Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2001, Blaðsíða 6
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2001
Fréttir
DV
Hörð andstaða við hugmyndum um sameiningu skóla á Selfossi:
Skólabákni mótmælt
- ekki ástæða til mótmæla, segir forseti bæjarstjórnar
„Okkur finnst að stefnt sé að því
að búa til allt of stórt bákn með
sameiningu skólanna. Við höldum
að það verði nemendum ekki til
góðs, því hvor skóli fyrir sig hefur
nokkra sérstöðu og okkur finnst að
þeir megi fá að halda henni,“ sagði
Hulda Finnlaugsdóttir, kennari í
Sandvíkurskóla á Selfossi, við DV.
Um 40 kennarar og starfsfólk
grunnskólanna á Selfossi afhentu
forsvarsmönnum Árborgar í fyrra-
dag samþykkt fjölmenns fundar
starfsfólksins þar sem lýst er furðu
yfir frétt í Sunnlenska fréttablaðinu
28. júní. Þar er haft eftir forseta bæj-
arstjórnar Árborgar að grunnskól-
arnir á Selfossi, sem nú eru tveir,
verði sameinaðir í einn á hausti
komanda. Samkvæmt fréttinni er
undirbúningsvinnan í fullum gangi
og fram kemur að stefnt sé að því að
sameiningin komi til framkvæmda
stuttu eftir skólabyrjun í haust.
Vinnustaður í 12 húsum
Vinnubrögð bæjarstjórnar í þessu
máli vekur furðu starfsmanna skól-
anna, ekkert samráð hefur verið
haft við skólastjórnendur eða annað
starfsliö eftir að skóla lauk í vor. Þá
er minnt á að kennarar lýstu and-
stöðu sinni við sameiningu skól-
anna síðastliðinn vetur eftir að
skýrsla KHÍ, „Athugun á megin-
DV-MYNDIR NJORÐUR HELGASON
Starfsfólkið motmælir
Frá mótmælum kennara og annars starfsliös skótanna viö ráöhús Árborgar í fyrradag. Helgi Helgason, staögengill
bæjarstjóra, tók viö mótmælum starfsmanna skólanna tveggja.
Njörður Helgason
blaöamaöur
kostum varðandi skólabyggingar á
Selfossi", var kynnt. Starfsfólkið
bendir á að með sameiningunni
verði til alltof stór eining, 850 nem-
enda skóli eða um það bil 1.000
manna vinnustaður á stað þar sem
er sífelld fjölgun íbúa. Með þessu
yrði til einn stærsti grunnskóli
landsins.
Starfsfólk skólans segir ljóst að
torvelt yrði fyrir einn skólastjóra að
hafa góða yfirsýn yfir starfsemi í
sliku bákni sem auk þess yrði rekið
í tólf húsum. Starfsfólkið telur að
ekki hafi verið sýnt fram á fjárhags-
legan ávinning af sameiningu skól-
anna. Enda geti skólastarfið ekki
snúist um fjárhagslegan ávinning
einvörðungu, heldur fyrst og fremst
um velferð og menntun nemend-
anna. Að lokum segir starfsfólkið í
áskorun sinni að eðlilegra hefði ver-
ið fyrir bæjarstjórnina að beina
sjónum sínum að lausn húsnæðis-
vanda skólanna sem nú þegar
sé mjög mikill, sameining
skólanna leysi ekki þann
vanda.
Sérstaða nauðsynleg
Með þeirri fólksfjölgun sem
hefur verið á undanfómum
árum á Árborgarsvæðinu hef-
ur þrengt verulega að nem-
endum í skólum sveitarfélags-
ins Árborgar á Selfossi. Þar
hefur engan veginn tekist að halda í
við fólksfjölgunina í uppbyggingu
skólahúsnæðis. Er ekki líklegt að
með sameiningu skólanna verði
hægt að koma nemendunum fyrir á
betri hátt?
„Nei, alls ekki með þessari ráð-
stöfun, það rýmkar ekki innan
veggja skólanna, vegna þess að það
er svo þétt setið í öllum bekkjar-
deildum beggja skólanna. Það er
ekki einu sinni pláss fyrir allar
bekkjardeildir á komandi hausti.
Menn eru þegar farnir að tala um
þær hugmyndir að keyra eina
fyrstubekkjardeildina austur í Þing-
borgarskóla til að koma henni í
hús,“ sagði Hulda.
Öflugri einingar
Skólarnir tveir á Selfossi hafa
verið aðgreindir heildstæðir skólar
siðastliðin fimm ár. Áður voru þeir
aðgreindir eftir aldri, börn að 13 ára
voru í Barnaskólanum og ungling-
arnir í Gagnfræðaskólanum. Hulda
lítur svo á að með því
að hafa þá aðgreinda
heildstæða skóla verði
einingarnar öflugri og
sjálfstæði þeirra verði
þeim hvatning til að
standa sig betur í sam-
keppni um góðan
námsárangur.
