Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Side 8
8
Útlönd
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001
DV
Silvio Berlusconi
Fjölmiölakóngurinn viröist ætla aö
standa af sér pólitískt stórviöri
síöustu daga.
Hnökrar á beiðni
gegn Berlusconi
ítalska utanríkisráðuneytiö hefur
lýst því yfir aö beiöni spænsks dóm-
ara um afléttingu friðhelgi fjöl-
miðlakóngsins Silvio Berlusconis
virðist vera gölluð.
Samkvæmt tilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu hefur það ekki
lögsögu í málinu en engu að síður
er beiðnin til athugunar í ráðuneyt-
inu. Beiðnin kemur einungis tveim-
ur vikum fyrir almennar kosningar
í landinu þar sem Berlusconi er í
framboði.
Miö-hægrimenn á Ítalíu saka
vinstrivænginn um aö hafa
Berlusconi á heilanum og líkja
ásökunum á hendur honum við of-
sóknir. Þeir segja vinstrimenn svo
upptekna af mögulegum hagsmuna-
árekstrum fjölmiðlakóngsins að
þeir haldi ekki lengur fram stefnu-
miðum sínum.
Skoðanakannanir sýna að hægri-
blokkin, með Berlusconi í farar-
broddi, hafi um fjögurra prósenta
forskot á vinstrimenn.
Vill vopnahlé
að tilstuðlan
Bandaríkjanna
Shimon Peres, utanríkisráðherra
ísraels, lýsti því yfir eftir fund sinn í
gær með Colin Powell, bandaríska
kollega sínum, aö Bandaríkjamenn
gætu einir komið á vopnahléi í ísrael.
Hann segir einu leiðina til að
koma á friðarviðræðum vera að
skjóta loku fyrir sjö mánaða ofbeld-
isöldu milli gyðinga og Palestínu-
manna. Skömmu fyrir yfirlýsingu
Peresar réðust ísraelskir skriðdrek-
ar á flóttamannabúðir Pafestínu-
manna á Gaza-svæðinu með þeim
afleiðingum að heimifi skemmdust,
háffur annan tugur manna særðist
og einn byssumaður fét lífið.
Eftir fundinn meö Peres sagði
Colin Powelf að Palestínumenn og
ísraelar færist ekki nær viðræðum
fyrr en ofbefdið minnkar og við-
skipti miffi þeirra komast í gang á
ný. Frá því aö átök hófust á ný fyr-
ir sjö mánuðum hafa um 400 Palest-
ínumenn, 76 ísraelar og 13 ísraelsk-
ir arabar látið lífið.
KETffcTHf 03.05.2001 M. 9.15
KAUP SALA
IfeÍDollar 102,090 102,620
SciPund 146,350 147,100
l*Bltan. dollar 66.540 66,950
SSÍDönak kr. 12,2050 12,2720
rhdNorakkr 11,2670 11,3290
ESssnsk kr. 9,9850 10,0400
'HHn. mark 15,3209 15,4129
Fra. franki 13,8871 13,9706
[ Bolg. frankl 2,2582 2,2717
! Svlss. frankl 59,0700 59,4000
E3hoII. gyllini 41,3365 41,5849
~ Þýskt mark 46,5755 46,8554
||it Hra 0,04705 0,04733
f3E~ÍAust. sch. 6,6200 6,6598
Port. escudo 0,4544 0,4571
CTíSpá. poseti 0,5475 0,5508
| • jjap. yen 0,83810 0,84310
B jírskt pund 115,665 116,360
SDR 129,6200 130,3900
Hecu 91,0937 91,6411
Arroyo ræddi við
Estrada í morgun
Gforia Macapagal Arroyo, forseti
Filippseyja, hitti í morgun fyrir-
rennara sinn, Joseph Estrada, í
fangefsi fyrir sunnan Manila. Fór
fundur þeirra fram aðeins þremur
dögum eftir að öryggissveitum tókst
að koma í veg fyrir að stuðnings-
menn hans réðust á forsetahöllina.
Arroyo lýsti yfir uppreisnar-
ástandi á þriöjudaginn eftir að þús-
undir stuðningsmanna Estrada
reyndu að komast inn í höllina. Fjór-
ir létust í átökum mótmælenda og
öryggissveitanna. Stuðningsmenn
Estrada höfðu safnast saman við
helgidóm eftir að Estrada var hand-
tekinn í siðustu viku vegna spilling-
ar. Það var við þann sama helgidóm
sem uppreisnin gegn Estrada hófst
fyrir nokkrum mánuðum.
Arroyo ílaug í þyrlu til fangelsis-
ins og ræddi við Estrada í um 30
mínútur. Talsmaður Arroyo sagði
hana hafa viljað kanna hvernig
Estrada liði og hvort hann nyti ekki
nægra þæginda.
Forseti Filippseyja
Arroyo visar allri gagnrýni á bug og
kveöst hafa gripið til mildustu aö-
geröa sem völ var á.
Arroyo hefur fyrirskipaö hand-
töku tugar stjómarandstæðinga frá
því að mótmælin gegn fangelsun
Estrada hófust. Þegar á þriðjudag-
inn var öldungadeildarþingmaður-
inn og fyrrverandi vamarmálaráð-
herra landsins, Juan Ponce Enrile,
handtekinn. Hann gegndi mikil-
vægu hlutverki þegar einræðisherr-
anum Ferdinand Marcos var steypt
af stóli 1986.
Fyrrverandi ríkislögreglustjóri
Filippseyja var einnig handtekinn
ásamt tveimur öðrum öldungadeild-
arþingmönnum. Her og lögregla eru
sögð leita fleiri áhrifamikilla stjóm-
málamanna sem eru andstæðingar
Arroyo. í gær var fyrrverandi sendi-
herra Filippseyja í Bandaríkjunum,
Ernesto Maceda, handtekinn.
