Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001
DV
Fréttir
Ófremdarástand miðborgarinnar rætt í Ráðhúsinu:
esaEsaE'--'
Afgreiðslutíminn
ekki lengur frjáls
þarf að efla löggæslu, segir borgarstjóri
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Ólæti og ofbeldi í miöborginni til umræöu
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri boðaói til fundar í gær þar sem
ástandið í miðbænum var rætt.
„Viö höfum hugmyndir um aö
setja endapunkt á afgreiðslutíma
veitingahúsa, það er að afgreiðslu-
tíminn verði ekki frjáls eins og verið
hefur. Það er nauðsynlegt að koma
eftirlegukindunum út úr miðbænum
áður en dagur rís,“ sagöi Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri að
loknum fjölmennum fundi í Ráðhús-
inu í gær. Til fundarins var boðið
fulltrúum lögreglu, miðborgarat-
hvarfs, Þróunarfélags miðborgarinn-
ar og veitingamönnum. Umfjöllunar-
efni fundarins var ófremdarástand
miðborgarinnar um helgar, sem ein-
kennist af drykkjulátum, ofbeldi og
flkniefnaneyslu.
Borgarstjóri sagöi vandann þó ekki
einvörðungu vegna hins frjálsa af-
greiðslutíma veitingahúsa, heldur
væri vandamálið margþætt. „Það má
ekki gleyma því að lenging afgreiðslu-
tímans á sínum tíma var viðbrögð við
því hættuástandi sem var farið að
skapast i borginni að nóttu til. Þessar
aðgerðir skiluðu árangri og má jafn-
framt benda á að unglingum undir lög-
aldri hefur fækkað í miðbænum,"
sagði Ingibjörg Sólrún.
Efling löggæslu er nauðsynleg að
mati Ingibjargar Sólrúnar enda bendir
hún á að nú séu 13 lögreglumenn á
vakt í miðbænum en hafi verið 22 fyr-
ir þremur árum. „Þetta er pólitískt úr-
lausnarefni sem þarf að leysa.“
Þá kom fram á fundinum að úti-
gangsfólki og geðfótluðum hefur fjölg-
að í miðborginni. Borgarstjóri sagði
þetta vissulega áhyggjuefni og hér
væri um heilbrigðisvanda að ræða.
Borgin væri búin að samþykkja að
koma upp tveimur athvörfum fyrir þá
sem eiga hvergi höfði sínu að að haila.
Geir Jón Þórisson yflrlögregluþjónn
sagði lögregluna vera að kortleggja
ástand miðborgarinnar en mannaflinn
væri ekki nægur. „Ástandið er orðið
mjög slæmt og við munum bregðast
strax við um helgina. Hugsanlega verð-
um við að draga úr löggæslu annars
staðar í borginni," sagði Geir Jón.
Á fundinum var skipaður vinnuhóp-
ur sem á að fara yfir stöðu mála og
benda á leiðir til úrbóta. Vinnuhópn-
um er gert að skila niðurstöðu að
tveimur vikum liðnum. Þá liggur
væntanlega fyrir hvort afgreiðslutíma
veitingahúsa verður breytt. -aþ
Tíö verkföll:
Tilefni til
að yfirfara
vinnulag
- segir Ari Edwald
„Það er enginn vafi á því að
verkfall þroskaþjáfa veldur mörg-
um óþægindum og til þess er leik-
urinn væntanlega gerður,“ sagöi
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka at-
vinnulífsins,
aðspurður
um afstöðu
vinnuveit-
enda til
langvarandi
fjarvista fólks
úr vinnu
vegna yfir-
standandi
verkfalls
þroskaþjálfa.
Ari sagði að
vakið hefði at-
hygli í umræðunni um verkföll að
undanfornu að verkfallsgleðin
væri mest hjá hinu opinbera, eink-
anlega þeim hópum í þjóðfélaginu
þar sem verkfallið ylli viðkvæm-
um hópum óþægindum, eins og
hjá starfsfólki heilbrigðisstofnana
og kennurum. Vandséð væri að
verkfóllin væru að skila sér í betri
kjörum. Almennt séð hefði hreyf-
anleiki á vinnumarkaöi og sam-
keppni um starfsfólk mest áhrif til
kjarabóta.
„Mér finnst að umfang verkfalla
hjá hinu opinbera gefl tilefni til að
fara yfir vinnulag á þeim sam-
skiptum,“ sagði Ari. „Það vekur
athygli hve ríki og sveitarfélög
þurfa að semja frá grunni viö
marga og smáa hópa um hluti sem
eru meira eða minna sameiginleg-
ir. Þá er íhugunarvert hvernig
verkfallsréttur liggur hjá litlum fé-
lögum án þess að opinberir aðilar
hafi þá stöðu sem vinnuveitendur
hafa á almennum vinnumarkaði,
t.d. til verkbanna. Ríkið hlýtur aö
hafa sömu meginstefnu um launa-
breytingar gagnvart öllum hópum,
nema almenn samstaða væri um
leiöréttingar einstakra hópa miðað
við aðra.“ -JSS
Ari
Edwald.
