Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2001
Fréttir r>V
Golfstraumur-
inn aö veikjast
- „engin teikn á lofti“ segir Páll Bergþórsson veðurfræðingur
Reykjanestá
Golfstraumurínr ber hlýjan sjó að ströndum landslns og það verður
byggilegra fyrir vikið.
Samkvæmt rannsóknum norskra,
færeyskra og skoskra vísinda-
manna mun Golfstraumurinn hægja
á sér og kólna á næstu árum og ára-
tugum. Niðurstöðurnar vekja óneit-
anlega ýmsar spumingar um lífs-
skilyrði í og við landið. Eins og
flestum er kunnugt ber Golfstraum-
urinn hlýjan sjó að landinu og hef-
ur mikil áhrif á lífsskilyrðin í hon-
um.
Dregur nlðurstöðurnar í efa
Páll Bergþórsson veðurfræðingur
dregur í efa að Golfstraumurinn sé
að hægja á sér eins og erlendu sér-
fræðingarnir halda fram í grein í
tímaritinu Nature. „Mínar rann-
sóknir benda í þveröfuga átt. Ég hef
reyndar ekki fengið nógu ákveðnar
fregnir af þessu máli en mér skilst
að það sé verið að tala um að kaldi
undirstraumurinn sem kemur að
norðan sé að minnka og þess vegna
hljóti hlýi straumurinn að minnka
líka. Mínar rannsóknir á vindum
sýna aftur á móti að því hlýrra sem
er fyrir norðan okkur því meiri
verður vindurinn sem ber
Golfstrauminn hingað. Ég held því
að þetta verði öfugt við það sem þeir
segja. Það er rétt að ef Golfstraum-
urinn minnkar þá hefur það mjög
slæm áhrif í för með sér en ég hef
aftur á móti litla trú á að það sé að
gerast. Fyrir skömmu heyrði ég
breskan haffræðing segja að það
væru engin teikn á lofti sem bentu
til þess að Golfstraumurinn hefði
minnkað i seinni tíð og það kemur
heim og saman við mínar rannsókn-
ir.“
Þarf að stórefla rannsóknir
Jón Ólafsson, prófessor i hafefna-
fræði við Efnafræðiskor Háskóla ís-
lands, segist ekki draga niðurstöð-
urnar í efa. „Fræðimennirnir eru að
lýsa afleiðingu en ekki orsök þess
að Golfstraumurinn hafi verið að
veikjast og þess vegna er minna
flæði með botninum úr norðurhöf-
um í suðurátt. Þetta er stórskala
fyrirbrigði og menn hafa spáð þvi
að hita- og seltuhringrás Norður-
Atlantshafsins muni veikjast með
vaxandi gróðurhúsaáhrifum. Ég get
aftur á móti ekki spáð fyrir um
hvaða áhrif það hefur hjá okkur,
það fer eftir aðstæðum á hverjum
stað fyrir sig.“
-Kip
Dalabyggð:
Sveitarstjóri
segir upp
Einar M.
Mathiesen.
Sveitarstjórinn í
Dalabyggð, Einar
M. Mathiesen, hef-
ur sagt upp störfum
og hyggst yfirgefa
Dalamenn síðsum-
ars. Uppsagnarbréf
barst sveitarstjórn
fyrir nokkrum dög-
um. Þar segir sveit-
arstjórinn að hann
stefni á meistara-
nám í stjórnsýslufræðum við Há-
skóla íslands og kjósi því að láta af
störfum. Einar er annar sveitar-
stjórinn sem starfar í Dölum á
þessu kjörtimabili. Sá fyrri, Stefán
Jónsson, lét einnig af störfum eftir
tiltölulega skamman tíma.
Sigurður Rúnar Friðjónsson, odd-
viti í Dalabyggð, sagði í samtali við
DV i gær að á næstu dögum yrði
auglýst eftir nýjum sveitarstjóra til
starfa sem hefja þyrfti störf þann 1.
september næstkomandi. -sbs
Geitungabú
Drottningarnar gera sér bú og verpa þar.
Geitungar:
Strætó bs. hækkar gjaldskrána:
Ytir undir verðbólgu
- segir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. „Verðlaun til fastakúnna,“ segir stjórnarformaður
„Þetta er stórpólitísk ákvörð-
un. Allar svona hækkanir vega
þungt í vísitölunni og ýta und-
ir veröbólgu," segir Kjartan
Magnússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks. Hann gagn-
rýnir harðlega fargjaldahækk-
un Strætó bs. sem tekur gildi
nú um mánaðamótin eða á
sama tíma og nýtt sameinað
strætófyrirtæki á höfuðborgar-
svæðinu hefur starfsemi sína.
Gjald fyrir hverja einstaka ferð
með strætisvögnum hækkar úr 150 kr.
í 200 kr. eða um þriðjung. Hver ein-
stök ferö barna yngri en tólf ára
hækkar úr 30 krónum í 50 eða um
66% og 20 miða kort öryrkja
hækkar um sömu prósentu-
tölu eða úr 600 kr. í 1.000. Mest
hækka hins vegar 20 miða kort
unglinga, verð á þeim hækkar
um slétt 100%, fer úr 1.000 kr.
i 2.000. Gjald fyrir Græna kort-
ið svonefnda, sem veitir far-
þegum ótakmarkaðan aðgang
að strætisvögnum í einn mán-
uð, lækkar hins vegar úr 3.900
í 3.700 kr. eða um 5%.
„Mér fínnast þessar hækkanir mjög
sérstakar i því viðkvæma efnahags-
umhverfi sem við erum nú í. Verka-
lýðshreyfing og stjórnvöld hafa hvatt
til varkárni í efnahagsmálum en
meirihlutinn í buigaiayóin
daufheyrist. Hækkar fargjöldin
eins og verðbólga sé komin í
tveggja eða þriggja stafa tölu,“
segir Kjartan og segir fargjalda-
hækkunina koma verst við
börn, öryrkja og ellilífeyris-
þega; þann hóp sem síst skyldi.
