Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Side 25
MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001
DV
37
Hátíð á Hólum:
Ráðherra
mætti við
útskrift
reiðkenn-
ara
DV, SKAGAFIRÐI: ~
„Þetta kom svo sannarlega á
óvart. Ég átti ekki von á að ná
tveimur verðlaunagripum fyrir ár-
angurinn í prófunum," sagði Þór-
arinn Eymundsson frá Saurbæ í
Skagafirði eftir að hann útskrifað-
ist sem reiðkennari frá Hólum í
Hjaltadal á dögunum. Þórarinn var
einn sex nemenda sem luku reið-
kennaraprófi í vor og varð hæstur
með 8,7 í einkunn og fékk til eign-
ar verðlaunagrip frá Morgunblað-
inu. Hann fékk einnig afhentan
farandgrip frá Landssambandi
hestamanna fyrir að ná hæstu ein-
kunn fyrir reiðkennslu 9,0. Þá fékk
Guðmar Þór Pétursson úr Reykja-
vík veglegan farandgrip frá versl-
uninni Ástund en hann hlaut
hæstu einkunn fyrir reiðmennsku
8,4.
Það var mikið um dýrðir á Hólum
í tilefni af útskrift reiðkennaranna.
Landbúnaðarráðherra og forsvars-
menn hestamennsku i landinu voru
mættir á staðinn í afbragðsgóðu
veðri. Þeir og aðrir gestir urðu vitni
að frábærri sýningu reiðkennara-
efnanna sem vakti verulega athygli
viðstaddra. Kennsla á reiðkennara-
braut hófst eftir áramótin og voru
aðalkennarar þeir Eyjólfur ísólfsson
og Anton Níelsson og fengu þeir
blóm frá nemendum við lokaathöfn-
ina. Einnig var Atli Guðmundsson
eina viku i hverjum mánuði og
kenndi á Hólum. Þetta var í fjórða
skiptið sem reiðkennslubraut er
starfrækt við Hólaskóla. -ÖÞ
DV-MYND ÖRN ÞÖRARINSSON
Tveir ánægöir viö útskrift
Guömar Þór Pétursson til vinstri
meö Ástundarhestinn og Þórarinn
Eymundsson meö farandgrip frá
Landssambandi hestamanna og
Morgunblaösstyttuna.
Heimsskauts-
löndin unaðs-
legu í Gimli
I gær, á þjóðhátíðardegi Kanada,
var sýningin Heimsskautslöndin
unaðslegu: Arfleifö Vilhjálms Stef-
ánssonar opnuð í New Iceland
Heritage Museum í Gimli í Mani-
toba. Við opnunina fluttu meðal
annars ávörp dr. Jón Haukur Ingi-
mundarson frá Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar og Neil Bardal, kjör-
ræðismaður íslands í Gimli. Gimli
er fyrsti viðkomustaður sýningar-
innar erlendis en á næstu árum
verður hún sett upp víðar í Kanada,
og einnig 1 Bandaríkjunum, Dan-
mörku og Finnlandi. Sýningin er
samstarfsverkefni Stofnunar Vil-
hjálms Stefánssonar og Dartmouth-
háskóla í Hanover, New Hampshire
í Bandaríkjunum.
Tilvera
Útskriftarhópur Snyrtiskóla íslands
Birna Pála Rúnarsdóttir, Berglind Kristjánsdóttir, Bryndís Guömundsdóttir og
Hulda Rún Rúnarsdóttir. Snyrtiskóli íslands er eini einkarekni snyrtiskólinn á
landinu. Hann hefur hlotiö viöurkenningu frá menntamálaráöuneytinu og
Lánasjóöur íslenskra námsmanna lánar fyrir náminu.
Til sölu er 46 fermetra sumarbústaður ásamt 2,6 ha eignarlóð við
Gíslholtsvatn í Holta- og Landsveit. Aðeins um 1 klst. akstur frá
Reykjavík. Dásamlegt útsýni, sem ekkert jafnast á við, yfir
Gíslholtsvatn og fjallahringinn, Heklu og Eyjafjallajökul. Mikil
gróðursæld, hundruð hárra trjáa, þinglýstur veiðiréttur er í
Gíslholtsvatni að þeim hluta er tilheyrir landstærð. Ágæt silungs-
og bleikjuveiði er í Gíslholtsvatni. Tryggðu þér þennan bústað og
njóttu náttúrunnar í faðmi fjölskyldunnar.Verð 5,8 millj.Fasteignasalan
Bakki, SelfossiSími 482-4000
Smáauglýsing ÍDV
ER FYRSTA SKREFID...
Hringdu núna í síma 5505000 eða skráðu inn smáauglýsíngu á WÍSÍI".
SllflJttfíÍí
Við auglýstum
sófann og
unnumferðfyrir
tvo til London!!!
I SUMAR DRÖCUM VIÐ ÚT
GLÆSILEGA VINNINGA
í HVERRI VIKU
' Ferðir tH Loncton með tagfargjaldaBttgféiagintj Go
' Grundiq útvarpsklukka frá Sjóm/arpsmiðstóðinni
' Oli/mpus stafraen myndavél frá Bræðrunum Ormsson
• United ferúatækí frá Sjónvarpsmidstöðmni
' Tasco kikir frá Sjonvarpsmiðstóðinni
' OUjmpus díktafónn frá Sjónvarpsmiðstöðinni
' Beko 21 tommu sjónvarp med nikam, textavarpi
og veggfestingu frá Brxðrunum Ormsson
Sjónvarpsmiðstöðin
t • ximi m mi • muji