Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Side 20
24
Tilvera
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001
I>V
Vildum sjá fleiri stráka í Unglingamóttökunni:
Tímapöntun óþörf
- ekkert gjald
Ungt fólk er líka fólk
Mun fleiri unglingar hafa leitaö sér aöstoöar í unglingamóttökunni vegna and-
legra málefna en búist haföi veriö viö. Myndin er úr safni og tengist ekki
greininni.
Alce Baldwin
margáreittur
Kvikmyndaleikarinn Alec Baldwin
^ átti ekki sjö dagana sæla í síöustu
viku. Þaö var sama hvert hann fór,
alls staðar voru einhverjir leið-
indagaurar aö áreita hann og gera
honum líflð leitt. Fyrst var reynt aö
þagga niður í leikaranum á opnum
fundi skipulagsnefndar heimabæjar
hans í New York og hann óþyrmilega
minntur á þau orö sín að hann myndi
flytja úr landi ef Bush yrði kjörinn
forseti. Síðar í vikunni veittist fullur
maður að honum á körfuboltaleik og
endaði það með smápústrum.
Bono ætlar ad
gefa fyrirsætu
^ írski söngvarinn Bono hefur tekið að
sér fóðurhlutverkið þegar ofurfyrirsæt-
an Christy Turlington gengur í hjóna-
band með leikaranum Ed Bums. Bono
ætlar að gefa stúlkuna, til að hægt
verði aö hafa þetta formlegt og ílott.
„Ég ætla að gefa hana en hún verður
ekki ódýr,“ segir Bono. „Hún er einstök
stúlka en Bums ætlar að gefa henni allt
hjarta sitt. Hún á það skilið.“
Bono ætlar einnig að syngja fyrir
brúðkaupsgesti.
Faðir Christy, Dwain, lést af völdum
lungnakrabbameins fyrir þremur ár-
um, 63 ára gamall.
Heilsugæslustöðin á Akureyri
hefur starfrækt sérstaka móttöku
fyrir ungt fólk og unglinga í eitt ár
um þessar mundir og er fyrsta
heilsugæslustöðin í landinu til að
bjóða þessa þjónustu. í kjölfarið hef-
ur svo heilsugæslustöðin í Hafnar-
firði fetaö í fótspor Akureyringa og
býður ungu fólki í Hafnarfirði sam-
bærilega þjónustu. Nýlega var hald-
inn aðalfundur FKB, Fræðslusam-
tök um kynlíf og barneignir, og í
framhaldi af því sendu samtökin frá
sér ályktunartillögu þar sem kemur
fram að samtökin vilji hvetja aðrar
heilsugæslustöðvar og sveitarstjóm-
ir í landinu aö koma á fót sambæri-
legri þjónustu í sinni heimabyggð.
Vildum sjá fleiri stráka
Sigríður Jónsdóttir hjúkrunar-
fræðingur hefur starfað í Unglinga-
móttökunni á Akureyri frá byrjun.
Unglingamóttökunni var hrint af
stað eftir aö gerð haföi verið könn-
un á meðal ungs fólks á Akureyri.
Það kom í ljós að krakkar þyrftu að
hafa eitthvað svona aðgengi að heil-
brigðisþjónustu þar sem þeir gætu
komiö með vandamál sín og án þess
að aðrir þyrftu að vita af þvl. Ung-
lingamóttakan sinnir þörfum þeirra
sem eiga við tilfinningaleg vanda-
mál að stríða, kvíða, depurð, áfeng-
is- og vímumál, einelti, kynsjúk-
dóma eða vilja ræða getnaðarvamir
og kynlifsvandamál.
Hafa unglingar nýtt sér þessa
þjónustu að einhverju ráði?
