Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001 Fréttir DV Sérfræðingur telur þætti í skýrslu um umhverfismat Kárahnjúka ófullnægjandi: Ahættu mat vegna virkjunar vanburða - verkfræðingar og hönnuðir stíflunnar vísa áhyggjum á bug Umljöllun umhverfismatsskýrsl- unnar um Kárahnjúkavirkjun er ófull- nægjandi vegna þess að ekki er hægt á grunni hennar að meta ásættanlega áhættu sem þessum framkvæmdum fylgir. Ónógar rannsóknir hafa farið fram á líkum á hættu vegna jarðelda, landskjálfta og manngerðrar hættu. Miklum Qármunum hefur því verið varið til undirbúnings virkjunarinnar áður en almenningur hefur fengið um það fulla vissu að stíflumannvirki haldi vatni og rofni ekki vegna jarð- skorpuhreyfmga og manngerðra jarð- skjáifta. Þetta er meginniðurstaða dr. Guð- mundar Sigvaldasonar, jarðefnafræð- ings og fyrrverandi forstöðumanns Norrænu eldfjallastöðvarinnar, i er- indi um umhverfismat vegna Kára- hnjúkavirkjunar á fundi Landvemdar í gær. Hann skilgreinir áhættu sem þann stuðul sem fæst ef líkur á hættu era margfaldaðar með verðgildi fram- kvæmdarinnar. Kárahnjúkavirkjun er sennilega stærsta orkuver sem reist yrði á eldvirku svæði í heiminum og Guðmundur benti á að ein grunnfor- senda Kárahnjúkavirkjunar væri at- huganir á þéttri sprunguþyrpingu og hugsanlegu misgengi undir fyrirhug- uðum stíflumannvirkjum sem myndu lyftast og síga í takt við ísfarg á Vatna- jökli. „Hvergi er minnst á þetta atriði, hvorki í matsskýrslunni né fylgiriti um jarðfræði stíflustæðis," sagði Guð- mundur. Vísaðábug Þessum meginniðurstöðum Guð- mundar visa verkfræðingar og hönnuð- ir stíflunnar alfarið á bug. Bæði Sigurð- ur Þórðarson hjá VST og Pálmi Jóhann- esson frá erlenda verkfræðifyrirtækinu Harza, sem unnið hefur við stíflugerð lengi erlendis, sögðu efasemdir Guð- mundar ekki á rökum reistar. Sigurður sagði að í bakskýrslum kæmi fram mat á áhættu vegna mannvirkja og eins í undirskýrslu vegna hugsanlegs flóðs vegna stíflurofs. Eins benti Pálmi á að sú tegund stiflu sem þarna væri áform- Rýnirinn Guðmundur E. Sigvaldason rýnir hér /' skýrslu um umhverfismat. Hann telur menn ekki geta sett fram viðunandi áhættumat fyrir virkjunina á grundvelli þeirra rannsókna sem fyrir liggja. að að byggia væri þannig að hún myndi þola jarðhræringar langt umfram það sem ætla mætti að yrðu á þessu svæði. Stíflan ætti að þola allt að 7 stiga skjálfta á Richter. Sigurður Amalds, verkefnisstjóri umhverfismatsins, sagð- ist í samtali við DV í gær geta tekið und- ir með Pálma að þessar stíflur væru óvenju sterkar og sveigjanlegar, hann hefði sjálfur tekið þátt i að byggja eina slíka í Taílandi á sínum tíma. í skýrslu Landsvirkjunar um um- hverfismat vegna Kárahnjúkavirkjunar er lítið rætt um hættu vegna jarðelda eða landskjálfta. Skýrslan gefur engar upplýsingar um sögu og goshegðun Snæfells, næstu eldstöðvar við virkjun- arsvæðið, enda hafa nær engar rann- sóknir verið gerðar á Qallinu. „itarlegt líkindamat, byggt á bestu fánlegum gögnum og sérfræðilegri túlkun gagna um áhættu af völdum eldvirkni og land- skjálfta, er nauðsynleg forsenda ákvarð- anatöku á grundvelli umhverfismatsins. Slíkt líkindamat hefur ekki verið gert. Forsendur ákvarðanatöku eru því ekki fyrir hendi,“ sagði Guðmundur. Alls 16 bergsprungur era undir gljúfr- inu samkvæmt athugunum. Yfirborð Áhugamenn Á fundinn mættu margir áhugamenn um