Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Síða 28
NISSAN ALMERA
www.ih.is
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001
Fundu furðudýr:
Torkennileg
græn slanga
- reyndist burstaormur
Haukur Ingi Ágústsson, 10 ára, var
ásamt öðrum krökkum í fjöruferð fyr-
ir neðan golfvöllinn á Korpúifsstöðum.
Rak hann þá augun i einhverja græna
torkennilega skepnu, hálfgrafna í
sandinn. Þegar betur var að gáð virtist
kvikindið, sem var um 40-50 sentí-
metra langt, vera með einhverju lífs-
marki. Sýndist þeim að um einhvers
konar slöngu væri að ræða með út-
stæðum brúnum broddum. Var gripið
til þess ráðs að grafa hana upp og setja
í poka til frekari skoðunar. Þar sem
enginn kannaðist við kvikindið var
farið með það á Náttúrufræðistofnun
íslands til rannsóknar. Niðurstaðan
var sú að hér væri hvorki um krókódíl
né eiturslöngu að ræða heldur óvenju-
stóran og mikinn burstaorm. Venju-
lega eru þeir ekki miklu stærri en ána-
maðkar, oftast ekki yflr 10 sentímetrar
að lengd og gjaman hafðir til beitu á
árum áður. -HKr.
%'j» 'fe. 'i«t OW. 'm DánjTM.' ftn’ M ‘tojTfi
Gengi deCODE:
Aftur á uppleið
Gengi hlutabréfa í deCODE genetics
hefur stigið undanfama daga og komst
í gær í fyrsta sinn síðan i mars yfir 8.
Gengið mældist 8,08 á Nasdaq eftir lok-
un markaða í gær og hafði þá hækkað
um rúm 8% frá deginuni áður. -HKr.
Árásin á Grettisgötu:
Öllum sleppt í
hnífstungumálinu
Lögreglan í Reykjavik sleppti í gær-
kvöldi tveimur mönnum sem grunaðir
vora um aðild að að hafa stungið karl-
mann um þrítugt í síðuna á Grettis-
götu á mánudagskvöld. Sá maður hef-
ur legið á sjúkrahúsi en er þó ekki í
lífshættu.
Samkvæmt upplýsingum DV í
morgun viðurkenndi hvoragur mann-
anna að hafa stungið þann þriðja.
Ástæða þótti hins vegar ekki til að fara
fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Tveir
aðrir höfðu verið handteknir áður
vegna málsins en þeim var einnig
sleppt. Ekki liggur fyrir hver er ástæða
þess að ráðist var á manninn með
hnífi. Lögreglan hefur engu að síður
náð að ræða við hann. Ekkert liggur
fyrir um að fikniefhi tengist málinu.
Rannsókn verður haldið áfram. -Ótt
DV-MYND HILMAR PÖR
Græn og ógeösleg furöuskepna
Haukur Ingi Ágústsson, 10 ára, er hér meö kvikindið ógurlega ásamt Margréti Önnu, systur sinni, Hrafnhildi Halldórsdóttur, vinkonu þeirra, og Emil Agnars
Sumarliðasyni.
Mikil áhrif verkfalls á Landspítala - háskólasjúkrahús:
Sjúklingarnir heim
- hundruð hjúkrunarfræðinga í verkfalli - um 250 rúmum lokað
Um 250 rúmum á Landspítala - há-
skólasjúkrahúsi, eða um 25 prósent af
legurýminu, hetúr verið lokað vegna
tveggja sólarhringa verkfalls Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga sem hófst
á miðnætti í nótt. í gær var göngu-
deildum lokað, nema þeim sem veita
neyðarþjónustu svo sem fyrir sjúk-
linga með krabbamein og aðra ilikynja
sjúkdóma. Þá verða bráðamóttökur og
slysadeild starfræktar eins og venju-
lega. Loks verður öldraðum á hjúkrun-
ardeildum veitt þjónusta, sem og sjúk-
lingum á geðdeild. Samtals verða ell-
eíú deildir sjúkrahússins lokaðar með-
an á verkfallinu stendur og dregið
verulega úr starfsemi margra annarra.
Félagsdómur hafnaði i gær þeirri
kröfu fjármálaráðuneytisins að verk-
fallið væri ólöglega boðað. Verkfall
hjúkrunarfræðinga var því úrskurðað
lögmætt.
