Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Page 25
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001
DV
29
Tilvera *
Trafflc
**** Áhrifamikil og vel gerð kvikmynd
frá Steven Soderbergh þar sem í þremur sög-
um, sem tengjast óbeint, er fjallað um marg-
ar hliðar á eiturlytjavandanum. Soderbergh
kvikmyndaði Traffic að langmestu leyti
sjálfur með myndavélina í höndunum og
gefur það myndinni sterkara ýfírbragð en
ella, stundum minnir hún að þessu leyti á
dogma-myndimar dönsku, sérstaklega
Mexíkó-hlutinn. Leikarar eru upp til hópa
mjög góðir þar sem fremstir meðal jafningja
fara Benecio Del Toro og Michael Douglas.
-HK
Crouching Tiger, Hidden Dragon
**** Frábær kvikmynd. Það er eins og
listin hafi loksins ratað aftur heim í Qöl-
leikahúsið. Maður situr í sætinu sínu og er
borinn gegnum ævintýrið, undrandi og
þakklátur eins og bam. En myndin er líka
svolítið skrýtin. Leikararnir eru allir með
sama íbyggna svipinn og bera fram textann
eins og þeir séu að lesa hann af blaði. Og ör-
ugglega á einhverri mállýsku sem þeim er
ekki eiginleg. En við héma uppi á íslandi
segjum bravó og tökum því sem hluta af
ævintýrinu. -GSE
Btily Elllot
★**★ BiUy Elliot er hefðbundin hetjusaga
um dreng sem yfirvinnur bælingu samfé-
lagsins og beitir ræktun hæfileika sinna til
sjálfsköpunar. Þessi saga hefur verið sögð
þúsund sinnum áður og er ekki annað hægt
en að dást að hversu vel þessi hetjusaga er
sögð í Billy Elliot. Myndin er frumraun leik-
hússmannsins Stephen Daldry í bíó. Hann
skilar frá sér fágaðri persónusköpun,
ágengu raunsæi, áreynslulausum skipting-
um mUli frásagnaraðferða og einhvers kon-
ar líkamlegri nálgun í dansatriðum. Jamie
Bell fer glæsilega með hlutverk Biilys.-GSE
Thirteen Days
*** Það þarf þéttan frásagnarníáta og góð-
ar skiptingar á milli atriða til að ná upp
góðri spennu í pólitíska atburðarás sem all-
ir þekkja. Þetta tekst í Thirteen Days sem er
frá upphafi til enda spennandi pólitískur
tryllir þar sem myndskeiðum er snilldarlega
skeytt saman. Má nefha að sjónvarpsfréttum
Walters Cronkite er skeytt inn í söguþráö-
inn en á þessum ámm var hann „Rödd Am-
eriku“ og enginn efaðist um trúverðugleika
hans. Spennunni er siðan viðhaldið með at-
riðum sem eru mismunandi áreiðanleg en
öll trúverðug. -HK
Pay lt Forward
*** Paý It Forward er svona „láttu þér líða
vel“ (feel good) mynd af gamla skólanum -
andi Frank Capra svífur yfir vötnunum hér.
Og það er ekkert nema gott um það að segja.
Það er ekkert sérstaklega sennilegt að
dópistinn, sem Trevor gefur að borða, gangi
síðan af stað, hætti að dópa og bjargi lffi
óhamingjusamrar kvensu - En (og það er
stórt en) maður verður bara að halla sér aft-
ur og gefa góðmennsku og náungakærleika
sjens - hversu erfitt sem það er nú. Það sem
reddar Pay It Forward ftá því að vera til-
fmningasöm della eru þrir frábærir aðalleik-
arar. -SG
Lalli Johns
*** f myndinn fer Þorfmnur Guðnason
með okkur í leiðangur um undirheima borg-
arinnar og kynnir okkur á skemmtilegan
máta, ekki aðeins fyrir goðsagnapersónunni
Lalla Johns, heldur mörgum öðrum sem
eiga sér verri skuggahliðar en Lalli. Þetta er
forvitnilegur heimur þar sem allt snýst um
dóp og brennivín. Þorfmnur fer samt sem
áður þá skynsömu leið að sýna okkur um
leið muninn á veröld Lalla og veröld sem við
þekkjum. Merkileg heimildakvikmynd sem
bæði skemmtir og fræðir. -HK
Löggutöffarinn Orin Boyd
Steven Segal er aftur kominn í góöan gír eftir nokkur mögur ár.
Exit Wounds:
Horfin eiturlyf
og spilltar löggur
Exit Wounds er nýjasta kvikmynd
Steven Segals sem hefur ekki tekist
sem skyldi í síðustu kvikmyndum sín-
um; hafa þær nánast horfið á mynd-
bandamarkaðinn með stuttri viðkomu
í kvikmyndahúsum. Eitthvað er kapp-
inn að rétta úr kútnum því Exit
Wounds gerði það ágætt í Bandaríkj-
unum og komst meðal annars eina
vikuna í efsta sæti yfir mest sóttu
kvikmyndimar.
