Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Blaðsíða 13
13
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001
DV
Vítislogar
Szymon Kuran hefur með fiðluleik
sínum auðgað íslenskt tónlistarlíf í
gegnum árin, en minna hefur farið
fyrir tónsmíðum hans. Það kann því
að koma mörgum á óvart að eftir
hann liggja stór tónverk, þar á meðal
heil sálumessa, eða Requiem. Textinn
er byggður á latneska messutextan-
um og var verkið frumflutt á tónleik-
um í Kristskirkju á sunnudagskvöld-
ið. Hófst það á því að félagar úr
Karlakór Reykjavíkur sungu djúpt og
drungalega á latínu: „Veit þeim,
Drottinn, eilífa hvíld.“ Minnti það
óneitanlega á forneskjuleg áköll tí-
betskra Bön-Pa lama, og voru áhrifrn
undirstrikuð með leik Kammersveit-
ar Reykjavikur sem magnaði sönginn
upp í voldugan hápunkt.
Tónlist
Szymon Kuran, fiöluleikari og tónskáld
Requiem hans er vissulega áhrifamikil tónsmíö.
Hugsanlega hefði mátt draga þar eitthvað úr,
kannski sérstaklega í Sanctus-kaflanum (Heil-
agur, heilagur) þar sem illa heyrðist í kórsörgn-
um fyrir miklum látum.
Sterk áhrif
Önnur einleikshljóðfæri komu vel út, sérstak-
lega fiðlan, en Hildur Ársælsdóttir lék allan
tímann afar vel á hana. Einkenndist fiðlurödd-
in af látlausum einfaldleika, en einmitt það
galdraði fram sterk áhrif. Sama má
segja um minna áberandi flautu
Örnu Einarsdóttur og gítar Péturs
V. Péturssonar, en þar hefur tón-
skáldið samið fallegar raddir sem
féllu vel að heildarmyndinni.
Einsöngur Moniku Orlowsku í
Maríubæninni var einkar hugljúf-
ur, og má segja það líka um kór-
sönginn í heild sinni. Þáttur kór-
anna var ekki lítill, og víða var
söngurinn hrífandi fagur. Radd-
setningar vorú enn fremur víða vel
unnar af tónskáldinu, sérstaklega í
Lacrimosa-kaflanum. Hvíslið var
ekki síður magnþrungið, og Oratio-
þátturinn (Drottinn Guð), með
íhugulli fiðlurödd, fjarlægum páku-
óm og hvísli, minnti töluvert á
hæga þáttinn í Tónlist fyrir
strengi, slagverk og selestu eftir
Bartók. Var það eitt best heppnaða
atriði verksins.
Kammersveit Reykjavíkur lék
prýðilega, og stjórnaði Andrzej
Borzym öllu með styrkri hendi.
Eini raunverulegi gallinn við tón-
leikana var einn andskotans GSM-
sími sem þurfti endilega að hringja
á viðkvæmu augnabliki, og eru
svoleiðis uppákomur orðnar allt of algengar. Aö
öðru leyti voru tónleikarnir góðir. Requiem
Szymons Kuran er vissulega áhrifamikil tón-
smíð og þó notkun slagverksins hafl hér verið
gagnrýnd vegur margt annað upp á móti. Von-
ar maður svo sannarlega að meira eftir þennan
ágæta listamann muni heyrast hér í framtið-
inni.
Jónas Sen
í Kyrie Eleison þættinum (Drott-
inn, miskunna þú oss) komu kraft-
miklar pákur til sögunnar, og voru
þær ásamt slagverkinu notaðar
óspart megnið af tónsmíðinni. Frank
Aarnink og Reynir Sigurðsson voru
þar á ferðinni og var leikur þeirra yf-
irleitt hnitmiðaður og nákvæmur.
Skapaði slagverkið oft viðeigandi
stemningu, til dæmis í Dies Irae (Dagur reiði)
þar sem óhugnanlegar drunurnar minntu helst
á vítisloga. Einnig verður að nefna Lacrimosa-
þáttinn, þegar eitt skyndilegt, ógnarsterkt högg
varð til þess að margir áheyrendur hrukku í
kút. Gat maður vel imyndað sér að þetta væri
hamarshögg dómarans eina á himnum, og var
það ekki beint uppörvandi.