Tveggja sona Estrada, Ejercito og
Jude, er leitaö vegna gruns um þátt-
töku í uppreisninni gegn Arroyo.
„Óvini ríkisins grunaði ekki að lítil
stelpa gæti verið svona hörð af sér,“
sagði hún í gær.
Dátar gæta dínamíts
Kólumbískir hermenn, sem berjast gegn eiturlyfjasmyglurum, standa vörö um eitt tonn af dínamíti sem gert var
upptækt hjá uppreisnarmönnum úr samtökunum Byltingarher Kólumbíu í bænum La Palma í Cundinamarca héraöi í
gær. Taliö er aö nota hafi átt dínamítiö í árásum á bæi í héraöinu þar sem átök hafa veriö tíö undanfarin misseri.
Demókratar leggjast gegn
eldflaugavarnakerfi Bush
Helstu leiðtogar demókrata í
Bandaríkjaþingi sögðu i gær að þeir
myndu leggjast gegn áformum Geor-
ges W. Bush forseta um að leggja
ABM-samninginn um takmörkun á
langdrægum kjarnaflaugum á hill-
una og koma í staðinn upp eld-
flaugavarnakerfi.
Demókratar vöruðu við því að
slíkt kerfi kynni að kynda undir
vígbúnaðarkapphlaupinu á nýjan
leik. Bandaríkin hefðu ekki efni á
því, hvorki fjárhagslega né vegna
eigin þjóðaröryggis.
„Ég tel að það yrðu alvarleg mis-
tök af hálfu Bandaríkjanna að fella
ABM-samninginn einhliöa úr gildi,“
sagði Tom Daschle, öldungadeildar-
þingmaður demókrata frá Suður-
Dakóta.
Sá samningur hefur verið þunga-
miðja þess stöðugleika sem hefur
ríkt í kjarnorkumálum Bandaríkj-
George W. Bush
Bandaríkjaforseti má eiga von á
andstööu demókrata viö eldflauga-
varnakerfiö sem hann dreymir um.
anna og Rússlands undanfarna þijá
áratugi. Carl Levin, öldungadeildar-
þingmaður frá Michigan, sagði að
áform Bush kynnu að leiða til nýs
kalds stríðs.
Nokkrir öldungadeildarþingmenn
demókrata héldu fund meö frétta-
mönnum þar sem þeir hvöttu Bush
til að ræða viö þá um áform sín.
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, sagði í gær að
ABM-samningurinn frá 1972 hefði
reynst vel og að ekki ætti að fella
hann úr gildi nema eitthvað betra
tæki við. Hann lýsti áhyggjum Þjóð-
verja við Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna.
Fischer sagði að Bandaríkjamenn
og Rússar ættu að byggja á ABM-
samningnumm sem bannar einmitt
þess háttar eldflaugavarnakerfi sem
Bush forseti mælti fyrir i ræðu á
þriðjudag.
Sigrast á gin og kiaufa
II áttunni við gin- og
morgun. Mun Blair
lýsa því yfir að tökum verði náð á
útbreiðslu veikinnar innan nokk-
urra vikna.
Bílasprengja í Aþenu
Bresk kona beið bana er sprengja,
sem hún var með í bíl sínum,
sprákk af slysni. Konan var með
fjarstýringu á sprengjunni i tösku
um hálsinn.
Fylgdu ekki reglum
Flutningur á nautakjöti frá slát-
urhúsi á Jótlandi var stöðvaður í
gær er í ljós kom að varúðarráðstöf-
unum vegna kúariðu var ekki fylgt.
Áfram tilraunabann
Kim Jong-il, leiðtogi N-Kóreu, til-
kynnti sendinefnd ESB í morgun að
tilraunabann við tilraunum með
kjarnorkueldflaugar yrði áfram í
gildi.
Tugir iétust í aurskriðu
Að minnsta 62 létu lífið er aur-
skriða féll á níu hæða hús í Wulong
í suðvesturhluta Kína á þriðjudags-
kvöld.
Lífstíðarfangelsi
Slobodan Milo-
sevic, fyrrverandi
forseti Júgóslavíu,
getur vænst þess að
þurfa að sitja það
sem eftir er ævinn-
ar í fangelsi eftir
réttarhöld í heima-
landinu. Sendi-
herra Júgóslavíu í Bandaríkjunum,
Milan Protic, greindi frá þessu í við-
tali í gær.
Börnin voru seld
Mörg barnanna sem fundust um
borð í skipinu Etireno í apríl síðast-
liðnum voru seld í þrældóm. Yfir-
heyrslur yfir börnunum hafa leitt
þetta í ljós.
Siamstvíburum vegnar vel
Síamstvíburarn-
ir frá Nepal, sem
aðskildir voru fyr-
ir þremur vikum,
eru í fínu formi.
Samkvæmt upplýs-
ingum frá sjúkra-
húsinu í Singa-
pore, þar sem að-
gerðin fór fram, eru tvíburarnir á
góöum batavegi.
Morðalda fyrir kosningar
Þrír kosningastarfsmenn voru
myrtir í fyrrakvöld í Assam í Ind-
landi. Þar með hafa að minnsta kosti
16 manns týnt lifi i baráttunni fyrir
kosningamar í héraðinu 10. maí.
20 miiljarða kontór
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, tók i gær í notkun nýja
skrifstofu sína í Berlín sem kostaði
nær 20 milljarða íslenskra króna.
Efnt var til mikillar veislu af þessu
tilefni sem var lokapunkturinn á
flutningi stjómvalda frá Bonn til
Berlínar.