„Já, þau hafa mikið komið til
okkar og kunna greinilega að meta
það að geta komið með sín vanda-
mál, án þess að einhver utanaðkom-
andi þurfi að vita af því. í langflest-
um tilvikum eru það stelpur sem
koma en við vildum gjaman sjá
fleiri stráka. Við vitum að strákar
geta líka átt við vandamál að stríða
og við viljum þess vegna hvetja
stráka til að leita til Unglingamót-
tökunnar með sín mál. Aðalvanda-
málin sem hafa komið til okkar eru
tengd kynlífsvandamálum, ótíma-
bærum þungunum, kynsjúkdómum
og ráðleggingum um getnaðarvarn-
ir. Það kom okkur hins vegar á
óvart hversu margir leituðu til okk-
ar með geðfélagsleg vandamál, sem
eru t.d. kvíöi, depurð eða einelti, en
um það bil helmingur þeirra sem
komu í móttökuna áttu við tilfinn-
ingaleg vandamál að stríöa. Einelti
getur til dæmis verið mjög slæmt og
brotið sjálfsmynd einstaklingsins
svo mikið niður, að viðkomandi
finnst hann ekki vera neitt, neitt. í
slíkum tilfellum finnum við viðeig-
andi meðferðir til sjálfstyrkingar í
samvinnu við aðra aðila. Það er
ekki auðvelt mál og tekur sinn tíma,
en það er heldur ekki allt sem er
auðvelt í þessu lífi,“ segir Sigríðúr
hjúkrunarfræðingur á Heilsugæslu-
stöðinn á Akureyri.
Betra aðgengi að neyðarpill-
unni
Unglingamóttakan er opin einu
sinni í viku á þriðjudögum, klukku-
stund í senn frá kl. 16 til 17. Ekki
þarf að panta tíma og ekkert gjald
er tekið fyrir þjónustuna. í neyðar-
tilvikum, og þá sérstaklega í sam-
bandi við neyðargetnaðarvarn-
arpilluna, er hægt að ná í lækni eða
hjúkrunarfræðing í símatíma sem
er á morgnana frá kl. 9 til 12 eða á
öðrum tímum ef svo ber undir.
-W
Ofurfyrirsæta
alvarlega slösuð
Bandaríska ofurfyrirsætan Niki
Taylor slasaðist alvarlega í bílslysi í
Atlanta í Georgíu um liðna helgi. Fyr-
irsætan var farþegi í bíl sem lenti á
simastaur þegar ökumaðurinn missti
stjórn á honum. Bílstjórinn mun hafa
verið að teygja sig eftir farsímanum
sínum þegar slysið varð.
í fyrstu virtist sem Taylor hefði
ekki slasast mikið en hún tók síðan að
kvarta um verki í kviðarholi. Viö
skoðun komu í ljós alvarlegir innvort-
is áverkar. Fyrirsætan var með bíl-
beltið spennt.
Pumpað í
brjóstin á ný
Það þykir ekki leika vafi á því að
Pamela Anderson hafi látið pumpa í
brjóstin á sér í ný. Það vakti heims-
athygli fyrir tveimur árum þegar
Pamela lét fjarlægja silíkonið úr
brjóstum sínum. Hún kvaðst hafa lit-
ið i spegil og þótt hún vera hlægileg
með blöðrumar framan á sér. Pamela
sagði meira að segja að sér fyndist
hún vera kynþokkafyllri án silíkons-
ins. Greinilegt þykir að hún sé búin
að skipta um skoðun á ný. Sjónvarps-
leikkonan er nefnilega aftur komin
með ákaflega þrýstin brjóst. Og hún
gerir líka allt sem hún getur til að
sýna barminn.
„ UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Útgarði 1, Húsavík, sem hér segir á eftir- farandi eignum: Fjarðarvegur 33, efri hæð, Þórshöfn, þingl. eig. Sóley Vífilsdóttir, gerðarbeið- andi Ibúðalánasjóður, mánudaginn 7. maí 2001, kl. 10.00.
Fossvellir 10, Húsavík, þingl. eig. Brynj- ar Þór Halldórsson, gerðarbeiðandi Líf- eyrissjóður sjómanna, mánudaginn 7. maí 2001, kl. 10.00.
