Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001
Fréttir
I>V
Meö nælonsokka á höfðum og kúbein í höndum:
Rússneska mafían handtek-
in á pósthúsi á Stórhöfða
- bjuggu á Farfuglaheimilinu í Laugardal - myndbandsupptaka felldi þá
„Þeir klikkuðu á smáatriðum,"
sagði Gunnleifur Kjartansson
rannsóknarlögreglumaður eftir að
lögreglan í Reykjavik hafði hand-
tekið þrjá austur-evrópska inn-
brotsþjófa sem höföu látið greipar
sópa í tveimur verslunum í aust-
urbæ Reykjavíkur. Innbrots-
þjófarnir komu til landsins með
Flugleiðavél frá Kaupmannahöfn á
föstudaginn og létu til skarar
skríða í verslun Hans Petersen á
Laugavegi 178 strax nóttina eftir.
Aðfararnótt sunnudagsins brutu
þeir sér leið inn i raftækjaverslun
Bræðranna Ormsson við Lágmúla
og tæmdu þar flestar hillur á met-
tíma. Samkvæmt myndbandsupp-
töku úr verslun Hans Petersen
voru innbrotsþjófarnir aðeins í 27
sekúndur inni í versluninni og
gengu hratt og örugglega til verks.
í hugum lögreglumanna er enginn
vafi á að hér er rússneska mafian
að verki.
Rússi, Efsti og Lithái
„Þetta eru þrír menn, rétt lið-
lega tvítugir, einn Rússi, einn Eist-
lendingur og einn Lithái. Þeir hafa
komið gagngert til landsins til að
ræna verslanir og áttu bókað far
aftur út snemma í morgun,“ sagði
Gunnleifur Kjartansson. „Við gát-
um ekki þekkt mennina á mynd-
bandsupptökunni því þeir voru
með nælonsokka á höfðum. Við
gripum þá til þess ráðs að spóla til
baka og skoða viðskipavinina í
Hans Petersen sem komið höföu i
verslunina á föstudaginn.“
Fundust í Laugardalnum
Við skoðun á myndbandsupp-
tökunni komu lögreglumenn auga
á þrjá menn sem voru að litast um
í búðinni og virtust vera af er-
lendu bergi brotnir. Hófst nú áköf
Farfuglaheimlliö í Laugardalnum
Hér bjuggu innbrotsþjófarnir meó gðss sitt.
Egill Sigurösson hjá verslun Hans Petersen viö Laugaveg
Stafræn fagverslun meö dýrustu tækin - vandlega vaiin af ræningjunum.
Bræöurnlr Ormsson
Vaöiö í gegnum gler í aöalanddyri.
leit að þessum mönnum á hótelum
og gistiheimilum höfuðborgarinn-
ar. Leitin bar brátt árangur því
mennirnir þrir sem heimsótt
höfðu verslun Hans Petersen á
fóstudaginn reyndust búa á far-
fuglaheimilinu í Laugardal
Eltir á pósthús
„Svo heppilega vildi til aö þegar
menn mínir birtust í Laugardaln-
um voru hinir grunuðu að bera út
pappakasa í bíl. Þeim var veitt eft-
irför upp á pósthúsið á Stórhöfða
og þurfti þá ekki lengur vitnanna
við,“ sagði Gunnleifur Kjartans-
son. Mennirnir voru handteknir
og í Ijós kom að í kössunum var
allt góssið sem rænt hafði verið úr
verslunum Hans Petersen og
Bræðranna Ormsson; myndavélar,
fartölvur og myndbandstæki; allt
tæki af vönduðustu gerö og vand-
lega valin af innbrotsþjófunum.
Óöu í gegnum gler
í verslun Hans Petersen á
Laugaveginum óðu innbrots-
þjófarnir í gegnum stóran sýning-
arglugga vopnaðir kúbeinum og
hjá Bræðrunum Ormsson stukku
þeir hreinlega í gegnum gler í að-
alinngangi verslunarinnar. Þýfið
sem þeir höfðu á brott með sér er
metið á um 8 milljónir króna og vó
ekki undir 40 kílóum þegar lög-
reglan kom höndum yfir það á
pósthúsinu á Stórhöfða.
