Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001
Fréttir I>V
Færsla Hringbrautar boðin út í haust:
Heiti potturinn
Framkvæmd upp á
800 milljónir króna
- líkur á að verkið hefjist undir lok ársins
Vonast er til að hægt verði að
bjóða út í haust framkvæmd við
að færa Hringbraut sunnan
Tjarnarinnar í Reykjavík. Þar er
um að ræða kaflann frá Rauðarár-
stíg að suðurenda Tjarnarinnar
og er áætlað að kostnaður fram-
kvæmdanna geti numið um 800
milljónum króna.
Jónas Snæbjömsson hjá Vega-
gerðinni telur ekki líklegt að
framkvæmdir hefjist fyrr en und-
ir lok ársins en framkvæmdin á
eftir að fara í gegnum umhverfis-
mat. Skipulagsstofnun hefur nú
tif umfjöllunar tillögu Reykjavik-
urborgar og Vegagerðarinnar að
matsáætlun vegna mats á um-
hverfisáhrifum færslu brautar-
innar. Tillögurnar gera ráö fyrir
að ný fjögurra til sex akreina
braut verði lögð í Vatnsmýrinni
sunnan Umferðarmiðstöðvar.
Hún tengist núverandi Hring-
braut að vestan á milli Norræna
hússins og Tjarnarinnar og að
austan tengist hún Miklubraut
undir brú á Bústaðavegi, við
gatnamót Bústaðavegar, Hring-
brautar, Snorrabrautar og Miklu-
brautar.
Samtökin Betri byggð hafa bent
á nauðsyn þess að leggja veginn á
þessum kafla í stokk til að slíta
ekki í sundur möguleika á teng-
ingu miðbæjarsvæðis og byggðar
í Vatnsmýri. Forsvarsmenn Betri
byggðar hafa vísað til þess að
mikiö óvirkt svæði verði beggja
vegna þessa nýja vegar sem ekki
verði byggt á sökum hávaðameng-
unar. í heild fari nálægt 12 hekt-
arar undir veginn og svæðið í
kring. Þarna sé líka um fjárhags-
sjónarmið að ræða því verðmæti
hvers hektara byggingarlóðar á
svæðinu geti numið um 400 millj-
ónum króna eða alls um 4-5 millj-
örðum króna sem lagt verði und-
ir veg.
Jónas Snæbjörnsson segir að í
umhverfismatinu verði gerð grein
fyrir þeim möguleika að leggja
veginn 1 stokk. Þá yrði vegurinn á
kafla kominn undir sjávarmál en
kostnaður við að leggja hann
þannig í stokk er talinn mjög dýr
kostur. Nefnir Jónas að líklegt sé
að kostnaðurinn myndi aukast
um allt að milljarð ef sú leið yrði
valin. Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri hefur tekið undir
þau sjónarmið og hefur því ekki
treyst sér til að mæla með lagn-
ingu vegarins í stokk.
-HKr.
1. maí í mildu veðri:
Stefnt að einu
vestfirsku verka-
lýðsfélagi
DV, SUDUREYRI:
Baráttudagur verkalýðsins, 1. maí,
var haldinn hátíðlegur á Suðureyri
samkvæmt gróinni hefð. Gengið var í
kröfugöngu frá Brekkukoti til sund-
laugarinnar þar sem fór fram sund-
keppni yngri borgara. Að svo búnu
var haldið í Verkalýðshúsið þar sem
fólk gæddi sér á veglegum veitingum
í boði verkalýðsfélagsins Súganda.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, formað-
ur félagsins, flutti 1. maí ávarp. I máli
hennar kom m.a. fram að ekki verði
unað við óbreytt fyrirkomulag á fram-
sali veiðiréttinda þegar smábátar eru
annars vegar. Einnig gat Lilja Rafney
þess að viðræður stæðu yfir milli
verkalýðsfélaganna i Isafjarðarsýslu
utan Bolungarvíkur auk verkalýðs-
félagsins í Hólmavík um sameiningu
þessara félaga. Sagði hún að breyttar
aðstæður kölluðu á breytt fyrirkomu-
lag í þessum efnum sem öðrum.
