Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Qupperneq 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001
DV
Yasser Arafat
Vill ráöstefnu um málefnin fyrir botni
Miöjarðarhafs.
Enginn árangur
Fundur sendinefnda Palestínu-
manna og ísraela til að binda enda
á átta mánaða átök þjóðanna bar
engan árangur og hefur annar fund-
ur verið boðaöur á fimmtudaginn.
Enn er sami ásteytingarsteinninn
sem kemur í veg fyrir uppbyggileg
samskipti á milli þjóðanna.
Israelar standa við þá kröfu sína
að Palestinumenn geri sitt til að
stöðva átökin.
Palestínumenn, sem og erlend
ríki, fara fram á að ísraelar stöðvi
landnám sitt í landi Palestínu. ísra-
elska ríkisstjómin ákvað hins vegar
í gær að heimila byggingu 700 nýrra
húsa þrátt fyrir alþjóðlega andstöðu
og gegn alþjóðlegum sáttmálum.
Yasser Arafat hefur farið fram á
alþjóðlega ráðstefnu um ástandið
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Óþekktir
ættbálkar
Rannsóknarleiðangur á vegum
brasilískra yfirvalda fann ummerki
um a.m.k. 17 nýja indíánaættbálka
djúpt inni í Amazon-frumskóginum
sem ekki var vitað um áður.
Leiðangurinn gerði enga tilraun
til að hafa samband við ættbálkana.
Stór svæði frumskógarins hafa ver-
ið friðuð en ólöglegur námugröftur,
veiðiþjófnaður og skógarhögg eyði-
leggur sífellt meira land hvar frum-
stæðir ættbálkar Amazon lifa.
Nýlega gafst loks ættbálkur
Djapas-indíána upp á gömlum lífs-
háttum sínum vegna minnkandi
landsvæðis og vinna þeir nú fyrir
sér sem veiöimenn og verkamenn
fyrir „þróaðri" ættbálk indíána fyr-
ir fót og vestrænan vaming.
Búa sig undir leit
Hermenn á Filippseyjum leita nú
mannræningja og 20 gísla þeirra.
Gíslunum hefur veriö hótaö lífláti.
Gíslarnir ófundnir
Yfirvöld á Filippseyjum lýstu því
yfir í morgun að uppreisnarmenn
og gíslarnir 20, sem rænt var frá
ferðamannaeyju um helgina, væru
enn ófundnir. Vonast er til að leitin
að þeim beri árangur í dag.
Samtök Abu Sayyaf lýstu yfir
ábyrgð á ráninu á þremur Banda-
ríkjamönnum og sautján Filippsey-
ingum frá ferðamannastöðunum. I
gær hringdi talsmaður uppreisnar-
manna og hótaði því að gíslarnir
yrðu teknir af lífi gerði herinn árás.
Samtök uppreisnarmanna vilja
stofna óháð múslímskt ríki á suður-
hluta Filippseyja.
Meirihluti með
ákæru á Wahid
Tveir stærstu flokkarnir á
indónesíska þinginu hvöttu í morg-
un til þess að forseti landsins, Ab-
durrahman Wahid, yrði leiddur fyr-
ir ríkisrétt vegna spillingar og van-
hæfni.
Flokkarnir tveir eru með meiri-
hluta á þingi. Gert er ráð fyrir að
umræðan á þinginu haldi áfram í
allan dag.
Yfir eitt þúsund hermenn og lög-
reglumenn gættu í morgun þing-
hússins í Jakarta. Nær fimm þús-
und stuðningsmenn forsetans
reyndu að komast inn í þinghúsið
og komust nokkrir þeirra í gegnum
op á girðingu.
Margir stuðningsmannanna
höfðu komið frá Java sem er heima-
hérað forsetans. Voru þeir vopnaðir
bareflum. Hótuðu stuðningsmenn-
imir blóðbaði yrði forsetinn hrak-
inn frá völdum. Fyrr í morgun kom
til átaka milli stuðningsmanna Wa-
Stuöningsmaöur Wahid
Einn stuöningsmanna
Indónesíuforseta hvetur til baráttu.
hids og öryggissveita á austurhluta
Java.
Myndaðar hafa verið svokallaðar
sjálfsmorðssveitir sem hafa heitið
því að berjast til síðasta manns til
þess að verja forsetann. Hafa sveit-
imar einnig hótað að taka pólitíska
keppinauta Wahids af lífi.
I gær voru hermenn og lögreglu-
menn á verði við járnbrautarstöðv-
ar og biðstöðvar langferðabifreiða
og gerðu leit á þeim sem komu frá
austurhluta Java. Hald var lagt á
hnífa, sveðjur, spjót og önnur vopn.
Wahid lét sér nægja á mánudag-
inn að biðja stuðningsmenn sína
um að fara eftir lögum og reglum.
Hann hefur ekki fordæmt ofbeldi
stuðningsmanna sinna.
Ákveði þingið að leiða forsetann
fyrir ríkisrétt mun málið fara áfram
til hæstaréttar sem getur hafið um-
fjöllun þegar hann kemur saman í
ágúst næstkomandi.
