Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001 I>V 7 Fréttir Bæjarstjóraefni D-lista á Nesinu valið í prófkjöri: Fjórir orðaðir við framboð - er að skoða málið, segir formaður kjördæmisráðs Sigurgeir Sigurðsson, bæjar- stjóri í Seltjarnarnesbæ, verður búinn að sitja i 40 ár sem sveitar- og bæjarstjóri á Nesinu þegar kjör- tímabilinu lýkur í sumarbyrjun á næsta ári. Allt er í óvissu um arf- taka hans en ákveðið er að efna til prófkjörs í Sjálfstæðisflokknum í haust þar sem formaður kjördæm- isráðs Sjálfstæðisflokksins er ofar- lega á blaði. Talsverður ágreiningur var innan flokksins um hvort aug- lýsa ætti stööu bæjarstjóra eða efna til próf- kjörs. Niðurstað- an varð sú að efna til prófkjörs 3. nóvember og mun sá sem mest fylgi hlýtur í oddvitastöðu jafnframt verða bæjarstjóraefni listans. Með prófkjöri er einnig ljóst að væntan- legt bæjarstjóra- efni verður inn- anbæjarmaður eins og prófkjör gerir ráð fyrir. Að sögn Jóns Hákonar Magn- ússonar, vara- manns í bæjar- stjórn, hefur enginn tilkynnt sig enn þá. Nokkur nöfn hafa þó flogið fyrir í umræðu um væntan- lega þátttakendur i slíku próf- kjöri. Þar má m.a. nefna Ásgerði Halldórsdóttur, viðskiptafræðing og formann nýs kjördæmisráðs suðvestur-kjördæmis, Jónmund Guðmarsson stjórnmálafræðing, Ingu Hersteinsdóttur verkfræðing og Maríu Ingvadóttur. Ásgerður Halldórsdóttir segist í samtali við DV enn ekki vera búin að gera upp hug sinn. „Ég er enn að hugsa málið þar sem ég er i Jónmundur IVlaría Guðmarsson. Ingvadóttir. góðri stöðu í dag. Maður er þó búinn að starfa i pólitíkinni á Nes- inu sl. 20 ár og mjög mikið síðustu 12 árin. Spurningin er því hvort maður vill fara í slaginn eða vera áfram í bakvarðasveitinni. Ég er bara að meta kosti og galla við þetta allt saman.“ Sigurgeir Sigurðsson verður bú- inn að sitja í tíu kjörtímabil á 40 árum þegar hann stendur upp úr stólnum á næsta ári og því með langlengstan starfsferil bæjar- stjóra að baki. Næstur honum mun koma Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri i Bolungarvík. Sigur- geir sat reyndar fyrst í hrepps- nefnd Seltjarnarneshrepps og varð síðan sveitarstjóri. Eftir að hrepp- urinn hlaut kaupstaðarréttindi árið 1969 varð Sigurgeir fyrsti bæj- arstjórinn. Hann er jafnframt sá eini sem þar hefur starfað í 32 ára sögu kaupstaðarins. Ekki þykir áhlaupaverk að feta í fótspor svo vinsæls bæjarstjóra sem Sigurgeir hefur verið. „Ég myndi halda að það yrði erfitt til að byrja með. Þá má líka búast við breytingum með nútímalegri stjórnunarháttum. Einnig má gera ráð fyrir uppstokkun á skipuriti bæjarins með nýju fólki,“ segir Ás- gerður Halldórsdóttir. -HKr. DV-MYND BRINK Festur upp á þráð! Það var netamaður sem dyttaði að skipi í slippnum á Akureyri í vikunni. Ekki var þetta þó hefðbundinn netamaður sem þarna var á ferð heldur loftnetamaður! Sigurgeir Sigurðsson. Ásgerður Halldórsdóttir. lokcivikct! Verslunin hættir. Allt á að seljast. Frábært verð. Álnabúðin Háaleitisbraut 58-60 S. 588 9440. Hálsmen eða prjónn, I4k gull. Verö 4.200 Trúlofunar- hringir Gott verð, mikið úrval tbn Sipunbson Skartgripaverslun, Laugavegi 5,sími 551 3383. Spönginni.Grafarvogi, sfmi 577 1660. 13.000 kr Lesendum DV býðst einstakt tækifæri á ferð til London með lágfargjaldaflugfélaginu Go. Fargjaldið kostar aðeins 13.000 krónur báðar leiðir með sköttum. Safnið merkjum Það sem lesendur þurfa að gera er að safna 4 sérstökum Go merkimiðum sem birtast í blaðinu næstu daga* og bóka flug dagana 29. maí til 4. júní. Tilboðið gildir fyrir flug á tímabilinu 2. júní til 20. júlí. Go flýgur til London alla daga vikunnar. * Go merkin birtast í DV frá 29. maí til 1. júní 2001. go Hvernig á að bóka flug Farðu á heimsíðu Go á slóðina www.go-fly.com. Undir „what s new" er krækjan „offers" og þar er DV-tilboðið. Sláðu inn aðgangsorðið sumarleyfi og bókaðu flug. Við innritun í Leifsstöð þarf að sýna öll 4 Go merkin sem birtast í DV dagana 29. maí til 1. júní til staðfestingar á tilboði. Ef ekki eru laus tilboðssæti þann dag sem þú óskar þér mælum við með því að þú hafir nokkurn sveigjanleika í vali á ferðadögum. Góða ferð með Go og DV! ódýri ferðamátinn til london |F Samkvæmt skilmálum • 350 kr. kostnaður v/greiðslukorts • Flogið er til Standstedflugvallar í London Skilmálar Lágmarksdvöl 2 nætur. Tilboðið gildir ekki á sunnudögum og föstu- dögum. Ekki er hægt að breyta bókuðu flugi né fá það endurgreitt. Merkin gilda fyrir 2 sæti. Heimferð er fyrir 20. júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.