Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2001, Page 10
10
Útlönd
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2001
I>V
Grænfriðungar
Samtökin hvetja áströlsk stjórnvöld
til að staðfesta Kyoto-sáttmálann.
Kyoto-sáttmálinn
enn lamaður
Sendinefnd á vegum Evrópusam-
bandsins tókst ekki að sannfæra
áströlsk yfirvöld um að staðfesta
Kyoto-umhverfissáttmálann. Yfir-
völd í Ástraliu telja að sáttmálinn
sé ómerkt plagg ef Bandaríkin taka
ekki þátt í aðgerðunum og vilja því
halda að sér höndum.
Evrópusambandið hefur reynt að
fá sem flest lönd til að staðfesta sátt-
málann en telja að sú tilraun sé
smám saman að renna út í sandinn,
sérstaklega eftir neitun Ástrala.
Japanar hafa einnig gefið í skyn að
þeir vUji ekkert aðhafast án þess að
reyna að semja Bandaríkin aftur
inn í sáttmálann. Sendinefnd Evr-
ópusambandsins mun halda til við-
ræðna við japönsk stjórnvöld á
mánudaginn.
Andlát tengd
orkudrykk
í frétt í sænska blaðinu Afton-
bladet segir að þrjú dauðsföll í Sví-
þjóð séu nú tengd orkudrykknum
Red Bull. I öllum tilvikum er um að
ræða unga menn.
Að mati lækna létustu tveir eftir
að hafa blandað saman áfengi og
orkudrykknum. Þriðji maðurinn,
sem sagður er hafa verið vel þjálfað-
ur líkamlega, drakk margar dósir af
drykknum eftir æfingar.
Læknar segja ekki fullsannað
samband milli drykksins, meiri
rannsóknir eigi eftir að fara fram.
Þeir vara hins vegar sérstaklega við
því að blanda saman orkudrykkjum
og áfengi. Umboðsmaður Red Bull í
Svíþjóð vísar ásökunum á bug sem
hreinum uppspuna.
Red Bull er ólöglegur bæði í Nor-
egi og Danmörku.
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eignum veröur háð á þeim sjálf-
______um sem hér seglr:_____
Kjarrhólmi 38,4. hæð B, þingl. eig. Jónas
Þröstur Guðmundsson, gerðarbeiðendur
ibúðalánasjóður og Sýslumaðurinn í
Kópavogi, þriðjudaginn 10. júlí 2001 kl.
15.00.
Vatnsendablettur 139, þingl. eig. Gunnar
Richter, gerðarbeiðandi Kópavogsbær,
þriðjudaginn 10. júlí 2001 kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Fjarðarbraut 41, Stöðvarfirði, þingl. eig.
Kaupfélag Stöðfirðinga, gerðarbeiðendur
Eimskip innanlands hf. og Samskip hf.,
mánudaginn 9. júlí 2001 kl. 14.30.
Mýrargata 25, Neskaupstað, þingl. eig.
Herbert Jónsson, gerðarbeiðandi Ibúða-
lánasjóður, mánudaginn 9. júlí 2001 kl.
11.00._______
SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI
Japan:
Bandarískur her-
maður framseldur
Stjórnvöld í Bandaríkjunum
ákváðu í morgun að framselja
Timothy Woodland, liðþjálfa í
bandaríska flughernum, til jap-
anskra yfirvalda. Woodland, sem er
í herstöðinni í Okinawa, er grunað-
ur um að hafa nauðgað rúmlega tví-
tugri japanskri konu sem býr á eyj-
unni.
Nauðgunin átti sér stað síðasta
föstudag. Konan kærði strax atburð-
inn. Samkvæmt hennar lýsingum
og annarra vitna var það svartur út-
lendingur sem var þar að verki. Eft-
ir yfirheyrslur hjá japönsku lögregl-
unni síðustu viku neitar Woodland
öllum ásökunum um nauðgun.
Hann viðurkennir að hafa haft sam-
farir við konuna með hennar sam-
þykki.
íbúar eyjarinnar Okinawa eru
ævareiðir yfir glæpnum sem er ekki
sá fyrsti sem bandarískir hermenn
fremja á eynni. Árið 1995 voru þrír
bandarískir hermenn sem staðsettir
Herstöövarandstæðingur
Vera bandarískrar herstöðvar á Ok-
inawa mætir aukinni andstöðu.
voru á Okinawa ákærðir fyrir að
nauðga 12 ára telpu. Andstæðingar
fara fram á það herstöðin verði
minnkuö. Hún tekur upp um 20% af
landi á Okinawa. Önnur krafa er að
bandarískir hermenn séu ávallt
framseldir ef þeir fremja glæpi á
japanskri grund. Sérstakt sam-
komulag er milli Japana og Banda-
ríkjamanna um að þeir síðarnefndu
þurfi ekki að framselja hermenn
sem gerast sekir um glæpi áður en
ákæra er gefin út.
Woodland er annar hermaðurinn
sem er framseldur án þess að ákæra
hafi komið til. Hinn tvítugi
Terrence Swanson var framseldur
árið 1996 fyrir morðtilraun á jap-
anskri konu.
Bandarísk yfirvöld hafa verið
treg til þessa hingað til. Talið er að
þar spili inn í 95% sakfelling í
japönskum dómstólum og sögusagn-
ir um miskunnarlausar yfirheyrslu-
aðferðir japönsku lögreglunnar.