Samgöngunefnd borgarinnar
mun koma saman til fundar nú
í morgunsárið og ætlaði Kjart-
an að taka málið þar upp.
Skúli Bjarnason, stjómarformaður
Strætó bs., segir vegið meðaltal hækk-
ananna nú vera um 10% en gjaldskrá
strætisvagna hafi ekki hækkað í tvö
ár. Á þessum tíma hafi kostnaður við
ýmsa þætti 1 rekstri hækkað
mun meira, svo sem trygging-
ar, laun og olíu. „Við erum að
hugsa gjaldskrána alveg upp á
nýtt. Við lækkum til dæmis
Græna kortið og bjóðum
einnig upp á nýjan valkost,
Gula kortið, sem gildir til
tveggja vikna. Þannig erum
við í raun að verðlauna okkar
fastakúnna og reyna með því
að fá fleiri farþega til okkar.
Þá gildir nú einn skiptimiði fyrir ferð-
ir á öllu höfuðborgarsvæöinu sem er
hluti af áherslubreytingunum sem
eiga að miða að því að íjölga farþegum
hjá okkur," segir Skúli. -sbs
Kjartan
Magnússon.
Skúli
Bjarnason.
Veðríð í kvöld
Súld og rigning sunnanlands
Austlæg eða breytileg átt, yfirleitt 5 til 8 m/s.
Skýjað með köflum norðaustan til en skýjað
og víöa súld eöa rigning á sunnan- og
vestanverðu iandinu. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast í
innsveitum norðaustanlands.
Sóiargangur og sjávarföll
mmsm.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag i kvöld 24.03 24.58
Sólarupprás á morgun 02.58 01.34
Síðdegisflóð 20.45 01.18
Árdegisflóð á morgun 09.17 13.50
Skýrlngar á veöurtáknum
J^VINDÁTT "^VINDSTYRKUR 1 metrum á sekúndu 10V-HITI 10°
'FHOST HEIÐSKÍRT
o ö
LETTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ AISKÝJAO
•...v : ©
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
Q & + =
ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Hæg breytileg átt
Breytileg átt og skýjað með köflum
Hæg breytileg átt og skýjað meö köflum en víða dálítil rigning, einkum
sunnan til. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast suðvestan- og noröaustan til.
Vindur:-~^
3-8 m/s
Hití 8° til 18°
€>\
Fimmtu
Vindur:
3-8 m/»
Hiti 8° tii 18°
Fostud
MSb
Vindur:''1-^'1
3-8 <n/»
Híti 8° til 18°
o
Gert er ráð fyrlr hægrl
breytllegri átt. Skýjað
verður með köflum en
dálítll rlgnlng austan tll.
Hæg breytlleg átt blæs um
landsmenn. Skýjað verður
með köflum en dálítil
rignlng austan tll.
Austlæg átt verður
ríkjandi. Dálítll rlgning á
Suðvesturlandi en annars
þurrt að kalla.
Nokkrar tegundir
finnast hér
Þeir sem hafa saknað geitung-
anna í sumar geta tekið gleði sína á
ný því samkvæmt upplýsingum frá
Halldóri Sverrissyni, sérfræðingi
hjá Rannsóknastofnun landbúnað-
arins, má búast við að þeir fari að
láta á sér kræla í lok júlí og byrjun
ágúst. Halldór segir að stærð stofns-
ins ráðist af því hve mörg dýr lifi
veturinn af og hversu mikið hafi
verið um geitunga sumarið áður.
„Það fer yfirleitt ekki að bera á
þeim fyrr en líða fer á sumarið og
þar sem frekar lítið var af geitung-
um í fyrra er líklegt að það verði
ekki mikið af þeim í ár.“ Halldór.
segir að það finnist nokkrar tegund-
ir í landinu en viðkoma þeirra sé
misjöfn. „Annars vil ég helst ekki
vera að fullyrða neitt um hvað það
verður mikið um geitunga í ár, við
sjáum það bara þegar líða fer á sum-
arið og drottningarnar eru búnar að
finna sér hreiður."
-Kip
AKUREYRI alskýjaö 9
BERGSSTAÐIR skýjaö 10
BOLUNGARVÍK léttskýjaö 14
EGILSSTAÐIR 14
KIRKJUBÆJARKL.
KEFLAVÍK súld 10
RAUFARHÖFN léttskýjaö 7
REYKJAVÍK skýjaö 12
STÓRHÖFÐI alskýjaö 9
BERGEN alskýjaö 12
HELSINKI skýjaö 24
KAUPMANNAHÖFN skýjað 20
ÓSLÓ hálfskýjaö 26
STOKKHÓLMUR 23
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 8
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 17
ALGARVE heiöskírt 30
AMSTERDAM skýjað 22
BARCELONA heiöskírt 27
BERLÍN léttskýjaö 18
CHICAGO léttskýjaö 15
DUBLIN skýjaö 20
HALIFAX súld 17
FRANKFURT léttskýjaö 25
HAMBORG alskýjað 14
JAN MAYEN þoka í grennd 5
LONDON heiöskírt 25
LÚXEMBORG heiöskírt 25
MALLORCA heiðskírt 31
MONTREAL alskýjaö 17
NARSSARSSUAQ léttskýjaö 9
NEW YORK skýjaö 20
ORLANDO þokumóöa 22
PARÍS léttskýjað 28
VÍN hálfskýjað 24
WASHINGTON skýjaö 18
WINNIPEG léttskýjaö 17