Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Qupperneq 9
9
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001_______________________________________________
DV ____________________________Neytendur
Löng bið eftir viðgerðum á Nokia-farsímum:
Gott á grillið:
Óþolandi ástand
- skapað í krafti einokunar, segir Jóhannes Gunnarsson hjá Neytendasamtökunum
Undanfarið hefur verið töluvert
um að haft sé samband við neyt-
endasíðuna og kvartað yfir þjónustu
Hátækni ehf. Fyrirtækið er með
einkarétt á viðgerðum á Nokia-sím-
um hér á landi en sú tegund síma er
sú algengasta á markaðnum. Einna
helst er kvartað yfir löngum af-
greiðslutíma og þegar blaðamaður
hringdi þangað í gær var sagt að
biðtimi eftir viðgerð væri tæpar
tvær vikur um þessar mundir.
Einokun alltaf afleit
„Það kemur mikið af kvörtunum
til okkar vegna þjónustu þessa fyrir-
tækis,“ segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna.
„Einokun er alltaf afleit fyrir neyt-
endur og ég hélt að einokun eins og
þessi hefði átt að leggjast af með
samningum um Evrópska
efnahagssvæðið. Ég trúi
ekki, fyrr en ég tek á, að
þetta verði látið viðgang-
ast. Þarna er um að ræða
einkaumboð á viðgerðum
fyrir ákveðið vörumerki og
vörumerkið þarf að líða
fyrir þessa einokun." Að-
spurður segir Jóhannes að
Neytendasamtökin muni
skoða til hvaða úrræða
verði gripið verði ekki
skjót breyting á starfsað-
ferðum fyrirtækisins. „Ég
reikna með að fyrirtækinu
sem framleiðir þessa síma sé annt
um söluna hér, þar sem við notum
svo mikið af gemsum. Því kemur að
sjálfsögðu til greina að snúa sér
beint þangaö. Einnig kemur til
Jóhannes
Gunnarsson
formaöur Neytenda-
samtakanna.
greina að kanna hvort aö
svona einokun standist.
Hægt er að grípa til að-
gerða og ég segi: Ef ekki
verður breyting mjög
skjótt þá munum við
grípa til aðgerða. Við telj-
um að ástandið sé óþol-
andi og það er óþolandi að
þetta ástand sé skapað í
krafti einokunar," segir
Jóhannes.
Ákvörðun Nokia
„Biðtími eftir viðgerð á
farsímum í Hátækni var
að meðaltali 4-5 dagar fyrstu fjóra
mánuði ársins en tölur fyrir maí og
júní liggja ekki enn fyrir,“ segir
Þórður Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Hátækni. „Biðtíminn
hefur þó lengst frekar en hitt,
þannig að meðalbiðtími verður lík-
lega á bilinu 5-6 dagar þessa mán-
uði. Þessar tölur eru sambærilegar
við það sem gerist í löndunum í
kringum okkur, t.d. er biðtími eftir
farsímaviðgerð í Danmörku að með-
altali ein vika samkvæmt könnun
sem Hátækni gerði í síðustu viku.
íslenskir neytendur gera miklar
kröfur, sem er gott, og Hátækni
mun leita allra ráða til að koma til
móts við þeirra þarfir. Hátækni ehf.
hefur ekkert um það að segja hver
eða hverjir gera við farsíma á ís-
landi, sú ákvörðun er algjörlega í
höndum viðkomandi framleiðenda.
Orð framkvæmdastjóra Neytenda-
samtakanna um einokun eru því til-
hæfulaus og meiðandi fyrir fyrir-
tækið." -ÓSB
Notkun farsíma við akstur:
Samtölin sjálf hættuleg
- því þau leiða athyglina frá akstrinum
Samtöl í farsíma skapa hættu
í umferðinni, hvort sem með
þeim er handfrjáls búnaður
eður ei. Þetta er niöurstaða
rannsóknar sem bresk samtök á
sviði heilsu létu gera fyrir sig
og fjallað er um í danska blað-
inu Politiken. Hópur sérfræð-
inga sem vann að rannsókninni
komst að því að þeir bílstjórar
sem tala í síma við aksturinn
eru í meiri hættu að lenda í
slysi en aðrir. Og skiptir þá
engu máli hvort notaður er
handfrjáls búnaður því það er
samtalið sjálft sem skapar hætt-
una. Það tekur nefnilega athygl-
ina frá akstrinum. í Bretlandi
hefur farsímanotkun við akstur
valdið a.m.k. íjórtán dauðaslys-
um síðan 1994, en talið er að sú
tala sé mun hærri í raun.
Þessar niðurstöður koma
ekki á óvart. Eins og sagt var
frá í DV fyrir skömmu sýndi
bandarísk rannsókn fram á að
fjórfóld hætta sé á því að öku-
menn sem tala í síma við akstur
lendi í umferðarslysi miðað við þá
ökumenn sem ekki gera það. Neyt-
endablaðið sagði frá þessari rann-
sókn sem byggðist á þvi að sím-
reikningar ökumanna sem lent
höfðu í óhappi voru skoðaðir. I ljós
kom að slysatíðni var 4,8 hjá þeim
ökumönnum sem talað höfðu í síma
allt að fimm mínútum fyrir umferð-
arslys en meðalslysatíðnin var 1.
Eins var slysatíðnin meiri hjá þeim
sem luku símtali minnst 15 mínút-
um áður en slysiö varð, eða 1,3.
