Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 13 IDV Utlönd Pólitískt hneyksli í kosningabaráttunni: Dömubuxur og mafíu- ásakanir skekja Ítalíu Pólitískt hneyksli skekur nú ítal- íu tveimur mánuðum fyrir kosning- ar. Málið snýst um háðsádeilusjón- varpsþátt sem bendlaði forsætisráð- herraefni hægri manna, Silvio Berlusconi, við mafiuna. Hægri menn fullyrða að Berlusconi hafi verið tekinn opin- berlega af lífi í þættinum Satyricon sem ríkissjónvarpið sendir út. Stjórnandi þáttarins, Daniele Lutt- azzi, er alræmdur eftir að hafa þef- að af nærbuxum fallegrar konu í beinni útsendingu. Þáttastjórnand- inn er einnig frægur fyrir viðbrögð sín við gagnrýni þeirra sem sögðu þáttinn sorp og það eina sem vant- aði væri að menn ætu skít. „Þetta var góð hugmynd," sagði Luttazzi viku seinna og hámaði í sig saur, reyndar úr súkkulaði, að því er kemur fram í norska blaðinu Aften- posten. Blaðið greinir frá því að Luttazzi hafi á dögunum boðið i þátt sinn Marco Travaglio sem skrifað hefur bók um hvernig Berlusconi rakaði saman auðæfum sínum og möguleg tengsl hans við mafluna. Auk þess sýndi Luttazzi brot úr óbirtu viðtali við þjóðarhetjuna Paolo Borsellino sem var á eftir maflunni. í þessu rit- skoðaða viðtali nefnir BorseOino, sem mafían sprengdi í loft upp 1992, möguleg tengsl mafíunnar og Berlusconis. Vinstri menn og miðjumenn verja sjálfstæði ríkissjónvarpsins en hægri menn krefjast þess að stjórn sjónvarpsins verði látin víkja. Þátturinn Satyricon hefur verið tekinn af dagskrá um óákveð- inn tíma. Fulltrúar hægri manna í stjórn sjónvarpsins hafa dregið sig í hlé og hægri sinnaðir stjórnmála- menn hóta því að koma ekki fram í þáttum sjónvarpsins fyrr en hlut- leysi sé tryggt. Silvio Berlusconi Segir allar ásakanir vera pólitískar ofsóknir. Stjórnmálaskýrendur eru ekki í vafa um að deilan snúist í raun um hver eigi að hafa yfirráð yfir þrem- ur rásum ríkissjónvarpsins fyrir og eftir kosningarnar. Það er hefð á Ítalíu að sigurvegarinn geri innrás í sjónvarpið. Sjálfur hefur Berlusconi yfírráð yfir þremur stærstu einkasjón- varpsstöðvunum. Sigri hann í kosn- ingunum verða 90 prósent sjón- varpssendinga undir yfirráðum hægri manna. Það hefur aldrei áður verið fjallað um það i sjónvarpi hvernig Berlusconi byggði upp veldi sitt. Það hefur ekki verið rætt í sjón- varpinu hvers vegna hann hafi haft mafíuforingja sem stallara í 18 mán- uði. Þagað hefur verið um bækurn- ar sem fjalla um þessi mál. Berlusconi svarar öllum ásökunum með því að segja að þær séu pólítískar ofsóknir. •Vitlaasir Neil Simon laugard. 24. mars kl. 20 Síðasta tækifæri tii að sjá þennan skemmtilega gamanleik! Á Akureyri og á ferð Ariel Sharon Forsætisráöherra Israels feryfir skjöl á leiö sinni til Bandaríkjanna þar sem hann hittir ráöamenn. Sharon vill að þrýst verði á Palestínumenn Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, hvatti þjóðir heims í gær til að auka þrýsting sinn á Palestínu- menn um að láta af ofbeldisaðgerð- um og sagði enn einu sinni að ekki væri mögulegt að semja um frið fyrr en blóðbaðinu linnti. Sharon er í Washington