Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Page 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001
Borgarleikhúsiö:
Framkvæmda-
’ stjórinn hættir
Árni Möller, framkvæmdastjóri
Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleik-
hússins, hyggst segja starfi sinu lausu
og hverfa til annarra verka:
„Ég er búinn að vera hér í tvö ár og
tel það nóg. Nú tekur annað við,“
sagði Árni og vildi ekki að öðru leyti
tjá sig um ástæður brotthvarfs sins úr
Borgarleikhúsinu.
Aðalfundur Leikfélags Reykjavíkur
stendur fyrir dyrum og verður hald-
inn um miðjan þennan mánuð. Ljóst
er að Páll Baldvin Baldvinsson, for-
maður félagsins, ætlar einnig að
hætta, svo og varaformaðurinn, Ellert
B. Ingimundarson leikari. Tveir leik-
' * arar Borgarleikhússins hafa tilkynnt
um framboð sitt til formanns og vara-
formanns en það eru þeir Jóhann G.
Jóhannsson og Sigurður Karlsson. Er
ekki búist við mótframboðum þannig
að stjórnarskiptin i Leikfélagi Reykja-
víkur ættu að geta fariö átaka- og há-
vaðalaust fram á aðalfundinum. -EIR
Sápa, bingó og
Citizen Kane
í Fókus á morgun er rætt við tón-
listarséniið Jóel Pálsson um nýút-
komna plötu hans og hvernig það er
að vera saxófónleikari á skeri í
Atlantshafi. Fjallað verður itarlega
um sápuóperur, áhorfendur þeirra
og heimspekina við glápið. Litið er
inn á bingókvöld i Vina- og veltubæ
þar sem hlutimir gerast. Ungt fólk
sem er að stofna samtök gegn ras-
isma segja skoðun sína á ástandinu.
Vinsældalisti íslenskra sjónvarps-
þátta verður birtur í heild sinni
með útskýringum og Stuttmyndahá-
tiðinni gerð skil. Lífið eftir vinnu er
helgarbiblían og í henni er einnig
að finna miða á bestu kvikmynd
allra tíma, Citizen Kane.
3E5TI FAR5I
LEIKHÚSSIN5?
DV-MYND HILMAR ÞÖR
Heimsókn í sveitina
Fyrstu bekkjar oemendur í Breióholtsskóla fóru í heimsókn aö Miödal í Kjós í gær ásamt kennurum sínum. Þaö geislaöi af krökkunum meðan þau gengu á
milli dýranna og skoöuö nýborna á, ketti og kanínur, hunda og hesta og klöppuðu kusu.
Réttarhöld hófust í morgun vegna morðsins á Einari Erni:
Segist hafa ætlað
að ógna Einari
Réttarhöld hófust í morgun í
morðmáli ríkissaksóknara gegn
Atla Helgasyni, 34 ára lögfræðingi í
Kópavogi, sem ákærður er fyrir að
hafa banað Einari Erni Birgissyni,
27 ára, með mörgum hamarshögg-
um á bilastæði í Öskjuhlíð miðviku-
daginn 8. nóvember. Atli sagði í
morgun að það hefði komið til
deilna á staðnum í Öskuhlíðinni þar
sem þeir Einar hittust. Deilurnar
mögnuðust og margt hefði verið
sagt sem betur hefði verið látið
ósagt. „Svo hrinti Einar mér,“ sagði
Atli. „Allt var orðið brjálað."
Síðan segist Atli hafa forðað sér á
undan Einari. Þeir hafi farið heilan
hring í kringum bíl Atla, þar til Atli
opnar afturhurð bílsins, þar sem
verkfæri eru inni. „Þar tók ég ham-
ar sem ég hugðist ógna Einari með.“
Eftir það lýsir Atli því hvernig
hann sló Einar í höfuðið.
Réttaö í morgun
Atli Helgason fyrir rétti.
41 milljón í bætur
í málinu er fariö fram á að Atli
greiði ýmsum aðilum 41 milljón
króna í bætur. Konan sem bjó með
Einari Erni krefur Atla um 19 millj-
ónir króna í skaðabætur fyrir missi
framfæranda og fer einnig fram á 5
milljónir í miskabætur. Foreldrar
Einars fara fram á samtals 10 millj-
ónir króna í miskabætur.
Atli er einnig ákærður fyrir tvö
fjárdráttarmál þar sem ríkissak-
sóknari gefur honum að sök að hafa
dregið sér samtals á sjöundu milljón
króna sem lögfræðingur í opinberu
starfi og vegna einkahlutafélagsins
Unit á íslandi ehf., áður GAP.
