Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2001, Blaðsíða 9
9
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 _________________________________________________________________________________
X>V Fréttir
Samband meðalþyngdar þorsks og loðnumagns hefur ruglast:
Uppbygging þorskstofnsins
ekki samkvæmt áætlun
- en hrun stofnsins kemur ekki til greina
Stofninn ekki í útrýmingarhættu
Uppbygging þorskstofnsins hefur ekki gengiö eftir meö þeim hætti sem ætl-
ast var til en Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræöingur segir aö hrun stofnsins
komi ekki til greina.
Einar Júlíusson, dósent við sjávar-
útvegsdeild Háskólans á Akureyri, seg-
ir í DV á miðvikudag að framreikning-
ar sem aflaregla þorskstofns byggi á
séu fráleitir þar sem þorskstofn næsta
árs hafi verið ofmetinn og sóknin í
hann vanmetin
undantekningar-
laust sl. 22 ár. í
ástandsskýrslu
Hafró sé stofhinn
að stækka, líka
þegar stofnmæl-
ingin sýni að hann
sé að minnka. Ein-
ar spyr hver beri
ábyrgð á þeirri vit-
leysu. 240 þúsund
tonna sókn í
þorskstofninn hér við land sé allt of
mikil, fimmfóld kjörsókn, útrýmingar-
sókn. Hún sé viðurstyggileg villi-
mennska, hámark heimskunnar og
efnahagslegt sjálfsmorð. Hafrann-
sóknastofnun verði að fmna reiknivill-
una, leiðrétta stofnreikningana og
draga aflamarkstillögu sina til baka.
Annars blasi hrun þorskstofnsins við.
Leyfilegur heildarafli þorsks á fisk-
veiðiárinu 2001/2002 er 190.000 tonn.
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðing-
ur hjá Hafrannsóknastofnun, segir það
ljóst að miðað við upplýsingar tveggja
síðustu ára virðist uppbygging þorsk-
stofnsins ekki hafa gengið eftir með
þeim hætti sem ætlast var til og búist
var við. Hjálmar segir það ansi djúpt í
árina tekið að segja að stofninn sé
kominn í útrýmingarhættu en hann
hafi hins vegar ekki kynnt sér nægjan-
lega vel útreikninga Einars en fljótt á
litið fari hann ekki rétt með opinberar
tölur, sem birst hafa m.a. í skýrslu Haf-
rannsóknastofnunar, og einnig að
hægt sé að leika sér með tölur að vild.
„Það hefur sitthvað verið að gerast í
umhverfmu og hafmu á sl. þremur
árum og áhrifin frá Atlantssjó hafa
aukist mikið en hann er selturikari og
hlýrri fyrir sunnan land en sést hefur
síðan fýrir 1965. Þessara áhrifa gætir
einnig fyrir norðan og austan land. Öll
skil á mótum kalds og hlýs sjávar fær-
ast fjær og verða ógreinilegri, fiskur
verður dreifðari, og tegund eins og
þorskur heldur sig meira upp í sjó. Viö
það minnkar veiðanleikinn. Það hefur
einnig haft áhrif á hegðunarmynstur
tegunda að það nána samband sem
verið hefur milli meðalþyngdar aldurs-
flokka í þorskstofninum og loðnu-
magns ruglast. Það hefúr passað mjög
iila sl. tvö ár. Fimm til átta ára þorsk-
ur er því léttari en búist var við miðað
Hjálmar
Vilhjálmsson,
fiskifræöingur.
Goði stefnir í greiðslustöðvun:
Heimamenn á Hellu vilja
kaupa stórgripasláturhúsið
Goði mun á næstu dögum fara
fram á greiðslustöðvun til að rétta
reksturinn af eftir að kjötvinnsla
fyrirtækins var seld norður til Ak-
ureyrar til Norðlenska. Fullyrt er
að fyrirtækið sé ekki að fara í gjald-
þrot. Aðalfundur Goða var haldinn
síðdegis á miðvikudag. Kristinn Þór
Geirsson, framkvæmdastjóri félags-
ins, sagði aöspurður að allar rekstr-
arforsendur yrðu endurskoðaðar og
með hvaða hætti hægt væri að
bjóða þá sláturstarfsemi sem fyrir-
huguð væri. Goði hyggst ekki kaupa
kjöt af bændum en bjóða slátrun
sauðfjár í verktöku. Þar er nú lítil
sem engin starfsemi þar sem bænd-
ur treysta sér almennt ekki til að
leggja inn sauðfé til slátrunar án
þess að fá greitt fyrir kjötinnleggið.
Eftir að starfsemi kjötvinnslunnar
er farin norður verður um helming-
DV-MYND BRINK
Goöi fundar
Frá aöalfundi Goöa í
Reykjavík í gær.
ur starfsmanna eftir hjá Goða, þ.e.
sá starfsmannafjöldi sem er þar
utan sauðfjársláturtíðar.
Óli Már Aronsson, oddviti Rang-
árvallahrepps, segir að rekstur
Goða sé í mikilli lægð og fyrirtæk-
inu veiti ekki af að selja eignir til að
grynna á skuldum. Sveitarstjórn
Rangárvallahrepps hefur gert fyrir-
spurn um það hvort stórgripaslátur-
hús Goða á Hellu væri til sölu og
hvatt til þess að það verði selt, hafi
einhverjir áhuga.
