Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Page 22
26
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára_____________________________
Margrét Pétursdóttir,
Hraunbúöum, Vestmannaeyjum.
85 ára_____________________________
Lárus Björnsson,
Höfðagrund 27, Akranesi.
Sigurborg Steindórsdóttir,
Þrastalundi, Neskaupstað.
80 ára_____________________________
Arnþrúður Gunnlaugsdóttir,
Sólheimum, Egilsstööum.
75 ára_____________________________
Guöfinna Magney Guömundsdóttir,
Víkurtúni 1, Hólmavík.
Haukur Guðjónsson,
Garöatorgi 7, Garðabæ.
Jóhann Gauti Gestsson,
Hjallalundi 20, Akureyri.
Jóhanna G. Siguröardóttir,
Mýrum, Árn.
70 ára_____________________________
Jón E. Hjartarson,
Læk, Árn.
Hann veröur að heiman.
Jón K.Jónsson,
Mýrarbraut 8, Blönduósi.
Margrét Erla Friöjónsdóttir,
Arnarhrauni 9, Hafnarfirði.
Pétur Guövaröarson,
Hólakoti, Skag.
Þóröur Unnar Þorfinnsson,
Grænatúni 6, Kópavogi.
60 ára_____________________________
Helga
Kristinsdóttir
verslunarstjóri,
Karfavogi 21,
Reykjavlk.
Hún er að heiman.
Jeröur Kristín Kristinsdóttir,
Hringbraut 2b, Hafnarfirði.
Hún er að heiman.
Ragna Gunnur Þórsdóttir,
Smárahvammi 8, Hafnarfirði.
Þorsteinn Torfason,
Skólabraut 15, Garði.
50 ára_____________________________
Áslaug Pétursdóttir,
Ægisgrund 17, Garðabæ.
Elín Elíasdóttir,
Flétturima 23, Reykjavík.
Guömundur Eyþórsson,
Sturluhóli, A-Hún.
Helgi Gunnarsson,
Vesturfold 25, Reykjavík.
Kristín Ástgeirsdóttir,
Mávahlíð 22, Reykjavík.
Stefán Pétur Jónsson,
Múlavegi 41, Seyöisfirði.
Svanborg S. Magnúsdóttir,
Æsufelli 2, Reykjavík.
Þorbjörn Þ. Pálsson,
Laufengi 1, Reykjavík.
40 ára_____________________________
Ásta Oddleifsdóttir,
Hrepphólum, Flúðum.
Birgir Óli Sveinsson,
Múlasíöu 14, Akureyri.
Guðný Rósa Tómasdóttir,
Heiðvangi 9, Hellu.
Guðrún Valdís Guömundsdóttir,
Fálkagötu 32, Reykjavík.
Hermann Sverrisson,
Dalhúsum 71, Reykjavík.
Hulda Sveinbjörg Gunnarsdóttir,
Rúðaseli 71, Reykjavík.
Oddfríöur Lára Ingvadóttir,
Rskakvlsl 5, Reykjavík.
Ragnar Kristjánsson,
Lerkilundi 34, Akureyri.
Sigurlaug E. Kristjánsdóttir,
Kvistahlíö 1, Sauöárkróki.
Skúli Þór Hafsteinsson,
Öldutúni 16, Hafnarfirði.
Stefán Petersen,
Bæjargili 31, Garðabæ.
Sturla Orri Arinbjarnarson,
Viðarrima 2, Reykjavík.
Sjötugur
Jónas Jónasson
útvarpsmaður og rithöfundur
Jónas Jónasson, útvarpsmaður
hjá Ríkisútvarpinu, Kambsvegi 32,
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Jónas fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann stundaði nám í Ingi-
marsskóla 1945-47, í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík 1946-48 og
1949-51, hjá Ragnari H. Ragnar í
Tónlistarskóla ísafjarðar 1948-49,
við Leiklistarskóla Ævars Kvaran í
fimm ár, var þar kennari í tvö ár,
sótti námskeið í stjómun sjónvarps-
þátta hjá Danska sjónvarpinu 1963,
kynnti sér kvikmyndagerð hjá
London Films Studios 1951 og flutn-
ing útvarpsleikrita hjá BBC 1951.
Jónas hóf kornungur störf við
Ríkisútvarpið við móttöku og snún-
inga, hóf störf á fréttastofu RÚV
1949 og hefur starfað við stofnunina
að undanskildu einu ári er hann
var verslunarstjóri hjá POB á Akur-
eyri, hefur verið fréttaþulur RÚV,
dagskrárþulur, starfsmaður leiklist-
ardeildar, tónlistardeildar og dag-
skrárdeildar, veitti forstöðu RÚV á
Akureyri og var upphafsmaður
fyrsta svæðisútvarpsins 1982-86.