En öllu má ofgera, og hin nánast stöðuga
notkun slagverksins varð þreytandi er á leið.
Bókmenntir
Allur heimur undir
Eiginlega má segja að Henning Mankefl sé að
leika sér að kenningunni um flðrildið sem
ar vængjunmn í Afríku og veldur fellibyl í
Japan - eða hvar það nú var - í
spennusögunni Hvíta ljónynj-
an. Þar veldur tilviljunar-
kennt morð á sænskum
fasteignasala í strjál-
byggðri sveit í Svíþjóð því
að upp kemst á síðustu
stundu um samsæri um að
myrða Nelson Mandela i Afr-
íku.
Nú vitum við öll að Nelson
Mandela er enn á lífi (þegar þetta er
ritað og vonandi lengi enn) og því er
spenna sögunnar ekki fólgin í því að
komast að því hver endirinn verður.
Mankell treystir þvi að snilli sín sem
sögumanns haldi lesandanum föngnum
og þræðirnir sem hann vindur saman séu
nógu margir til að halda í hann þó að endir-
inn sé ljós. Og tilfellið er að persónur sögunn-
ar eru nógu margar og fjölbreyttar og sviðið sem
sagan þekur svo vítt að lesandi hefur nóg að
gera að fylgjast með og spá þó að hann þurfi
ekki að velta vöngum yfir því hvort ætlunar-
verk glæpamannanna takist að lokum.
Hvíta ljónynjan hefst í Suður-Afríku
árið 1918 í kaffi með guðfeðrum að-
skilnaðarstefnunnar, og Suður-Afríka
með öfgum sínum og afskræmilegu
mannlifi er viðfangsefni Mankells I
bókinni. Hvemig litur þetta land
út nú, eins og það hefur verið
hræðilega leikið undanfarna
öld og lengur? Hvernig verður
djúpur persónuleiki eins og
svertinginn Victor Mabasha
atvinnumorðingi? Það er
forvitnilegt að fylgjast
með samskiptum hans
og kennara hans i skotfimi,
Rússanum Konovalenko, sem
skýtur sænska fasteignasalann í
augnabliksergelsi. Svoleiðis framkoma lík-
ar leigumorðingjanum ekki. Aldrei drepa
neinn sem ekki hefur verið samið um fyrir-
fram, það gæti valdið óreiðu - eins og kemur
á daginn.
Mankell hikar heldur ekki við að gera de
Klerk forseta að persónu i bók sinni, manninn
sem ásamt Michael Gorbatsjov átti stóran þátt í
að breyta því sem allir héldu að væri óbreytan-
legt í heiminum. Andstæða hans er ofstækismað-
urinn Jan Kleyn sem reynist eiga svo óvænt og
ótrúlegt leyndarmál.
Það er gaman að lesa sögu sem hikar ekki við
að hafa allan heiminn undir um leið og aðalhetj-
an, Kurt Wallander rannsóknarlögregluþjónn í
Ystad á Skáni, er ósköp venjulegur náungi sem
er pirraður út í gamlan og sérvitran föður sinn
og elskur að einkabami sínu. Þýðingin er lipur
og skemmtileg yfirleitt; þó er afleitur ruglingur á
þéringum á bls. 245: „Meira þurfið þér ekki að
vita /.../ Wervey yfirsaksóknari útnefndi þig til
að upplýsa mig um þetta mál vegna þess að hann
álítur yður fullkomlega tryggan og trúan ríkis-
valdinu..." Silja Aðalsteinsdóttir
Henning Mankell: Hvíta Ijónynjan. Vigfús Geirdal
þýddi. Mál og menning 2001.
Tónlist
Heimsókn frá Þrándheimi
Það hafa varla verið fleiri en 15 djassáhuga-
menn sem lögðu leið sína í Norræna húsið sl. laug-
ardagskvöld til þess að hlýða á þrjá unga tónlistar-
menn sem nefna sig Urban Connection. Hljóm-
sveitina skipa þeir Frode Nymo, alto, Steinar
Raknes, bs., og Hakon M. Johansen, trm. Þeir eru
allir fæddir árið 1975 og hafa allir stundað nám í
Þrándheimi við djassdeild Tónlistarháskólans
MIT, þar sem þeir kynntust skiptinema frá ís-
landi, Davið Þór Jónssyni, pno, sem er nýútskrif-
aður úr Tónlistarskóla FÍH.