Veðurklúbburinn á Dalvík:
Spáin rættist upp á dag
- bæjarstjórnin bauö til veislu
*
Sumarið kom til Reykjavíkur í gær
og rættist þar með júníspá Veður-
klúbbsins á Dalvík upp á dag. Sagt
haíði verið frá spá klúbbsins i tveimur
fréttum í DV, fyrst 6. júní og svo aftur
11. júni, en í báðum fréttunum stóð að
„... sumarið kemur ekki
af alvöru og þá með full- _
um dampi fýrr en 21.
jum.
Og það var
gær.
„í
næstu
viku
reynum
við að
koma
saman
júlí-
arií..
* D»lb*
Veðurklúbburinn í góða veðrinu í gær.
spanm,
sagði Júlíus Júlíusson,
talsmaður Veðurklúbbsins
„Við ráðum í drauma, vinda, tungl og
tilfinningar og skoðum gamlar
dagbækur. Við
spáum í allt
' nema gam-
ir.“
í tilefni af
kórréttri júní-
spá ákvað bæj-
arstjóm Dalvík-
ur að bjóða með-
limum Veður-
klúbbsins til
veislu í gær á dval-
arheimili aldr-
aðra, Dalbæ, en
þar búa spámenn-
imir sem eru tólf
Áfram deilt um kaup Lyf javerslunar íslands á Frumafli:
Stenst ekki lög
- ákvöröun tekin þvert á ósk um hluthafafund, segir Lárus L. Blöndal
„Við fáum ekki séð að
sýslumaður hafi tekið á
nokkurn hátt á þeim sjónar-
| miðum sem við lögðum
fram,“ segir Lárus L. Blöndal,
stjómarmaður í Lyfjaverslun
Islands hf„ sem óskaði ásamt
fleiri hluthöfum eftir lög-
banni á kaupum fyrirtækis-
ins á Frumafli ehf.
„Sýslumaður byggir niður-
stöðu sína á að ágreiningur
sé um verðmæti umræddra hluta-
bréfa. Ágreiningurinn snýst bara
ekki um það núna, heldur hvort
ákvörðun stjórnar Lyfjaverslunar ís-
lands hf. um kaup á Frumafli hafi
verið lögmæt.
Sem kunnugt er synjaði Sýslumað-
urinn í Reykjavík á miðvikudag
kröfu þeirra Aðalsteins Karlssonar,
Guðmundar Birgissonar og Lárusar
L. Blöndal, um að lagt yrði lögbann
við því aö Lyfjaverslun íslands hf.
gengi tU samninga um kaup á hluta-
fé í Frumafli hf. Jón Steinar Gunn-
laugsson, lögmaður þremenning-
anna, vísaði málinu áfram til Héraðs-
dóms Reykjavíkur.
„Við væntum úr-
skurðar dómsins fyr-
ir 10. júlí,“ segir Lár-
us L. Blöndal en þann
dag verður hluthafa-
fundur haldinn i fyr-
irtækinu.
Lyfjaverslun Is-
lands sendi í fram-
haldi tilkynningu tU
Verðbréfaþings. Þar
kemur fram að á stjórnarfundi i
Lyfjaverslun íslands í fyrradag hafi
verið ákveðið að ganga frá kaupum á
Thorarensen Lyf ehf. og Frumafli hf.
Vegna kaupanna hefur stjóm Lyfja-
verslunar íslands gefið út nýtt hluta-
fé að nafnvirði kr. 220.000.000 og telst
það greitt við afhendingu hluta í
framangreindum félögum.
„Stjómarfundurinn sem tók
ákvörðunina um kaupin á Frumafli
var ekki löglega boðaður. Þá var búið
að óska eftir því að fjaUað yrði um
þetta mál á hluthafafundi. Eftir að sú
krafa kom fram gat stjórnin ekki tek-
ið ákvörðun í málinu áður en hlut-
hafafundur er haldinn. Til er
Hæstaréttardómur sem styð-
ur þaö. Þetta eitt og sér hefði
átt að duga til að sýslumaður
samþykkti lögbannskröfuna.
Hins vegar er ekki einu sinni
fjallað um þetta í úrskurðin-
um. Þá liggur það fyrir að ég
var ekki boðaður á fundinn.
