Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Síða 11
11
FÖSTUDAGUR 22, JÚNÍ 2001_____________________________________________________________________________________________
I>V Útlönd
BALENO
SUZUKI BÍLAR
Skeifunni 17. Sími 568 51 00. ^
WAGON 4X4 - Fjölskyldubíllinn
Meðaleyðsla 7,41
“ 1.875.000,-
* 20.000,- * 30.000.-
* Ef keypt eru 4 dekk
Tékkneskar kýr í hættu
Fyrsta kúariöutilfelliö hefur komiö
upp í Tékklandi.
Útflutt kúariða
Talsmaður Matvæla- og landbún-
aðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna
lét hafa það eftir sér í gær að mikil
hætta væri á að kúariðufaraldur
gæti brotist út annars staðar en í
Vestur-Evrópu. Landsvæði sem sér-
staklega eru í hættu eru Austur-
Evrópa, Asía og Mið-Austurlönd.
Ástæðan fyrir hættunni er mikill
innflutningur á fóðurmjöli unnu úr
kjöti og beinum. Sérstaklega er talið
að lönd í Austur-Evrópu séu í
hættu. Þar hefur kjöt- og beinamjöl
verið flutt inn frá vesturhluta
Evópu frá því á níunda áratugnum.
Nú þegar hefur fyrsta kúariðutil-
fellið komið upp í Tékklandi.
Haldin var alþjóðleg ráðstefna um
kúariðu i París í seinustu viku. Nið-
urstaða hennar var að þjóðir heims
ættu ekki að sofna á verðinum
gagnvart kúariðu, kæruleysi gæti
orðið dýrkeypt.
Meira en 30 þjóðir hafa hert regl-
ur um eftirlit með kjötframleiðslu.
Þ. á m. hafa þau bannað notkun á
kjöt- og beinamjöli sem og innflutn-
ing á lifandi nautgripum. A.m.k.
helmingur þessara landa hefur
einnig hert hreinlætiskröfur og eft-
irlit með lifandi nautgripum.
SUMARÚTSALAIII
Dagana 25 júní -15 júlí
JEPPADEKKÁ FRÁBÆRU VERÐI
235/85R16
245/75R16
265/75R16
285T75R16
Sendum um allt land. VISA/EURO til 36 mén.
Vegmúla 2 Sími 588 9747 www.vdo.is
Óeirðir brjótast
Kínverjar og
Rússar undirbúa
tölvuhernað
Háttsettur yfirmaður í njósna-
þjónustu Bandaríkjanna tilkynnti
þingi landsins að Rússar og Kínverj-
ar væru að koma sér upp tækni til
að beita tölvuhernaði gegn Banda-
ríkjunum. Hann segir tölvuhernað
geta valdið bandarísku efnahagslífi
langvarandi skaða og hvetur stjórn-
völd til að hefja þróunarvinnu á
vörnum gegn vávaldinum þegar í
stað. Talið er að tölvuhernaður sé
næsta alda hernaðaráætlana í heim-
inum.
íranar sakaðir um
sprengjutilræði
Felgur 8" eða 10" 4stk
Óeirðir brutust út á ný í gær í
Belfast, höfuðborg Norður-Irlands.
Lögregla segir að nokkrum byssu-
skotum hafi verið skotið að henni án
þess að hæfa neinn, auk þess sem
bensínssprengjum og grjóti var
kastað að lögreglumönnum. Lögregla
svaraði ekki árásum að þessu sinni.
Hún skaut plastkúlum að óeirðar-
seggjum á miðvikudagskvöldið.
Að sögn sjónarvotta voru óeirð-
imar í gær mun rólegri heldur en
óeirðirnar á miðvikudagskvöldið.
Engu að síður slösuðust um 20 lög-
reglumenn í átökum við óeirðar-
seggi.
