Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Side 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001
DV
Skotbardagar við landa-
mæri ísraels og Líbanon
Mikill órói hefur veriö á átaka-
svæöum fyrir botni Miðjarðarhafs
yfir helgina, þ.á m. hefur ísraelsher
skotið á skotmörk í Líbanon.
Á fóstudaginn skutu meðlimir úr
skæruliðasamtökum Hizbollah
sprengjum frá bækistöðvum sínum
í Líbanon að tveimur landamæra-
stöðvum ísraela.
Einn hermaður særðist í
árásinni. ísraelar svöruðu fyrir sig i
gær þegar herþotur skutu á loft-
varnarstöð á vegum sýrlenska hers-
ins viö landamæri ísraels og Lí-
banon.
Samkvæmt fréttum særðust þrír í
árásinni, einn líbanskur hermaður
og tveir sýrlenskir. Israelar halda
því fram að sprengjuárásin á föstu-
dag hafi verið gerð með leyfi sýr-
ienska hersins.
Samtök Hizbollah svöruðu
árásinni með skotárásum á stöðvar
ísraelska hersins meðfram landa-
mærunum.
Varnarmálaráðherra Israels,
Binyamin Ben-Eliezer, svaraði að-
spurður að ekki væri hætta á að
þessar skærur gætu þróast út í alls-
Sprengjurnar yfirfarnar
Tveir ísraelskir hermenn gera sprengikúlur reiðubúnar í landamærastöð viö
landamæri ísraels og Líbanon í gær.
herjar stríð. Hann telur að þau lönd
sem liggja kringum ísrael eigi það
sameiginlegt að vilja ekki draga
Mið-austurlönd inn í eitt allsherjar
stríð, ekki einu sinni Sýrland.
Einn 15 ára palestínskur drengur
lést af skotsárum sem hann hlaut á
föstudaginn. Hann var skotinn þeg-
ar hópur palestínskra ungmenna
kastaði grjóti að ísraelskum her-
mönnum.
I gær felldi ísraelsher fimm
Palestínumenn til viðbótar. Tveir
létust í skotbardaga eftir að her-
menn komu að þeim við að koma
fyrir sprengju nærri ísraelskri her-
stöð á Vesturbakkanum. Samkvæmt
fréttum frá fréttastofu Reuter féllu
þrir í viðbót þegar ísraelsk herþyrla
skaut á bíl þeirra. Samkvæmt
palestínskum embættismönnum
voru þeir allir þrir meðlimir Jihad-
samtakanna.
Sami embættismaður sagði þessa
árás sýna fram á það að Sharon hafi
engan áhuga á vopnahléi því er
Bandaríkjastjórn kom í gegn og
stendur enn þrátt fyrir áframhald-
andi átök.
Svíþjóö:
Eldur í ferju
Eldur kom upp í sænskri ferju í
gærkvöldi á leið til Trelleborg í Sví-
þjóð frá þýsku hafnarborginni
Sassnitz.
237 farþegar voru um borð í ferj-
unni, sem er rekin af Scandline, en
engan sakaði.
Ferjan var stödd um 25 sjómílur
suðaustur af Sviðþjóð þegar eldur
kom upp í vélarrúminu. Áhöfn
skipsins tókst að hefta útbreiðlsu
eldsins með því að loka vélarrúm-
inu.
Ferjan átti síðan að sigla til
næstu hafnar annaðhvort með eigin
vélarafli eða í togi.
Mikill viðbúnaöur var vegna elds-
ins. 10 skip og nokkrar þyrlur voru
i viðbragðsstöðu ef rýma þyrfti ferj-
una en til þess kom ekki.
Verktakar,
útgerðarmenn,
bændur og
aðrir
VÍR
“yrí"
LYFTUR
tæki og vélar
Höfum ávallt á lager
ýmsar gerðir víra.
■ Stálvír
■ Kranavír
• Riðfrír vír
Göngum frá endum
í samræmi við óskir
kaupenda.
•
Netagerð
Jóns Holbergssonar ehf
Hjallahraun 11,
220 Hafnarfjörður
sími: 555 4949
Sveittir og olíubornir I tyrkneskri glímu
Hópur fílelfdra tyrkneskra glímukappa fylgist álengdar með átökum félaga sinna á áriegu móti i hefðbundinni tyrk-
neskri glímu sem fram fór í gær. Glíman heitir Kirkpinar og virðist svipa til grísk-rómverskrar fiölbragðaglímu. í Kirkpin-
ar eru keppendur smurðir í olíu sem gerir öll tök mun erfiðari. Rúmlega 900 manns tóku þátt í mótinu.
Átök eftir friðsama
helgi í Makedóníu
Stjórnarher Makedóníu rauf frið-
sama helgi með stórskotaliðs- og
þyrluárásum á svæði í haldi al-
banskra skæruliða í gærkvöldi. Eng-
ar fréttir bárust af mannfaUi eftir
átökin.