Atli var skiptastjóri í dánarbúi
Agnars W. Agnarssonar sem banað
var við Leifsgötu árið 1999. Ríkis-
saksóknari ákærir lögmanninn fyr-
ir að hafa i því máli sem skipta-
stjóri dregið sér tæpar 1,2 milljónir
króna af fé sem tilheyrði dánarbú-
inu - peninga sem símsendir höfðu
verið frá Deutsche Bank í Lúbeck í
Þýskalandi inn á eigin bankareikn-
ing Atla í Mosfellsbæ i október síð-
astliðnum - nokkrum vikum fyrir
manndrápið í Öskjuhlíð. -Ótt
Sigmundur Ernir til DV
Sigmundur Emir Rúnarsson hefur
verið ráðinn aðstoðarritstjóri DV og
mun hann hefja störf á næstu dögum.
Meginverkefni Sigmundar Ernis í
upphafi verður að endurskipuleggja
fréttadeild DV.
„DV stendur á tímamótum og tæki-
færin eru ails staðar. Það er mitt verk-
efni að grípa þessi tækifæri og skerpa
vinnubrögðin - efla fréttaflutning og
þjóðmálaumfjöllun blaðsins. Ég
hlakka til að takast á við þetta nýja
verkefni, enda gamall blaðahundur,"
segir Sigmundur Ernir sem nú hverf-
ur af sjónvarpsskjánum eftir 14 ára
störf á Stöð 2. Þar hefur hann verið
aðalfréttaþulur um árabil. „Raunar er
ég að snúa aftur á fomar slóðir en ég
DV MYND INGÓ
Öflugri fréttir
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
nýráöinn aöstoöarritstjóri DV, tekur
til starfa á næstu dögum
hóf störf í blaðamennsku á Visi fyrir
20 árum og tók nokkru síðar þátt í
sameiningu Dagblaðsins og Vísis und-
ir merki DV.“
Sigmundur Ernir hefur viðamikla
reynslu af blaða- og fréttamennsku,
fyrst á Vísi, DV og Helgarpóstinum, en
síðar í útvarpi og sjónvarpi, jafnt við
fréttamennsku sem almenna þátta-
gerð. Frá 1987 starfaði hann sem
fréttamaður og síðar varafréttastjóri á
Stöð 2 og Bylgjunni, en síðustu mán-
uði hefur hann gegnt starfi ritstjóra
frétta- og dægurmálaumfjöllunar hjá
íslenska útvarpsfélaginu. Eftir Sig-
mund Emi liggur fjöldi ritverka, þar á
meðal fimm ljóðabækur.
Sigmundur Emir er kvæntur Elínu
Sveinsdóttur, útsendingarstjóra á Stöð
2, og á hann fimm böm. -hdm
Þjó^sárveranefnd:
Oeðlileg
afskipti
Náttúruverndarsamtök íslands
og Fuglaverndarsamtök íslands
saka Halldór Ásgrímsson, for-
mann Framsókn-
arflokksins, um
óeðlileg afskipti af
störfum Þjórsár-
veranefndar með
þvi að reyna að
hafa áhrif á Svein
Ingvarsson, sem
sæti á í nefnd fyr-
ir hönd Upprekstr-
arfélags Flóa- og
Skeiðamanna.
Segja samtökin að Halldór hafi
beitt sér fyrir því að Sveinn féllist
á miðlunarlón í Þjórsárverum en
Sveinn er í oddaaðstöðu í nefnd-
inni og ákvörðun hans getur skipt
sköpum varðandi virkjunarmögu-
leika og rafmagnsframleiðslu á
svæðinu. Þá hafa samtökin sent
bæði innhverfis- og landbúnaðar-
ráðherrum bréf þar sem minnt er
á fyrri yfirlýsingar þeirra um að
ekki komi til greina að sökkva
neinum hluta Þjórsárvera undir
vatn. Sem kunnugt er horfa menn
til virkjana á þessu svæði varð-
andi stækkunarmöguleika Norð-
uráls á Grundartanga.
Sjá viðtal við Svein, bls. 6
Halldór
Ásgrímsson.
brother P-touch 1250
Lílil en STÓRmerkileq merkivél
5 leturstæróir
9 leturstillingar
prentar 12 linur
borði 6, 9 og12 mm
4 gerðir af römmum
Rafport
Nýbýlavegi 14 Simi 554 4443
Voffang: www.it.is/rafport