Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001
Fréttir
DV
Óveðursský hrannast upp á himni efnahagsmála:
Spákaupmennska
og þorskhrun
- sjómannaverkfalli og viðskiptahalla kennt um
Benedikt
Valsson.
Krónan var í
frjálsu falli í gær og
hrapaði gengi henn-
ar um rúm 6 pró-
sent. Gengi hennar
hefur nú fallið um
rúman fjórðung frá
ársbyrjun 2000.
Bandaríkjadollar
fór yfir 100 krónur í
gær og hefur þá
hækkað gagnvart
krónu um 38,1 prósent síöan um
áramótin 1999/2000 og 32 prósent frá
2 maí 2000 til dagsins í gær. Að mati
sérfræðinga er vantrú á íslenskt
efnahagslíf hluti skýringarinnar.
Þar vegur slakt ástand fiskistofna
þungt. Því er jafnvel spáð að Haf-
rannsóknastofnun leggi til að þorsk-
kvótinn fari niður fyrir 200 þúsund
tonn á næsta fiskveiðiári. Togar-
arallið gaf vísbendingar um að
ástand þorskstofnsins sá mun lak-
ara en áður var talið. Flestir aðrir
fiskistofnar eru í lægð og áhrif
þessa eru að arðsvon í sjávarútvegi
er lítil og óspennandi að fjárfesta á
Islandi. Þá telja sérfræðingar að
langvarandi viðskiptahalli hafi
veikt krónuna. Engin stórverkefni
eru fram undan sem leitt gætu til
þess að gjaldeyrir kæmi inn í land-
ið. Loks er sjó-
mannaverkfalli
kennt um. Allt
þetta leiðir til þess
að krónan heldur
áfram að veikjast.
„Þetta snýst um
gríðarlegan við-
skiptahalla. Þá
hriplekur út um
allar glufur Haf-
rannsóknastofn-
unar og áríðandi
að sjávarútvegs-
ráðherra lýsi stöð-
unni eins og hún
er,“ segir Össur
Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingar. Þingflokk-
ur hans lýsti í gær undrun sinni á
því aö forsætisráðherra íslands
skuli hafa komiö sér undan því að
svara á Alþingi mikilvægum spurn-
ingum um gengishrun íslensku
krónunnar, áður en þingið var sent
í vikufrí til nefndastarfa.
Benedikt Valsson, hagfræðingur
og framkvæmdastjóri Farmanna- og
fiskimannasambands íslands segir
hluta skýringarinnar ver þá að skil-
greind verðbólgumarkmið Seðla-
bankans sé nokkuð víð á yfirstand-
andi ári.
Hækkun gagnvart krónunni
Lfll
„Það liggur í
augum uppi að
með þessarri kerf-
isbreytingu hafi
verið reiknað með
gengissigi. Hvort
reiknað hafi verið
með svo miklu
gengissigi sem
raun ber vitni vil
ég ekki dæma um.
Þetta mikla geng-
isfall sem átt hef-
ur sér stað hlýtur
að vekja á ný um-
ræðu um það
hversu skynsam-
legt er að halda
úti íslenskum gjaldmiðli í svo litlu
hagkerfi sem ísland er,“ segir Bene-
dikt og nefnir fleiri skýringar á fall-
inu.
„Sá grunur læðist að manni að
þetta síðasta gengissig sé afleiðing
af spákaupmennsku með gjaldeyri.
Þessu til stuðnings vitna ég í upp-
lýsingar aðalhagfræðings Seðla-
bankans sem upplýsti að keypur var
gjaldeyrir fyrir rúmlegha 36 millj-
arða íslenskra króna. Á sama tíma
fir fram uppboð á endurhverfum
verðbréfasamningum, skammtima-
lánum Seðlabanka íslands innan
bankakerfisins, sem vænta má að
hafi lagað lausafjárstöðu bankakerf-
isins,“ segir Benedikt.
Hann telur rangt að kenna sjó-
mannaverkfallinu um það hvemig
komið er.
„Hvað snertir þá fullyrðingu að
verkfall sjómanna hafi áhrif á krón-
una skal ég ekki fullyrða. Aftur á
móti hefur verkfallið leitt til þess að
dregið hefur úr framboði gjaldeyris.
Ég set við þetta fyrirvara því hér
hafa verið talsverðar birgðir sjávar-
afurða. Auk þess má reikna með að
kaupendur erlendis njót einhvers
greiðslufrests. Tekjuflæði til grein-
arinnar frá útlöndum tekur því ein-
hvem tíma að tæmast," segir Bene-
dikt. -rt
Ort gengisfall krónunnar
Dollar fór yfir hundraö krónur í gær
og hefur hækkaö yfir 18 prósent frá
áramótum.
