Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Qupperneq 11
11 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001_______________________________________________________________________________________________ r>V Útlönd Frá réttarhöldunum Sakborningar eiga yfir höföi sér dauöarefsingu. Menn Bin Ladens fundnir sekir um sprengjuárásir Bandarlkin vöruöu í gær þegna sín erlendis við mögulegum árásum samtaka í tengslum við hryðju- verkamanninn Osama Bin Laden eftir að fjórir samstarfsmanna hans voru fundnir sekir um sprengju- árásir á tvö bandarísk sendiráð í Afríku 1998. 224 létu lífið í sprengju- árásunum og 4600 særðust. Tveir samstarfsmanna Bin Ladens voru fundir sekir um beina aðild að sprengjuárásunum í Keniu og Tansaníu. Þeir eiga yfir höfði sér dauðarefsingu. Hinir tveir geta átt von á lífstíðar- fangelsi. Réttarhöldin yfir fjórmenn- ingunum hafa staðið yfir í þrjá mánuði. Talið er að Osama Bin Laden dvelji í Afganistan. Hann er grunað- ur um fleiri hryðjuverk gegn banda- rískum þegnum. Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa lofað hálfum milljarði króna fyrir upplýsingar um hann. Hluti njósnakerfisins Myndin er af hluta Echelon- njósnakerfisins í Bretlandi. Krefjast verndar vegna Echelons- hlerananna Danskir þingmenn krefjast sam- eiginlegra reglna Evrópusambands- ins til vemdar borgururum vegna hlerana Echelons-njósnakerfisins. Evrópuþingið hefur nú staðfest að kerfið sé til og að í gegnum það sé fylgst með tölvupósti, símtölum og öðrum samskiptum. Bandarískir embættismenn hafa alltaf neitað að staðfesta tilvist kerf- isins sem talið er að bandaríska þjóðaröryggisráðið reki í samstarfi við leyniþjónustur í Bretlandi, Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. í skýrslu Evrópuþingsins segir að kerfinu hafi verið komið á laggirnar eftir seinni heimsstyrjöldina. Það hafi verið notað til að hlera simalín- ur og samtöl á dögum kalda stríðsins. Hlutverk njósnakerfisins í dag er að fylgjast með hryðjuverkamönn- um, fikniefnakóngum og óvinveitt- um ríkisstjórnum. En samkvæmt skýrslu Evrópuþingsins beinast njósnirnar fyrst og fremst að sam- skiptum einstaklinga og viðskiptum. Ekki var hægt að staðfesta að iðnað- amjósnir hefðu verið stundaðar. Stærsti ósigur íhaldsins síðan 1931 Ástæöa til að brosa Tony Blair getur veriö brosmildur þessa dagana þar sem skoöanakannanir spá Verkamannaflokknum stórsigri í kosningunum í næsut viku. Nýjasta skoðanakönnun breska fyrirtækisins ICM gef- ur til kynna að Verkamanna- flokkur Tonys Blairs hafi nú 19 prósentustiga forskot á að- alkeppinautinn, íhaldsflokk- inn, með William Hague í broddi fylkingar. Þetta er mikið áfall fyrir íhaldsflokkinn þar sem ICM sér um skoðanakannanir fyrir Ihaldsflokkinn og hafa skoð- anakannanir þess ávallt verið Verkamannaflokknum óvil- hallar. Hins vegar virðast yfir- burðir Verkamannaflokksins ekkert ætla að dvina og stefn- ir í stórsigur flokksins ef marka má skoðanakannanir, sem sumar sýna 25 prósentu- stiga mun á stóru flokkunum tveim. Allar skoðanakannanir benda til þess að stuðningur við íhaldsflokkinn hafi ekki verið minni siðan árið 1931, og aðeins skuggi af því þegar járn- frúin Margaret Thatcher var við völd á niunda áratugninn. Kosningabarátta íhalds- flokksins virðist öll meira og minna hafa sprungið í andlitið á þeim. Hague hefur einbeitt sér að Evrópumálum þar sem talið var að Blair myndi lítið vilja ræða þau þar sem hann er mun Evrópusinnaðri en meirihluti bresks almennings. Blair hefur hins vegar rætt Evrópumál óhræddur. Einnig hefur það komið á daginn að kjósendur setja flest annað á odd- inn en Evrópumál og inngöngu í myntbandalag, s.s. félagslega þjón- ustu og menntamál. Hague rær nú lífróður og hefur m.a. annars kallað á tvo fyrrverandi forsætisráðherra. Margaret Thatcher birtist í seinustu viku og ræddi skörulega um Evrópuslagsíðu Blairs. John Major hefur nú bæst við. Hann ásakar Verkamanna- flokkinn um lygar og sýndar- mennsku, samkvæmt frétt á Reuters, og virðist litlu öðru hafa að bæta við kosningabaráttuna sem lýkur með kosningum 7. júní. Afgönsk kona Afgönskum konum er þannaö aö vinna og bannaö aö klæöast þröngu. Banna konum að vinna fyrir hjálp- arstofnun SÞ Fulltrúar Matvælahjálpar Samein- uðu þjóðanna, SÞ, greindu frá því í gær að stjórn Talebana í Afganistan bannaði stofnuninni að ráða konur til að annast nauðsynlega könnun vegna dreifingar á brauði til nær 300 þúsund íbúa í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Nauðsynlegt er að kon- ur annist könnunina þar sem sam- kvæmt reglum Talebana mega karl- ar ekki fara inn á heimili til að taka viðtöl við konur. Talebanar hafa einnig hert reglur um klæðaburð kvenna. Hafa þeir bannað kufla sem sýna vaxtarlag þeirra. Eina leyfilega utanyfirflíkin er burqa. I því klæðisplaggi er kon- an eins og í tjaldi með net fyrir aug- unum. Stjórn Talebana hafði frétt að nokkrar konur hefðu gengið í þrengri kufli eins og konur í öðrum löndum múslíma ganga í. Trúarlög- reglan í Afganistan lét á mánudag- inn brenna yfir 43 þúsund myndir af konum. Bannað er að taka mynd- ir af lifandi verum í Afganistan en myndir af körlum og dýrum sleppa fram hjá banninu. Kia Pride 1,3, nýr sýningarbíll, bsk. Verð 799 þús. kr. Suzuki Vitara 1,6, nskr. 04.96, ek. 84 þ. km, bsk. Verð 890 þús. kr. VW Goff 1,4, nskr. 06.95, ek.103 þ. km, bsk. Verð 630 þús. kr. Toyota Corolla 1,6, nskr. 06.98, ek. 43 þ. km, ssk. Verð 1090 þús. kr. Renault Mégane RT 1,6, nskr. 08.97, ek. 59 þ. km, ssk. Verð 960 þús. Kia Sephia LS 1,5, nýr sýningarbíll, bsk. Verð 1290 þús. kr. Daihatsu Applause XI 1,6, nskr. 03.99, ek. 30 þ. km, ssk. Verð 1090 þús. kr. MMC Lancer Wagon 4x4 1,6, nskr. 10.96, ek. 65 þ. km, bsk. Verð 920 þús. kr. Notaðir bílar Þar sem þú færð notaða bíla á kóresku verði! Suzuki Baleno Wagon 4x4 1,6, nskr. 05.98, ek. 61 þ. km, bsk. Verð 990 þús. kr. Renauit Cllo RT 1,4, nskr. 07.94, ek. 57 þ. km, ssk. Verð 490 þús. kr. KIA KIA ÍSLAND FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI • SIMI 555 6025 • www.kia.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.