hálendið, þar á meðal þessir tveir, Hjörleifur Guttormsson og Ólafur F. Magnússon. Dimmugljúfradyngju er 20 metrum neð- ar í vesturvegg gljúfursins en í austur- veggnum. Það gæti bent til allt að 20 metra misgengis um sprunguskarann í gljúfurbotninum og sagði Guðmundur: „Sprangur í stíflustæði og botni uppi- stöðulóns era mjög alvarlegt mál, sem krefst vandlegrar umfiöllunar sérfræð- inga sem geta gefið umsögn um hver áhrifin eru á grunnforsendur virkjunar- innar. Þungi stíflumannvirkja kann að opna sprungur og valda vatnstapi úr uppistöðulóni. Þeir sérfræðingar, sem ég hefi leitað til, telja síst minni hættu á að vatnsþrýstingur, sem byggist upp bak við stífluna muni valda jarðskjálfta- virkni, manngerðir jarðskjálftar, með hugsanlegri veikingu á undirstöðum stifhmnar." Sigurður Amalds, verkfræðingur hjá Hönnun og verkefhisstjóri umhverfis- matsins, segir að á fúndinum i gær hafi efasemdum Guðmundar verið svarað og málið útskýrt. í samtali við DV í gær- kvöld tók Guðmundur undir að umræð- an hefði verið gagnleg, en meginatriðin i rýni hans á matsskýrsluna stæðu þó eftir óhögguð. -BÞ Átökin á ársfundi Alþýðusambandsins: Landsbyggðin varð undir DV-MYND E.ÓL Stillt yfirborð Undir stilltu yfirborði ASÍ kraumaði mikil valdabarátta. Hér stinga saman nefjum Pétur Sigurðsson, Eiríkur Stefánsson og Grétar Þorsteinsson. Sprengjuvélin: Farin vestur Breiðþota bandaríska flugfélagsins United Airlines, sem nauðlenti á Kefla- vikurflugvelli í fyrradag vegna sprengjuhótunar, hélt vestur um haf klukkan 20 í gærkvöld með 296 farþega og 12 manna áhöfn. Upphaflega átti vélin að yfirgefa Keflavíkurflugvöll klukkan 15 í gær en þegar verið var að færa vélina að flug- stöðvarhúsi sprakk framhjól og seink- aði brottfór vegna þess. Að sögn Jóhanns Benediktssonar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli, tek- ur bandaríska alríkislögreglan, FBI, við vélinni vestra og annast rannsókn málsins. Engin sprengja fannst við leit í vélinni á Keflavíkurflugvelli en vara- litur, sem hótunin var skrifuð með á salerni vélarinnar, fannst. „Það er eðli- legur framgangur málsins að FBI taki við rannsókninni. Okkar hlutverk var fyrst og fremst að tryggja öryggi far- þega og að rannsóknarvettvangi væri ekki spillt," segir Jóhann Benedikts- son sýslumaður. -aþ Eftir miklar deilur, valdabaráttu og þref á ársfundi Alþýðusambands i íslands í gær varð niðurstaðan sú að Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðu- sambands Vestfjarða, bauðst til að víkja sæti í miðstjórn sambandsins svo hægt yrði að finna þar sæti fyr- ir Guðmund Gunnarsson, formann : Rafiðnaðarsambands íslands. Til- ; laga um að fjölga um tvo í miðstjórn var felld en samþykkt að fjölga varamönnum um tvo. Með tilkomu fomanns Rafiðnaðar- ; sambandsins í miðstjóm var ljóst aö | Starfsgreinasamband Islands yrði að sjá af einum 7 fulltrúa sinna úr mið- stjórninni. Hvorki landsbyggðarmenn né „Flóamenn" svokölluðu af höfuð- borgarsvæðinu vora tilbúnir að gefa 1 eftir sæti baráttulaust, en niðurstað- an varð sú að eftir að Pétur bauðst til að víkja hafa „Flóamenn" innan Starfsgreinasambandsins 4 menn í miðstjórn en landsbyggðin 2 menn. Krafa Rafiðnaðarsambandsins um í varamann í miðstjórn var hins vegar leyst með því að fjölga fulltrúum þar. „Við erum mjög ósáttir við þessa niðurstöðu og rýran hlut lands- byggðarinnar í miðstjóm. Heilu