Gamaldags aöferöir aö gefa eftir
Þessar indónesísku konur vefja hér sígarettur í verksmiöju sígarettuframleiðandans Gudang Garam, þess stærsta í
Indónesíu. Fyrirtækið, sem er stærsti framleiðandi sígarettna með sterkri negullykt, kallaðar kreteks, er sagt eiga í
sömu vandræöum og þessar konur, að laga sig að nútímanum og tækninni sem hann býður upp á.
Annan fordæmir
skipuleg launmorð
Kofi Annan, aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, fordæmir ákvörðun
ríkisstjórnar Israels að leggja aukna
áherslu á skipuleg launmorð á leið-
togum hreyfinga Palestínumanna.
Annan sagði stefnu ísraela setja
friðarferlið i Mið-Austurlöndum í
hættu, auk þess sem hún bryti í
bága við alþjóðalög. „Það er ekki
um neitt annað að velja en pólitíska
lausn í deilunni á milli ísraela og
Palestinumanna," sagði í skriflegri
yfirlýsingu frá Annan.
Colin Powell utanríkisráðherra
ítrekaði í gær andstöðu Bandaríkja-
manna við skipuleg launmorð ísra-
ela.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Israels, lauk Evrópuferð sinni í gær.
Hann hitti að máli Jacques Chirac
Sharon og Schröder
Hittust í gær. Gagnrýni Schröders
var tempruð vegna fortíðar Þjóöverja
og gyðinga.
Frakklandsforseta og Gerhard
Schröder, kanslara Þýskalands.
Sharon varði stefnu sína meö kjafti
og klóm og sagði ísraela hafa fullan
rétt til þess að verja sig. Laun-
morðastefnuna hefur hann einmitt
kallað „virka sjálfsvörn". Schröder
hvatti Sharon til að sýna sveigjan-
leika í landnemamálum. Hann bætti
þvi við að þetta væri aðeins vin-
gjarnlegt ráð til ísraelsmanna, á
engan hátt beiðni eða krafa.
ísraelskur hermaður skaut
Palestínumann í brjóstið í gær, þar
sem hann spilaði knattpymu nærri
ísraelskri landnemabyggð. Talsmað-
ur landsnemabyggðarinnar sagði
hermenn hafa skotið á Palestínu-
mennina eftir að skotið hafði verið
á landnemabyggðina.
Skipar nýjan FBI-sjóra
Bush Banda-
ríkjaforseti sagðist
í gær ætla að til-
nefna lögfræðing-
inn Robert Mueller
yfirmann Banda-
rísku alríkislög-
reglunnar, FBI. Ef
Öldungadeild
Bandaríkjaþings
staðfestir tilnefninguna mun Muell-
er stjórna FBI næstu tíu ár.
Byssuríkir Norðmenn
Fyrsta úttektin á byssueign Norð-
manna var birt í gær. 1,5 milljónir
skotvopna eru í landinu, um 0,8 á
hvert heimili. Til samanburðar eru
þau 1,9 í Bandaríkjunum.
Sjálfboðaliöar í löggæslu
Yfirvöld í Lagos, stærstu borg Ní-
geríu, ætla að skipa vopnaða sjálf-
boðaliðasveit til að berjast gegn vax-
andi glæpum í borginni. 12 hafa ver-
ið drepnir í vopnuðum ránum í
þessari viku.
Fossett reynir aftur
Bandaríski milljónamæringurinn
Steve Fossett ætlar að gera sína
sjöttu tilraun til að verða fyrstur í
einstaklingsflugi í loftbelg kringum
jörðina. Næsta flugtak verður 25.
júlí í Ástralíu.
35 þúsund föngum sleppt
Úkraínska þingið samþykkti í
gær að sleppa 35 þúsund manns úr
fangelsum landsins. Þeir fangar sem
fá náðun voru ekki kærðir fyrir of-
beldisglæpi, auk þess sem konum
verður sleppt.
Nýr forsætisráðherra
Saddam Hussein,
forseti íraks, til-
nefndi í gær Ah-
med Hussein
Khudayyir sem
nýjan aöstoöarfor-
sætisráðherra
íraks. Saddam
sjálfur er bæði for-
seti og forsætisráð-
herra íraks. Þrír aðstoðar-forsætis-
ráðherrar eru nú starfandi í írak.
Bakaði flugelda
Karlmaður í Kansansborg í
Bandaríkjunum sprengdi eigið eld-
hús þegar hann hitaði mat sinn í
fyrradag. Félagi hans hafði falið
flugelda í ofninum.
Biður um viröingu
Hugo Chavez,
forseti Venesúela,
hvatti aðrar þjóð-
ir til að reyna að
skilja og virða
stjórnarhætti
hans. Chavez
þykir stefna hrað-
byri í einræöi en
hann segir aö-
gerðir sinar
nauðsynlegar til að rétta við kjör al-
mennings.
Kvittun fyrir gísla
Tveir gíslar sem múslímskir upp-
reisnarmenn á Filippseyjum slepptu
gegn lausnargjaldi á dögunum
fengu kvittun fyrir frelsi sínu.
Skæruliðarnir létu þeim í té afrit af
ljósmynd af þeim sem stimplað var
„greitt" aftan á.