Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Page 7
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001
DV
7
Fréttir
Slökkviliðið fær nýjan/gamlan bíl sem dælir í hæstu hæðir frá götunni:
Brýnt að byggja
nýja slökkvistöð
- segir slökkvistjórinn á Akranesi
DV, AKRANESI:_____________
Slökkvilið Akraness
fékk í vikunni nýj-
an/gamlan slökkvibíl af-
hentan. Bifreiðin er af
gerðinni Scania 1977 og er
hann keyptur frá slökkvi-
liði í Svíþjóð sem notaði
hann við æfingar og út-
köll og ná dælur hans upp
í 23 metra hæð. Bíllinn er
keyrður 24 þúsund kiló-
metra og kostaði um 3,6
milljónir króna. Nýr bíll
af sams konar tegund
kostar um 25 milljónir.
Aðalástæðan fyrir því
að slökkviliðið þurfti
svona bíl er að bygginga-
og skipulagsnefnd bæjar-
ins setti sem skilyrði fyrir
því að byggð yrðu 6 hæða háhýsi á
Akranesi að slökkviliðið yrði að eiga
bíl sem væri fær um að eiga við elda
i slíkri hæð. Fyrsta háhýsið er nú
risið.
Slökkvilið Akraness mun i ágúst
fyrir utan slökkvistöðina
og sá nýi bætist i þann hóp
þegar hann kemur. Má því
segja að nýi bílinn sé á göt-
unni.
Jóhannes Engilbertsson,
slökkvistjóri á Akranesi,
segir að það sé brýnt hags-
munamál að byggja nýja
slökkvistöð því það gangi
ekki að geyma nýja bíla
fyrir utan slökkvistöðina
óvarða fyrir veörum, vind-
um og skemmdarvörgum.
Bæjarráð Akranes hefur
fjallaö um byggingu
slökkvistöðar en ekki tekið
ákvörðum um hvað verður
gert, hvort keypt verður
eldra húsnæði eða nýtt
byggt en það mun kosta
um 30 milljónir króna. Fram hafa
komið hugmyndir um að byggja
nýja slökkvistöð við hlið Rauða-
krosshússins og yrði þá hægt að
tengja saman slökkvilið, sjúkrabíla
og lögreglu á sama stað. -DVÓ
DV-MYND DANIEL V. ÓLAFSSON
Öflugur bíll
Jóhannes Engilbertsson slökkviliðsstjóri við nýja bílinn sem
nær í hæstu hæðir og er á götunni
fá annan bil sem verið er að smíða
á Ólafsfirði, en sams konar bíll fer
einnig á Grundarfjörð.
í dag háttar svo til að á slökkvið-
stöðinni eru fimm dyr og nýi bílinn
og annar tankbHl verða að standa
Börnin færðu
bókasafninu gjöf
DV.GRUNDARFIRÐI:
I vikunni heimsóttu börnin á
leikskólanum Sólvöllum bókasafnið
í nýja húsnæðinu. Börnin komu
ekki tómhent heldur færðu safninu
að gjöf likan sem þau höfðu gert af
styttunni Sýn, sem stendur við
Grundarfjarðarkirkju.
Gerð líkansins er liður í svoköll-
uðu elstubarna-verkefni þar sem
bömin fara út í bæ i leit að lista-
verki og hjá þessum hópi varð stytt-
an fyrir valinu.
Um leið og þau unnu að gerð lík-
ansins fræddust þau um listaverkið
sem er minnisvarði um líf og störf
sjómanna í Eyrarsveit og sýnir sjó-
mannskonu sem horfir til hafs og
bíður mannsins sins. Listaverkið er
eftir Steinunni Þórarinsdóttur.
-DVÓ/SHG
DV-MYND SÆDÍS HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR
Komu færandi hendi
Á myndinni eru greiðugu krakkarnir í
Grundarfirði, í efri röð f.v.: Ásta,
Karen Anna, Sandra Rut, Snædís
Birta, Maren Sif. Neðri röö f.v.:
Markús, Jónas og Kristófer. Á bak
viö afgreiðsluboröið er Sunna Njáls-
dóttir bókasafnsvörður.
Héraðslistamaður Borgarfjarðar 2001:
Páll á Húsafelli
hlaut heiðurinn
DV, REYKHOLTI:____________________
Sveitarfélögin fjögur í Borgarfirði
hafa sameiginlega i fyrsta sinn út-
nefnt héraðslistamann Borgarfjarð-
ar. Þennan titil hlaut listamaðurinn
Páll Guðmundsson frá Húsafelli en
auk þess 300 þúsund króna styrk.