landsvæðin eiga engan fulltrúa í miðstjórninni, s.s. Norðurland vestra, Vestfirðir og Suðurland, og innan Starfsgreinasambandsins er enginn fulltrúi á öllu svæðinu frá Reykjavík til Akureyrar. Þetta er óásættanlegt, ekki síst með tilliti til þess alvarlega atvinnuástands sem ríkir á landsbyggðinni,“ segir Aðal- steinn Baldursson, formaöur Verka- lýðsfélags Húsavíkur. Forusta ASÍ var harðlega gagn- rýnd á fundinum fyrir „valdabrölt" í stað þess að fela fleirum forustu- störf innan sambandsins. I kjöri varaforseta ASÍ til tveggja ára var kosið milli Halldórs Björnssonar, fráfarandi varaforseta, og Óskars Stefánssonar, formanns bifreiða- stjórafélagsins Sleipnis, og hlaut Halldór 73% atkvæða og yfirburða- kosningu. -gk Kostnaðaraukning Kjarasamningar sem Reykjavíkur- borg hefur gert við starfsfólk sitt í vetur munu kosta borgina um 1848 milljónir króna þegar á þessu ári. Þar af kosta samningar við grunnskólakennara 836 milljónir króna á þessu ári en 1567 milljónir króna miðað við heilt ár. Sjóvá hagnast Sjóvá-Almennar högnuðust um 208 milljónir króna á fyrstu þremur mán- uðum ársins eftir skatta. Stjóm félagsins segir afkomu af vá- tryggingarekstri hafa batnað eftir slæma afkomu undanfai’inna ára, einkum í ökutækjatryggingum. Gamlar rannsóknir Gögn Hafrann- sóknastofnunar rnn náttúrlegan dauða þorsks era frá áran- um 1930 til 1964. „Það er ótrúlegt að í svari Hafrannsóknastofn- unar kemur fram að þeir styðjast við gögn frá árunum 1930 til 1964 þegar þeir tala um náttúrlegan dauða fisks,“ segir Grétar Mar Jónsson, forseti FFSÍ. - Fréttablaöið greindi frá. Skuldasúpa Minnihluti Vestmannaeyjalistans í bæjarstjóm Vestmannaeyja segir fjár- hagsstöðu bæjarins svo afleita að ekki megi við svo búið standa og sat hjá við afgreiðslu ársreikninga bæjarfélags- ins. Skuldir hafi vaxið úr 769 þúsund krónum á hvem íbúa árið 1999 í 969 þúsund krónur árið 2000, eða um 26%. - Fréttablaðið greindi frá. Leiga á þyrlu? Ekki liggur ljóst fyrir hvenær rann- sókn flugslysanefiidar á þyrlu Land- helgisgæslunnar, TF-SIF, mun ljúka. Þyrlan stórskemmdist við nauðlend- ingu sl. fóstudagskvöld á Snæfellsnesi. Skúli J. Sigurðarson, formaður rann- sóknamefndar flugslysa, segir mögu- legt að leigja þurfi þyrlu á meðan. Kæra Ólaf Félagið Ísland-Palestina hefur sent Blaðamannafélagi íslands kæra og ósk um álit siðanefiidar BÍ á fréttaflutningi Ólafs Sigurðssonar, fréttamanns Sjón- varpsins, frá ísraei. Telja samtökin fréttaflutninginn einhliða áróður ísra- elsstjómar. Húsbréfálán hækka Reglugerðarbreyting sem ríkis- stjómin samþykkti í gærmorgun kveð- ur á um að húsbréfalán stórhækka og veðlánaflutningar verða heimilaðir. Hámarkshúsbréfalán verður 9 milljón- ir króna og hækkar um allt að 1.600.000 krónur. Kárahnjúkavirkjun I gær vora opnuð verðtilboð í verk- fræðiþjónustu fyrir Kárahnjúkavirkj- un að undangengnu forvali. Tilboð bárast frá fimm aðilum og var Verk- fræðistofa Sigurðar Thoroddsen og samstarfsaðilar með lægsta tilboð upp á 1.153 milljónir króna. Hæsta tilboðið nam 2.432 milljónum króna. Fjármálaráðherrar fúnda Fjármálaráðherr- ar Norðurlanda halda reglulegan fund sinn í Helsinki nk. fóstudag, l. júní. Einnig verða á fund- inum ráðherrar frá Færeyjum og Álandseyjum. Geir H. Haarde fjármálaráðherra situr fundinn fyrir íslands hönd. -H.Kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.