„Það er verið að þreifa á einhverj-
um aðilum um að sameinast um
kaupin en það er okkur hér gríðar-
lega mikilvægt að það verði rekið
áfram. Það hefur verið rekið hér í
35 ár og er aö veita um 15 manns at-
vinnu og ef það hættir starfsemi til
viðbótar við þær hugmyndir um að
kjúklingabúið Reykjagarður fari í
Mosfellsbæ er þessi staða okkur
ekki mjög hugnanleg. Búnaðarbank-
inn er með eignarhald á Reykja-
garði og er að skoða málið. Það er
einnig leiðinleg tilhugsun ef ekki
verður neitt stórgripasláturhús á
Suðurlandi, þar sem 40% af allri
mjólkurframleiðslu landsmanna
er,“ segir oddviti Rangárvalla-
hrepps. -GG
við gott ástand loðnustofnsins sömu ár
auk þess sem dreifmg loðnunnar hefur
einnig breyst. Þetta er þó ekkert hrun
í meðalþyngd en ekkert bendir til þess
að þorskstofninn sé lítill, þá þyrfti
hann minna að éta þó aðgengi hans
hafi minnkað að loðnu.
Hrun þorskstofnsins kemur því ekki
til greina og þetta ástand var þekkt um
langt árabil fram að 1965 frá því um
1920 en um miðjan sjöunda áratuginn
fór haflð að kólna mjög mikið. Sú kóln-
um hrakti m.a. norsku síldina héðan.
Ef menn lenda í þeirri stöðu að telja að
stofh sem verið er að reyna að byggja
upp sé á öfugri leið, þá á að gera eitt-
hvað í þeim málum og ekki ýta þeim
upplýsingum til hliðar sem ómarktæk-
um. Og það er verið að taka á þessum
málum,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur. -GG
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík og
Aðalskipulagi Reykjavíkur
1996 - 2016,
varðandi lóðina nr. 38 við Suðurhlíð í
Fossvogi (fyrrum lóð Landgræðslusjóðs).
í samræmi við 1. mgr. 21. gr. og 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er
hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á
deiliskipulagi og Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996 -
2016, varðandi lóðina nr. 38 við Suðurhlíð í Fossvogi
(fyrrum lóð Landgræðslusjóðs).
Aðalskipulagstillagan gerir ráð fyrir að landnotkun
lóðarinnar breytist úr stofnanasvæði í íbúðasvæði.
Deiliskipulagstillagan gerir m.a. ráð fyrir að núverandi
byggingar á lóðinni verði fjarlægðar. Lóðin stækki
lítillega í austur og suður og henni verði skipt upp í
tvær lóðir. Á vestari Ióðinni verði ekki heimilt að
byggja en á austari lóðinni verði heimilt að byggja um
5100fm íbúðarhús með um 50 íbúðum auk
bílakjallara. Húsið verði á allt að þremur hæðum með
inndreginni fjórðu hæð.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og
byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga
kl. 10.00 - 16.00 frá 20. júlí til 17. ágúst 2001. Þeir
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á að kynna sér tillögurnar og koma með
ábendingar og gera athugasemdir við þær.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 31. ágúst 2001.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 20. júlí 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur
Formaður Landssamtaka sauðfjárbænda:
Ósáttur við skoðun framkvæmda-
stjórans á sauðfjárræktinni
Aðalsteinn Jónsson á
Klausturseli á Jökifldal,
formaður Landssamtaka
sauðfjárbænda, sá enga
ástæðu til þess að sitja að-
alfund Goða; hafði raunar
ekki haft mikinn áhuga á
því þar sem framkvæmda-
stjórinn, Kristinn Þór
Geirsson, haföi verið með
skitkast að undanfömu út
í sauðfjárræktina, og jafn-
vel sagt að það væri gjald-
þrota atvinnugrein. Áhætta fyrir-
tækisins væri fólgin í því kaupa af-
urðir af sauöfjárbændum og þurfa
Aðalsteinn Jóns-
son, bóndi á
Klausturseli.
að borga fyrir það.
Þarf að borga með sauð-
fjárræktinni í dag?
„Framkvæmdastjórinn
gaf það nú ekki í skyn held-
ur að þetta væri taprekstur
sem ekki væri hægt að eiga
endalaust viðskipti við. Það
undrar mig ekki að bændur
forðist að slátra hjá fyrir-
tæki, og það aðeins í verk-
töku, ef þetta er almennt
viðhorf forsvarsmanna þess
til sauðfjárræktarinnar," segir Að-
alsteinn Jónsson.
-GG
Skemmtistaður
Strandgötu 53
Stórdansleikur *
föstudags- og laugardagskvöld
Hin frábæra hljómsveit
Þúsöld
T
Tökum að okkur veislur fyrir
ýmis tiiefni (hópa og fyrirtæki) -
stórir og litlir veislusalir.
r
r
i
Odd-vitinn • pub-skemmtistaður • Strandgata 53 • Akureyri • Simi 462 6020 • GSM 867 4069