Að bóna risaskó
Indverskur verkamaöur bónar hér risa-inniskó i borginni Agra á Indlandi. Inniskórinn er úr leöri og vegur lítil 45 kíló
sem gerir hann frekar óþjálan á fæti, fyrir utan stæröina. Gerö inniskósins tók ekki nema um 3 mánuöi og var geröur
af skósmiönum Abdul Rashid Warsi sem stefnir á aö fá skóinn skráðan í Heimsmetabók Guinness.
Þjóðstjórn Makedóníu
bjargað í bili
Flokkar slavneskra og albanskra
þjóðarbrota í þjóöstjórn Makedóníu
hafa komist að samkomulagi um aö
leggja til hliðar deilur sínar um
leynilegt friðarsamkomulag al-
bönsku flokkanna við albanska
skæruliða. Þess í stað ætla þeir að
vinna saman við að reyna stöðva
uppreisn albanskra skæruliða og
koma í veg fyrir enn eina borgara-
styrjöldina á Balkanskaganum.
Javier Solana, yfirmaður utanrik-
ismála hjá Evrópusambandinu, var
sáttasemjari í málinu, en sam-
kvæmt samkomulaginu hefur þjóð-
stjórnin gefiö sér tíma til 15. júní til
að ná sýnilegum árangri.
Leynilegt friðarsamkomulag
skæruliða og stjórnmálaflokka al-
banskra þjóðarbrota var harðlega
gagnrýnt af bæði slavneskum
Á flótta undan átökum
Taliö er aö um 10.000 manns séu
innikróaöir vegna átakanna.
stjórnmálaflokkum sem og Evrópu-
sambandinu og var hætta á að þjóð-
stjórn Makedóníu leystist upp.
Upphaf bardaganna er til komið
vegna kvartana albanska minni-
hlutans að komið sé fram við þá
eins og annars flokks fólk í
Makedóníu þar sem fólk af slav-
neskum uppruna eru í meirihluta.
Forystumenn skæruliða hafa sagt
að aðeins samkomulag þeirra viö al-
banska flokka þjóðstjórnarinnar
geti komið á friöi, annars verði
borgarastyrjöld að raunveruleika.
Eins og venjulega koma átökin
harðast niður á óbreyttum borgur-
um og talið aö um 10.000 manns séu
innikróaðir vegna átakanna.
Vestræn ríki hafa fordæmt að-
gerðir skæruliðanna.
Bannað að bera vitni
Bandaríska sendi-
ráðið hefur tilkynnt
frönskum dómara,
sem rannsakar
hvarf Frakka í
Chile, að Bandarík-
in vilji ekki að fyrr-
verandi utanríkis-
ráðherra Bandaríkj-
anna, Henry Kissinger, verði kallað-
ur í vitnastúku. Dómarinn vill að
Kissinger beri vitni um meintan
þátt Bandaríkjanna í morðum á
stjórnarandstæðingum í Chile í
stjórnartíð einræðisherrans Au-
gustos Pinochets.
Njósnir í Svíþjóð
Ofursti og ráðgjafi sænska hers-
ins eru grunaðir um brot sem varða
öryggi ríkisins. Sænska öryggislög-
reglan yfirheyrði báða mennina í
gær.
Rólegt í Oldham
Hundruð lögreglumanna voru á
götum Oldham í Englandi í gær-
kvöld. Var lögreglan viðbúin róst-
um fjórða kvöldið í röð en engin
átök urðu milli hvítra unglinga og
ungmenna af asískum uppruna.
Sönnunargögn athuguð
Breska lögreglan hefur lagt fram
til rannsóknar sönnunargögn gegn
fjórum unglingum, 14 til 16 ára, sem
grunaðir eru um morðið á blökku-
drengnum Damilola í London fyrir
sex mánuðum.
Frestar fyrirlestrum
Bill Clinton,
fyrrverandi Banda-
rikjaforseti, sem
verið hefur á fyrir-
lestraferð um
heiminn, frestaði í
gær ferð sinni um-
Japans vegna and-
láts dóttur æsku-
vinar síns. Clinton
hafði meðal annars ráðgert fund
með nýjum forsætisráðherra Jap-
ans, Junichiro Koizumi.
Dómari í Úkraínu ákærður
Saksóknarinn í Kiev í Úkraínu
hefur ákært dómara sem úrskurð-
aði að stjórnarandstöðuleiðtoga
skyldi sleppt úr fangelsi.
Kosningasvindl á Ítalíu
Leiðtogi Norður-
bandalagsins á
Ítalíu, Umberto
Bossi, fullyrti í
gær að víðtækt
svindl hefði átt sér
stað í þingkosning-
unum á Ítalíu í
þessum mánuði.
Likti hann því við
það sem gerðist í einræðisríkjum
Suður-Ameríku. Sagði Bossi starfs-
menn á hundruðum kjörstaða ekki
hafa greint frá hvernig kosningar
hefðu farið fram á kjörstöðum
þeirra. Bossi fullyrti að samtök
hans hefðu tapað þúsundum at-
kvæða þar sem atkvæði sem voru
gild hefðu verið ógilt.
Kennsl borin á lík
Múslímar í Bosníu söfnuðust í
gær saman í Visoko til að leita ætt-
ingja sinna sem saknað hefur verið
síðan í stríðinu 1992 til 1995. Grafm
höfðu verið upp um 150 lík úr fjölda-
gröf sem fannst fyrr á þessu ári.