSTYRKUR í metrum á sekúndu ^FROST HEIÐSKÍRT JD D>,o UÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ V,í' •WW RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA 'W -\r = ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR POKA Veðríð á morgun Greiðfært um helstu þjóðvegi Greiöfært er um alla helstu þjóövegi landsins, hálka eöa hálkublettir eru þó á heiðum á Vestfjörðum, Noröaustur- landi og Austurlandi. lEÍHE Viða léttskýjað á Norðurlandi Austan 5 til 8 m/s allra syðst en annars fremur hæg suðaustlæg átt. Skýjaö og dálítil él, einkum viö sjóinn en víöa léttskýjað á Noröurlandi. Hiti O til 4 stig sunnan til en annars frost 0 til 5 stig. Fimmtu Vindur: /J' 10-15 nv's Híti 3° tii -5° NA 10-15 m/s norövestan til en annars fremur hæg austlæg átt. Hiti 0 til 3 stig sunnanlands en frost 0 til 5 stig noröan tll. Él um allt land. Föstud . WM Vindur: 5-8 m/» Hiti 0° til Laugard Vindur. /O r' \ Hiti 0“ til -5* 0oo°o0 Fremur hæg NA-átt og él á noröanveröu landlnu en skýjaö með köflum sunnan tll. Frost 0 tll 8 stig, kaldast á Noröurlandi. Breytileg átt, él og frost yfirleitt á blllnu 0 tll 5 stlg. | Veðríð kl. 6 AKUREYRI léttskýjaö -7 BERGSSTAÐIR skýjað -3 BOLUNGARVÍK alskýjaö -4 EGILSSTAÐIR -5 KIRKJUBÆJARKL. -1 KEFLAVÍK skýjaö 1 RAUFARHÖFN alskýjaö -4 REYKJAVÍK skýjaö 0 STÓRHÖFÐI léttskýjaö 1 BERGEN léttskýjaö -5 HELSINKI léttskýjaö -12 KAUPMANNAHÖFN alskýjaö -3 ÓSLÓ þoka -12 STOKKHÓLMUR -8 ÞÓRSHÖFN alskýjaö 1 ÞRÁNDHEIMUR snjóél -10 ALGARVE þokumóða 12 AMSTERDAM skýjaö 0 BARCELONA léttskýjaö 14 BERLÍN snjókoma -3 CHICAGO skýjaö 1 DUBLIN skýjaö 3 HAUFAX hálfskýjað 1 FRANKFURT skýjaö -2 HAMBORG léttskýjað -6 JAN MAYEN skafrenningur -18 LONDON skýjaö 3 LÚXEMBORG léttskýjaö -2 MALLORCA þoka 9 MONTREAL heiöskírt -2 NARSSARSSUAQ léttskýjaö 3 NEWYORK heiðskírt 6 ORLANDO alskýjaö 20 PARÍS alskýjaö 4 VÍN léttskýjaö 3 WASHINGTON heiösklrt -2 WINNIPEG alskýjaö 0 M #11, ;)X*Íl ill? :l-| ý'jf|rj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.