Undanfarin ár hafa færir ungir tónlistarmenn
komið fram á sjónarsvið djassins á Norðurlönd-
um. Flestir eiga það sameiginlegt að tileinka sér
svokallaðan Modal-stíl, sem ekki er öllum gefið að
nýta sér, svo vel sé. Urbanfélagarnir eru börn
sinnar samtíðar, allir mjög efnilegir tónlistarmenn
en misjafnlega færir í túlkun sinni.
Altoistinn Frode Nymo hefur gífurlega gott vald
á hljóðfæri sínu, tæknin er svo að segja óaðfinnan-
leg. Hann skilar hlutverki sínu í tríóinu mjög vel,
en er samt einn á báti hvað varðar samleik þeirra.
Nymo hefur ekki tekist að persónugera línur sín-
ar, þrátt fyrir afburða tækni, þannig aö strax eftir
fyrsta lagið hljómaði hann eins og endurtekning á
sjálfum sér í upphitunaræfmgum. Hann nýtur
álits i Noregi og vann „Spellemansprisen" með
Espen Rud fyrir tveim árum.
Trommuleikarinn Hákon Mjáset Johansen er
líka verðlaunadrengur. Hann var kjörinn „Árets
Unge Jazzmusiker - 1998“ og leikur sem fulltrúi
Noregs í „The European Jazz Youth Orchestra."
Hákon sýndi ótrúlega góðan leik á laugardags-
kvöldið. Hann hefur þann eiginleika umfram
marga jafnaldra sína að geta sameinað kosti mik-
illar tækni og melódískrar útfærslu. Léttar en ná-
kvæmar áherslur hans á bassatrommu á móti
slaufum á snare og symbal voru aðdáunarverðar.
Johansen var á köflum of upptekinn af tækninni,
en lék aftur á móti oftast með áferð sem minnti
einna helst á Roy Haynes.
Bassaleikarinn Steinar Raknes kom mest á
óvart. Hér er kominn piltur sem á eftir að ógna
bassaveldi Dana, svo ekki sé meira sagt. Raknes
fór á kostum í samspili þeirra Johansens. Þessir
tveir, bassi og tromma, léku saman eins og tónlist-
armenn sem hafa spilað sanian á hverjum degi í
tuttugu ár! Raknes hefur þéttan tón og ^lur línur
sínar af kostgæfni. í útsetningu sinni á „No fret,
Bluesette" sem hann byggir á vinsælum valsi,
„Bluesette" eftir Toots Thielemans, lék Raknes
sérstaklega vel.
Þegar Davíð Þór Jónsson bættist í hópinn hét
kvartettinn Motive. Hljómur hljómsveitarinnar
breyttist töluvert með viðbót slaghörpunnar en
var þó eilítið stífari fyrir bragðið.
Fyrsta lag Motive var tónsmíð Davíðs Þórs sem
hljómaði vel en var ekki i sama flokki og ballaða
eftir Raknes sem kom næst. Davíð Þór er, eins og
þeir norsku, efnilegur djassleikari. Píanóleikur
hans á enn þá eftir ná persónulegri stilbrigðum.
Áslátturinn og pedali eru t.d. dálítið óræðir enn
sem komið er.
Lokalag tónleikanna var dans eftir meistara
Jarrett. Hér komu greinilega i ljós vanefni þeirra
aflra í sambandi við modalismann. Leikur þeirra
og stefjun minnti meira á fingraæfingar en túlkun.
Tónleikar sem þessir ættu að vera skyldumæt-
ing hjá öllum ungum tónlistarmönnum!