Árholt 16, Húsavík, þingl. eig. Óskar Karlsson, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður sjómanna og Lífeyrissjóður verkfræð- inga, mánudaginn 7. maí 2001, kl. 10.00. Ásgarðsvegur 11, Húsavík, þingl. eig. Vigdís Þórðardóttir og Haraldur Guð- mundsson, gerðarbeiðendur Landsbanki íslands hf., höfuðst., og Vátryggingafélag íslands hf., mánudaginn 7. maí 2001, kl. 10.00.
Garðarsbraut 39, 50% í 0201, Húsavík., þingl. eig. Sigurður Jóhannsson, gerðar- beiðandi Kaupfélag Þingeyinga, mánu- daginn 7. maí 2001, kl. 10.00. Garðarsbraut 75, Húsavík, íbúð 0201, þingl. eig. Anna Málfríður Lárusdóttir, gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður, mánu- daginn 7. maí 2001, kl. 10.00. Hálsvegur 4, Þórshöfn, þingl. eig. B.J. vinnuvélar ehf„ gerðarbeiðandi sýslu- maðurinn á Húsavík, mánudaginn 7. maí 2001, kl. 10.00.
Asgarðsvegur 7, Húsavík, þingl. eig. Sturla Þorgrímsson og Lára Sigþrúður Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi fbúðalána- sjóður, mánudaginn 7. maí 2001, kl. 10.00.
Hesthús í Traðargerði, Húsavík (Fmnr. 215-3560), talinn eig. Egill Hjartarson, gerðarbeiðandi Kaupfélag Þingeyinga, mánudaginn 7. maí 2001, kl. 10.00. Höfðavegur 8, Húsavík, þingl. eig. Óskar Bjöm Guðmundsson, gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar tryggingar hf„ mánu- daginn 7. maí 2001, kl. 10.00. Langanesvegur 28, Þórshöfn, þingl. eig. Lónið ehf„ gerðarbeiðandi Byggðastofn- un, mánudaginn 7. maí 2001, kl. 10.00.
Ásgarður, Þórshöfn - 50% hluti, þingl. eig. Borghildur Björg Þóroddsdóttir, gerðarbeiðendur Greiðslumiðlun hf. - Visa ísland og Kaupfélag Þingeyinga, mánudaginn 7. maí 2001, kl. 10.00. Brúnagerði 1, efri hæð, Húsavík, þingl. eig. Halldóra Gunnarsdóttir, gerðarbeið- 4 andi Ibúðalánasjóður, mánudaginn 7. maí 2001, kl. 10.00.
Brúnagerði 1, neðri hæð, Húsavík, þingl. eig. Meindýravamir Islands ehf., gerðar- beiðendur ÁMG ehf„ Aðaldælahreppur | og Vátryggingafélag íslands hf„ mánu- daginn 7. maí 2001, kl. 10.00. Smáragrund, Reykdælahreppi, þingl. eig. Unnsteinn Pétursson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akureyri, mánudaginn 7. maí 2001, kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK
A
Þarna hefur margt gullkornið falliö
Sigríöur Dúna Kristmundsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir,
Þórarinn Eldjárn, Unnur Ólafsdóttir og María Guömunds-
dóttir. Thor Vilhjálmsson snýr í okkur baki.
Margir höfðu líka gaman af að skoða sýningu Sjóns á
Drasli 2000
Sjón, Þórarinn Eidjárn, Unnur Ólafsdóttir
og Egill Ólafsson.
Anna María Karlsdóttir og skáldið sjálft, Siguröur Pálsson
Margir gestir ritþingsins héldu áfram að spyrja skáldiö út úr á eftir.
Ritþing
Sigurðar
Pálssonar í
Gerðubergi
Það var þröng á ritþingi Sigurð-
ar Pálssonar skálds í menningar-
miðstöðinni Gerðubergi á laugar-
daginn var. Salurinn yfirfylltist af
aðdáendum hans sem létu sér
ekki nægja að hlusta á hann segja
frá uppvexti sínum og svara nær-
göngulum spumingum um feril-
inn í tvo og hálfan klukkutíma
heldur gerðu sér glaðan dag í
nokkra klukkutíma á eftir! Á
myndunum má sjá dálítið brot af
þessu friða liði.