Slysatíðnin er því fjórum sinnum
meiri hjá þeim sem töluðu í farsíma
rétt áður eða um það bil sem slysið
varð. Athygli vekur að hætta líður
ekki hjá um leið og menn leggja frá
sér símann heldur virðist minnka
smám saman eftir því sem lengra
liður frá síðasta símtali. -ÓSB
Hunangs- og
sojalegnar
kjúklingabringur
Samkvæmt veðurklúbbnum á
Dalvík kemur sumarið af fullum
dampi í dag. Hafi meðlimir klúbbs-
ins rétt fyrir sér er rétt að nota
tækifærið og hafa sumarlegan mat á
boðstólum. Grillmatur fylgir góðu
veðri hér á landi og því er hér upp-
skrift að grilluðum hunangs- og
sojalegnum kjúklingabringum. Upp-
skriftin dugar fyrir fjóra.
í uppskriftina þarf:
800 g beinlausar kjúklingabringur
Kryddlögur
11/2 msk. sojasósa
2 msk. hunang
4 msk. franskt sinnep
3 msk. sítrónusafi
1/2 msk. salt
1/2 msk. nýmalaður pipar
Meðlæti
1 eggaldin
2 maísstönglar
Græn kryddjurtasósa
1 msk. kapers
1 msk. sýrðar agúrkur
1 msk. steinselja, fersk, söxuð
1/2 msk. kerfíll,
ferskur, saxaður
1 dl majones
salt og pipar
eftir smekk
Salat
tómatar
blaðsalat
paprika
Aðferð
Blandið saman sojasósu, hunangi
sinnepi og sítrónusafanum. Leggið
kjúklingabringurnar í löginn í 15
mínútur, snúið öðru hvoru. Kryddið
bringurnar með salti og pipar og
grillið við meðalháan hita í 7-10
mínútur á hvorri hlið. (Athugið að
sykurinn í hunanginu brennur auð-
veldlega.) Penslið með matarolíu
öðru hvoru. Skerið maísstönglana í
u.þ.b. 2 cm þykka bita og grillsteik-
ið með ásamt eggaldininu sem
einnig er skorið í 1,5 cm sneiðar.
Græn kryddjurtasósa
Setjið allar kryddjurtir og græn-
meti í matvinnsluvél og maukið,
bragðbætiö með salti og pipar.
Blandið majonesinu út í síðast.
Meðlæti
Græn kryddjurtasósa og brauð,
salatblað með niðurskornum tómöt-
um og paprikubitum.
Úr Grillbók Hagkaups
Handfrjáls búnaður
Skiptar skoöanir eru um hvort slíkur búnaöur geri það gagn sem til er ætlast.
Rannsóknir hafa sýnt aö þaö eru símtölin sjálf sem leiöa huga ökumanna frá
akstrinum og valda slysum.
Nýtt fyrirtæki í almenningssamgöngum:
Strætó bs. hefur starfsemi
- yfirtekur rekstur SVR og AV
HJ0LAB0RÐ
Fncom
MEÐ SKUFFUM
Strætó bs. heitir nýtt fyrirtæki
sem eftir, 1. júlí nk. mun ætlað að
sinna almenningssamgöngum á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtækið mun
yfirtaka rekstur SVR og AV og er
það í eigu allra sjö sveitarfélaganna
á svæðinu. Markmiðið með stofnun
Strætó bs. er að efla almennings-
samgöngur, bæta þjónustu og auka
hagkvæmni. Starfrækt verður eitt
leiöarkerfi með einni gjaldskrá en
gert er ráð fyrir nokkrum breyting-
um á þeim þáttum. Innleitt verður
nýtt hefldstætt leiðarkerfi á höfuð-
borgarsvæðinu með betri tenging-
um á mflli svæða auk þess sem stór-
um vinnustöðum og skólum á svæð-
inu verður þjónað betur.
Breytt gjaldskrá
Gjaldskráin mun breytast þannig
að um sama fargjald verður að
ræða, óháö því hvaðan er ferðast
eða hvert, og skiptimiðar munu
gilda alls staðar. Reynt verður að
koma til móts við þá sem ferðast
reglulega með strætó. Þannig lækk-
ar verð á Græna kortinu úr 3.900 kr.
í 3.700 kr. Einnig verður boðið upp
á svokallað Guit kort en það er
hálfsmánaðarkort. Á næstunni
verður tekið upp sérstakt þriggja
mánaða kort sem verður sérstak-
Frá blaöamannafundi Strætó bs.
Fyrirtækiö er í eigu sveitarfélaganna sjö á höfuöborgarsvæöinu og situr einn
fulltrúi frá hverju þeirra í stjórn þess.
lega sniðið að þörfum framhalds-
skólanema. Þá verður tekið upp sér-
stakt ungmennafargjald fyrir 12-18
ára, í stað unglingafargjaldsins sem
nú gildir fyrir 12-15 ára. Þessi
breyting er gerð til að vera í takt
við breyttan sjálfræðisaldur.
Aðrar verðbreytingar verða
einnig gerðar og ýmist er um hækk-
un eða lækkun að ræða á fargjöld-
unum. Breytingarnar miða allar að
því að gera almenningssamgöngur
að hagstæðari kosti og auka þannig
farþegafjölda.
McoM-Plastbakkar
fyrir öll uerkfæri
Ármúll 17, IOB Reykjavík
Síml: 533 1334 fax: 55B 0499
Öruggur staður fyrir
FflCOM verkfærin,
og allt á
sinum stað!
..það sem
fagmaðurinn
notar!