Gunnleifur Kjartansson er sann-
færður um að þetta sé ekki í fyrsta
sinn sem rússneska mafian lætur
tU skarar skríða hér á landi:
Ekki í fyrsta sinn
„Ég tel að þeir hafi komið hing-
að fyrst fyrir tveimur árum þegar
tvær fataverslanir í miðborg
Reykjavíkur voru tæmdar án þess
að málið væru nokkru sinni upp-
lýst,“ sagði Gunnleifur og átti þar
við innbrot í tískuverslunina
Spaks manns spjarir í Þingholts-
stræti og herrafataverslunina
Herra Reykjavík á miðjum Lauga-
veginum. Sá fatnaður sem þar
hvarf hefur vafalítið verið notaður
sem skiptimynt í umsvifamiklum
viðskiptum rússnesku mafiunnar í
Austur-Evrópu.
Innbrotsþjófarnir þrir sátu í
gærkvöldi í fangageymslum lög-
reglunnar við Hverfisgötu og var
stefnt að því að færa þá fyrir dóm-
ara hið fyrsta. -EIR
Hollustuvernd ríkisins og Embætti yfirdýralæknis:
Upplýsingakerfið hýst á Akureyri
DV, AKUREYRI:_____________________
Þekking-Upplýsingatækni annars
vegar og Hollustuvernd ríkisins og
Embætti yfirdýralæknis hins vegar
skrifuðu í dag undir samning um
rekstur og hýsingu samræmds upp-
lýsingakerfis en kerfiö veröur hýst
hjá Þekkingu hf. á Akureyri.
Samningur þessi er hluti af
stærri samningi sem sömu aðilar
hafa gert viö upplýsingatæknifyrir-
tækið Hugvit hf.. í honum felst að
Hugvit mun annast gerð samræmds
upplýsingakerfis fyrir Hollustu-
vernd, Embætti yfirdýralæknis og
Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga.
Kerfið, sem er gert af Hugviti hf„
byggist á GoProCase sem er staðlað
kerfi frá GoPro Landsteinar
Development. Keifið keyrir á Lotus
Notes Domino Server. Til tölfræði-
legrar úrvinnslú verða gögn keyrð
yfir i MS SQL gagnasöfn en allt við-
mót verður í gegnum vafra.
í samningi þeim sem undirritað-
ur var nú felst að Þekking hf. mun
sjá um hýsingu upplýsingakerfisins,
gagnasafns og vefsíðna er tengjast
kerfinu. Þá mun Þekking sjá um
uppsetningu kerfisins.
Helstu markmið með samningn-
um er að stuðla að hagkvæmum
rekstri kerfisins, hámarka rekstrar-
öryggi þess og stuðla að samræmd-
um rekstri þess.
Gerð var krafa um það í útboðs-
lýsingu að bjóðendur hefðu a.m.k.
tveggja ára reynslu í rekstri upplýs-
ingakerfa fyrir utanaðkomandi aö-
ila og hefðu a.m.k. fjórum starfs-
mönnum á að skipa sem starfa við
almenna notendaþjónustu. Einnig
var það krafa að bjóðendur ynnu
eftir skjalfestum verkferlum og hús-
næði og aðstaða uppfylltu eðlilegar
kröfur, bæði hvað varðar innra og
ytra öryggi.
Aö sögn Alberts Sigurössonar hjá
Hollustuvernd ríkisins voru helstu
ástæður þess að Þekking hf. varð
fyrir valinu sem hýsingaraðili upp-
lýsingakerfisins þær að fyrirtækið
uppfyllir allar kröfur um öryggis-
mál og er með hagstæða verðlagn-
ingu. Albert sagði starfsfólkið með
trausta fagþekkingu og gott viðmót.
Einnig vó þungt að framþróun í
gagnaflutningum um háhraða
nettengingar hefur tryggt að land-
fræðileg staðsetning skiptir ekki
lengur máli hvað varðar hýsingu á
upplýsingakerfum.