þar sem hann hittir George W. Bush Banda- ríkjaforseta aö máli síöar í dag. Það verður fyrstu fundur þeirra síðan þeir tóku við embætti æðstu manna landa sinna. Búist er við að Bush og bandarísk stjómvöld þrýsti á Shar- on um að fara hægar í sakirnar í aðgerðum sínum gegn Palestínu- mönnum. Sharon sagði í gær að ísraelar myndu gera það sem þeir gætu til að komast að friðarsamkomulagi. Drottningarmað- ur ver reykingar Hinrik prins, drottningarmaður í Danmörku, kom til .vamar reyking- um eiginkonu sinnar, Margrétar Þórhildar, á fundi með íinnskum fréttamönnum í Kaupmannahöfn í gær. Tilefnið var frétt danska blaðs- ins BT í gær þar sem sagt er frá gagnrýni belgísks prófessors á reyk- ingar Danadrottningar. „Leyfum fólki að deyja af reyk- ingum ef það vill deyja. Það er þeirra eigið mál,“ sagði prinsinn og benti á að Ingiríður drottningar- móðir hefði reykt meira en Margrét Þórhildur og hefði þó orðið níræð. Margrét drottning sagði finnsku fréttamönnunum að það væri ekkert leyndarmál að hún reykti. „Fólk má tala um það sem það vill,“ sagði Danadrottning. Úr öskuhaugunum í hátískuna Jeane de Mattos, sem er 27 ára gömul móðir, sýnir nýjustu nærfatatískuna á auglýsingu fýrirtækisins Du Loren lingerie. í baksýn er fátækrahverfið Rocinha sem er stærsta fátækrahverfiö i Suður-Ameríku. eftir: Ólaf Jóhann Ólafsson Leikstjórn: Siguróur Sigurjónsson. Sýningar í lönó Miðasalan opin alla virka daga, nema mánudaga, frá kl. 13:00-17:00 og fram að sý- ningu, sýningardaga. Sími 462 1400. www.leikfelag.is Smáauglýsingar visir.is Sveitarstjórnarkosningar í Frakklandi: Vinstriflokkarnir fengu á baukinn Sósíalistaflokkurinn í Frakklandi, sem fer með völdin í landinu, fékk ær- lega á baukinn í síðari um- ferð bæjar- og sveitarstjórn- arkosninganna á sunnudag. Þrátt fyrir glæsta sigra vinstrimanna í höfuðborg- inni París og næststærstu borginni Lyon töpuðu þeir um þrjátíu borgum og bæj- um. Fréttaskýrendur frönsku blaðanna sögðu í gær að samsteypustjórn Lionels Jospins forsætisráðherra myndi tapa ' bingkosningunum á næsta ári, úrslitin frá því á sunnudag yrðu endurtekin. Þeir spá þvi að Jacques Chirac forseti myndi nú beijast fyrir því með oddi og egg að þingkosningarnar yrðu haldnar áður en hann býð- ur sig fram til endurkjörs í forsetaembættið. Fastlega er reiknað með því að hann muni þar keppa við Lionel Jospin. Jospin hefur reynt að koma því þannig fyrir í þinginu að forsetakosning- arnar verði haldnar á und- an, þar sem það myndi styrkja stöðu hans og ríkis- stjórnarinnar. Kommúnistar, sem eru í stjórn Jospins, fóru líka illa út úr kosning- unum en græningjum vegnaði aftur á móti betur. Lionel Jospin Því er jafnvel spáö aö forsætis- ráöherra Frakk- tands stokki upp. Útsöluhornið, 30-70% afsláttur Bretti, húdd, stuðarar, ökuljós, afturljós, stefnuljós, hliðarlistar, hjólkoppar, loftbarkar, mottur, vatnsdælur, fjaðragormar, bremsuklossar og fleira. varahlutir Stórhöfða 15 • S. 567 6744 TOSKUR -margar stærðir RAFVER SKEIFUNNI 3E-F • SlMI 581 2333 • FAX 568 0215 rafver@simnet.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.