Ólafur Stephensen
____________Menning
Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir
Uppselt fram í júní
Nu þegar er uppselt fram í miðjan júní á
söngleikinn Syngjandi í rigningunni og er
fyrirhugað að sýna hann til júníloka. Mikil
aðsókn er einnig á aðrar sýningar Þjóðleik-
hússins um þessar mundir; uppselt hefur
verið á Með fulla vasa af grjóti frá frumsýn-
ingu og er þeirri sýningu vippað upp á
Stóra sviðið þegar tækifæri gefst til að anna
aðsókn. Sömu sögu er að segja um Bláa
hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason, langir
biðlistar hafa verið eftir sætum en nú er
orðið auðveldara að fá miða. Laufin í
Toscana hafa einnig notið mikilla vinsælda
en nú eru aóeins tvœr sýningar eftir og ættu
leikhúsáhugamenn alls ekki að láta það
happ úr hendi sleppa. Aukasýning verður á
leikritinu Já, hamingjan eftir Kristján Þórð
Hrafnsson 5. maí vegna þess hve margir
urðu frá að hverfa á lokasýningu.
Babelsturninn
Um næstu helgi, 5. og 6. maí, býður End-
urmenntunarstofnun H.í. alla veikomna í
húsakynni sín að Dunhaga 7 á tungumála-
hátíðina Babelsturninn í tilefni af evrópsku
tungumálaári 2001. Hátíðin stendur frá kl.
13 til 17.30 báða dagana. Þar að auki verður
almenningi boðið á frí ömámskeið í ýmsum
tungumálum alla næstu viku eða frá 7.-11.
maí.
Á opna húsinu um helgina kynna tungu-
málaskólar námskeið sín, kynntar verða
nýjar leiðir til náms, t.d. margmiðlunarefni,
kennsluefni á myndböndum og vefsíðum.
Athvarf verður fyrir börn meðan foreldr-
arnir skoða framboðið. Á laugardaginn
verður upplestur á ýmsum sjaldheyrðum
tungumálum, Baldur Ragnarsson flytur er-
indi um tungumál veraldarinnar og fjöl-
mörg fleiri atriði verða til fræðslu og
skemmtunar. Á sunnudaginn má m.a. heyra
erindi Guðmundar Andra Thorssonar og
Margrétar Jónsdóttur, lektors í spænsku,
söng, spil og upplestur frá ýmsum þjóðlönd-
um og umfjöllun um íslenskukennslu fyrir
útlendinga.
Tungumálanámskeiðin sem verða í boði
fyrir almenning endurgjaldslaust í næstu
viku eru í færeysku, sænsku, serbó-króat-
ísku, pólsku, rússnesku, þýsku, frönsku,
ítölsku, spænsku, ensku og íslensku fyrir
útlendinga. Sérstök námskeið verða fyrir
eldri borgara í spænsku og ensku.
Heiðursfélagar
Á aðalfundi Rithöf-
undasambands íslands
fyrir viku voru skáldin
Einar Bragi og Matthias
Johannessen kjörnir
heiðursfélagar en þeir
voru báðir á sínum tíma
formenn Rithöfundasam-
bands Islands hins eldra.
Á fundinum var rætt
um gjaldfellingu bókar-
innar og það öngþveiti á
bókamarkaði sem frjálst
bókaverð hefur valdið.
Voru fundarmenn á einu
máli um að rithöfundar
yrðu sjálfir að standa
vaktina og gæta hagsmuna sinna. Formaður
Rithöfundasambandsins er nú Aðalsteinn
Ásberg Sigurðsson en vafaformaður Ólafur
Haukur Símonarson. Félagar eru rúmlega
340 talsins.
Tangóhátíð
Tangohátíð verður haldin í fyrsta sinn á
íslandi 5.-13. maí. Þar munu heimsfrægir
kennarar frá Buenos Aires kenna byrjend-
um jafnt sem lengra komnum tangódans en
hátíðin endar með tangódansleik á Hótel
Borg.
Daniela Arcuri og Armando Orzuza
munu kenna og sýna tangó á hátíðinni. Þau
eru eitthvert þekktasta tangódanspar í
heiminum um þessar mundir og sömdu
m.a. dansa og dönsuðu í kvikmyndinni
Evitu. Tangódansinn hefur verið í mikilli
sókn á íslandi á siðustu árum og fyrir um
það bil ári var stofnað tangófélag. Því hafa
nú í fyrsta sinn skapast skilyrði fyrir stórri
tangóhátíð á íslandi.
Áhugasömum er bent á að hafa samband
í síma 551 5103 eða fara inn á heimasíðu
Tangófélagsins: www.tango.is.