Marías Þórðarson var heiðraður
fyrir margvísleg störf á sjó og landi á
löngum og giftusælum starfsferli.
Milt var í veðri og skein sól í heiði
alltaf öðru hverju. -VH
DV-MYND VH
Baráttufölk
Sólin hellti sér yfir göngufólkiö, ólíkt því sem var í höfuðborginni.
Þjórsárveranefnd að skila af sér:
Vil sameiginlega niðurstöðu
- um framtíð svæðisins, segir einn nefndarmanna
„Ég er tilbúinn að gera hvað ég
get án þess aö slá af mínum grund-
vallarviðhorfum um náttúruvernd,
svo nefndin geti komist að sameig-
inlegri niöurstöðu um framtíð
Þjórsárvera," segir Sveinn Ingv-
arsson, oddviti á Skeiðum sem
jafnframt á sæti í Þjórsárvera-
nefnd. Nefndin hefur að undan-
fomu haldið nokkra fundi þar sem
menn vinna að því að móta afstöðu
til þess hvað gera skuli í Þjórsár-
verum í næstu framtíð. Nefndin
hélt fund í síðustu viku þar sem
menn ætluöu að komast að endan-
legri niðurstöðu en í ljósi þess að
nýiar UDDlvsingar hafa verið að
berast allt fram á þennan dag var
því frestað fram til nk. fimmtu-
dags.
I Þjórsárveranefnd eiga sæti full-
trúar frá Landsvirkjun, Náttúru-
verndarráði, Gnúpverjahreppi,
Ása- og Djúpárhreppum og Afrétta-
málafélagi Flóa og Skeiða. Er það
einmitt fyrir síðastnefnda aðilann
sem Sveinn situr í nefndinni. „Mín
afstaða í þessum málum hefur ver-
ið að mótast allt fram á þennan
dag,“ segir Sveinn. Hann segir að
ýmsar hugmyndir um lón í Þjórs-
árverum vegna aukinnar vatnsöfl-
unar fyrir virkjanirnar fimm á
Þiórsár- og Tungnaársvæðinu hafl
verið kynntar fyrir nefndarmönn-
um á síðustu árum. Sú stórtækasta
hafi verið um lón í 581 metra hæð
sem ná myndu yfir 70 ferkílómetra
svæði en aðrar og nýrri hugmynd-
ir eru til dæmis um lón i 575 metra
hæð sem væri 28 ferkílómetrar að
ummáli.
„Auðvitað skipta öll svona virkj-
unarmál pólitíkina í landinu
miklu máli en við sem í Þjórsár-
veranefnd eigum sæti höfum eng-
um þrýstingi verið beittir af hálfu
stjómmálamanna um að halda
okkur á ákveðinni linu,“ segir
Sveinn Ingvarsson.
Þiórsárver eru unn undir sunn-
anverðum Hofsjökli þar sem
Þjórsá á upptök sín. Verin sem eru
afar fjölbreytt í öllu náttúrufari
eru talin spanna yfir 150 ferkíló-
metra svæði - og þar eru einhver
mikilvægustu varpsvæði heiðar-
gæsarinnar í heiminum. Er taliö
að allt að 10.000 fuglar komi þang-
að til varps á vorin. Af þessum sök-
um teljast Þjórsárver afar sérstætt
náttúruvætti og má í því sambandi
minna á samþykkt heimamanna í
Gnúpverjahreppi um friðun þeirra
sem gerð var árið 1972 þegar fyrir-
ætlanir um að breyta þeim í lón
vegna virkjanaframkvæmda voru
á teikniborðinu. -sbs
Ekki slagviðrisrigning...