Tala slasaðra lögreglumanna er
því komin upp í 59 á þessum tveim
dögum. Einnig var kveikt í skóla og
nokkrum bílum.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
stjórnmálaarms írska lýðveldishers-
ins, IRA, sagði við blaðamenn að
hann væri bjartsýnn á friðar- og af-
Bjartsýnn þrátt fyrir ólæti
Gerry Adams, leiötogi Sinn Fein, segist vera bjartsýnn þrátt fyrir óeiröirnar
seinustu tvo daga, ástandiö sé betra nú en veriö hefur undanfarin ár.
vopnunarviðræður milli fylkinga
mótmælenda og kaþólikka þrátt fyr-
ir þá spennu sem nú ríkir á Norður-
írlandi. Hann segir að ástandið sé
mun bjartara nú en það var í fyrra
eða árið þar áður. Hann bætti við að
ástandið væri ekki jafnslæmt og fyr-
ir botni Miðjarðarhafs. Friðarvið-
ræður væru í fullum gangi og þok-
uöust áfram og að árangur væri í
sjónmáli.
Óeirðirnar er taldar afleiðing
spennu vegna afvopnunarviðræðna.
Mótmælendum finnst IRA ekki
standa sig sem skyldi. IRA hefur
hleypt eftirlistmönnum í vopnabúr
sitt. Hins vegar finnst mótmælend-
um ekki nóg gert og vilja róttækari
aðgerðir.
Aðalkveikjan að óeirðunum er þó
talin vera þegar kaþólskar skóla-
stúlkur urðu fyrir aðkasti róttækra
mótmælenda sem meinuðu þeim að
komast úr skólanum.
John Ashcroft, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, lýsti því yfir í
gær að írönsk yfirvöld hafi staðið að
sprengjuárás á Khobar-turnana,
ibúahverfi bandarískra hermanna í
herstöð í Sádi-Arabíu, fyrir funm
árum. 19 Bandaríkjamenn létust í
tilræðinu og yfir 372 bandarískir
borgarar særðust.
Bandaríska alríkið stóð fyrir
rannsókn á tilræðinu og var útkom-
an kynnt í gær. Ákveöið hefur ver-
ið aö sækja 13 Sáda og einn Líbana
til saka fyrir árásina. Talið er að
meðlimir Hizbollah-samtakanna
hafi komið verknaðinum í fram-
kvæmd undir handleiðslu íranskra
stjórnvalda. Ashcroft dómsmálaráð-
herra segir hryðjuverkastarfsemi
Hizbollah hafa byrjað árið 1993 þeg-
John Ashcroft
Dómsmáiaráöherrann er óhræddur
viö aö skella skuldinni á írana.
ar samtökin hófu leit að hentugum
bandarískum skotmörkum í Sádi-
Arabíu. Árið 1995 hafi Khobar-tum-
amir orðið fyrir valinu. Ættingjar
fómarlamba sprengjuárásarinnar
fögnuðu þegar ákærunar voru
kynntar. „Þetta hafa verið fimm ár
af hreinu helvíti og hvað sem ákær-
um líður verður því ekki breytt,“
hafði BBC fréttastofan eftir ættingja
fórnarlambs. Enginn hinna ákærðu
er í höndum bandarískra yfirvalda
en sumir þeirra munu verða fangels-
aðir í öðrum ótilgreindum löndum.
Stjórnmálaskýrendur segja póli-
tískan þrýsting af hálfu Clinton-
stjómarinnar hafa staðið í vegi fyr-
ir því að íranar yrðu sakaðir um
árásina, en stjórpin stefndi á þíðu í
samskiptum við íran.
Frumbyggi og uppgjafahermaður
Kanadískur frumbyggi og uppgjafahermaöur úr Kóreustríöinu stendur hnarreistur fyrir framan minnismerki um fyrrver-
andi hermenn af frumbyggjaættum. Þetta er eina minnismerki sinnar tegundar í Kanada og er tileinkaö frumbyggjum
sem lögðu hönd á plóg í stríöum og friöargæslu sem Kanada hefur átt þátt í.
aftur út í Belfast