Jónas er löngu þjóökunnur fyrir
viðtalsþætti sína í RÚV sem hann
hefur stjómað um langt árabil, hef-
ur haft umsjón með fjölda annarra
útvarpsþátta, hefur leikstýrt fjölda
útvarpsleikrita og hjá áhugaleik-
félögum, s.s. hjá leikfélagi MA og
hjá LA, í Kópavogi, á Ólafsfirði,
Húsavík, Patreksfirði, Akranesi, i
Aratungu, á Selfossi og á Skaga-
strönd. Hann hefur samið fjölmarg-
ar bamasögur fyrir RÚV og leikrit-
in Álfhvammur, barnaleikrit, 1960;
Milljónasnáðinn, framhaldsleikrit
eftir samnefndri sögu W. Christmas,
1960; Fjölskylda Orra, framhalds-
leikrit, 1961-62; Patrekur og dætur
hans, framhaldsleikrit, 1970; Beðiö
eftir jarðarfór, 1974; Það er hó, 1980;
Blokk, 1988; Símavinir, 1990, og
Djákninn á Myrká og svartur bíll,
framhaldsleikrit, 1992. Leikrit hans
á sviði eru Alvörukróna Anno 1960,
gamansöngleikur, ásamt Gunnari
M. Magnúss, sýnt hjá LK 1960; Tveir
einþáttungar, sýnt hjá Leikfélagi
Patreksfjarðar, 1975; Glerhúsið, sýnt
hjá LR 1978.
Eftir Jónas hafa komið út ritin
Brú milli heima, um Einar á Einars-
stöðum, 1972; Polli, ég og allir hinir,
unglingabók, 1973; Glerhúsið, leik-
rit, sýnt hjá LR 1978; Einbjörn Hans-
son, skáldsaga, 1981; Kvöldgestir,
viðtöl, 1983; Og svo kom sólin upp,
frásagnir um baráttu við alkóhól-
isma, 1985; Brúðan hans Borgþórs,
ævintýrasaga, 1989; Sigfús Halldórs-
son, afmælisbók, 1990; Lífsháskinn,
minningar Jónasar Jónassonar,
skráðar af Svanhildi Konráðsdóttur,
1991; Til eru fræ - Haukur Morthens
- saga söngvara og sjentilmanns,
1993; Krappur lífsdans, ævisaga Pét-
urs H. Ólafssonar, 1994; Saklaus í
klóm réttvísinnar, saga Magnúsar
Leópoldssonar, 1996; Þá flugu Ernir,
lítil flugsaga að vestan - saga Harð-
ar Guðmundssonar sjúkraflug-
manns, 1997, og Náðuga frúin í
Ruzomberok, 1998.
Jónas hefur samið fjölda þekktra
sönglaga fyrir útvarpsþætti og leik-
rit, s.s. Bátarnir á firðinum; Kvöld-
ljóð, Hagavagninn, og Vor í Vagla-
skógi.
Fjölskylda
Jónas kvæntist 14.1.1964 Sigrúnu
Sigurðardóttur, f. 18.1. 1938, fyrrv.
starfsmanni, fyrrv. ritara innlendr-
ar dagskrárgerðar hjá Sjónvarpinu.
Hún er dóttir Sigurðar B. Jónsson-
ar, f. 29.5. 1913, d. 31.10. 1995, loft-
skeytamanns, og k.h., Guðríðar Sig-
urðardóttur, f. 13.3.1913, d. 2.3. 1980,
húsfrú og kaupkonu.
Dætur Jónasar frá fyrra hjóna-
bandi og Auðar Steingrímsdóttur,
eru Hjördís Rut, f. 26.8. 1954, hjúkr-
unarfræðingur, gift Halli Mar Elís-
syni verkamanni; Berglind Björk, f.
11.2.1959, söngkona, gift Jóni Hauki
Jenssyni kvikmyndatökumanni.
Dóttir Jónasar og Sigrúnar er Sig-
urlaug Margrét, f. 12.11. 1963, út-
varpsmaður, gift Torfa Rafni Hjálm-
arssyni gullsmiö.