Þekking hf. er eitt öflugasta fyrir-
tæki landsins á sviði hýsingar- og
rekstrarþjónustu. Það er með á
fimmta tug starfsmanna og starfs-
stöðvar á tveimur stöðum á land-
inu, á Akureyri og í Kópavogi. Fyr-
irtækið var stofnað þann 1. nóvem-
ber 1999 af KEA og íslenska hugbún-
aðarsjóðnum.
-gk
Kampakátir
Framsóknarmenn
eru kátir eftir flokks-
þingið og þykir mönn-
um sem vel hafi tek-
ist til með kosningu á
nýrri forustu. t pottinum hafa menn
einna helst haft áhyggjur af slæmri
útreið Ólafs Amar
Haraldssonar í
varaformannskjör-
inu og fullyrt er að
ýmsir hafi beinlínis
óttast að Ólafur
hætti í flokknum og
túlkaði niðurstöð-
una þannig að sér
hafi verið hafnað.
Því munu margir flokksmenn hafa
gert sér far um að ræða við Ólaf eftir
kosninguna og reynt að bera smyrsl á
sárin - enda munu tilteknir flokks-
menn í Reykjavik ekki geta hugsað þá
hugsun til enda ef Ólafur hrektist úr
flokknum og settist á lista hjá vinstri
grænum í næstu kosningum!...
Jón formaður?
Lending framsóknarmanna í sjávar-
útvegsmálum vakti líka athygli í pott-
inum. Þar er farin Evrópunefndar-leið-
in og ákveðið að setja málið i stóra
vinnunefhd. Enn
mun ekki kominn
formaður í þessa
nefnd en stríðandi
fylkingar munu
áQáðar i að hreppa
þá stöðu. Talsverðar
líkur eru þó taldar á
því að Jón Sigurðs-
son, hagfræðingur
sem stýrði starfi Evr-
ópunefndarinnar verði fenginn i þetta
jobb, því hann þótti standa sig vel í
Evrópunefndinni og hann er ekki
eymamerktur ákveðinni fylkingu í
sjávarútvegsmálum heldur...
Dugar stemningin?
Samfylkingarmaðurinn i heita pott-
inum fylgdist eins og fleiri með því
sem fram fór á flokksþingi framsókn-
armanna. Ummæli
hans vöktu tals-
verða athygli, en
hann sagði stemn-
inguna og ein-
drægnina á þinginu
áberandi og í raun
keimlíi5a;þeirri
stemnifigu. baráttu-
gleði óg éíndrægni
sem ríkt hafi á öðrum fundi fyrir
nokkrum mánuðum - en það var á
sto&ifundi Samfylkingarinnar. Sú
stemning hafi þó dugað Samfylking-
unni skammt, spumingin væri hvort
þetta yrði eins hjá framsókn...
Alltaf sigrar Ingibjörg
Úrslit atkvæðagreiðslu um framtíð
Reykjavíkurflugvallar er siður en
svo óumdeild og
sýnist sitt hverjum.
Þrátt fyrir lélega
þátttöku hrósa and-
stæðingar vallarins
sigri og það þótt
kjörsókn hafi verið
langt undir þeirra
væntingum og mun-
ur á fylkingunum,
þegar upp var staðið, sáralítill. Af
þessu öllu varð til þessi vísa:
Vatnsmýrin er vot og körg
þó vinir hennar hrósi
og alltaf sigrar Ingibjörg
þó aðeins fáir kjósi
Guðni flottur
Guðni Ágústsson var yfirburða-sig-
urvegari í varaformannskjöri Fram-
sóknarflokksins um helgina. Hann
malaði meintan kandídat Halldórs Ás-
grímssonar flokksformanns og einnig
rúllaði hann upp
Ólafi Emi Haralds-
syni heim-
skautafara. Greini-
legt er að Guðni var
sterkari á svellinu
en bæði pólfarinn
og fulltrúi þéttbýl-
inga. Sagt er að
þessi úrslit skerpi
linur í Framsóknarflokknum sem
verði enn meiri bændaflokkur en áður.
Með þennan mikla stuðning að baki
geti Guðni gefið Reykjavíkurgemsum
langt nef og átakalitið flutt höfuðstöðv-
ar flokksins austur á Ölfúsárbakka...
m