Ólga í járnblendi:
Aðaltrúnaðar-
maður lætur
af störfum
Þórður Björgvinsson, aðaltrúnað-
armaður 130 starfsmanna hjá Is-
lenska járnblendifélaginu á Grund-
artanga, hefur látið af störfum og
gerst óbreyttur starfsmaður fyrir-
tækisins. Um ástæður uppsagnar
sinnar vill hann ekki tjá sig.
Mikil ólga er og hefur verið með-
al starfsmanna á Grundartanga
vegna skipulagsbreytinga sem
stjóm fyrirtækisins hefur unnið að.
Verkstjórastöður hafa verið lagðar
af svo og nokkrar flokksstjórastöð-
ur. Miða skipulagsbreytingarnar að
því að gera fyrirtækið skilvirkara
og samkeppnishæfara í hörðum
heimi járnblendisins við miður góð-
ar undirtektir velflestra starfs-
manna. Telja þeir vinnustaö sinn
verri eftir en áður. -EIR
Bruni í Bryggjuhverfi dvmynd ingó
Eldur kom upp í íbúö í fjölbýlishúsi í Bryggjuhverfmu á áttunda tímanum í gærkvöld. Slökkviliö var kvatt á staöinn og
aö sögn varöstjóra gekk greiðlega aö ráöa niöurlögum eldsins. íbúöin var tilbúin en íbúarnir ekki fluttir inn. Töluveröar
skemmdir uröu af völdum sóts og reyks. Aörir íbúar hússins munu ekki hafa veriö í hættu. Eldsupptök eru ókunn.
Yfirlýsing Davíðs um að Framsókn geti leitt næstu ríkisstjórn:
Davíð að plástra Halldór
- kemur Steingrími Hermannssyni á óvart - „hugsanlega afmælisvíma“
Leiðtogar Sam-
fylkingarinnar og
Vinstri grærxna
telja að þreytu-
merki í ríkisstjórn-
arsamstarfinu
kunni að skýra þá
| yfirlýsingu forsæt-
1 isráðherra Davíðs
Oddssonar að vel
komi til greina að
Framsóknarflokkurinn leiði næstu
stjórn. Sjálfstæðisflokkurinn hafi
barið á Framsókn að undanfórnu og
vaxandi kurr sé greinilega að gera
vart við sig.
„Fyrir mér er þetta klókindalegt
útspil af hálfu Davíðs. Þetta er
svona beita fyrir Framsókn til að
halda þeim volgum. Það getur verið
sniðugt þegar þreyta er farin að
Steíngrímur J.
Sigfússon.
gera vart við sig í stjómar-
samstarfinu að segja fram-
sóknarmönnunum að ef þeir
bíði þægir og góðir áfram þá
kunni að koma aö þeim að
sitja við borðsendann," segir
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, og
bendir á að Sjálfstæðisflokk-
urinn hafi unnið sigur í
hverju stórmálinu á fætur
öðru.
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, tekur enn
dýpra í árinni en kenning hans er
sú sama og Steingríms, þ.e.a.s. að
Davíð sé að berja í brestina með yf-
irlýsingunni. „Framsókn liður illa í
þessari stjórn enda hefur Sjálfstæð-
isflokkurinn verið afskaplega vond-
ur við framsóknarmenn að undan-
Ossur Skarp-
héöinsson.
förnu. Þeir telja sig grátt
leikna í Landssímamálinu og
svo má nefna hvernig Davíð
hefur tekið einn mikilvæg-
asta stefnumótunarþátt utan-
ríkismálanna til sín. Hann er
búinn að taka Evrópumálin
úr höndum Halldórs og það
hlýtur að vera þungbært fyr-
ir formann Framsóknar-
flokksins. Það er verið að
plástra undir Halldór," segir Össur.
„Ég verð að viðurkenna að þessi
ummæli komu mér á óvart en ég gef
ekki allt of mikið fyrir þau. Senni-
lega er þetta einhver afmælisvíma,"
segir Steingrímur Hermannsson,
fyrrum formaður Framsóknar-
flokksins og forsætisráðherra.