Exit Wounds gerist í Detroit. Fimm-
tíu kíló af heróini, sem voru í vörslu
lögreglunnar, eru horfin og enginn á
lögreglustöðinni þykist vita neitt um
hvarfið. Sá sem hefur þetta undir
höndum mun verða fimm milljón doll-
urum ríkari svo freistingin er mikil.
Til að rannsaka málið og leita að
sökudólgum er Orin Boyd (Steven
Segal) ráðinn. Lögreglumennirnir á
stöðinni þar sem dópið hvarf líta
hann illu auga enda hafa þeir ástæðu
til að óttast Boyd. Hann kemst fljót-
lega að því að innan lögreglunnar er
að finna hluta af eiturlyfjahring sem
teygir sig um alla borg. Það er þó ekki
allt sem sýnist og það sem Boyd
fannst í fyrstu augljóst verður tor-
kennilegra þegar líður á rannsóknina
og ljóst er að hann getur ekki einn
staðið í glæpamönnunum.
Auk Segals eru í stórum hlutverk-
um, rapparinn DMX, sem hefur selt
meira en tíu milljón plötur á tveimur
árum, Isiah Washington, Michael
White, Jill Hennesy og Ant-
hony Anderson. Leik-
stjóri er Andrzej Bart-
kowiak en hann hefur
reynslu af að leik-
stýra slagsmálaköpp-
um á borð við Steven
Segal og leikstýrði í
fyrra, Romeo Must
Die. Bartkowiak
hafði í ein þrjátíu ár
starfað sem kvik-
myndatökumaður
áður en hann leik-
stýrði sinni fyrstu
kvikmynd. Hefur
hann staðið á bak við
kvikmyndavélina í
mörgum þekktum kvik-
myndum og hefur í ár-
anna rás verið aðalkvik-
myndatökumaður Sidneys
Lumets.
Exit Wounds verður frum-
sýnd á morgun í Bíóhöllinni,
Kringlubíói og Nýja bíói,
Akureyri. -HK
Drakúla
á nýrri öld
Drakúla er klassískt efni í kvik- «•
myndasögunni og hafa verið gerðar
hátt á áttunda tug kvikmynda þar sem
Drakúla er ein aðalpersónan, frá því
F.W. Murnau gerði fyrstu Drakúlu-
myndina, Nosferatu árið 1922. Síðasta
myndin sem leit dagsins ljós á síðustu
öld var svo Dracula sem Francis Ford
Coppola leikstýrði 1992. Nú er komin
ný öld og ný Drakúla, Dracula 2001.
Myndin hefst á því að hátækni-
hryðjuverkamenn brjótast inn í
rammgerða byggingu í London. í kjall-
ara byggingarinnar er leyndardóms-
full grafhvelfing. Grafhvelflngin hefur
ekki verið opnuð í 100 ár enda sérstök •
ástæða fyrir þvi. Það er enginn annar
en Drakúla'greifi sem hvílir í kistunni
og hann verður frelsinu feginn.
Hryðjuverkamennirnir flytja kistuna
til Bandaríkjanna en vélin kemst ekki
á leiðarenda. Hún ferst skammt frá
gleðiborginni New Orleans. Og það er
núna sem hinn alvöru blóðugi hryll-
ingur hefst. Enginn verður óhultur.
Konur standast ekki Dracula og það
sem meira er, greifmn vel tennti leitar
að ákveðinni konu í New Orleans sem
varpar frekari ljósi á tilvist hans. En
það verður að stöðva Dracula hvað
sem það kostar. Þeir einu sem geta
stöðvað hann eru Van Helsing sá
gamli blóðsugubani og lærlingur hans
Simon.
Aðalleikarar myndarinnar eru; Ger-
ard Butler sem leikur Drakúla,
Christopher Plummer leikur Van
Helsing og Johnny Lee Miller, Simon.
Auk þeirra má nefna Jennifer
Esposito, Omar Epps og Sean Patrick
Thomas. Leikstjóri er Patrick Lussier
og er hann hér aö leikstýra sinni
annarri mynd. Áður hafði hann leik-
stýrt Prophecy III; The Ascent með
Christopher Walken. Lussier hefur
lengi unnið með Wes Craven, sem
er framleiðandi myndarinnar og
klippti meðal annars allar Scr- t
eam-myndirnar.
Dracula 2000 verður frumsýnd
i Stjömubíói á morgun.
Drakúla 21. aldarinnar
Gerard Butler leikur Dracula sem er
leystur úr prísund sinni þar sem
hann hefur veriö í eitt hundraö ár.