Systir Jónasar: Björg Jónasdóttir
Sen, f. 22.5. 1926, húsmóðir, gift Jóni
Fimmtugur
Tryggvi V. Líndal
þjóðfélagsfræöingur og skáld
Tryggvi V. Líndal, þjóðfélags-
fræðingur og skáld, Skeggjagötu 3,
Reykjavik, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Tryggvi fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Kópavogi. Hann lauk
stúdentsprófi frá MA, BA-prófi í
mannfræði frá University of
Toronto í Kanada 1978, stundaði
framhaldsnám í félagslegri mann-
fræði við University of Manitoba í
Kanada, lauk prófi í uppeldis- og
kennslufræði frá HÍ 1984 og áfóng-
um í heimspeki, almennri bók-
menntafræði og líffræði.
Tryggvi kenndi við ME 1980-81 og
Grunnskóla Borðeyrarhrepps
1984- 85, var aðstoðarmaður iðju-
þjálfa Geðdeildar Landspítalans
1985- 89 og starfaði við Skóladag-
heimili Breiðagerðisskóla 1989-94.
Hann hefur stundað þýðingar og
önnur ritstörf, fyrst að hluta til en
alfarið frá 1994.
Tryggvi hefur sent frá sér fjórar
ljóðabækur, skrifað smásögur og
mannfræðirit. Þá hefur hann skrif-
að fjölda blaðagreina.
Tryggvi er félagi í Rithöfunda-
sambandi íslands, Félagi þjóðfræð-
inga á íslandi, skáldafélaginu
Hellasarhópnum og hefur verið for-
maður Vináttufélags íslands og
Kanada frá 1995.
Fjölskylda
Systkini Tryggva eru dr. Ríkharð-
ur E. Líndal, f. 1952, klínískur sál-
fræðingur í Kanada; dr. Eiríkur J.
Líndal, f. 1955, klíniskur sálfræðing-
ur á íslandi; Jakob E. Líndal, f. 1957,
arkitekt á íslandi; Anna E. Líndal, f.
1962, talmeinafræðingur í Kanada.
Níræð
Astrid S. Hannesson
kristinboði og hjúkrunarkona
Andlát
Guöbrandur Guömundsson, Miötúni 3,
Keflavik, lést á Landspítalanum viö
Hringbraut fimmtud. 19.4. Bálför hefur
fariö fram I kyrrþey að ósk hins látna.
Nanna Jónína Steindórsdóttir, áöur til
heimilis I Ásgaröi, Hauganesi, lést á
dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík, laugard.
28.4.
Sigurhjörtur Pálmason verkfræöingur,
Vesturbergi 27, lést á heimili sínu laug-
ard. 28.4.
Karitas Geirsdóttir, Rofabæ 29, andað-
ist á heimili slnu sunnud. 29.4.
Siguröur Þorgrimsson, fyrrv. yfirhafn-
sögumaöur, Skildinganesi 35, Reykja-
vík, lést á Hrafnistu I Reykjavík laugard.
28.4.
Salvör Jónsdóttir, Nóatúni 26, Reykja-
vík, er látin.
Astrid Skarpaas Hannesson
kristniboði, Hjallasel 55, Reykjavík.
varð niræð í gær.
Starfsferill
Astrid fæddist í Vestfold í Noregi
og ólst upp í Stabekk og Heggedal í
Noregi. Hún lærði hjúkrunfræði við
sjúkrahús í Ósló.
Astrid og eiginmaður hennar,
Jóhann Hannesson, voru trúboðar i
Kína á árunum 1939-52 auk þess
sem hún starfaði þar við hjúkrun.
Þau komu til íslands 1953 og var
hann þá prestur og þjóðgarðsvörður
á Þingvöllum. Hann var síðan pró-
fessor í guðfræði við HÍ 1959-75 en
Astrid gegndi stöðu forstöðukonu
við Hrafnistu í Reykjavík 1961-75.
Fjölskylda
Astrid giftist 5.11. 1938 Jóhanni
Hannessyni, f. 17.11. 1910, d. 21.9.
1976, kristniboða, prófessor í guð-
fræði í Hong Kong og við HÍ, og
presti og þjóðgarðsverði á Þingvöll-
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001
I>V
Sen fiðluleikara.
Hálfsystir Jónasar, samfeðra: Kol-
brún Jónasdóttir, f. 9.6. 1921, d. 7.8.
1987, húsmóðir, gift Birni Ólafssyni
konsertmeistara sem er látinn.
Foreldrar Jónasar: Jónas Þor-
bergsson, f. 22.1. 1885, d. 6.6. 1968,
ritstjóri, alþm. og útvarpsstjóri, og
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, f.
30.1. 1898, d. 10.1. 1985, húsmóðir.