Hulda Finn- ->Ég á börn 1 báðum Kristján
laugsdóttir. skólunum og sé ekkert Einarsson.
að því að það sé met-
ingur á milli skólanna. Á meðan
börnin eru viss um að þeirra skóli
sé betri, hlýtur sá metnaður þeirra
að sýna okkur foreldrum að skól-
arnir eru að skila góðu starfi, sinn í
hvoru lagi,“ sagði Hulda Finnlaugs-
dóttir kennari á Selfossi.
„Þetta mál er spólað upp í Sunn-
lenska fréttablaðinu síðastliðinn
fimmtudag. Það er enn ekki farið að
ræða þessi mál formlega í bæjar-
stjórninni. Sunnlenska segir satt
með að við séum að byrja að ræða
þessi mál, en blaðið setti það fram
að við ætluðum að sameina skólana.
Það er ekki satt. Fræðslustjóri Ár-
borgar hefur erindi um uppsögn
skólastjóra Sólvallaskóla á sínu
borði. Hann á eftir að tala við okk-
ur um þá stöðu og við eigum eftir að
ræða um hugsanlega sameiningu
skólanna. Sunnlenska var heldur
fljótt á sér í þessum fréttaflutningi,"
sagði Kristján Einarsson, forseti
bæjarstjórnar Árborgar, við DV í
fyrrakvöld.
Kristján segir að enn sé
ekki búið að auglýsa eftir
skólastjóra Sandvíkurskóla
en Óli Þ. Guðbjartsson,
skólastjóri skólans, sagði
starfi sínu lausu eftir að
skóla lauk í vor.
„Við eigum eftir að koma
saman og ræða þessi mál.
Þarna eru einhverjir að
taka völdin í sínar hendur
og velta þessum málum
fyrir sér og jafnvel að mótmæla
einhverju sem við í bæjarstjórn-
inni vitum ekki einu sinni um.
Það hefur enginn úr þessum mót-
mælendahópi rætt við okkur bæj-
arfulltrúana um þessi mál., -eng-
inn,“ segir Kristján. Hann segir
að skólanefnd Árborgar hafi ekki
fjallað um þessi mál.
„Menn hafa hlaupið eitthvað
heldur hratt í þessu máli. Nú eiga
menn að gefa bæjarstjórninni
tækifæri á að ræða málin áður en
þeir fara að taka þau í sínar
hendur og mótmæla því sem við
vitum ekki einu sinni hvað er,“
sagði Kristján Einarsson forseti
bæjarstjórnar Árborgar.
í Sunnlenska fréttablaðinu
kemur fram að umrædd grein
sem valdið hefur uppnámi í skól-
um á Selfossi hafi verið unnin í
fullu samráði við Kristján Einars-
son og lesin fyrir hann án athuga-
semda áður en hún birtist.
Loðnuskipin fylltu
sig við Halann
- Víkingur landar á Akranesi, Elliði í Bolungarvík
DV, AKRANESI:
Ágætis loðnu-
veiði hefur verið í
grennd við Hala-
mið út af Vest-
fjörðum frá því á
þriðjudag. HB-
skipin Víkingur
og Elliði fylltu sig
í fyrrinótt en auk
þeirra fylltu nokk-
ur önnur sig á
miðunum. Víking-
ur landaði á Akra-
urleið. Útlitið
fyrir sumar-
loðnuveiðina er
því þokkalegt i
augnablikinu
því reynsla er
fyrir ágætum
sumarvertiðum
þegar loðnan fer
dv-mynd daníel v. óufsson norður á bóginn
Velgengni i átt að Jan
Skip Haraldar Böövarsson hafa fiskaö Mayen í ætisleit.
vel aö undanförnu. Ef loðnan fer
hins vegar suð-
nesi í fyrrakvöld en Elliði i Bolung-
arvík í fyrradag. Köstin voru mis-
stór, Víkingur tók 1.350 tonn í 10
köstum.
Talsvert af loðnu virðist vera á
svæðinu og sýndist hún vera á norð-
ur á bóginn má búast við að hún
lendi í hlýrri sjó og þar af leiðandi í
sultu, eins og sumir kalla marglytt-
una, sem gerir það að verkum að lít-
ið verður úr veiðinni.
