Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Qupperneq 20
24
* Tilvera
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001
DV
Sharon Stone
ræðir pólitík
Leikkonan Sharon Stone var á
pólitísku nótunum í viðtali við
bandaríska dagblaðið Washington
Post. Hún sagðist styðja fullshugar
ákvörðun öldungadeildarþing-
mannsins Jims Jeffords um að yfir-
gefa Repúblikanaflokkinn og ganga
til liðs við demókrata. Með því töp-
uðu repúblikanar meirihlutanum í
hendur þeirra síðarnefndu. „Ég
vildi gjaman taka í höndina á hon-
um. Sannleikurinn hefur gjört hann
frjálsan," sagði hún.
Sharon var á dögunum veitt við-
urkenningin Woman of Vision fyrir
baráttu sína gegn alnæmisfaraldrin-
um og vinnu sína fyrir heimilis-
lausa.
Jagger hittir
módel í laumi
Gamli rokkhundurinn Mick Jag-
ger er ekki dauður úr öllum æðum.
Hann á nú í „leynilegu" sambandi
við stórmódelið Sophie Dahl og beit-
ir öllum brögðum til að halda því
sem slíku. Breska dagblaðinu The
Sun hefur þó tekist að þefa þau
uppi. Samkvæmt frásögn blaðsins
lét Jagger bílstjóra sinn sækja stúlk-
una og koma með hana í hljóðver til
sín í Lundúnum. Ástæðan fyrir
pukrinu ku vera sú að skötuhjúun-
um er illa við að láta mynda sig.
Sagan segir að Jagger hafi ráðist á
kvenkynsljósmyndara sem stóð
hann að því að halda í höndina á
hinni fongulegu Sophie.
Gönguleiöir
Olkelduháls hefur
upp á margt að bjóða
- segir Þór Sigurjónsson verkfræðingur
„Ölkelduháls ofan við Hveragerði
er ákjósanlegur til útivistar. Ég
mæli með gönguferð um Reykjadal
upp á hálsinn og að Kattartjömum
efri og neðri,“ segir Þór Sigurjóns-
son, verkfræðingur og áhugamaður
um útivist. Hann er nýkominn úr
slíkri ferð, ásamt fjölskyldu og
kunningjum. Meö rólegri göngu og
laugarferð tók hún sjö klukkustund-
ir. ölkelda finnst uppi á hálsinum
eins og nafn hans bendir til en Þór
segir lítið um rennandi vatn á svæð-
inu. Hann ráðleggur fólki því að
taka með sér minnst einn og hálfan
lítra af drykk, ásamt hollum bita.
Foss og flúðir
Þór kveðst hafa ekið upp í gegn-
um Hveragerði og skilið bílinn eftir
á bílastæði við Rjúpnabrekkur. Það
er þó ekki alveg vandalaust. „Rétt
áður en komið er á planið er ekið
yfir litla á og fólksbilar þurfa að
fara gætilega," segir hann. Svo er
haldið á brattann. „Maður byrjar i
100 m hæð og er kominn í um 250 m
hæð eftir rúman kílómetra," segir
Þór og heldur áfram: „Þegar þangað
er komið blasir við mjög fallegur
foss og flúðir í Reykjadalsánni - en
bara á smákafla."
Innst í Reykjadal, í þriggja km
fjarlægð frá bílastæði, segir Þór
komið að notalegri laug í náttúr-
unni, um 40‘C heitri. Við hana
greinist gönguleiðin á Ölkelduháls,
til vesturs með fram Klambragili og
Þór Sigurjónsson verkfræóingur
„Ekki má gleyma að horfa í kring-
um sig í gönguferöunum og njóta
náttúrunnar“
t
i
L
yitítfitfgiia/kr í lCJérSfi
Bakpoki
Katrín Á. Gísladóttir nr. 12550
Friðfinnur Sigurðsson nr. 17670
Sundtaska og bolur
Jón Á. Hannesson nr. 15037
Reynir K. Sverrisson nr. 12545
Marín H. Magnúsdóttir nr. 17324
Kristjana Þrastardóttir nr. 15826
Bryndís E. Ross nr. 15452
Krakkaklúbbur DV og Kjörís óska
vinningshöfum til hamingju.Vinningarnir
verða sendir í pósti næstu daga.
Þökkum öllum sem tóku þátt kærlega
fyrir þátttökuna.
A Olkelduhálsi
Kattartjörn neöri fram undan. Búrfell í Grímsnesi í baksýn.
MYND ÞÓR
til austurs hjá Dalskarðshnjúk. „Við
völdum leiðina hjá Kiambragili. í
gilinu eru stórskomir klettar sem
gaman er að horfa niður á. I næstu
ferð verður prófað að ganga upp
sjálft gilið milli klettanna," segir
hann.
Mikil litadýrð
í Reykjadal og á Ölkelduhálsi seg-
ir Þór mikið um hveri. Því verði
fólk aö kunna fótum sínum forráð, í
orðsins fyllstu merkingu. Sérstak-
lega þurfi að gæta þess að böm fari
sér ekki að voða
því sums staðar
séu lítið áberandi
göt í jarðvegsþekj-
unni nálægt
göngustígum.
Hann bendir þó á
að ekki megi
gleymast að horfa
í kring um sig og
njóta náttúrunn-
ar. „Á svæðinu er
mikil litadýrð í
jarðmyndunum
og sérstakur gróð-
ur,“ segir hann.
Hæsti hluti
gönguleiðarinnar
er í um 350 m
hæö. Þór kveðst,
ásamt sínu fólki,
hafa farið vestan
viö Álftatjöm eft-
ir lægð sem lítið
sjáist úr. Stór-
kostlegt útsýni
opnist hins vegar
þegar komið sé
móts við Kattar-
tjörn efri því þar
halli landi nokk-
uð bratt til norð-
urs . „Það er afar
fallegt að horfa
um dalinn vestan
við Lakahnúk og
Hrómundartinda.
Einnig yfir Þing-
vallavatn og fjöll-
in norðan við þaö.
Kattartjöm neðri
blasir líka við,
dökkgræn á að
líta með brattan
hamravegg að
austanverðu,"
segir hann og að-
dáunin leynir sér
ekki.
Osýnilegur félagi
Góður áningarstaður er á vestri
bakka Kattartjarnar neðri, að sögn
Þórs. „Þar er ágæt strönd og tilvalið
að leyfa bömum að leika sér meðan
þeir fullorðnu dæsa og bera saman
lýsingar á fótaeymslum eða reyna
að ræða eitthvað áhugaverðara,"
segir hann hlæjandi. „Hundur sem
var með í för skemmti sér hvað best
á þessum stað, kældi sig i vatns-
borðinu og kallaðist á við ósýnileg-
an félaga í hamrinum handan vatns-
ins,“ bætir hann við.
í bakaleiðinni er gengið að Katt-
artjörn efri, austan við Áiftatjörn,
og komið við í Dalaseli við Dal-
skarðshnjúk, snyrtilegum skála í
eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Þór
áminnir fólk um góða umgengni.
„Það er sjálfsögð kurteisi að menn
hirði sitt eigið sorp því öruggt er að
næsti gestur hefur ekki áhuga á
því.“ Úr Dalaseli liggur leiðin niöur
í Reykjadalinn aftur og síðasti fróð-
leiksmolinn frá Þór er: „Þá er um að
gera að skella sér í laugina sem lýst
var áðan. Það er mjög notalegt eftir
gönguna."
-Gun