Ætt
Jónas var bróðir Jóns Helga á
Laxamýri og Hallgríms á Halldórs-
stöðum. Jónas var sonur Þorbergs,
b. á Helgastöðum í Reykjadal, Hall-
grímssonar, b. á Hallbjarnarstöðum,
bróður Jóns, langafa Gísla Jónsson-
ar menntaskólakennara og Krist-
jáns Eldjárn forseta. Hallgrímur var
sonur Þorgríms, b. i Hraunkoti,
Marteinssonar, og Vigdísar Hall-
grímsdóttur, ættfóður Hraunkot-
sættar, Helgasonar. Móðir Þorbergs
var Sigríður, systir Jóns, langafa
Sigurðar, foður Sigurðar dýralækn-
is. Sigríður var dóttir Illuga, b. í
Baldursheimi, bróður Vigdisar.
Móðir Jónasar útvarpsstjóra var
Þóra Hálfdanardóttir, b. á Öndólfs-
stöðum, Bjömssonar.
Sigurlaug Margrét var dóttir
Jónasar, b. á Bandageröi í Glerár-
hverfi og amtbókavarðar Sveinsson-
ar, b. i Litladal í Svínavatnshreppi,
bróður Kristjáns á Snæringsstöð-
um, fóður Jónasar, læknis á Sauðár-
króki, afa Jónasar Kristjánssonar
ritstjóra DV. Sveinn var sonur
Kristjáns, ríka í Stóradal, bróður
Péturs, afa Þóröar Sveinssonar, yf-
irlæknis á Kleppi. Kristján var son-
ur Jóns, b. á Snæringsstöðum af
Harðabóndaætt. Móðir Jónasar í
Bandagerði var Hallgerður Magnús-
dóttir, b. í Leirvogstungu í Mosfells-
bæ, Magnússonar.
Móðir Sigurlaugar Margrétar var
Björg Bjömsdóttir, b. á Harastöðum
á Skagaströnd, Jóhannessonar, og
Sigurlaugar Jónsdóttur.
Foreldrar Tryggva voru Baldur
Lindal, f. 1918, d. 1997, efnaverk-
fræðingur í Reykjavík, og Amalía
Líndal, f. í Bandaríkjunum 1926, d.
1989, blaðamaður og rithöfundur.
Ætt
Baldur var sonur Jakobs H. Lín-
dal, hreppstjóra, oddvita og jarð-
fræðings á Lækjarmóti, sonar Hans,
b. á Hrólfsstöðum í Blönduhlíð,
Baldvinssonar. Móðir Hans var
Guðný Natansdóttir, læknis á 111-
ugastöðum, Ketilssonar.
Móðir Baldurs var Jónína, systir
Guðríðar, skólastýru Kvennaskól-
ans á Blönduósi. Jónína var dóttir
Siguröar, b. á Lækjamóti, Jónsson-
ar, b. á Lækjamóti, Sigurðssonar á
Valdarási. Móðir Sigurðar var
Steinvör Skúladóttir, stúdents á
Stóru-Borg, Þórðarsonar, bróður
Sesselju, langömmu Ragnheiðar,
móður Davíðs frá Fagraskógi. Móð-
ir Jónínu var Margrét Eiríksdóttir,
smiðs í Laugarnesi, Jakobssonar,
smiðs á Húsafelli Snorrasonar, ætt-
fóður Húsafellsættar, Björnssonar.
Móðir Margrétar var Guðríður,
systir Jóns, langafa Auðar Auðuns,
ráðherra og borgarstjóra, og Jóns
Auðuns dómprófasts.
Amalía var dóttir Edward O.
Gourdin, dómara í Boston sem varð
heimsmeistari í langstökki 1921.
Tryggvi er að heiman.
um á 1953-59. Foreldrar hans voru
Hannes Gislason, bóndi að Stóra-
Hálsi í Grafningi, og k.h., Margrét
Jóhannsdóttir húsfreyja.
Böm Astrid og Jóhanns eru Gun-
hild, f. 20.10. 1942, hjúkmnarfræð-
ingur í Noregi, gift Sigurvin Ólafs-
syni verkfræðingi og eru börn
þeirra Astrid Linda og Jóhann
Finnur; Hannes, f. 5.11. 1949, tækni-
stjóri við Stöð 2 í Reykjavík, kvænt-
ur Kristínu Einarsdóttur kennara
og eru böm þeirra Jóhann og Ásta.
Foreldrar Knut Skarpaas, bók-
haldari í Ósló, og k.h., Gunnhild
Sveinsdotter Skarpaas.
Astrid verður að heiman.