-DVÓ/STH
Úlfur, úlfur í sauðahjörð Mývetninga:
Heimamorðin reynd-
ust hnakkaslátrun
Komið hefur á dag-
inn að meintur
sauðaþjófnaður í Mý-
vatnssveit tengist
ekki fimm kinda-
hræjum sem fundust
á Hólasandi fyrir
skömmu. Þetta stað-
festi lögreglan á
Húsavík í samtali við
DV en margar sam-
særiskenningar hafa
verið á lofti um mál-
iö.
Hóiasandur
Rollurnar voru agn fyrir tófur.
Talið var að dýrunum hefði verið
heimaslátrað, kjötið skorið burt og
þau síðan skilin eftir á sandinum
fjarri alfaraleið. Hið rétta er sam-
kvæmt rannsókn lögreglunnar að
kindurnar voru skotnar af fag-
manni á sláturhúsi
en einhver hluti
hræjanna siðan
skilinn eftir á sand-
inum sem agn fyrir
tófur. Það mun hafa
verið áhugamaður
um tófuveiðar sem
það gerði og er
hann ekki úr Mý-
vatnssveit. „Þau
voru hnakkaskotin
dýrin á faglegan
hátt,“ sagði lögreglumaöur á Húsa-
vík í samtali við DV.
Þaö eina sem eftir stendur er
óupplýst hvarf nokkurra lamba úr
eyjum í Mývatni en enginn er grun-
aður vegna þeirra mála og hafa eng-
ar yfirheyrslur átt sér stað. -BÞ
Umsjðn: Björn Þorláksson
Hvíl í friöi
Og meira af Sunnlendingum. Eft-
ir síðustu sukkhelgi landans hafa
Árnesingar komist að þvi að á
þeirra lög-
gæslusvæði er I
eitt
„harðsvírasta"
lögreglulið I
landsins. Stór
hluti liðsins er
á þeim aldri að |
það er undan-
þegið nætur-
vöktum. Fram I
kom hjá varðstjóra Selfosslöggu að
nokkrir væru í veikindaleyfi og því
gætu þeir ekki sinnt störfum sín-
um. Því þykir best fyrir heimafólk
í Árnessýslunni að breiða upp fyrir
haus þegar lýðurinn flæðir um hér-
uð með flösku í hendi. Að minnsta
kosti sé lítil von til þess að kemp-
urnar af elliheimili lögreglunnar á
Selfossi mæti á staðinn, a.m.k. ekki
þeir af hjúkrunardeildinni...
Koss dauðans?
Sagt er að menn forðist það eins
og heitan eldinn að láta Guðna
Ágústsson landbúnaðarráðherra
koma nálægt
vígsluathöfn-
um og stórum
ákvörðunum.
Menn telja að
! það hafi sýnt
sig að slíkt
boði ekki
gæfu. Ráðherra
var viðstaddur
gangsetningu
kjötmjölsverksmiðjunnar í Flóa í
haust og át þar afurðir hennar. Þar
hefur allt gengið á afturfótunum
síðan. Ráðherrann var á fóðurgang-
inum og kyssti kú þegar leyfi á
innflutning norskra fósturvisa var
kynnt. Siðan hefur hvorki gengið
né rekið í þeim málum ...
Pollamótiö
Nú er hafið Pollamót á Akureyri,
þar sem þroskaðir karlmenn hóp-
ast saman í fótbolta og gera sér
glaðan,
dag. í'
fyrsta
skipti er
einnig
boðið upp
á kvenna-
fótbolta
sem er
tímanna
tákn og hafa flestir fagnað þeirri
ákvörðun. Til að vera „polli" þarf
viðkomandi að vera þrítugur að
aldri eða meira en þetta vita ekki
allir eins og þekkt dæmi úr fjöl-
miðlunum sannar. Þá var ónefndur
fréttamaður Bylgjunnar að segja
fréttir af þessu móti og hafði litla
þekkingu af mótshaldinu. Akureyr-
ingum brá í brún þegar fréttamað-
urinn kallaði mótið Pollamótið með
„blautu 1-i eins og mótið væri
kennt við drullupolla. Hins vegar
má til sanns vegar færa að það
blotni í margri íþróttakempunni
milli leikja ...
Kláraöist áöan
Sunnlendingar ku ekki vera allt
of hressir með þjónustu Kaupfélags
Árnesinga undanfarið og hefur ver-
ið kvartað
undan
verðlagi
og litlu
vöruúr-
vali. Sum-
ir hafa
gengið svo
langt að
segja að
KÁ standi
fyrir
Kláraðist áðan, svo lítið sé aö finna
í búðinni.
Hörður Valdimarsson, hagyrð-
ingur frá Höfn, orti eftirfarandi
limru um búðarferð sína og sonar:
Ég vagaói í verslun með snáóann
mig vantar nú sitthvað, mér tjáði hann
en þetta ei skil
það er ekkert til
i búóinni Kláraóist áóan.