Að sögn vitna heyrðist vélbyssu-
skothrið í kringum þorp í fjaUshlíð-
um við bæinn Tetovo, hvar skærulið-
ar ráða ríkjum. Auk þess var faU-
byssum skotið að fjaUaþorpunum.
Einnig sást til tveggja Mi-24-her-
þyrlna fljúga í áttina að þorpinu
Radusa, rétt við landamæri
Makedóníu og Kosovo. Skömmu síð-
ar kváðu við 10 sprengingar. Radusa
er á valdi skæruliða Albana og mik-
ið hefur verið um bardaga í kringum
þorpið síðan átök þjóðarbrotana
hófust fyrir íjórum mánuðum.
Átökin í gær hófust aðeins örfáum
Blóöþyrstir hermenn?
Makedónskur hermaður bendir hér
á að hann kallar sig vampíru.
klukkustundum eftir að James
Pardew, sérlegur sendifulltrúi
Bandaríkjastjómar, lenti í Makedón-
íu tU að vinna að lausn í deilum þjóð-
arbrotanna tveggja. Pardew, sem
vinna mun með Francois Leotard,
sendifulltrúa Evrópusambandsins,
hvatti leiðtoga samsteypustjórnar
Makedóníu, sem i sitja bæði fuUtrúar
meirihluta Slava og minnihluta Al-
bana, til að stöðva ofbeldið og hefla
viðræður þegar í stað. Hann sagði að
pólitísk lausn væri eina lausnin til
að koma í veg fyrir að átökin leystust
upp í aUsherjar borgarastyrjöld.
Vestræn stjórnvöld hafa gagnrýnt
albanska skæruliða fyrir að nota
vopnaða baráttu til að ná fram mark-
miðum sínum. Þau hafa einnig gagn-
rýnt makedónsk stjórnvöld fyrir
hörð viðbrögö.
Móðgaöi samflokksmenn
Michael Ancram,
frambjóðandi til
leiðtoga íhalds-
flokksins breska,
hefur ásakaö keppi-
naut sinn, Kenneth
Clarke, um að hafa
móðgað samflokks-
menn sína með um-
mælum þess efnis að flokkurinn
þyrfti að takast á við sársaukafuUar
staðreyndir um flokkinn undir
stjórn WiUiams Hague undanfarin
fjögur ár.
Átta þúsund strandaðir
Verkfall rútubílstjóra á sólar-
strandareyjunni Mallorca olli því að
um 8000 manns voru strandaglópar
á flugvellinum í Parma. Ástæðan er
sú að flugi hefur verið seinkað
vegna skorts á fólksflutningum til
og frá flugvellinum. VerkfaUið náði
einnig til eyjanna Ibiza og Menorca
sem liggja nærri MaUorca.
Úti um Kyoto-sáttmálann
Junichiro Koizumi, forsætisráð-
herra Japans, og George W. Bush
Bandaríkjaforseti hittust um helg-
ina. Deilumál þjóðanna fengu enga
lausn. Japan hefur hins vegar
ákveðið að fylgja Bandaríkjunum í
að samþykkja ekki Kyoto-sáttmál-
ann. Það gott sem gerir út af við
sáttmálann.
Olíuframleiðsla sú sama
AðUdarríki OPEC hafa ákveðið
að auka ekki olíuframleiðslu þrátt
fyrir að írak hætti sínum út-
flutningi.
Cheney ferskur
Talskona vara-
forseta Bandaríkj-
anna, Dick Cheney,
sagði fjölmiðlum í
gær að Cheney liði
vel eftir aðgerð þar
sem hjartagangráð-
ur var settur i
hann. Búist var við
Cheney í vinnu í dag.
írak gagnrýnir framsal
Yfirvöld i trak sendu í gær frá sér
yfirlýsingu þar sem framsal
júgóslavneskra yfirvalda á Slobodan
Milosevic er fordæmt á þeim for-
sendum að raunverulegir stríðs-
glæpamenn eins og Ariel Sharon
gangi lausum hala.
11 falla í átökum
11 stjórnarhermenn í Yemen féUu
í skotbardaga við hermenn ættbálka
á föstudaginn.
Pinochet á spítala
Augusto Pinochet,
fyrrverandi einræð-
isherra Chile, var
fluttur í skyndi á
sjúkrahús í gærdag
vegna vandamála
tengdum blóðþrýst-
ingi. Pinochet þjáist
einnig af elliglöpum
og sykursýki og hefur fengið tvö
slög.
Hvetur til friðarviðræðna
Jóhannes Páll páfi II hvatti í gær-
dag stríðandi fylkingar stjómvalda
og skæruliða Tamíla á Srí Lanka til
að hefja friðarviðræður og binda
enda á nærri tveggja áratuga vopn-
aðar erjur.