Ekki er laust við að margir
landsmenn sem heima sátu 1. maí
hafi vorkennt verkalýðsforkólfum
við ræðuhöld að lokinni kröfu-
göngu í Reykja-,
vík í slagviðris-
rigningu og jafn-
vel slyddu. Voru I
Ögmundur Jón-1
asson, BSRB-for-
maður, og Guð-
mundur Gunn-
arsson, formaður |
Rafiðnaðarsam-
bandsins, svo illa haldnir af kulda
og vosbúð að þeir máttu vart mæla
fyrir munnherkjum. Gamall og
gegn kommúnisti í Seljahverfinu
sem aldrei hefur látið sig vanta í 1.
maí göngu treysti sér ekki til að
mæta að þessu sinni. Aðspurður
sagði hann það þó ekki vera hefð-
bundna Reykjavíkurigningu sem
hefði aftrað sér, hann hefði bara
ekki treyst sér til að arka í gegnum
kúlnaregn fíkniefnasala á leiðinni í
bæinn...
Sama gamla krafan
Fyrsta mai kröfugangan á Isafirði
var fjölmennari í þetta skiptið en
oftast áður. Velta pottverjar fyrir
sér hvort nærvera Össurar Skarp-
héðinssonar, sem
var ræðumaður
dagsins, hafi trekt
> svona mjög í þess-
um fyrrum
eldrauða bæ
kratanna. Athygli
vakti að mitt í
göngunni mátti sjá
haldið á lofti kröfu-
spjöldum um 100 þúsund króna lág-
markslaun. Minnast menn þess er
Pétur Sigurðsson, formaður verka-
lýðsfélagsins Baldurs og forseti
ASV, beitti sér fyrir þvi að slík
krafa var sett á oddinn fyrir
alllöngu síðan. Þótti ýmsum sem
krafan hafi verið illa vísitölutryggð
á sínum tíma fyrst hún stæði enn
óbreytt. Pétri mun hins vegar ekki
hafa þótt taka því að breyta kröfu-
spjöldum þar sem eftir áralanga
baráttu væri enn langt í land að
þetta markmið næðist...
Þær norsku betri...?
Feðgarnir Gunnar Jónsson og
Jón Egill Sveinsson, bændur á
Egilsstaðabýlinu á Egilsstöðum,
þykja í meira lagi framúrstefnuleg-
ir í sínum
kúabúskap. í
nýju flósi á
bænum hafa
þeir komið fyr-
ir algjörlega
sjálfvirkum
mjaltabás þar
sem kýrnar mjólka sig að heita má
sjálfar að eigin geðþótta. í heita
pottinum þykja þetta undur og
stórmerki þvi lengi hafi formæður
pottverja mátt tutla mjólkina úr
spenum kúnna með handafli. Þótti
mönnum þetta sýna geðprýði og
hyggjuvit íslensku kúnna sem
norsku kýrnar hans Guðna
Ágústssonar gætu aldrei leikið eft-
ir. Gall þá við í stuðningsmanni
Guðna að víst væru þær norsku
betri; úr þeim kæmi sko almenni-
leg framleiðsla. Mjólk úr einum
spena, rjómi úr öðrum, undan-
renna úr þeim þriðja og síðan skyr
eins og maður gæti í sig látið...
Hjartanlega sammála
Framsóknarmenn og samfylking-
armenn þykja ekki oft hafa verið
sammála á Alþingi í vetur. í gær
bar þó svo við í umræðum um sölu
Landssímans
að heita mátti
að Össur
Skarphéðins-
son Samfylk-
ingu og Hjálm-
ar Árnason Framsóknarflokki
grétu við hvors annars öxl. Eftir
harðvítugar árásir hvor í annars
garð urðu þeir sammála um eitt en
hvor á sinn hátt. Mæltu þeir báðir
með því að hinn færi heim að
leggja sig eftir frammistöðu dags-
ins í ræðupúltinu sem þeim fannst
báðum til skammar hjá hinum...