Ég tel að ákvörðunin um
kaupin standist einfaldlega
ekki,“ segir Lárus L. Blöndal.
Hann segist bjartsýnn á að þeir félag-
ar nái fram sínu máli, enda hafi
hann fulla trú á íslenska réttarkerf-
inu.
Grímur Karl Sæmundsen, stjórn-
arformaður LÍ, sagðist í DV fyrir síð-
ustu helgi vera mjög óhress og
harma hvernig Lárus og Aðalsteinn
Karlsson hefðu haldið á þessum mál-
um. Þeir væm búnir að stórskaöa fé-
lagið með því að fara meö alla þessa
umræðu í fjölmiðla. Sú krafa hefði
verið á félaginu að standa við gert
samkomulag um þessi kaup eða að
öðrum kosti að horfa fram á skaða-
bótaskyldu vegna vanefnda. -HKr.
Lárus L.
Blöndal.
Grímur Karl
Sæmundsen.
Höfuöiö aö veði
Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra, seg-
ist tilbúinn að „ieggja
höfuð sitt á höggstokk
Ögmundar" um að
hagsmunatengdir ráð-
gjafar hafi komið að
málum vegna samn-
ings ráðuneytisins við Öldung. Það sé
af og frá. Ögmundur Jónasson, þing-
maður VG, varpar þessari spurningu
fram í gær. - Fréttablaðið greindi frá.
Svínaö á leiguliöa
Umboðsmaður Alþingis segir land-
búnaðarráðuneytið ekki hafa gætt
vandaðra stjómsýsluhátta þegar það
neitaði leigjanda ríkisjarðar um kaup
á jörðinni vorið 1999 og vill að ráðu-
neytið rétti hlut mannsins.
Virkjun á Hellisheiöí
Orkuveita Reykjavíkur áformar að
ráðast í byggingu nýrrar jarðgufu-
virkjunar á Hellisheiði fyrir um 12
milljarða króna. Búist er við að fyrsti
áfangi þessarar virkjunar verði tilbú-
inn eftir fiögur ár, eða 2005, með 40
megavatta framleiðslu.
deCODE dalar aftur
Eftir riflega fjórðungshækkun á
hlutabréfum deCODE í gær lækkaði
gengi bréfanna um 5,97% í dag. Loka-
gengið var 8,5 dollarar á hlut en sveifl-
aðist allt frá 7,7 til 8,68 dollara.
Nýtt stjórnmálaafl
Hugmynd er uppi meðal hóps
manna sem giftir eru innflytjendum og
svo meðal nýbúa sem þegar eru orðnir
íslenskir ríkisborgarar um að stofna
pólitiskan flokk. Flokkurinn er einnig
hugsaður sem mótvægi við þá þjóðern-
issinna sem hafa verið að láta heyra í
sér að undanfómu.
Þörf á umbótum
Margrét Frí-
mannsdóttir, þing-
maður Samfylkingar-
innar, telur þörf á að
setja úrskurðarvald
um afplánun með
samfélagsþjónustu til
dómstóla. Reglur um
samfélagsþjónustu
vom rýmkaðar á síðasta ári en Mar-
grét vill endurbæta þaö þannig að
stærri hluti sakbominga komi tO
greina. - Fréttablaðið greindi frá.
Bætur til smitaöra
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, hefur falið
Ríkislögmanni að sjá um uppgjör bóta
til sjúklinga sem sýkst hafa af lifrar-
bólgu C við blóðgjöf hér á landi fyrir
október 1992. Skimun meðal blóðgjafa
gegn lifrarbólgu C hófst hér á landi í
september 1992.
Þijú kjarnasvæöi
Byggðanefnd Sam-
bands íslenskra
sveitarfélaga undir
forystu Sigurgeirs
Sigurðssonar leggur
til að byggð verði
upp 2-3 kjamasvæði
á landsbyggðinni til
mótvægis við höfuð-
borgarsvæðið. Nefndin vill að eitt
ráðuneyti fjalli um byggðamál i stað
þriggja nú og 3 lánasjóðir renni í einn.
Biskup skipi presta
Biskup telur hugmynd kirkjumála-
ráðheiTa um að biskup skipi framveg-
is sóknarpresta en ekki ráðherra vera
eðlilegt skref í samræmi við kirkjulög,
en gefi þó tilefni til að hugleiða stöðu
prestsembættisins í þjóðkirkjunni.
Hafið látið hreinsa
Talið er að hægt verði að nota haf-
strauma til þess að hreinsa gróður-
húsalofttegundir eins og koltvísýring
þannig að umhverfmu stafi ekki hætta
af. Hugmynd norskra vísindamanna er
að dæla óæskilegum lofttegundum nið-
ur á um 800 metra dýpi. -HKr.