State and Main:
finding Forrester
*** Kvikmynd sem er þannig aö flestum
liður vel yfir henni. Hún hefúr innihalds-
ríka sögu þar sem uppbyggjandi vinátta er
þemað, er vel leikin, gallalaus í útliti og öll
tæknivinna fyrsta flokks. Hún er einnig
þannig kvikmynd að það skiptir dálitlu máli
í hvemig skapi maður er þegar horft er á
hana. Hún er nefnilega stundum á mörkum
þess að vera um of melódramatísk. Gus Van
Sant, sem leikstýrði Good Will Hunting, er á
heimavelli og skýst laglega fram hjá öllum
gildrum og útkoman er gæðamynd sem sit-
ur eftir í áhorfandanum. -HK
Malena
***Innihaldsrik kvikmynd sem hefur
léttan húmor í upphafi en eftir því sem
óhamingja Malenu verður meiri þyngist
atburðarásin og myndin verður átakan-
leg lýsing á lífi konu sem er einangruð
frá samfélaginu og stígur sín feilspor sem
verða henni örlagarík. Helsti kostur
Malenu er hversu mannleg hún er.
Myndin fjallar um blóöheitar manneskj-
ur sem eru fljótar að fordæma en einnig
tilbúnar að fyrirgefa þegar þaö hentar
þeim. Monica Bellucci er mjög falleg og
fer vel með hlutverk sitt og tónlist Ennio
Morricone svíkur engan. -HK
Almost Famous
*** Stemningarmynd þar sem persónum-
ar verða einstaklega lifandi og eftirminnileg-
ar. Rokkið, sem ætti að vera þungamiðjan í
myndinni, verður bakgrunnur í kvikmynd
sem er þroskasaga ungs manns. Leikstjór-
inn, Cameron Crowe. fjallar á jákvæðan hátt
um rokkið og imyndina sem þungarokkið
hafði á þessum árum, eitthvað sem ekki er
algengt að sjáist. Upp úr góðum leikararhóp
stendur Kate Hudson. -HK
Kvikmynd
A tokustaö
Leikstjórinn kemst aö því aö sumt sem átti aö vera í bænum er ekki til staöar.
í kvikmynd
State and Main, sem David
Mamet skrifar og leikstýrir, er ný
kvikmynd sem fengið hefur mikið
lof hvar sem hún hefur verið sýnd.
Um er að ræða kvikmynd þar sem
sagt er frá gerð kvikmyndar og því
sem gerist bak við tjöldin. Allt er
þetta á léttum nótum og beinskeitt-
ur texti Mamets kemst vel til skila.
Við fylgjumst með því er kvik-
myndatökuliö kemur sér fyrir í
smábænum Waterford í Vermont
eftir aö hafa verið á hrakhólum með
tökustað fyrir stórmynd sem á að
gerast á nítjándu öld. Bærinn virð-
ist fullkominn á pappírunum en
fljótlega kemur í ljós að ekki er allt
sem sýnist og þurfa aðstandendur
myndarinnar að laga sig að aðstæö-
um i bænum, sem er hægara sagt en
gert. Samkvæmt auglýsingabæk-
lingi átti til dæmis að vera gömul
mylla til staöar í bænum en í ljós
kemur að hún brann til kaldra kola
á sjöunda áratugnum og þarf að
breyta titli og innihaldi myndarinn-
ar af þessu tilefni og veldur þetta
höfundi handritsins ómældum erf-
iðleikum.
Erfiðleikarnir hefjast þó ekki fyr-
ir alvöru fyrr en aðalstjörnur mynd-
arinnar, Bob Barenger og Claire
Wellesley, koma til bæjarins og
setja bæjarlífið á annan endann.
Allir vilja komast í kynni við kvik-
myndastjörnurnar og í ljós kemur
að Bob á erfitt með að standast at-
hygli unglingsstúlknanna og Claire
neitar að koma nakin fram, eins og
hún hafði þó lofað, og lendir þar
með i miklu stríði við óprúttinn
framleiðanda myndarinnar. Ekki
sést fyrir endann á kvikmyndatök-
unum og verða samskiptin við bæj-
arbúa sífellt flóknari.
Með aðalhlutverk fara Alec Bald-
win, Charles Durning, William H.
Macy, Philip Seymour Hoffman og
Sarah Jessica Parker. State and
Main er sjöunda kvikmyndin sem
David Mamet leikstýrir en hann
hefur auk þess skrifaö mörg handrit
og verðlaunaleikrit sem sýnd hafa
verið um alla heimsbyggð. Meðal
fyrri mynda hans má nefna The
Winslow Boy, The Spanis Prisoner
og Oleanna sem hann gerði eftir eig-
in leikriti.
-HK
-e