Pál þarf vart að kynna, því hann er
löngu orðinn þekktur af verkum
sínum bæði hér heima og erlendis.
Páll stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1977-1981og
á árunum 1985-1986 við Listaháskól-
ann í Köln í Þýskalandi. Hann hef-
ur haldið fjöldann allan af einkasýn-
ingum auk samsýninga hér heima
og erlendis. Á tímabili var hann svo
öflugur að hann hélt þrjár einkasýn-
ingar samtímis á jafnmörgum stöð-
um á höfuðborgarsvæðinu. Þá
minnast margir sýningar hans í
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Heiðurslistamaður
Páll Guömundsson frá Húsafelli,
héraðslistamaður Borgarfjarðar,
ásamt Björgu Karitas Jónsdóttur,
formanni fræðslu- og menningar-
málanefndar Borgarbyggðar.
Surtshelli í Hallmundarhrauni, sem
var kynngimögnuð og einstæð að
mati þeirra fjölmörgu sem lögðu á
sig að arka yfir úfið hraunið.
Páll opnaði um siðustu helgi sýn-
ingu í húsnæði Heimskringlu í
Reykholti sem hann kallar „Átt-
hagatónar", nafnið kemur frá hljóö-
færi sem er gert úr steinum og viði
og er i kirkjunni. Sýning Páls stend-
ur yfir i allt sumar og málverkin og
skúlptúrar sem hann sýnir eru unn-
in frá árinu 1981-2001. Þá var einnig
opnuð í Safnahúsinu í Borgamesi
sameiginleg yfirlitssýning á verkum
Páls og Guðmundar Sigurðssonar í
eigu Listasafns Borgarbyggðar.
Guðmundur var við sama tækifæri
og Páll valinn héraðslistamaður
Borgarbyggðar árið 2001.
-DVÓ
DV • DCR PC6
Kr. 159.900
□ □DHaBcPoDoHTJBEiD
„ J30D
□ □ J3
□ □ □ u
□
□
I
• Stærð CBxHxDJ: 54x101x97
mm Pyngd: 450g
• Canl Zeiss linsa
• Mynd flaga 1 /4 upplausn
BOO.QOO punktar
• Fókuslengd miðað við 35 mm
Ijósmyndavél: 1 :1 ,7-2,2 / 3,3-
33 mm / -42-420 mm
• Ljósnæmni: □ Lux Super
Ni^htshot
• Sjalvirkur / handvirkur fókus
• Macro
• Snertiskjár
• Pvermál linsu 3D mm
• Backlight
• Litauga: 0,44" C1,12 sm,
1 80,000 punktarD
• Lita LCD Skjár: 2,5" C6,35 sm,
200,640 punktarD
• DV út
• Video/S-Video út
• 1 20 x Digital Zoom
• Innbyggð klippitölva
Kr. 46.650
Memory Stick stafræn myndavél • 1,5" litaskjár
1,3 Megapixel Super HAD • Optical Viewfinder
myndflaga , • Dagsetning
B x digital zoom C3 x opticalD • Innbyggt flass
JPEG/GIF og TIFF þjöppun • Hugbunaður fylgir
Hámarksupplausn 1 2BOxSBO • LJSB tengibúnaður fylgir
CSXGA3
Haitdycöm
w
i
t
DV • DCR TRV15
Kr. 116.600 ■■■
• Stærð CBxHxDD: 74x35x1 75 mm
Pyngd: 650 g
• Carl Zeiss linsa
• Mynd flaga 1/4 upplausn
BOO.OOO punktar
• Fókuslengd miðað við 35 mm
Ijósmyndavél: 1 :1 ,7-2.2 /3.3-
33 mm / 42-420 mm
• Ljósnæmni: □ Lux Super
Nightshot
• Sjalvirkur / handvirkur fókus
• Macro
• Pvermál linsu 30 mm
• Backlight
• Litauga: 0,44" C1 ,1 2 sm,
1 BO.OQO punktarD
• Lita LCO-skjór: 2,5" CB.35 sm
123,200 punktarD
• OV út
• Video/S-Video út
• 1 20 x Oigital Zoom
• Innbyggð klippitölva
ACO • Hljómsýn • Ksupfélag Bongfirðinga • Laufið • Póllinn • Kaupfélag Húnvetninga
Kaupfélag Skegfirðinga • Verslunin Hegri • Radíóvinnustofen • Radíonaust • Ljósgjafinn
Turnbrasður • Tónspil • Kaupfélag Austur-Skaftfellssýslu • Árvinkinn • Eyjanadíó
BT búðirnar • Hagkaup Smónatongi • Heimskringlan • Heimilistaeki • Kaliber -