Það eru sögulegar forsendur sem
valda Steingrimi furðu í þessu sam-
hengi. „Aðalgagn-
rýni Davíðs á Þor-
stein Pálsson var sú
að hann hefði ekki
átt að una því að ég
leiddi ríkisstjórn-
ina 1983-1987. Sjálf-
stæðisflokkurinn
hefði sem sagt átt
að leiða þá ríkis-
stjórn, þ.e.a.s.
Steingrímur
Hermannsson.
stærri flokkurinn," segir Steingrím-
ur.
Enn aðrir viðmælendur DV sem
vel þekkja til stjórnmála benda í
þessu samhengi á að stjórnarflokk-
arnir hafi boðað breytingar og nú sé
kjörtímabilið hálfnað. Hugsanlegt
sé að Davíð sé á forum og orð hans
megi skýra út frá því. Aðrir telja
slíkt óliklegt. -BÞ
12 klukkustunda lota
Frumvarp Sturlu
Böðvarssonar sam-
gönguráðherra um
sölu á hlutafé í Land-
síma íslands hf. var
samþykkt til annarr-
ar umræðu á Alþingi
eftir 12 klukkustunda
umræðulotu. Var
málinu visað til samgöngunefndar til
umsagnar, en hlé er gert á þingstörfum
til 9. maí.
Mótmæla aldurstakmarki
Sýslumanni Skagafjarðarsýslu voru
afhentar tæplega 1100 undirskriftir í
gær þar sem um fjórðungur Skagfirð-
inga skrifar undir mótmæli við hækk-
un aldurstakmarks upp í 18 ár á opin-
berum dansleikjum í Skagafirði.
Fréttablaðið greindi frá.
Uppkaup langt komin
Ríkissjóður hefur þegar keypt upp 35
þúsund af þeim 45 þúsund ærgildum
sem ætlunin er að gera. Þar með er
gert ráð fyrir að frjálst framsal á
greiðslumarki hefjist þegar á næsta ári.
Alls hafa 296 bændur selt ríkinu
greiðslumark. Fréttablaðið greindi frá.
Veltir hálfum fjárlögum
Kaup Baugs hf. á breska fyrirtækinu
Arcadia og bandaríska fyrirtækinu
Bill’s Dollar Stores munu meira en fjór-
falda veltu Baugs strax á þessu ári og
skila félaginu milljarða hagnaði.
Fréttablaðið greindi frá.
Grænmeti á borð ríkisstjórnar
Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra
segir trúlegt að tillög-
ur hans um breyting-
ar á verðmyndun
grænmetis verði
ræddar á ríkisstjóm-
- ■ arfundi í dag en til
.....' snarpra orðaskipta
kom um málið á þingi í gær á milli ráð-
herrans og fulltrúa Samfylkingarinnar.
Sendiráð í Ottawa
Sendiráð Islands í borginni Ottawa í
Kanada hóf starfsemi sína 1. maí. ís-
lenskir starfsmenn sendiráðsins em
Hjáimar W. Hannesson sendiherra og
Helga Bertelsen ritari.
22 hæða hótelturn
Hugmyndir em uppi um að reisa 22
hæða turnbyggingu viö Grand Hótel
Reykjavík í Sigtúni. Skoðaðar hafa ver-
ið leiðir til að stækka hótelið um 100
íbúðir og er skipulags- og byggingar-
nefnd Reykjavíkur jákvæð fyrir auknu
framboði gistirýmis.
Stórfyrirtæki taka dýfu
Gengi hlutabréfa nokkurra stórfyrir-
tækja á Verðbréfaþingi íslands tók
snarpa dýfu í gær. Flugleiðir lækkuðu
um 9,8% en Eimskip um 8,94%. Þá
lækkaði gengi Landsbankans um 9,32%
og gengi Nýheija um 10,53%. Frétta-
blaðið greindi frá.
Landsvirkjun tapar
Gengislækkun
krónunnar hefur
mikil áhrif á skuldug
fyrirtæki á borð við
Landsvirkjun sem
skuldar um 74 millj-
aröa króna. Friðrik
Sophusson forstjóri
segir augljóst að
skuldir fyrirtækisins aukist en um 66
milljarðar skulda fyrirtækisins era í
erlendri mynt. Mbl. greindi frá.
Hjúkrunarfræðingar í verkfall?
Félag hjúkmnarfræðinga undirbýr
nú atkvæðagreiðslu um boðxm 2 daga
verkfalls meðal hjúkrunarfræðinga
sem starfa hjá ríkinu. Eindreginn verk-
fallsvilji kom fram í víðtækri könnun
meðal félagsmanna í síðustu viku.
-HKr.