Að sögn Önnu Stefánsdóttur hjúkr-
unarforstjóra hafa 320-350 hjúkrunar-
fræðingar lagt niður störf. Alls starfa
1140 hjúkrunarfræðingar á Landspít-
ala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi og
við Hringbraut. Þeir sem starfa í verk-
fallinu gera það samkvæmt auglýstum
undanþágulista.
Anna sagöi verkfallið hafa þau áhrif
að öll valkvæð starfsemi legðist niður.
Aðspurð hvort senda yrði sjúklinga
heim vegna verkfallsins kvað Anna
svo vera. Hún kvaðst ekki geta til-
greint nákvæmlega þá tölu. En verk-
fallið hefði þau áhrif að fólk þyrfti að
fara heim og ekki hefði verið tekið inn
af biðlistum það sem af væri vikunni
þar sem verkfallið hefði verið yfirvof-
andi.
„Við höfum gert eins lítið af því eins
og mögulegt hefúr verið að taka fólk
inn nú síðustu dagana," sagði hún.
„Þegar verkfaUinu lýkur á fimmtudag
byrjum við strax að taka inn aftur.“
Herdís Sveinsdóttir, formaður Fé-
lags Islenskra hjúkrunarfræðinga,
sagði við DV i morgun að mikið bæri
á milli í kjaradeilu hjúkranarfræðinga
og ríkisins hvað varðaði laun. Að
mestu væri búið að ganga frá ölðrum
þáttum samkomulags milli deiluaðila.
-JSS
Töluverð hækkun
Bensmverð breytist:
segir talsmaður Olís
Verðhækkun á eldsneyti er nú
yfirvofandi hjá olíufélögunum.
Samúel Guðmundsson, yfirmaður
áhættustýringar hjá Oliuverslun
íslands, sagði við DV í morgun að
nýtt verð yrði tilkynnt næstkom-
andi fimmtudag.
„Við erum ekki tilbúnir til að
gefa út fasta tölu enn þá,“ sagði
Samúel við DV í morgun. „En það
verður hækkun og hún verður
töluverð."
Enn ein hækkunin á föstudag.
Samúel sagði að þrír þættir
hefðu áhrif á verðbreytingar á
eldsneyti nú. Fyrst bæri að telja
hækkun á heimsmarkaðsveröi, í
annan stað hefði dollarinn styrkst
og íslenska krónan veikst.
Hin olíufélögin tvö, Olíufélag ís-
lands og Skeljungur, munu einnig
vera að íhuga verðbreytingar á
eldsneyti vegna breytinga á heims-
markaðsverði og þróun íslensku
krónunnar gagnvart dollar. -JSS
Þrjú ung-
menni slösuð
DV, AKUREYRi:________________
Alvarlegt bílslys varð á Grenivíkur-
vegi í Eyjafirði um klukkan 3 í nótt.
Bifreið valt út af veginum skammt
norðan nýju brúarinnar yfir Fnjóská.
Lögreglunni á Akureyri barst til-
kynning um slysið frá Neyðarlínunni
og fór á staðinn. Þrjú ungmenni á aldr-
inum 18-20 ára vora í bifreiðinni og
slösuðust þau öll talsvert en era ekki í
lífshættu að sögn lögreglu. Ljóst var að
bifreiðin hafði farið margar veltur út
af veginum, en málið var í rannsókn í
morgun og frekari upplýsingar ekki að
hafa um það sem gerðist. -gk
Kveikt í geymslu
Slökkviliðið í Reykjavík var kallað
að Skarhólabraut í Mosfellsbæ klukk-
an sex i morgun. Þar logaði eldur í
geymsluhúsnæði bæjarins og að sögn
varðstjóra hjá slökkviliðinu er þetta
ekki í fyrsta skipti sem eldur kemur
upp á þessu svæði. Grunur leikur á að
kveikt hafi verið i geymslunni í morg-
un en slökkvistarfi var ekki að fullu
lokið þegar blaðið fór i prentun. -aþ
Slys á stétt
Eldri kona hlaut höfuðáverka þegar
hún féll um rafmagnsleiðslur fyrir
framan verslunina Garðheima í Mjódd.
Slysið átti sér stað um þrjúleytið í gær
og var konan flutt með sjúkrabifreið á
Landspitalann í Fossvogi. -aþ